Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 Eyjaráðstefnan: Frá hinni fjolsóttu Eyjaráóstcfnu. „Þessi erfiða staða er bein afleiðing eldgossins og erf- iðleika útvegsins síðan“ YFIR tuttugu framsögu- menn voru á Eyjaráðstefn- unni í Vestmannaeyjum um síðustu helgi og voru þar ræddir fjölmargir þættir í málefnum Eyj- anna, sérstaklega þar sem um er að ræða erfiðleika eftir gos. Hér fer á eftir erindi Halldórs Guðbjarna- sonar bankastjóra í Eyjum: Að auka skilning og þekkingu Þegar forgöngumaður þessarar ráðstefnu fór þess á leit við mig, að ég héldi hér smá framsöguerindi um peningamál og tengd málefni, var ég í fyrstu ekki viss hverju svara skyldi. Ýmsar ástæður voru fyrir því, að ég var ekkert of fús til starfsins, t.d. þær, að ég áleit að umræður hér, um jafn viðkvæm mál og þessi blessuðu peningamál virðast alltaf vera, myndu engan vanda leysa og ekkert minnka þá óréttmætu gagnrýni sem Útvegs- bankinn hefur svo gjarnan orðið fyrir á undanförnum árum, og sem ég mun síðar víkja nánar að. En að íhuguðu máli féllst ég þó á að mæta hér og ræða nokkuð um þátt peningamála í hinum daglega rekstri Eyjanna og um hlutverk og stöðu Útvegsbankans í þessum málum. Rétt er að það komi hér fram, að það sem öðru fremur réð þessari ákvörðun minni eru þau viðbrögð sem ég hef orðið var við að undanförnu hjá aðilum, þar sem ég hef mætt á fundi til að ræða á opinskáan hátt þessi sömu málefni. Þau viðbrögð hafa undantekn- ingarlaust verið á þann veg að menn hafa lýst ánægju sinni með umræðurnar, og hafa talið sig skilja betur á eftir þau vandamál sem sífellt er verið að kljást við í peningamálunum. En það sem ég vil sérstaklega undirstrika er, að þessir aðilar hafa jafnframt lýst skilningi sínum á erfiðleikunum og talið sig betur upplýsta um þessi mál, til að geta vinsað sannleikann úr þeim sögusögnum um peninga- mál sem sífellt ganga hér um bæinn og venjulega allar uppá sömu bókina. Ég áleit því, að með umræðum um þessi mál á opinber- um vettvangi, svo langt sem um þau er hægt að ræða, yrði hægt að uppræta ýmsan misskilning hjá mönnum og jafnframt á fljótvirkan hátt hægt að upplýsa stöðu þessara mála í sem stærstum dráttum. Þar sem þetta erindi mitt fjallar aðallega um hlutverk og stöðu Útvegsbankans í peningamálum Vestmannaeyja, þykir mér rétt að víkja í fyrstu að forvera Útvegs- bankans, uppruna og mótun og koma síðan að ýmsum þeim þáttum sem síðar hafa skipt bankann miklu máli og þá ekki síst Vest- mannaeyinga. Sjálfstætt fyrirtæki með ríkisábyrgð Eins og ykkur er sjálfsagt kunn- ugt um, er Útvegsbankinn einn þriggja ríkisbanka á íslandi. Hinir eru Landsbankinn og Búnaðar- bankinn. Svo gerð sé nánari grein fyrir orðinu ríkisbanki þá er bankastofnunum á íslandi gjarnan skipt í þrennt, ríkisbanka, einka- banka og sparisjóði. Megin munur þessara stofnana má segja að sé sá, að ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum ríkisbankanna, en hjá einkabönkunum og sparisjóð- unum eru það einungis eignir þeirra sem tryggja skuldbindingar þeirra. Að vísu hafa sparisjóðirnir með sér sameiginlegan trygg- ingarsjóð, en til skamms tíma var sá sjóður til frekar lítils megnugur til að mæta einhverjum áföllum sem kynnu að verða hjá þessum stofnunum. Það má því segja, að á meðan ríkið fer ekki á hausinn þá fara ríkisbankarnir það ekki held- ur. Öðru máli gegnir um þá síðar- nefndu. Þær stofnanir lúta sama lögmáli og almenn hluta- og sam- eignarfélög. Það er rétt að skjóta því hér inn, til að fyrirbyggja allan misskilning, að þótt ríkissjóður standi á bakvið ríkisbankana þá ber að sjálfsögðu að reka þá eins og hvert annað sjálfstætt fyrirtæki og að þeir geta sem slíkir teflt stöðu sinni og sjálfstæði í hættu ef ekki er að gáð. Útvegsbankinn af grunni íslandsbanka fyrir hálfri öld Árið 1903 var íslandsbanki h/f stofnsettur og tók til starfa ári — segir Halldór Guðbjarnason bankastjóriút- vegsbanka ís- lands í Vest- mannaeyjum síðar. Mikið hafði áður gengið á í pólitíkinni og voru mjög skiptar skoðanir meðal ráðamanna þá, hvort nauðsyn væri á nýjum banka. Samtímis því að bankinn tók til starfa voru stofnsett 3 útibú frá honum, á Akureyri, Isafirði, og á Seyðisfirði. Síðar, eða 1919 var svo útibú frá honum opnað hér í Vestmannaeyjum. Á þessum tíma má ætla, að meginhluti viðskipta landsmanna hafi verið viðskipti vegna sjávarútvegs, enda byggðist afkoma landsmanna þá sennilega miklu meira á sjávarútvegi en hún gerir nú, þrátt fyrir að þessi atvinnugrein sé ennþá aðal mátt- arstólpi íslensks þjóðfélags og sú atvinnugrein sem líf fólks hér í Vestmannaeyjum byggist algjör- lega á. Svo löng saga sé gerð stutt, þá lenti Islandsbanki síðar í svo miklum erfiðleikum, að hann varð gjaldþrota árið 1930. Sama ár var Útvegsbankinn stofnsettur, nánar tiltekið með lögum frá 11. marz og reis hann á rústum hins fallna bánka. Það má því með sanni segja, að Útvegsbankinn sé beint fram- hald af starfsemi íslandsbanka, enda tók hann við allri þeirri starfsemi sem hann hafði áður haft, og þá að sjálfsögðu öllum útibúum, hans. Rétt er að benda mönnum á til gamans, að þann 11. marz n.k. verður Útvegsbankinn hálfrar aldar gamall. Halldór Guðbjarnason Bakhjarl sjávar- útvegsviðskipta I lögum um Útvegsbankann frá 1961 segir svo. „Hlutverk bankans er að reka hvers konar bankavið- skipti, styðja sjávarútveg, iðnað og verslun landsmanna og greiða fyrir fjármálaviðskiptum þeirra er stunda þessar atvinnugreinar". Á þessari skilgreiningu laganna sést, þótt þess misskilnings gæti oft, að bankanum er ekkert frekar ætlað að sinna sjávarútvegi fremur en iönaði og verslun, enda þótt nafn hans gæti gefið annað til kynna. En við stofnun bankans hafa þau viðskipti sem bankinn tók við frá íslandsbanka líklega fyrst og fremst verið sjávarútvegsviðskipti, og hefur það síðan orðið hlutskipti hans að þjóna þessari atvinnugrein öðrum fremur. En ýmsar skýringar er þó til á því, hvers vegna bankinn hefur ekki með árunum smám saman minnkað hlutdeild sína í þessum viðskiptum á kostnað ann- arra viðskipta sem jafnframt hefði stuðlað að auknu jafnvægi í rekstri hans og sterkari stöðu eins og gefur að skilja. Víkjum að þessu örfáum orðum. Öll þau útibú sem bankinn tók við og stofnsetti voru á þessúm tímum í stærstu fiskveiðibæjum landsins, ísafirði, Siglufirði, Seyð- isfirði, Vestmannaeyjum og Kefla- vík að ógleymdri Reykjavík. Enda þótt einhver verslunar- og iðnað- arviðskipti hafi átt sér stað úti á landsbyggðinni, þá hefur það verið sáralítið miðað við sjávarútvegs- viðskiptin. í Reykjavík hefur þessu verið öðruvísi farið, enda atvinnu- vegaskiptingin þar fjölbreyttari en úti á landsbyggðinni. Það er líka staðreynd, að Útvegsbankinn í Reykjavík hafði geysimikil við- skipti við verslunina og aðrar þjónustugreinar á þessum tíma. En síðan tekur sá ófögnuður að gerast, að hver bankinn á fætur öðrum er stofnaður og allt eru þetta bankar sem ætlað er að þjóna öðrum atvinnugreinum en sjávarútvegi. Þetta varð til þess, að þessir bankar tóku sinn skerf af þeim bönkum sem fyrir voru en það voru ríkisbankarnir þrír, en að mestu lenti þetta þó á Útvegsbankanum og Landsbankanum, þar sem Bún- aðarbankinn var á þessum tíma ekki orðinn sá banki sem hann er í dag. En þar sem Landsbankinn, sem aðal banki þjóðarinnar, var miklu öflugri banki en Útvegs- bankinn, mátti hann betur við þessum breytingum og varð því ekki jafn illa úti og Útvegsbankinn vegna þessa. Síðar meir, þegar kapphlaupið um útibúin hófst, fylgdi bankinn ekki með í þeirri endaleysu og hefur æ síðan orðið að gjalda þess. Furða að sjóðir sjáv- arútvegsins eru ekki í Útvegsbankanum Einn þátt er rétt að minnast á sem verulegu máli hefur skipt fyrir Útvegsbankann og Landsbankann einnig. Það er ávöxtun sjóða sjáv- arútvegsins og í Seðlabankanum. Hér á ég við Stofnfjársjóð fiski- skipa, Verðjöfnunarsjóð og Afla- tryggingarsjóð. Þessir sjóðir eru myndaðir með skattlagningu á sjávarafurðir og skyldusparnaði útgerðarinnar. En það furðulega er að þessir fjármunir eru ekki varð- veittir í þeim bönkum sem þó aðstoða við sköpun þeirra heldur í Seðlabanka Islands. Til að menn geri sér í hugarlund hvað hér er átt við, þá eru þessir fjármunir ekki mældir í milljónum króna heldur milljörðum króna. Þetta eru í sem fæstum orðum þeir megin þættir sem ég tel að hafi orsakað það að bankinn hafi um of bundist við- skiptum við sjávarútveg sem svo á síðari tímum hafa sífellt orðið þyngri og erfiðari bánkanum. Útibú bankans eru öll staðsett í sjávarútvegsplássum víða um land- ið og frá þeim skyldum verður ekki hlaupið að fjármagna þessa undir- stöðuatvinnugrein þjóðarbúsins. Nýir bankar hafa verið stofnaðir, ekki til að sinna sjávarútvegi heldur öllum öðrum atvinnugrein- um sem segja má að hafi framfæri sitt af sjávarútvegi, og taka þar með hin léttari og jafnvel betri viðskipti frá bankanum og með árunum hefur það fé, sem með skattlagningu og sparnaðarskyldu er lagt á sjávarútveg verið flutt frá bankanum og til Seðlabankans og þar með dregið úr getu bankans og möguleikum til fjölbreyttari og betri þjónustu á tímum harðrar samkeppni um sparifé þjóðarinnar. Hlutdeild sjávarút- vegs í útlánum úr 51% í 81% á 7 árum Hér að undan hef ég í stórum dráttum farið yfir sögu Útvegs- bankans, forvera hans, stofnun ög mótun. Ætla ég nú að víkja nánar að starfsemi bankans hér í Vest- mannaeyjum og ýmsum málum þeim tengdum. — Segja má að hlutverk útibúsins hér sé tvíþætt. í fyrsta lagí að sinna því meginverk- efni að fjármagna undirstöðuat- vinnuveg byggðarlagsins, sjávar- útveginn, og í öðru lagi að fjár- magna allar aðrar lánsbeiðnir svo sem til iðnaðar, verslunar, bæjar- málefna, samgöngumála, þjónustu og einkaneyslu. Þáttur sjávarútvegsins í starf- semi útibúsins hefur verið og er að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.