Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 12

Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 Mannleg úrhrök Leikklúbbur Skagastrandar: Gísl eftir Brendan Behan. Þýðandi: Jónas Arnason. Leikstjóri: Ragnhildur Steingrímsdóttir. Ragnhildur Steingrímsdóttir mun hafa leikstýrt sjötíu verk- um víða um land, en einkum hefur hún helgað áhugaleikfé- lögum krafta sína. Ég minnist þess ekki að hafa orðið vitni að öðru en góðum vinnubrögðum af hennar hálfu. Það er því Leikklúbbi Skagastrandar ávinningur að fá að njóta leið- sagnar hennar, enda kemur á daginn að þrátt fyrir viðvanings- brag leikenda er sýning Gísls um margt athyglisverð. Eitt verð ég þó að segja, að ég held að sýningin héfði notið þess að vera töluvert stytt. Að leika þetta langa verk í upprunalegri gerð; er þolraun óvönum leikurum og hefði auðveldlega mátt fella ým- is atriði niður. Þegar um áhugaleikara er að raeða er erfitt að gera upp á milli þeirra. Ólafur Bernódusson lék Pat, vandmeðfarið hlutverk, en tókst að sýna okkur þessa óvenjulegu manngerð í skoplegu ljósi þótt nokkuð skorti á festu. Elín Njálsdóttir komst vel frá hlutverki Meg. Magnús B. Jóns- son leikur hermanninn unga, Leslie, og gerir úr honum eðli- legan og hrekklausan ungan mann. Birna Blöndal leikur Miss Gilchrist og er ég ekki frá því að Behan hefði sjálfur verið hinn ánægðasti með túlkun hennar, enda var honum mikið í mun að sýna kristilega hræsni. Guð- mundur H. Sigurðsson er yfir- drifinn í hlutverki Rio Ritu, en fékk góðan hljómgrunn hjá áhorfendum. Laglega túlkað hlutverk var Grace prinsessa Gunnars Benónýssonar. Bernó- Lelkllsl eítir JÓHANN HJÁLMARSSON dus Ólafsson lék Monsjúr eftir- minnilega. Sama er að segja um Hallbjörn Hjartarson í hlutverki mr. Mulleday. Þeir Bernódus og Hallbjörn voru ásamt Birnu stjörnur kvöldsins. Aðrir sem þátt áttu í ósvikinni stemmn- ingu kvöldsins voru Bjarnhildur Sigurðardóttir, Guðbjörg Vigg- ósdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingi- marsdóttir, Einar S. Helgason, Rúnar Loftsson og Hjörtur S. Guðmundsson. Brendan Behan (1923—1964) þekkti af eigin raun baráttu íra gegn Englendingum. Hann var aðeins sextán ára þegar hann var fyrst handtekinn með sprengjuefni í fórum sínum. Behan eyddi sjö árum ævi sinnar í fangelsi. Hann ólst upp í fátækrahverfi í Dublin. Eftir að hann sneri sér að ritstörfum 1951 vakti hann mikla athygli fyrir drykkjuskap sinn og óhefl- aða framkomu. Enginn efaðist þó um listræna hæfileika hans. í verkum sínum deilir hann á mörg heilög goð, en þau eru yljuð kímni og landar hans fá ekki síður á baukinn en Englend- ingar. Allt þetta einkennir Gísl sem var frumsýnt 1958. Þar er lýst dapurlegum örlögum ungs manns sem dæmdur er til að verða fórðarlamb þjóðernislegra átaka. Fólkið í Gísl er hvorki verra né betra en almennt gerist þótt það sé fulltrúar úrhraka mannfélagsins. Þýðing Jónasar Árnasonar á Gísl er lifandi texti, söngvarnir fjölmörgu minna á margt það sem hann hefur sjálfur borið á borð í leikritum sínum sem eins og kunnugt er eru vinsælt við- fangsefni áhugaleikfélaga. Sýning Leikklúbbs Skaga- strandar fór fram í Félagsheim- ili Seltjarnarness. Patrick Ferguson THE OBSERVER Hvað sem gerast kann í veröldinni yfir- leitt á þessu ári, þarf það að vera þó nokkuð mikilvægt til að skyggja á forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum. Sér- stæðasti þáttur þeirra kosninga er hinn langi aðdragandi, þ.e. for- kosningarnar, for- valsfundirnir, og landsfundirnir. Hér gerir fréttamaður Observer grein fyrir þessu flókna máli. Carter og kjósendurnir Líflegasti kosninga- slagur veraldar Þegar Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu fyrsta þriðjudag eftir fyrsta mánúdag í nóvember fjórða hvert ár, eru þeir sam- kvæmt ströngustu stjórnar- skrárlegri merkingu að velja kjörmenn síns ríkis á kjör- mannasamkomuna, sem kýs for- setann fyrsta mánudag eftir annan miðvikudag í desember. Jafnvel þá eru úrslitin ekki opinber fyrr en forseti öldunga- deildarinnar, (sem er fráfarandi varaforseti), lýsir þeim þann 6. janúar. Ef enginn frambjóðandi fær hreinan meirihluta atkvæða, sker fulltrúadeildin úr, en það hefur ekki gerst síðan árið 1825. Þannig verður maðurinn, sem sver embættiseiðinn þann 20. janúar 1981, sá eini sem uppi stendur eftir baráttu sem staðið hefur yfir í meira en heilt ár. Baráttan hjá Brown, Carter og Kennedy; Baker, Bush, Connally og Reagan hófst löngu fyrir síðustu áramót. Á kosningaári kemur vel fram hversu sterk ítök ríkjaskiptingin á í þjóðinni. Sérhvert ríki setur sínar eigin relgur um hvernig borgararnir geta tekið þátt í forvali fram- bjóðenda. Fyrsta meiriháttar prófraunin var í mið-vestur ríkinu Iowa, þar sem Carter fór sem kunnugt er með sigur af hólmi í flokki demókrata. Eins og í forkosning- um í öðrum ríkjum var þar ákveðið hvernig fulltrúar ríkis- ins munu greiða atkvæði á landsfundum flokkanna í sumar. Hvorki Iowa né New Hamp- shire, þar sem fyrstu meirihátt- ar forkosningarnar fara fram þann 26. febrúar, sendá svo marga fulltrúa á landsfundina að þau séu mikilvæg þess vegna, en á þessu stigi kosningabarátt- unnar geta niðurstöður þar haft úrslitaáhrif á velgengni fram- bjóðenda. Góð byrjun Jimmy Carters í Iowa 1976 var upphafið að með- byr sem nægði honum til endan- legs sigur, þótt hann yrði undir í nokkrum kosningum á seinni stigum baráttunnar. Á þessu ári, þurfti hann að verja stöðu sína gegn áskorendunum Ted Kenn- edy og Jerry Brown. Forkosningar verða haldnar í 36 ríkjum á þessu ári. Vegna hins mikla kjósendafjölda bein- ist athyglin helst að Kaliforníu, New York, Illinois, Pennsylv- aníu, Ohio og Texas, en jafnvel fjarlæg landsvæði eins og Puerto Rico, Meyjareyjar (Virgin Is- lands) og Guam, sem ekki eru ríki í sambandinu, senda full- trúa á landsfundinn, og þeim þarf að sinna. I kjölfar hins stormasama landsfundar í Chicago 1968, sem kenndur var við „flokkseigend- urna“, hafa demókratar sífellt verið að endurbæta félagslög sín og kosningabaráttan á þessu ári kann að verða mjög ólík jafnvel þeirri, sem háð var 1976. Hlutfallskosningar gera fram- bjóðendum mun erfiðara fyrir að tryggja sér yfirgnæfandi fjöldá fulltrúa fyrir landsfundinn, en það var mögulegt meðan þær reglur giltu í þessu ríkjum, að sigurvegarinn fékk alla full- trúana. Þá eru einnig nýjar reglur um val fulltrúa, sem tryggja eiga konum og minni- hlutahópum sína fulltrúa. Innan flokksins vonast menn til að auka lýðræði á landsfund- inum, sem hefur einkennst af ringulreið og sviðsettum atburð- um. En sennilega hverfa ekki furðulegir siðir, sem Banda- ríkjamenn viðhafa í sambandi við kosningar, ýkjukenndar til- nefningarræður, skipulögð „óundirbúin“ fagnaðarlæti um allan fundarsal og hátíðlegt og stundum spennandi nafnakall ríkjanna. Þann 14. júlí halda repú- blíkanar landsfund í Detroit, demókratar koma saman í New York borg þann 11. ágúst. í fyrstu viku september er kosn- ingábarátta hafin fyrir alvöru og frambjóðendurnir þurfa að þeytast um landið hvíldarlítið með heila lest pólitískra aðstoð- armanna, ræðuskrifara, rann- sóknarmanna, blaðamanna og annarra fylgifiska. Kosningadagurinn 1980 verður 4. nóvember. í kosningunum 1976 var kosningaþátttakan að- eins 53.3 af hundraði. Bandaríkjamönnum finnst þeir kannske fá fullmikið af stjórn- málum. Kosningasérfræðingur, sem ég talaði við, ræddi um vaxandi áhyggjur margra áhugamanna um stjórnmál af því hversu löng kosningabaráttan er. Hann seg- ir, að í raun sé því svo varið, að af fjögurra ára kjörtímabili for- setans sé aðeins eitt ár, sem nýtist til virkrar stjórnunar, fyrsta árið fari í að ná tökum á embættinu og síðari tvö árin fari í að berjast fyrir endurkjöri. Uppi er hreyfing fyrir því að breyta stjórnarskránni á þann veg að forsetinn verði kjörinn til 6 ára, en að kjörtímabilinu loknu megi ekki endurkjósa hann, í stað þess að nú má hann sitja tvö fjögurra ára kjörtímabil.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.