Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 33

Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 33 félk í fréttum Iþróttamaður áratugarins + FYRIR skömmu tilkynnti AP — fréttastofan — Associated Press í New York — að hún hefði kjörið Muhammad Ali iþróttamann áratugarins sem er að kveðja. Frægðarljómi var yfir nafni hans þegar á ára- tugnum milli ’60 og’70. Það var á þessum áratug sem hann vann gullið á ólympíuleikunum. Við lok þessa ártugar var hann orðinn heimsmeistari. En þá var heimsmeistaratitillinn frá honum tekinn og hann i útlegð sem hnefaleikamaður, vegna þess að hann neitaði að gegna herþjónustu. Við lok áratugar- ins ’70 hafði hann dregið sig í hlé eftir að hafa unnið heims- meistaratitilinn aftur, ekki einu sinni heldur tvisvar. Hann var þá sá sem mest var skrifað um i blöðunum og mest rætt um manna á meðal — og umdeild- astur. Hann var allt að því jafningi konunga og stjórn- málamanna. Sumum þótti hann mestur meðal smælingjanna, en öðrum þótti hann kjaftfor og hortugur. Það má geta þess um leið, að fyrir skömmu lýsti Ali fullum stuðningi við endurkjör Jimmy Carters við forsetakosningarn- ar i Bandaríkjunum á næsta hausti. Hann hafði bætt því við. er hann lýsti stuðningi sinum yfir, að svo gæti farið að hann sjálfan myndi hugsanlega langa til þess einhvern góðan veðurdag að takast á hendur starf Jimmy Carters! Og þetta er nýjasta myndin sem við eigum af „Mikilmenninu" eins og hann komst sjálfur eitt sinn að orði um sjálfan sig. — Hann var fyrir skömmu austur á Indlandi og þá heilsaði hann að sjálfsögðu upp á sjálfa Ind- iru Gandhi. — Og hér er hann að undirbúa sig undir að heilsa Indiru með kossi á heimili hennar í New Delhi. Forseta- efni + UM sama leyti og Carter forseti Bandaríkjanna vann mikinn yfirburðasigur yfir flokksbróður sinum Edward Kennedy við prófkosningar i Iowafylki, vakti kosninga- sigur þess manns í þvi sama fylki athygli, er hann náði sömu hundraðstölu við kjör forsetaefnis Repúblikana- flokksins og forsetaefnið Ronaid Reagan. Þessi maður er George Bush, sem var eitt sinn yfirmaður CIA. Þykir aug- ljóst mál að hann muni veita Ronald Reagan mjög harða keppni við val forsetaefnis repúblikana. Rekinn heim + FÖR brezka bítilsins og tónlistarmannsins Paul McCartneys til Tokyó varð engin frægðarför fyrir hann, sem kunnugt er af fréttum. Þessi mynd er tekin af honum er japanskir lögreglumenn brjóta honum leið gegnum mannþröngina fyrir utan aðalstöðvar Tókyólögreglunnar, er ákveðið var að reka hann úr landi á stundinni að heita má og sleppa honum við fangelsisdóm. Yfir honum vofði áralangt fangelsi, fyrir að smygla marijuana, er hann kom til borgarinnar í tónleikaför 16. janúar sl. Morgun haninn Það er Ijúft að vakna á morgnana í skólann og vinnuna, við tónlist eða hringingu í morgunhananum frá Philips. Hann getur líka séð um að svæfa ykkur á kvöldin með útvarpinu og slekkur síðan á sér þegar þið eruð sofnuð. Morgunhaninn er fallegt tæki, sem er til prýðis á náttborðinu, þar að aut^i gengur hann alveg hljóðlaust. heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚN 8 *- 15655 Að þessu sinni verður hin góðkunna Bryndís Schram sælkeri kvöldsins í Blómasal fimmtudag- inn 31. janúar. Bryndís hefur lengi haft áhuga á góðri mat- argerð, hefur ánægju af að búa til mat og ræða um hann, og snæða hann. Bryndís mælir með gómsætum en einföldum réttum og velur þennan matseðil fyrir sælkera- borðhald: ------ Matseðill:------------- Menu Avocado (Avocado nature) MavinerxcÖ smálúða (Sole marinée) Kjúhlingnr að hcetti kínverja (Poulet a la maniere chinoise) Ferskir áveoctir i vinsósn (Compot de fruits frais) Matur tramreiddur íra kl. 19. Sigurður Guðmundsson leikur á orgelið. Borðapantanir hjá veitingastjóra í símum 22-2-21 og 22-3-22. Pantið tímanlega. Sælkerar, njótið kvöldsins með Bryndísi í Blómasal. Verið velkomin, HÚTEL LOFTLEIÐIR cMeniL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.