Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980
19
Com’w9
3sa ?“.tsa •s: I
IBOÖ o"‘,'. , ,0,us and ■
m5‘”'K.S3!«'2"£
eomP*W ‘J1®, ,he ma'ke'. <»
60pe> cbo' ° ' a24 uac»
sSsgSííSt
*,?earn I*"5 , ’o«ns>»lld
dMSIBM>' "8S
,£\ne ,irs''1,rf0u>o"'s'OP
b>o»9h' '~l* , v»no>o - 'he
S'bS-ÆwSw*
i Sf'roriTt*'* 'weok
i 0000 „no,mMcna»roa'
I n sas>9°°'.. doie»r»r'<
I jon 0'a,S^ s Come a«
I non l*>a' b6 * « vnioe 'e*
I -..........rzZ-
** , . ca'a'o9ue
> «o 8 9°°“ \ bours. 80
(Kíss»\”„r“
oear'y 3
seve-e' ;
e teco'de'
,,isnand»
ta'e 'he"
» «h Erno Tl
concer''*8'8
, Fienc"
, po'en
' Second.
ae' covet'
coids a'
monev '<
"ar"'Z
„Nöínin hljóma e.t.v. torkennilega en hljómurinn er með ferskum
blæ og í leit atvinnugreinarinnar að nýjum leiðum og hæfileikum
gætu þau vel orðið mun kunnari á komandi áratug,“ segir i
niðurlagi greinar um islenzka tónlistarfólkið í þekktu popptón-
listarblaði „Midem News“ í Cannes.
Popptónlistarfólkið:
„Fengum nokk-
ur góð samnings
tilboð í Cannes44
„VIÐ erum svona rétt að jafna
okkur eftir heimkomuna og koma
fjárhagsmálunum í samt lag.
Siðan tekur við að átta sig á
samningstilboðunum og ákveða
hvað við þiggjum og hvað ekki,“
sagði Jón Olafsson framkvæmda-
stjóri Hljómplötuútgáfunnar, en
hann cr nýkominn heim ásamt
popptónlistarfólkinu, sem freist-
aði gæfunnar á ráðstefnu i Cann-
es i Frakklandi nú nýverið.
„Við erum með góð samningstil-
boð frá a.m.k. þremur löndum ef
ekki fjórum, þ.e. Kanada, Spáni,
Finnlandi og S-Ameríku. Við kom-
um fram þrívegis á klúbbnum
„Whisky A Go Go“ við mjög góðar
undirtektir og athygli. Einnig
höfðum við kynningarbás á ráð-
stefnunni sjálfri, lékum þar plötur
og sýndum myndsegulbandsupp-
tökur.
Björgvin Halldórsson og Ragn-
hildur vöktu áreiðanlega mesta
athygli, Brunaliðið og HLH-flokk-
urinn einnig. Ef nefna ætti einhver
sérstök lög þá verður lagið „Anoth-
er night“ sem íslendingar þekkja
bezt undir nafninu „Eina ósk“ efst
á lista. Þá „Riddari götunnar" og
„Ég stend með þér“, „Ástarsorg"
vakti líka athygli."
— I hvaða formi eru þessi
samningstilboð?
„Þau hljóða flest upp á gerð
lítilla hljómskífa. Síðan munu er-
lendu fyrirtækin kanna undirtekt-
ir á þeim. Ef vel tekst til fáum við
samninga um breiðskífur, hljóm-
leika o.fl. Björgvin Halldórsson og
e.t.v. Ragnhildur einnig fengu boð
um að koma fram í Radio Luxem-
burg og einnig standa okkur opnar
dyr að sænska sjónvarpinu með
skemmtiþátt. Það er úr nógu að
moða, nú taka við skriftir og
kannanir tilboða.
— Hvernig kom ferðin út fjár-
hagslega?
„Okkur tókst að koma þessu
nokkuð niður frá áætlun. Samt fór
kostnaðurinn þó nokkuð á annan
tug millj. Við höfum þó ekki enn
tekið þetta endanlega saman. Til
að ná þessu niður lögðum við
ýmislegt á okkur, fluttum sjálf
tækin, ferðuðumst með næturlest-
um o.fl. Það má segja að við séum
öll útkeyrð — en það var þess
virði," sagði Jón að lokum.
Mbl. hitti einnig Björgvin og
Ladda að máli og voru þeir sam-
mála um, að undirtektir hefðu
verið framar öllum beztu vonum.
Björgvin sagðist líklega fara til
Luxemburgar í inarzmánuði og
koma þar fram í sjónvarpi. Halli
og Laddi komu fram með sérstakt
prógram í næturklúbbnum í Cann-
es og vöktu mikla hrifningu að
sögn Björgvins. Þeir sögðu í lokin
að næsta verkefnið væri að vinna
að upptökum fyrir litlu plöturnar,
framtíðin ylti á því að þar tækist
vel til.
Bræðsla gengur
vel í Siglufirði
SÍKlufirði. 30. janúar.
FLUTNINGASKIP lestar hér í
dag 2200 lestir af loðnumjöli, sem
fara á til Kúbu. Stálvík kom í gær
með 110 lestir, en undanfarið
hefur verið tregt hjá netabátun-
um. Vinnsla gengur vel hjá Síldar-
verksmiðjunum og eru afköstin nú
12—1300 tonn á sólarhring í
bræðslunni. _ mi
43466
Mosfellssveit — Garðabær
Höfum kaupanda aö ca. 140 ferm einbýli — eöa
raðhúsi, helst á einni hæö. Þarf aö vera laust í maí.
Útb. allt aö 36 millj.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf
Hamraborg 1 200 Kópavogur Símar 43466 i 4380$
Sölustj. Hjðrtur Gunnarss. Sðhim. VHhj. Elnarsson, lögfr. Pétur Enarsson.
Noregur:
Athyglisverður árangur
í eldi regnbogasilungs
í NORSKA tímaritinu „Norsk
fiskeoppdrett“ birtist fyrir
nokkru athyglisverð frétt um
vaxtarhraða regnbogasilungs i
Noregi. Segir þar fyrst frá
tilraunum, sem gerðar voru með
30 gramma fisk og hann settur í
eldi. 7 mánuðum síðar vó hann
frá 662 grömmum og upp í 732
grömm.
Síðar segir í greininni frá því
að margir fiskeldismenn telji
heppilegra að setja fiskinn í eldi
þegar hann er orðinn 80—100
grömm að þyngd þegar markmið-
ið er að fá sem stærstan fisk.
Venjan mun vera sú, að fiskurinn
sé settur í eldi snemma vors, en
drepinn og settur á markað að
hausti.
Sagt er frá reynslu manna hjá
fyrirtæki í Nordfjord, nokkru
ai stan við Málöy, en þar hófst
fiskeldi 1977. Keyptur var inn
regnbogasilungur frá öðru fyrir-
tæki og hann settur í eldi 14.
október 1977. Meðalvigt fisksins
var þá 170 grömm og fjöldi fiska
4.274.
Eftir eitt ár í eldi voru sam-
svarandi tölur þær, að er fiskun-
um var „slátrað" 27. október 1978
var meðalþunginn 3,13 kíló og
fjöldi þeirra 3,932 fiskar, en á
eldistímanum höfðu 342 fiskar
drepizt af ýmsum orsökum.
Heildarþyngd fiskanna, sem sett-
ir voru í eldi í eitt ár var 12.307
kíló. Samkvæmt sölusamlags-
verði í Noregi var söluverðið
22.50 á hvert kíló eða í íslenzkum
krónum liðlega 22 milljónir króna
fyrir allan regnbogasilunginn.
í fyrrnefndri grein er einnig
sagt frá eldi á regnbogasilungi
hjá öðru fyrirtæki, en þar varð
árangurinn helmingi lakari.
Ymsar ástæður eru gefnar fyrir
því, en þegar þessar tölur eru
skoðaðar verður vart annað sagt
en að árangurinn hafi verið góður
hjá báðum fyrirtækjunum hvað
varðar vöxt eldisfisksins á aðeins
einu ári.
Þaö er viðurkennd staöreynd að Bandaríkjamenn framleiöa
kælitæki í hæsta gæðaflokki.
Með vandláta kaupendur í huga bjóðum við pví núna
ameríska PHILCO kæliskápa í mörgum stærðum og litum.
Hér fara saman fallegt útlit og haganlegar innréttingar ásamt
vandaðri hönnun sem tryggir mikla endingu.
PHILCO kæliskáparnir eru pví gæddir öllum þeim kostum sem
prýða fyrsta flokks kæliskápa.
Sjón er sögu ríkari — komið í verzlanir okkar og kynnist af
eigin raun amerísku PHILCO kæliskápunum.
PHILCO FYRIR VANDLÁTA
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655