Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
Fylltu sig á
stuttum tíma
NOKKUR loðnuskipanna fylltu
sík á mjöK skömmum tima í
fyrrinótt «k má t.d. nefna
Grindvíking. TaJað var um risa-
köst hjá skipunum og víst er að
síðustu daga hafa veiðarnar
Ken>?ið sérstakleKa vel.
31 loðnuskip-
stjóri mælir
gegn veiðibanni
ÞRJÁTÍU og einn loðnuskip-
stjóri skrifaði undir skeyti til
Kjartans Jóhannssonar sjáv-
arútvegsráðherra í gærdag,
þar sem þeirri skoðun þeirra
var lýst, að þeir teldu rangt
að stöðva loðnuveiðarnar
innan tíðar, eins og raddir
hafa verið uppi um. Telja
skipstjórarnir mun meiri
loðnu vera á miðunum en
haldið var í upphafi og því
rangt að fara að beita ein-
hverjum takmörkunum.
Jón Sólnes
vill ekki
tjá sig
JÓN SÓLNES fyrrverandi Al-
þingismaður sagði í samtaii við
Mbl. að hann vildi ekkert tjá sig
um skýrslu þá er dómsmálaráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi
vegna athugasemda yfirskoðun-
armanna ríkisreiknings á
greiðslum símareikninga hans á
sinum tíma.
Fulltrúaráðsfundi
frestað að beiðni
Eggerts Haukdal
AÐ BEIÐNI Eggerts Haukdal var
ákveðið í gærdag að fresta fyrir-
huguðum fundi fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Rangárvalla-
sýslu og mun fundurinn verða
haldinn i kvöld kl. 21.00.
Aflinn frá upphafi vertíðar er
nú kominn aðeins yfir 200 þúsund
lestir. Eftirtalin skip tilkynntu
um afla í gær til klukkan 21:
Bjarni Ólafsson 1000, Jón
Kjartansson 950, Dagfari 520,
Haförn 800, Ljósfari 550, Hrafn
630, Skarðsvík 550, Óskar Hall-
dórsson 350, Guðmundur 880, Örn
530, Grindvíkingur 1000, Hákon
700, Albert 570.
Samninga-
viðræður
um freðfisk
í Moskvu
ÞESSA dagana standa yfir í
Moskvu samningaviðræður
um sölu á frystum fiski héðan
til Sovétríkjanna á þessu ári.
Viðræðurnar hófust á mánu-
dag og þrír fundir hafa verið
haldnir, en búast má við að
viðræðum ljúki um eða eftir
helgi. Af hálfu Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna tekur Árni
Finnbjörnsson þátt í viðræð-
unum, en Sigurður Markússon
af hálfu Sjávarafurðadeildar
Sambandsins.
Drengirnir
sem fórust
DRENGIRNIR, sem létust er
þer féllu niður um ís á Kópa-
vogi í fyrradag, hétu Oddur
Ingvar Helgason, fjögurra ára,
fæddur 19. marz 1975, sonur
Ingu Haraldsdóttur og Helga
Oddssonar til heimilis að
Sunnubraut 52 í Kópavogi og
Ketill Axelsson. Ketill var
þriggja ára, fæddur 4. ágúst
1976 sonur Laufeyjar Torfa-
dóttur og Axels Ketilssonar til
heimilis að Sunnubraut 45 í
Kópavogi.
Athugasemd við
ummæli Jóns
Þorgilssonar
VEGNA UMMÆLA Jóns Þorgilssonar í uppsláttar-
írétt Mbl. 5. þ.m. og í viðtali við dagblaðið Vísi sama
dag um að engin könnun hefði verið gerð á stuðningi
við Eggert Haukdal gagnvart stjórnarmyndunartil-
raunum Gunnars Thoroddsen skal eftirfarandi tekið
fram:
A fundinum sagði Grímur
Thorarensen m.a. úr ræðustól
eftir að hafa lýst stuðningi við
aðgerðir Eggerts Haukdals: Við
höfum nú heyrt hvað þingmaður-
inn okkar, Eggert Haukdal, og
Ingólfur Jónsson fyrrverandi ráð-
herra hafa að segja um þessi mál
og er þá aðeins eftir að heyra í
ykkur fundarmönnum, hvort þið
eruð sammála um aðgerðir Egg-
erts Haukdal eða ekki. Þess
vegna er það nauðsynlegt að þið
komið hingað upp og gerið grein
fyrir skoðunum ykkar, ef þið eruð
ekki fylgjandi aðgerðum Eggerts,
til að það megi verða okkur til
fróðleiks og öðrum til aðvörunar.
Næstur tók til máls Óli Már
Aronsson og tók hann undir orð
Gríms Thorarensen og kvaðst
vona að þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins myndu skoða málefna-
samning Gunnars Thoroddsens
og taka afstöðu til stjórnarmynd-
unartilraunar hans að því loknu
út frá málefnum, en ekki vegna
persónuágreinings. Enginn fund-
armanna lýsti andstöðu sinni við
aðgerðir Eggerts Haukdals.
Athugasemd þessi er gerð með
vitund og samþykki Gríms Thor-
arensens og Jóns Þorgilssonar.
Eggert Pálsson, formaður
Sjálfstæðisfélags Rang-
æinga, og Óli Már Aronsson,
formaður Fjölnis, félags
ungra sjálfstæðismanna í
Rangárvallasýslu.
arsson vann Braga Kristjánsson og
skák Elvars Guðmundssonar og Jón-
asar P. Erlingssonar fór í bið. I öðru
til þriðja sæti á mótinu urðu þeir
Leifur Jósteinsson og Jóhann Hjart-
arsson með 8V2 vinning hvor.
Ljósmyndari Mbl. RAX tók myndina í gærkvöldi þegar þeir
Margeir og Sævar áttust við.
SKÁK — Margeir Pétursson sigraði
á Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk í
gærkvöldi. í síðustu umferð gerði
Margeir jafntefli við Sævar Bjarna-
son og hlaut 9 Vz vinning. Aðrar
skákir í síðustu umferð enduðu
þannig að Leifur Jósteinsson vann
Björn Þorsteinsson, Jóhann Hjart-
Olíuviðskiptanefnd kanni
möguleika á stofnun olíu-
innflutningsfyrirtækis
Olíuviðskiptanefnd
einnig falið að ræða
við Saudi-Araba
KJARTAN Jóhannsson
viðskiptaráðherra fól í gær olíu-
viðskiptanefnd að gera tillögur
um fyrirkomulag oiíuinnflutn-
ingsverzlunar landsmanna.
Nefndinni er sérstaklega falið að
kanna möguleika á stofnsctningu
sérstaks olíuinnflutningsfyrir-
tækis, sem annaðist olíuinnkaup
til landsins og viðskipti á al-
þjóðavettvangi í því sambandi.
Kjartan sagði í samtali við Mbl.,
að tillögugerð þessi um stofnun
olíuinnflutningsfyrirtækis væri
gerð í ljósi þeirra breytinga, sem
átt hefðu sér stað og væru að
þróast í olíuviðskiptum á alþjóða-
vettvangi og nauðsynjar þess að
Island lagaði sig að nýjum að-
stæðum. — „Það er hreinlega ekki
eftir neinu að bíða í þessu sam-
• •
Ogri seldi
SKUTTOGARINN Ögri seldi
284.5 lestir af ísfiski í Bremer-
haven í gær fyrir liðlega 100
milljónir króna, meðalverð 351
króna kílóið.
bandi," sagði Kjartan ennfremur.
í bréfi, sem ráðherra hefur ritað
nefndinni er tilgreint að hlutverk
slíks fyrirtækis væri einkum
fimmþætt:
— Að annast olíuinnkaup til
landsins og samninga í því sam-
bandi.
— Að koma á sem hagkvæm-
ustum flutningum á olíu til lands-
ins.
— Að semja um olíuhreinsun
eftir því sem við á.
— Að annast birgðahald á olíu-
vörum með sem hagkvæmustum
hætti.
— Að vera ríkisstjórninni til
ráðgjafar varðandi olíuleit á
íslandi og landgrunninu.
Þá sagði Kjartan í samtali við
Mbl. að hann hefði falið Olíuvið-
skiptanefnd að undirbúa viðræður
við Saudi-Araba um hugsanleg
olíuviðskipti.
Kjördæmisráð Reykjanesi:
Stuðningur við Geir og
þingflokkinn. Harmar
vinnubrögð Gunnars
STJÓRN kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi samþykkti eftirfar-
andi með atkvæðum allra
stjórnarmanna, á fundi í gær-
kvöldi:
„Stjórn kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi lýsir fyllsta stuðningi
við störf þingflokks og for-
manns Sjálfstæðisflokksins í
undangengnum stjórnarmynd-
unarviðræðum og harmar
vinnubrögð Gunanrs Thor-
oddsen. Stjórnin minnir á, að
Sjálfstæðisflokkurinn er
forystuflokkur íslenzkra lýð-
ræðisflokka og skorar á alla
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
að standa vörð um lýðræðisleg-
ar leikreglur."
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Milljón til plöntukaupa í
tilefni af „Ári trésins“
ER HALDIÐ var upp á að 30 ár
voru síðan fyrsti bæjarstjórn-
arfundur var haldinn á Húsa-
vík 31. janúar sl. var ákveðið í
tilefni af „Ári trésins“, að verja
einni milljón króna til kaupa á
plöntum að sögn Bjarna Aðal-
geirssonar, bæjarstjóra á Húsa-
vík.
„Við höfum ekki ákveðið end-
anlega hvar þessum plöntum
verður fyrir komið, en næg
svæði eru hér, auk þess sem við
erum að vinna að uppbyggingu
skrúðgarðs í bænum. Þá eru hér
nokkur opin svæði, sem væri
tilvalið að setja einhvern gróður
á,“ sagði Bjarni ennfremur.
Þá sagði Bjarni aðspurður, að
hafizt yrði handa við að koma
plöntunum fyrir þegar tæki að
vora og búast mætti við því að
verkinu yrði lokið í sumar.