Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 18

Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 ÞETTA GERÐIST 31. JAN. Páfi til Brazilíu Brazilía, 30. jan., AP. J ÓHANNES Páll páfi II hefur þegiö boð um að koma í opinbera heimsókn til Brazilíu, fjölmennasta kaþólikkaríkis í heimi, að þvi er stjórn Braziliu gerði heyrum kunn- ugt í dag. Dagsetning var ekki birt, en gert ráð fyrir að páfi verði á ferðinni um miðjan júlí. Mjög mikill áhugi er um þvera og endi- langa Brazilíu á páfaheimsókninni og vonast menn til að hann fari um sem víðast. Brezki landsstjórinn í Rhodesíu, Soames lávarður, sést hér á tali við tvo fyrrverandi skæruliða Njósnamálið í Japan: Y arnar máladeildin fær ekki leyniskjöl Andófsmaðurinn Batter kominn í leit- irnar sjúkur og sár VínarborK, 25. jan., AP. T ÉKKNESKI andófsmaðurinn Rudolf Battek, sem ekkert hefur spurzt til síðustu fimm daga, mun hafa komið til Prag i dag, sjúkur af kalsárum og þreytu. Hann var tekinn til yfirheyrslu 25. janúar og hvarf síðan. Ásamt honum var yfirheyrður Ivan Kyncl, sonur fyrrverandi fréttaritara í Washington. Báðir mennirnir skrif- uðu undir Charter 77 og hafa látið að sér kveða í baráttu fyrir mann- ré'ttindum í Tekkóslóvakíu. Sósial- istaflokkur Austurríkis sendi í gær áskorun til tékknesku stjórnarinnar um að skýra frá því hvar Battek væri niðurkominn. Bretadrottning í hjú- skaparmiðlunarhug? London 30. jan. AP. SÚ tilkynning um að Elísabet Bretadrottning muni sækja heim Jóhannes Pál páfa II í október þessa árs, hefur á ný vakið upp áfjáðar hugleiðingar í Bretlandi þess efnis að Bretadrottning ætli að þreifa fyrir sér i Páfagarði, hvort þar sé litið svo á að hugsanlegur _gæti orðið ráðahagur milli Karls krónprins, sonar hennar og Maríu Astríðar prinsessu af Luxemburg, en prinsessan er kaþólskrar trúar. Daily Mail vakti athygli á því að alveg nýverið hefði faðir prinsessunnar stórhertoginn gengið á fund páfa. Væntanlegur erkibiskup af Kantara- borg Robert Runchie hefur sagt að hann muni ekki leggjast gegn “blandaðri giftingu“ krónprins Englands. Orðrómur um samdrátt milli Bretaprins og Luxemburgarprinsessu hefur skotið upp kollinum öðru hverju síðustu þrjú ár. Fyrrum hermálaráðunautur sovéska sendiráðsins í Tokyo, Yuri Kozlov, fékk hernaðarleyndarmál og skjöl frá Miyanaga, fyrrum hershöfðingja í japanska hernum. Með honum störfuðu tveir starfs- menn varnarmáladeildarinnar. Miyanaga veitti Sovétmönnum leynilegar upplýsingar um skipu- lag varna Kínverja við sovésku landamærin. Jafnframt þessu veitti hann Sovétmönnum, að því er talið er, upplýsingar um varnir Japana á Hokkaido, hinni nyrstu af hinum stóru eyjum Japans. Þá er talið að hann hafi veitt Sovét- mönnum upplýsingar um varnar- Stöðvar Bandaríkjamanna á Oki- nawa. Samkomulag innan EBE um fiskveiðar ríkjanna Heildarveiðimagn innan fiskveiðilögsögu rikjanna ákveðið 4,2 milljónir tonna Briis.sels, 30. janúar. AP. Sjávarútvegsráðherrar ríkja Efnahagsbandalags Evrópu hafa komið sér saman um heildarfisk- veiðikvóta innan fiskveiðilögsögu ríkjanna fyrir árið 1980. Miðjarð- arhafið er undanskilið. Heildar- magn sem veiða má á árinu er 4,2 milljónir tonna. Þetta er í fyrsta sinn, sem ríkin hafa getað komið sér saman um heildarfiskveiði- kvóta. Hins vegar er búist við hörðum deilum um skiptingu kvótans í ljósi fyrri deilna ríkjanna. Sjö af ríkjum EBE standa að samkomulaginu. Þau eru Bretland, írland, Belgía, Hol- land, Frakkland, V-Þýzkaland og Danmörk. „Nú er eftir að yfirstíga erfiðasta hjallann," sagði Buchanan Smith, aðstoðarsj ávarútvegsráðherra Breta, um skiptingu kvótans. Fram- kvæmdanefnd EBE mun á næstu vikum ræða við ríkisstjórnir EBBi- ríkjanna um skiptingu kvótans. í samkomulagi ríkjanna er gert ráð fyrir eftirliti með veiðum til að tryggja að veiðimagnið fari ekki fram úr heildarkvótanum. Sam- komulagið nær til 30 fisktegunda. 1974 — Farþegaþota PanAm fórst á Samoaeyjum með 95 af 101 um borð. 1971 — Þrír geimfarar fara til tunglsins með Apollo 14. 1962 — Utanríkisráðherrar Ameríkuríkja útiloka Kúbu frá þátttöku í málum Vesturheims. 1958 — Fyrsta bandaríska gervihnettinum, Explorer I, skotið upp. 1957 — Lagningu olíuleiðslunn- ar frá Abadan til Teheran lýkur. 1950 — Truman forseti fyrir- skipar smíði vetnissprengju. 1943 — Uppgjöf Þjóðverja við Stalíngrad. 1928 — Leon Trotsky vísað úr landi í Sovétríkjunum. 1917 — Þjóðverjar taka upp ótakmarkaðan kafbátahernað. 1891 — Borgarastríð í Chile. 1884 — Rússar taka Merv af amírnum í Afganistan. 1858 — „Great Eastern“ hleypt af stokkunum. 1606 — Guy Fawkes tekinn af lífi fyrir samsæri á Englandi. 1596 — Stríði bandalags kaþ- ólskra Frakka gegn mótmælend- um lýkur með Folpmbray-tilsk- ipununum. 1578 — Orrustan um Gem- bloux:Ósigur Hollendinga. 1504 — Lyons-samningurinn: Frakkar láta Napoli af hendi við Spánverja. Afmæli. Franz Schubert, aust- urrískt tónskáld (1797—1828) — Norman Mailer, bandarískur rit- höfundur (1923 - -) — Anna Pavlova, rússnésk dansmær (1885—1931) — Carol Channing, bandarísk leikkona (1921 - -). Andlát. 1933 John Galsworthy, rithöfundur. Innlent. 1926 Fyrsta útvarps- sending á Islandi — 1522 Sveins- staðafundur — 1719 d. Þormóður Torfason — 1133 d. Þorlákur bp Runólfsson — 1889 d. Guðbrand- ur Vigfússon prófessor í Oxford — 1881 Póstskipið „Phönix" ferst við Snæfellsnes — 1935 Mjólkurverkfall — 1937 Fyrsta íslenzka svifflugan reynd — 1951 „Glitfaxi" ferst — 1966 Eigna- tjón í fárviðri um allt land — 1973 Fundur forsætisráðherra Norðurlanda í Reykjavík — 1979 Póstrán í Sandgerði — 1958 d. Páll Hermannsson alþm. Orð dagsins. Menn verða að klífa fjallið ef þeir vilja virða fyrir sér flatlendið — Kínversk- ur málsháttur. Literaturnaya Gazeta um Sakharov: Fúllyndur háskólaborg- ari, liðhlaupi og svikari Moskvu, 30. janúar. AP. VIKURITIÐ Literaturnaya Gaz- eta hrakyrti í dag andófsmanninn Andrei Sakharov í grein sem birt var í þessu sovézka menningar- riti. Sagði í greininni að Sakh- arov væri „fúllyndur háskóla- borgari“, „liðhlaupi og svikari“ sem heföi leitt stórmikinn skaða yfir meðbræður sina. „í tíu ár hefur Sakharov verið að ófrægja sovézku þjóðina og allt hefur hans tal verið vatn á myllu endurskoðunarsinna og öfgaafla Vesturlanda. Nú hafa þessi öfl verið svipt meginuppsprettu sinni varðandi upplýsingaútvegun, sem hefur komið frá miklum sérfræð- ingi í andsovézku níði — manni sem útvegaði þessum öflum alla svívirðu um Sovétríkin sem hægt er að hugsa sér. Blaðið sagði að loks hefði þolin- mæði stjórnvalda þrotið og Sakh- arov hefði verið sjálfdæmdur í útlegð frá Moskvu. „Þeir sem halda uppi vörnum fyrir Sakharov láta sig engu skipta rétt sovézku þjóð- arinnar, sem lengi hefur krafizt þess að bundinn yrði endir á þennan andsovézka áróður rógber- ans og stöðvuð bein aðild hans í að þyrla upp hernaðarlegum geðæs- ingum — sem beinast allar gegn hans eigin þjóð,“ sagði í bók- menntaritinu. Veður Akureyri -5 skýjaó Amsterdam 5 skýjaó Aþena 13 heióskírt Barcelona 12 þokumóóa Berlín 3 rigning BrUasel 7 rigning Chicago -9 skýjaó Dublin 11 heiöskírt Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt 3 skýjaó Genl 5 skýjaö Helsinki 5 heíóskírt Hong Kong 13 skýjaó Jerúsalem 8 heiðskírt Jóhannesarborg 25 heiðekírt Kaupmannahöfn 0 snjókoma Kairó 15 heióskirt Las Palmas 18 léttskýjaó Lissabon 15 skýjaó London 10 skýjað Los Angeles 15 rigning Madrid 11 skýjaó Malaga 15 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjaó Miami 23 skýjað Montreal 11 bjart Moskva -19 bjart Nýja Dehli 21 bjart New York 1 bjart Ósló -6 bjart París 10 skýjaó Reykjavík -2 skýjaó Rio de Janeiro 32 bjart Rómaborg 13 rigníng San Francisco 10 bjart Stokkhólmur -4 skýjaó Tel Avív 16 heióskírt Tókýó 9 rigning Tokyo, 30. janúar. AP. JAPANSKA utanríkis- ráðuneytið hefur ákveðið að láta ekki af hendi hern- aðarleyndarmál við jap- önsku varnarmáladeild- ina, sem er deild innan utanríkisráðuneytisins. Jafnframt þessu mun jap- anska stjórnin senda Sov- étmönnum harðorða mót- mælayfirlýsingu vegna njósnamálsins í Japan að því er japönsk blöð skýrðu frá í dag. Japanska blaðið The Times, sem gefið er út á ensku, hafði eftir heimildum í utanríkisráðuneytinu að allt upplýsingastreymi yrði stöðvað þar til varnarmáladeildin gerði ráðstafanir til að koma í veg fyrir leka. „Þetta gildir þar til við erum vissir um, að hernaðarleynd- armál fari ekki beinustu leið til Sovétríkjanna," hafði blaðið eftir ónáfngreindum embættismanni. ERLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.