Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 + Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN JONSSON, vélstjóri, Ránargötu 1A, andaöist aö heimili sínu þriöjudaginn 29. janúar. Fanney Guömundsdóttir og synir. Móðir okkar + LÍNEIK ÁRNADÓTTIR, húsfreyja í Ögri, frá Ögurkirkju sem andaðist 25. janúar veröur jarösungin þriöjudaginn 5. febrúar. Börnin. + Hjartkær sonur minn, bróöir okkar og frændi, OLAFUR K. SIGURÐSSON, leigubílstjóri, Njálsgötu 48A, andaöist á Landspítalanum 26. janúar. Jarðarförin fer fram föstudaginn 1. febrúar kl. 10.30 frá Fossvogskirkju. Jónína Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurösson, Guðmundur Sigurösson, Kristjana Gunnarsdóttir, Jóna Conway, Steinar Guðmundsson, Siguröur Guömundsson og frændsystkin. Eiginmaöur minn SIGURGEIR BORGFJORD ÁSBJÖRNSSON, fyrrv. yfirtollvöröur, er andaöist þann 23. janúar s.l. veröur jarðsunginn frá Háteigskirkju, föstudaginn 1. febrúar kl. 10.30 f.h. Blóm eru afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Minningargjafasjóö Landspítalans. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Þóra Þóröardóttir. + Útför móður okkar MATTHILDAR ÁRNADÓTTUR, frá Pátursey í Mýrdal, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 1. febrúar kl. 3. Júlíus, Gunnar og Ingþór Jónssynir. + Konan mín GUÐRÚN GUDMUNDSDÓTTIR, Glæsistöðum, veröur jarösungin laugardaginn 2. febrúar frá Akureyrarkirkju. Athöfnin hefst meö bæn aö heimili hennar kl. 13.30. Ferö veröur frá Umferðarmiöstööinni, sama dag kl. 10.30. Anton Þorvaröarson. + Eiglnmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, BJÖRN GUÐMUNDSSON, frá Bæ, Jaóarsbraut 39, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju, laugardaginn 2. febrúar kl. 11.15 f.h. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness. Sigrún Björnsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför SIGURÐAR JÚLÍUSSONAR, Dalbraut 29, Akranesi, verður gerð frá Akraneskirkju, laugardaginn 2. febrúar kl. 2 e.h. Blóm og kransar afbeöin. Þeim sem vildu bent á Sjúkrahús Akraness. minnast hins látna er Hallgrímur Sigurösson, Fjóla Siguröardóttir, Samúel Olafsson, Guöný Siguröardóttir, Hallgrímur Ólafsson, Birna Siguröardóttir Amman, Delos Amman, Páll Gunnar Sigurösson, og barnabörn. Fríöa Frímannsdóttir Svavar Armanns- son - Minningarorð Fæddur 28. mars 1921 Dáinn 27. janúar 1980 Enn hefur maðurinn með ljáinn brugðið brandi sínum og lagt að velli góðan dreng langt um aldur fram. Enn hefur verið höggvið skarð í fjölskylduna frá Geitagili í Örlygshöfn og gerast þau nú tíð höggin í þann knérunn. Sunnudaginn 27. janúar s.l. and- aðist Svavar Armannsson, fyrrv. hótelstjóri að Bjarkarlundi, tæp- lega sextugur að aldri. Andlát hans kom kunnugum kannski ekki mjög á óvart, þar sem hann hafði um nokkurt skeið átt við þungbær veikindi að stríða. En alltaf finnst okkur þó dauðinn koma á óvart, því með okkur blundar ávallt vonin um að lífið sigri. Svavar var fæddur 28. mars 1921 að Geitagili í Rauðasands- hreppi. Foreldrar hans voru hjón- in Bryndís Guðjónsdóttir, Bjarna- sonar, bónda og trésmiðs að Geitagili, og Ármann Guðfreðs- son, trésmiður, er um áratugi var starfsmaður Vífilsstaðahælis. Þau eru bæði látin fyrir allmörgum árum. Foreldrar Svavars slitu samvistum, þegar hann var barn að aldri og ólst hann upp hjá móður sinni og síðari manni hennar, Guðbjarti Egilssyni, verslunarmanni. Að loknu barnaskólanámi byrj- aði Svavar að vinna fyrir sér, því færri voru tækifærin til menntun- ar þá en nú. Framan af starfaði hann aðallega að verslunarstörf- um en þegar hann var kominn nokkuð á þrítugsaldur lærði hann málaraiðn og stundaði þau störf í nokkur ár. Síðar lá leið hans á sjóinn og gerðist hann matsveinn á fiskiskipum, aðallega frá Vest- fjörðum. Úpp úr því starfi gerðist Svavar hótelstjóri í Bjarkarlundi og gegndi því starfi frá 1966 til 1978. Óhætt er að fullyrða, að það var ekki blind tilviljun, sem réð því að Svavar tókst á hendur það verk- efni að stýra hótelinu í Bjarkar- lundi. Guðbjartur Egilsson, fóstri hans, hafði þá um allmörg ár verið helsti forvígismaður Barðstrend- ingafélagsins, sem átti og rak hótelið. Það fór því ekki hjá því að Svavar kæmist í kynni við þann sterka félagsanda, sem ríkjandi var í þeim félagsskap. Hann vissi því vel að hverju hann gekk. Hér var ekki um að ræða velbúið hótel eða ríkmannleg salarkynni, heldur flest til vanbúnaðar þeirri starf- semi, sem þar var rekin. Það þurfti því nokkurt áræði til að takst á við vandann, en Svavar hafði hvort tveggja, áræðið og viljann til að leysa verkefnið eftir bestu föngum, og kom sér þá vel sá eiginleiki hans að spyrja ekki, hváð hótelstjóri ætti að gera, heldur hvað þyrfti að gera til að starfsemin gæti gengið. Svavar Ármannsson var einarð- ur maður og sagði meiningu sína umbúðalaust. Hann gat verið nokkuð hvatur í orði en undir niðri bjó viðkvæm lund, sem reiðubúin var að rétta öðrum hjálparhönd. Eins og áður sagði starfaði Svavar í Bjarkarlundi í 14 sumur. Nú að leiðarlokum vil ég fyrir hönd Barðstrendingafélagsins í Reykjavík og Gests h.f. þakka honum störf hans í þágu þessara félaga og um leið sendum við systkinum hans og fósturföður dýpstu samúðarkveðjur. Vikar Davíðsson. Svavar Ármannsson, fyrrver- andi hótelstjóri í Bjarkarlundi, andaðist á Landspítalanum 27. janúar sl. eftir erfiða legu. Hann kenndi þess meins, sem nú hefir orðið honum að aldurtila, síðast- liðið sumar og gekk skömmu síðar undir erfiðan uppskurð, en brátt varð séð að hverju dró, svo að andlát hans nú kom ekki ættingj- um hans og vinum á óvart. Eftir hartnær fjörutíu ára vin- áttu er mér ljúft og skylt að minnast hans nokkrum orðum. Svavar var fæddur á Geitagili í Örlygshöfn við Patreksfjörð 28. mars 1921 og voru foreldrar hans hjónin Bryndís Guðjónsdóttir og Ármann Guðfreðsson smiður. Þau hjón slitu snemma samvistum og var Svavar eftir það með móður sinni, uns hún giftist öðru sinni Guðbjarti Egilssyni, sem gekk Svavari í föðurstað, og bjuggu þau lengi á Hverfisgötu 96 ásamt börnum þeirra Bryndísar og Guð- bjarts, Jónínu Ósk og Rúnari flugstjóra meðan þau voru enn í föðurgarði. Síðan áttu þau heimili að Bugðulæk 18 og bjó Svavar þar með móður sinni og Guðbjarti, og síðan þeir tveir eftir að Bryndís andaðist. Svavar fór snemma að vinna eins og þá var títt um unglinga og skömmu eftir að þau Bryndís og Guðbjartur fluttust frá Keflavík hingað til Reykjavíkur réðst Svav- ar sem vikapiltur á Hótel Borg og vann þar nokkur ár og líkaði vel við húsbóndann þar, og minntist oft á þessi ár sem eins besta skóla, sem hann hefði verið í. Eftir það vann hann í Leðurgerðinni og lengst af sem verkstjóri. Enn- fremur vann hann í verstöðvum bæði í Vestmannaeyjum og á Suðureyri við Súgandafjörð sem matreiðsíumaður og stjórnandi mötuneyta og líkaði hvarvetna vel við hann í þeim störfum. Þegar þessum störfum hans lauk fór hann í nám hjá Ósvaldi Knudsen málarameistara og lauk þar námi í málaraiðn. En ekki ílengdist hann í því fagi, þar fannst honum hann ekki njóta sín og hætti þegar honum bauðst hótelstjórastarf í Bjarkarlundi, þar kunni hann við sig og kom nú í góðar þarfir sá tími sem hann hafði starfað á Hótel Borg. Honum þótti vænt um Hótel Bjarkarlund og starfið þar og var í essinu sínu þegar fór að vora og undirbúningur hófst og opnun hótelsins, en þar starfaði hann í um 10 ár samfellt. En örlögin höguðu því nú svo að hann gat ekki tekið upp þráðinn síðast- liðið vor og saknaði hann þess sárt að komast ekki í Bjarkarlund. Þetta er í stuttu máli ævihlaup Svavars Ármannssonar. Nú á stjúpi Svavars, Guðbjartur Egilsson sjúkur og aldurhniginn, og systkini Svavars bæði um sárt að binda og þá ekki síður systkina- börnin hans, sem áttu hauk í horni þar sem Svavar var. Var hann alla tíð vakinn og sofinn í því að aðstoða þau og hjálpa á allan hátt, og mega þau nú minnast hins góða frænda með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hann lagði á sig þeirra vegna. Og margir eru þeir vinir hans og frændalið sem áttu honum skuld að gjalda, þó aldrei ætlaðist Svavar til þakklætis, enda var hjálpsemin honum með- fædd og gat hann ekki öðruvísi hagað sér. Konan mín, en þau Svavar voru systrabörn og ólust upp í æsku saman og voru nánast eins og systkini, kveður nú kæran frænda sinn og undirritaður saknar vinar í stað. Við biðjum Svavari guðs blessunar og þökkum samfylgd- ina. Fari hann í friði. Geir Herbertsson Mig langar í fáum orðum að þakka Svavari frænda allar þær góðu og ánægjulegu samveru- stundir sem við höfum átt saman. Allt frá fyrstu tíð hefur Svavar verið mér einstaklega góður, og samband okkar verið mjög náið og gott. Naut ég þess þá ef til vill að Svavar átti engin börn sjálfur. Þegar ég var lítil voru þau fá sumrin sem ég ekki heimsótti Svavar í Bjarkarlund, þá oftast í samfylgd afa og ömmu. Alltaf þóttu mér þessar heimsóknir jafn skemmtilegar, enda var okkur alltaf tekið opnum örmum. Svavar var í eðli sínu mjög rausnarlegur í öllu því, sem hann tók sér fyrir hendur, og naut ég þess mjög ríkulega. Svavar dvaldi oft mikið erlendis hjá vinum sínum í Bandaríkjun- um. Var það ætíð mikið tilhlökk- unarefni, þegar von var á Svavari frænda heim frá Ameríku, því alltaf kom hann hlaðinn gjöfum til okkar krakkanna. Svavar talaði um það alla mína æsku að þegar ég yrði eldri, ætlaði hann að bjóða mér með sér til New York og sýna mér allt það mark- verðasta, sem þar er að sjá. Og þetta gerði hann svo sannarlega, og á sinn rausnarlega hátt þegar ég var 17 ára. Var þessi ferð mér alveg ógleymanlega skemmtileg. Því Svavar var þannig að hann ekki aðeins naut þess að gefa gjafir, heldur var hann mjög veitandi persónuleiki, við alla þá sem honum stóðu næst. Síðustu sex mánuði átti Svavar við mikla vanheilsu að stríða. Kom þá vel í ljós hvað hann var ósérhlífinn og duglegur og þakk- látur fyrir allt sem fyrir hann var gert. Blessuð sé minning hans. Hafdís Rúnarsdóttir. Svavar Ármannsson fæddist að Geitagili við Örlygshöfn 28. marz 1921. Hann lést í Landspítalanum 27. janúar s.l. Foreldrar hans voru Bryndís Guðjónsdóttir og Ármann Guðvarðarson. Þau hjónin slitu samvistum eftir stutta sambúð. Bryndís giftist seinna Guðbjarti + Eiginkona mín, móöir og tengdamóöir, ELÍNBROG ÞÓRÐARDÓTTIR, Rauöalaak 2, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. febrúar kl. 1.30. Vígberg Einarsson, Ásta Anna Vígbergsdóttir, Axel Björnsson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÁRNA JÓHANNSSONAR, Seljaveg 25. Guö blessi ykkur öll. Hu|<J Kri8tmann8dóttir> Edda Árnadóttir, Magnús Ölafsson, Höröur Árnason, Brynja Hlíöar, barnabörn og bræöur hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.