Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 21

Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 21 sta stjórnarkrepp- minni forsetatíð rra Kristján Eldjárn: Forseti íslands tekur á móti formönnum stjórnmálaflokkanna í gær. Framsókn vill for- sæti í „Stefaníu“ „MENN samþykktu að hittast og punkta niður svona það sem við erum sammála um með þjóðstjórn í huga. Ég held þó að þjóðstjórn sé síðasti meirihlutakosturinn og að menn vilji hana þá cinfaldlcga frekar en utanþingsstjórn. Ég er þó engan veginn vissum að af þjóð- stjórn verði,“ sagði Steingrímur Hermannsson formaður Framsókn- arflokksins í samtali við Mbi. i gærkvöldi. Mbl. spurði Steingrím, hvernig aðrir meirihlutakostir litu út af sjónarhýli Framsóknarflokksins. Hann sagði: „Við Framsóknarmenn höfum tjáð okkur reiðubúna til viðræðna við Alþýðuflokk og Sjálf- stæðisflokk undir okkar forsæti. Sumir segja að þetta sé mikil krafa, að við höfum forystuna. en á það er að lita, að Alþýðuflokkurinn sleit síðasta stjórnarsamstarfi og til þess má rekja það ástand, sem við nú búum við, og það er ákaflega fjarri mörgum framsóknar- mönnum að verðlauna Alþýðu- flokkinn nú fyrir þetta með þvi að láta hann hafa forystuna á hendi.“ En slíkar viðræður undir forystu Sjálfstæðisflokksins? „Það gildir svipað þar um. Við eigum nokkuð erfitt með að fara í slíkar viðræður. Við höfum ekki gleymt leiftursókninni, þótt svo virð- ist sem Sjálfstæðisflokkurinn vilji helzt gleyma henni sjálfur. En ég undirstrika að stjórnarsamstarf hlýt- ur að byggjast á málefnasamstöðu." Þú hugsar þér þá að verða forsætis- einbeita )ðstjórn og veru kæmi að svo stöddu í veg fyrir samkomulag flokkanna fjög- urra, heldur það að mönnum væru aðrir möguleikar ofar í huga og að þeir vildu fullvissa sig um þá áður en þeir væru reiðubúnir til að einbeita sér að samstjórn allra flokka. Mbl. spurði Geir, hvort hann hefði í gær orðið þess var að þessum mönnum væru enn aðrir möguleikar en þjóðstjórn ofar í huga og þá hverjir þeir möguleikar væru.„Það má vel vera, að svo sé. Ég vil ekki fullyrða að svo sé ekki,“ svaraði Geir, en kvaðst ekki vilja tíunda neitt í þeim efnum. Mbl. spurði Geir þá um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til þriggja flokka meirihlutastjórnar eða tveggja flokka, en hann kvaðst bara ítreka þá skoðun sína, að menn ættu að einbeita sér að samstjórn allra flokka. ráðherra slíkrar þriggja flokka stjórnar, ef af yrði? „Það yrðu engir erfiðleikar með það hjá mér sjálfum." Steingrímur sagði að framsókn- armenn hefðu einnig lýst áhuga á samstarfi við Alþýðubandalagið og Sjálfstæðisflokkinn. „Geir hefur hins vegar sagt, að þótt Sjálfstæðisflokk- urinn út af fyrir sig útiloki ekki neinn möguleika, þá telji hann ólíklegt að sjálfstæðismenn vilji almennt slíkt stjórnarsamstarf," sagði Steingrím- ur. En stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks? „Það hefur enginn framsóknar- maður rætt um hana, en það má segja að einhverjir hafi talað um alla hugsanlega möguleika. Og við höfum jú mikinn áhuga á vinstri stjórn eins og kunnugt er.“ Er hún til umræðu nú? „Það eru allir möguleikar í umræð- unni.“ „VIÐ neitum vafalaust engum viðræðum, en ef möguleikinn á samstarfi okkar, framsóknar- manna og sjálfstæðismanna kemst á alvarlegt stig, þá tel ég annað útilokað en að Alþýðu- flokkurinn hafi forystuna,“ sagði Benedikt Gröndal formaður Al- þýðuflokksins í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Benedikt kvaðst ekki líta á sam- stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks sem meirihlutastjórn og varðandi vinstri stjórn kvaðst Benedikt ekki hafa „séð neitt af henni" í gær, „þótt einhverjir hafi verið að tala um pulsuvagnslykt í Alþingishúsinu. En Alþýðuflokkur- inn er tilbúinn að hlusta og vill hlusta á það, ef menn hafa eitthvað raunhæft fram að færa.“ Um sam- stjórn Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Sjálfstæðisflokks sagði Benedikt: „Við höfum lengi sýnt henni áhuga. Hún var það fyrsta sem við reyndum eftir kosningasig- urinn 1978 og ég hygg að við séum reiðubúnir til þess nú.“ Benedikt sagði að alþýðuflokks- menn teldu sig myndu standa ákaflega veikt í stjórn með Fram- sóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, ef þeir hefðu ekki sjálfir forystu hennar með höndum. Að öðrum kosti myndu flokkarnir tveir geta ráðið ferðinni án nokkurs tillits til Alþýðuflokksins, þar sem þeir þyrftu hans í raun ekki við til að koma málum fram á Alþingi. Bene- að hugmyndir um minnihluta- stjórn kynnu að koma upp. Minnihlutastjórn er möguleiki, eins og utanþingsstjórn. En í ljósi þess sem gerist á næstu dögum og formenn flokkanna munu skýra mér frá um eða upp úr helginni verður ákvörðun um framhaldið tekin." Mbl. spurði forsetann, hvort þetta væri erfiðasta stjórnar- kreppa á hans forsetaferli. Hann sagði: „Mér er óhætt að segja það, já. Það er kannske ekki svo mjög mikið á mununum. Þetta hefur verið seinlegt áðúr líka, bæði 1974 og 1978. Það hefur ekki farið lengri tími í þetta nú en var í þau skipti.“ En þú hefur ekki áður gripið til þess ráðs að mælast til þess að allir flokksformennirnir reyndu sameiginlega til þrautar að mynda meirihlutastjórn? „Nei. Það hefur ekki komið fyrir áður í minni forsetatíð." I fréttatilkynningu forsetans í gær segir m.a. að það sé áhyggjuefni, að stjórnarmynd- unartilraunir skuli ekki enn hafa borið árangur, og beri nauðsyn til að við svo búið standi ekki lengi úr þessu. Og ennfremur: „Ég tilnefni engan einstakan til að standa fyrir viðræðum og könnun í þessu skyni (að mynda meirihluta- stjórn, innskot Mbl.), en treysti því að flokksformennirnir muni haga vinnubrögðum sínum á þann veg sem vænlegastur er til árangurs. Þar sem tími er orðinn naum- ur hlýt ég að leggja áherslu á að flokksformennirnir geti skýrt mér frá niðurstöðum sínum um eða strax upp úr næstu helgi.“ dikt kvaðst telja, að það sem fyrst og fremst hefði valdið því, hversu harkalega framsóknarmenn brugð- ust við tilraunum hans til að skapa grundvöll að samstarfi þeirra og Sjálfstæðisflokksins, hefði verið það, að Framsóknarflokkurinn vildi alls ekki til slíks samstarfs ganga öðru vísi en að forsætisráðherrann yrði framsóknarmaður. Um samstjórn allra flokka sagði Benedikt, að hann teldi hana síðasta meirihlutakostinn, en reyndar væri hún að hans mati sú líklegasta til að komast á laggirnar. Sagði Benedikt að í samtölum flokksformannanna fjögurra í gær hefðu menn „rætt málin vítt og breitt, en þó dálítið sérstaklega um þá möguleika, sem koma við fjög- urra flokka stjórn, þótt ég reikni ekki með að menn gangi inn á þetta fyrr en þeir þá standa andspænis því, að þjóðstjórn sé eini kosturinn. En vissulega setur það aukinn þrýsting á menn, þegar þeim eru sett ákveðin tímatakmörk, eins og okkur í dag.“ Mbl. spurði Benedikt þá um minnihlutastjórn. Hann sagði: „Ég tel eins og málin standa nú að þjóðstjórn sé líklegri. Forsetinn setti það saman, að þótt hann hefði falið okkur alla tíð umboð til myndunar meirihlutastjórnar þá mætti fara saman, ef menn vildu gera tillögur um minnihlutastjórn. Það er hins vegar ekki ætlunin að nota sérstakan tíma til þess að athuga þá möguleika að þessu sinni." Kratar reiðubúnir í nýsköpunarstjórn Hefur fært sig aftur fyrir ljós- myndavélina Á FJÖRUR okkar rak sjaldséðan fugl í vikunni. Farfugl! Maríu Guðmundsdóttur. í 15 ár var hún ein af ljósmyndafyrirsætunum á tindinum i tískuheiminum. sem þykir ekki svo lítið afrek. því fáar endast svo lengi þar uppi. Hún hefur búið undanfarin ár í New York, en var á leið frá Sviss og hafði nokkurra daga viðdvöl heima á Fróni, þegar fréttamaður Mbl. hitti hana á förnum vegi. Þar kom í lífi Maríu að hún fór að hugsa til breytinga á starfi. Fannst fyrirsætustarfið ekki leng- ur gefa sér nóg, þótt það sé hátt launað og veiti mikla tilbreytingu í ferðalögum um heiminn. Hún væri búin að fá út úr því það sem hún vildi. Hún fór því að þreifa fyrir sér, fyrst með því _ að gerast umboðsmaður fyrir ljósmyndara er stunda tískuljósmyndun. En þegar til lengdar lætur, á ekki við hana að fást svona mikið við samninga um peningagreiðslur. Samt vildi hún halda sig innan ramma sama fags, þ.e. ljósmynd- unar og tísku, enda þegar farin að færa sig aftur fyrir ljósmyndavél- ina. Svo vildi til að „Stúdíó", sem María þekkti vel í þeirri grein, hafði laust rými og hún byrjaði að leika sér að því að taka þar tískumyndir. Og nú er svo komið, að hún er komin yfir í tískuljós- myndun, tekur myndir bæði úti á víðavangi og inni í vinnustofu. Hún á um 45% í fyrirtækinu og getur nýtt þar þann tíma, sem hún vill, fyrir eigin ljósmyndun. María sagðist halda að hún væri þarna búin að finna það sem hún vildi gera áfram. Hún hefur góð sambönd úr fyrra starfi. En áður en hún fer að nýta það að ráði, sagðist hún vilja fá meiri þjálfun og reynslu og það var einmitt í þeim tilgangi, sem hún var í Sviss — að bæta við sig tækni. - E.Pá. Við hittum Maríu á förnum vegi i Miðbænum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.