Morgunblaðið - 07.02.1980, Page 1

Morgunblaðið - 07.02.1980, Page 1
40 SIÐUR 31. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Trén eru í hvítum snjópels . Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. Anker Jörgensen: Leggur Víetnam og Aíganistan að jöfnu Kaupmannahofn. 6. febrúar — AP. ANKER Jörgensen, forsætisráðherra Dana, sagði í dag í viðtali í danska útvarpinu, að i raun væri enginn munur á innrás Sovétmanna í Afganistan og stríðsrekstri Bandaríkjanna í Víetnam. „í báðum tilvikum var viðbáran sú, um aðstoð hefði verið að ræða,“ sagði Jörgensen. Hann var spurður hvort það væri rétt skilgreint, að Sovétmenn hefðu ráðizt inn í Afganistan. „Já“ svaraði Jörgensen. Þá var hann minntur á, að á sínum tíma hefði ekki verið rætt um innrás Bandaríkjanna í Víetnam. „Ég veit ekki hvaða orðalag var notað, en munurinn er enginn í grundvallaratriðum,“ sagði Jörgensen. Skömmu eftir að Jörgensen varð forsætisráðherra Danmerkur 1972 olli hann miklu fjaðrafoki með því að krefjast þess að Bandarikin færu frá Víetnam. Stærsta dagblað Ítalíu sagði í dag, að afganskir uppreisnarmenn ættu í miklum erfiðleikum vegna skorts á vopnum og skotfærum. Fréttamaður blaðsins er nýkom- inn frá Afganistan, þar sem hann var meðal uppreisnarmanna skammt frá pakistönsku landa- mærunum. „Þegar skæruliði hefur skotið dagsskammti sínum, 25 byssukúlum, verður hann að not- ast við grjót,“ hafði blaðamaður- inn eftir einum leiðtoga uppreisn- armanna. Hann sagði, að skæru- liðar væru að undirbúa árás á Tarinkot, höfuðborg Oruzgan. Yfir 9000 skæruliðar væru í sveitum, sem skipulegðu árásina og hefðu aðeins 500 riffla að vopni. í Oruzgan er fyrir sterkt lið Sovét- manna, vopnað stórskotaliði, skriðdrekum og þyrlum. Sovézka fréttastofan TASS sagði í dag, að kínverskir ráðgjaf- ar hefðu farið yfir landamærin til Afganistan með („þúsundum glæpamanna" þjálfuðum í Kína. Þá sagðist Tass hafa sönnur fyrir því, að skæruliðar hefðu banda- rísk vopn undir höndum. Frakkar og V-Þjóðverjar gáfu í kvöld út sameiginlega yfirlýsingu, Bani-Sadr um námsmennina: liaía myndað ríki í ríkinu Teheran. 6. febrúar. AP. HINN nýkjörni forseti írans, Abolhassan Bani-Sadr, rédst í dag harkalega að írönsku námsmönnunum, sem halda bandarísku gíslunum í sendiráðinu í Teheran. Hann kallaði þá „einræðisseggi, sem haía myndað ríki í ríkinu“. Fordæming Bani-Sadr kom í kjölfar handtöku upplýsingamálaráðherra landsins, Nasser Minachi. Stúd- entarnir sögðust hafa fundið skjöl, sem sönnuðu að Minachi væri í slagtogi með CIA, bandarísku leyniþjónustunni. Ráðherrann neitaði þessum ásökunum alfarið. Stúdcntarnir handtóku ráðherrann án nokkurs samráðs við írönsk stjórnvöld. Bani-Sadr sagði, að með fram- ferði sínu ykju stúdentar á óreiðu í landinu og veiktu hið íslamska lýðveldi. Bani-Sadr var í gær kosinn formaður byltingaráðsins og þykir það hafa styrkt stöðu hans í íran. Blað í Teheran sagði í dag, að Kurt Waldheim, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, mundi hafa yfirumsjón með skipun manna í alþjóðlega nefnd til að rannsaka meinta glæpi keisarastjórnar Reza Pahlevi. Rudolf Stadjuhar, talsmaður Sameinuðu þjóðanna í New York, sagði við fréttamenn að Banda- Tyrkir í EBE Ankara. 6. febrúar. — AP FRÁ því var skýrt í Ankara í dag. að Tyrkir hygðust sækja um aðild að Éfnahagsbandalagi Evr- ópu. Það var utanrikisráðhcrra Tyrkja, Hayrettin Erkmen, sem skýrði frá þessu og sagði hann að Tyrkir mundu þá sækja um aðild fyrir árslok. Engin viðbrögð hafa borizt frá aðalstöðvum EBÉ í Brússel, en almennt er litið svo á, að með ósk sinni vilji Tyrkir freista þess að fá aukna aðstoð iðnrikja Evrópu. Efnahagur Tyrkja er mjög bágborinn. ríkjamenn vildu að gíslunum yrði sleppt lausum þegar nefndin væri tekin til starfa, en íranir vildu halda gíslunum þar til rannsókn lyki. Fréttir hafa borizt um, að Reza Pahlevi sé ekki lengur frjáls ferða sinna í Panama. Heimildir herma að hann hafi verið handtekinn í janúar og látinn laus gegn trygg- ingu. Heimildir segja, að Panama- stjórn hafi veitt íransstjórn tveggja mánaða frest til að leggja fram kærur gegn keisaranum. Hodding Carter, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis- ins, skýrði frá því í Washington, að ráðuneytið hefði sett sig í samband við Andrew Young, fyrr- um sendiherra Bandaríkjanna hjá Sakharov fær aðeins aó hitta þr jár konur Flórens. 6. febrúar — AP. „SOVÉZK yfirvöld halda því fram, að Andrei Sakharov sé ekki fangi í eigin landi. Því fer víðs fjarri — hann er i stofufangelsi og fær aðeins að hitta þrjár konur, tengdamóður sína, ættingja og unnustu sonar sins. Honum er meinað að umgangast alla aðra, eins er allur póstur til hans tekinn af honum.“ sagði Yelena Bonner, eiginkona Nóbelsverðlaunahafans og andófsmannsins Sakharov í simtali við Ninu Ilarkavitch, vinkonu þeirra hjóna. Hún sagði það lygar sovézkra vopnaðir menn koma inn í íbúð- stjórnvalda, að manni sínum hefði verið gefinn kostur á að fara til Parísar. „Hann var handtekinn á götu í Moskvu og sendur til Gorki. Það er lygavef- ur, sem sovézk stjórnvöld hafa spunnið, að honum hafi verið gefinn kostur á að fara úr landi," sagði Yelena. Þá sagði Yelena, að Sakharov héldi enn jafnaðargeði. „Þegar ina og hreyta í hann ónotum, þá brosir hann ávallt til þeirra og bregður ekki skapi. Hann hefur ekki enn misst þolinmæðina," sagði Yelena í símtalinu. Hún sagði það ósk sína, að annað hvort yrði Sakharov sleppt úr stofufangelsi og honum veitt aftur réttindi sín, eða honum yrði leyft að fara úr landi. þar sem þess var krafizt að Sovétmenn yrðu á brott úr Afgan- istan. I tilkynningu, sem gefin var út eftir fundi Giscard d’Estaing Frakklandsforseta og Helmut Schmidt, kanzlara Vestur-Þýzka- lands, sagði að slökunarstefna austurs og vesturs „þyldi ekki annað eins áfall og innrásina í Afganistan". Þeir urðu sammála um, að ríkin tvö sameinuðust um aðgerðir til að tryggja öryggi sitt og alþjóðleg landamæri. Jimmy Carter fagnaði í kvöld yfirlýsing- unni, en fundur leiðtoganna tveggja var haldinn í París. Sameinuðu þjóðunum, vegna íransdeilunnar. Bandarískir emb- ættismenn eru sagðir vonbetri en áður að gíslunum verði sleppt lausum. 49 Bandaríkjamenn komu í kvöld til Teheran í boði náms- mannanna, sem halda bandarísku gíslunum í Teheran. Bandaríkja- mennirnir töfðust vegna vega- bréfsskoðunar og er álitið að utanríkisráðuneytið sé ekkert um heimsóknina gefið og hafi jafnvel hugleitt að hleypa ekki fólkinu inn í landið. Mæðgin flýðu frá Bolshoi- ballettinmn Tokyo. 6. febrúar — AP. TVEIR meðlimir sovézka Bolshoiballettsins. mæðgin, hafa beðið um hæli í Banda- ríkjunum sem pólitískir flóttamenn. Þau fóru frá Tokyo í kvöld áleiðis til Banda- ríkjanna. Þau sem báðu um hæli eru Mikhailova Messerer, kennari við ballettinn. og son- ur hennar, Mikhail Messerer, en hann er dansari við ballett- inn. Bolshoiballettinn kom til Japans 27. janúar og hefur sýnt víðs vegar um Japan. Mæðginin eru af þekktum listamannaættum í Sovétríkj- unum. Mikhail er náfrændi Maya Plisétskaya, skærustu ballettstjörnu Sovétríkjanna. Afi hans er einn af fremstu ballettkennurum í Sovétríkj- unum. I samtali við fréttam- ann AP sagði Mikhail, að þau vildu fara til Bandaríkjanna til að þroska list sína í frjálsu andrúmslofti. í París var tilkynnt, að Bolshoiballettinn myndi ekki koma í fyrirhugaða sýninga- ferð til Parísar. Engin skýring var gefin, en getum er að því leitt, að forráðamenn balletts- ins óttist að fleiri hlaupist undan merkjum. Þegar Bolsh- oiballettinn sýndi í Bandaríkj- unum í fyrra flýðu þrjár af skærustu stjörnum ballettsins. Myrti gísl Mílanó. fi. febrúar. AP LÖGREGLA réðst í kvöld til inngöngu í bandaríska ræð- ismannsskrifstofu í Mílanó þar sem geðtruflaður maður hafði haldið sjö gíslum. t»egar að var komið hafði maðurinn skotið sjálfan sig til bana og einn gíslanná. konu. Skömmu áður en ráðizt var til atlögu hafði tekizt að bjarga sex gíslanna. Þegar maðurinn tók ræðismannsskrifstofuna hafði hann myrt einn starfs- mann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.