Morgunblaðið - 07.02.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
7
Gunnar kom
ekki til fundar
í Morgunblaðinu í gær
lýsir Svanhildur Björg-
vinsdóttir formaóur kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Norður-
landskjördæmi eystra
því, að hún hafi sótt
miðstjórnarfund Sjálf-
stæðisflokksins í fyrra-
dag ekki síst í þeim
tilgangi að fá upplýsingar
frá fyrstu hendi um þær
stjórnarmyndunarvið-
ræður, sem Gunnar
Thoroddsen stendur nú
fyrir. Bjóst Svanhildur
eölilega viö því, aö Gunn-
ar varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins myndi
sitja fund miðstjórnarinn-
ar á þessari úrslita-
stundu, þegar hann var
nýbúinn að fá umboð úr
hendi forseta íslands. En
Svanhildur segir síðan:
„Hann mætti því miður
ekki á miöstjórnarfund-
inn og enga skýringu
heyrði ég á fjarveru hans.
Ég harma það afskaplega
mikið.“
Greinilegt er, að ætli
Gunnar Thoroddsen yfir-
leitt að leita eftir nokkr-
um stuðningi innan Sjálf-
stæðisflokksins við
stjórnarmyndun sína, fer
hann mjög sérkennilega
að við það. Hann lætur
ekki svo lítið einu sinni
að sækja fund í miðstjórn
flokksins til að svara þar
fyrirspurnum og skýra
mál sitt. Raunar verður
að draga það mjög í efa,
að Gunnar hafi nokkru
sinni ætlaö sér að ganga
til stjórnarsamstarfs við
framsókn og kommún-
ista með Sjálfstæðis-
flokkinn á bak viö sig. Frá
upphafi hefur hann mið-
að að því að ná til sín
liðsmönnum úr þing-
flokki sjálfstæðismanna,
nægilega mörgum til að á
pappírnum a.m.k. upp-
fylli hann skilyrði til að fá
umboð til myndunar
meirihlutastjórnar. Hann
telur, að sér hafi nú tekist
þaö og þá hundsar hann
Sjálfstæðisflokkinn, mið-
stjórn hans og aðra trún-
aðarmenn.
Stjórn fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík kom saman til
fundar s.l. mánudag og
ályktaði um tilraunir
Gunnars. í þeirri ályktun
segir m.a., að til þeirra sé
augljóslega stofnaö í
þeim tilgangi að kljúfa
Sjálfstæðisflokkinn. Og
síðan segir:
„Stjórn fulltrúaráðsins
í Reykjavík fordæmir öll
þau vinnubrögð, sem
brjóta gegn meirihluta-
ákvörðunum flokksins og
heiðarlegum og lýðræð-
islegum leikreglum.
Stjórn fulltrúaráðsins lýs-
ir yfir andstöðu viö þessa
stjórnarmyndun, sem fer
fram án fulltingis Sjálf-
stæðisflokksins.“
Þess er rétt að geta, að
Gunnar Thoroddsen
bauð sig nýlega fram til
endurkjörs í stjórn full-
trúaráðsins og náði þar
kjöri. En hann sá ekki
ástæðu til að mæta á
stjórnarfund ráðsins s.l.
mánudag fremur en á
miðstjórnarfundinn í
fyrradag. Um ályktun full-
trúaráðsstjórnarinnar
hafði Gunnar þetta að
segja í blaðaviðtali: „Það
er raunalegt, þegar menn
eru slegnir flokksblindu."
I
I
Hvaö meö |
Albert? |
Þegar Albert Guð-
mundsson haföi lýst því
skriflega yfir, að hann
mundi verja stjórn Gunn- ,
ars Thoroddsens van-
traustí, var Ijóst að hún
taldist hafa fengið nægi-
legan þingstyrk til að
geta kallast meirihluta- i
stjórn. Albert sá ekki
fremur en Gunnar Thor-
oddsen ástæðu til að
sækja miðstjórnarfund
Sjálfstæðisflokksins í
fyrradag. Hann var ekki
reiðubúinn til að svara
spurningum og greina frá
viðhorfum sínum.
Viðhorf Alberts í þessu |
máli eru næsta furðuleg. í i
Morgunblaðinu í gær var
hann að því spurður,
hvort honum hefðu verið .
kynnt drög að málefna- I
samningi Gunnars, fram-
sóknar og komma. Albert
svaraði: „Ég hef hvorki |
séð né heyrt nokkuð um ,
þau og ekki komið ná- I
lægt þessum stjórnar- |
myndunarviðræðum á
einn eða annan hátt.“
Er nokkur furða, að i
menn velti því fyrir sér,
hvernig Albert Guð-
mundsson hafi komist að
þeirri niðurstöðu, að
hann skyldi verja þá |
stjórn vantrausti, sem
hann veit jafn lítið um og
orö hans sýna. Stangast ,
viðhorf Alberts í þessu
máli mjög á við þá ímynd,
sem hann hefur reynt aö
skapa sér með því að I
setja stefnufestu sína á i
oddinn.
Nkomo vill fresta kosningum í Rhódesíu
Salisbury. 5. febrúar. AP.
JOSHUA Nkomo, annar leiðtoga
föðurlandsfylkingarinnar í Rhó-
desíu, sagðist í dag ætla að fara
þess á leit við Soames, brezka
Iandsstjórann í Rhódesíu, að
fyrirhuguðum kosningum í iand-
inu verði frestað. Sagði Nkomo
að bardagar og ofbeldi væri enn
það mikið í landinu, að vafasamt
væri, að kosningarnar gætu farið
fram með friðsamlegum hætti.
Soames landsstjóri hét því í dag á
fundi með fulltrúum flokkanna
níu, sem bjóða fram í kosingurium,
að Bretar myndu gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að kosn-
ingarnar færu vel og friðsamlega
fram. Kosningarnar eru fyrirhug-
aðar 27.-29. þessa mánaðar.
WESTEAUA MJALTAKERFI
WESTFALIA mjaltakerfi eru mest seldu mjaltakerfi í Þýskalandi og víöar um lönd.
WESTFALIA mjaltakerfum er viöbrugöiö fyrir gæöi.
WESTFALIA mjaltakerfi eru nú í notkun víða um land og hafa þegarsannað ágæti sitt
við íslenskar aðstæöur.
WESTFALIA mjaltabásar og kælitankar eru einnig á boðstólum.
Getum aö jafnaði afgreitt kerfi með stuttum fyrirvara. Góð varahlutaþjónusta.
Komið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Aðalfundur
Aöalfundur Félags íslenzkra stórkaupmanna
1980, veröur haldinn aö Hótel Sögu, fimmtu-
daginn 14. febrúar n.k. og hefst meö
borðhaldi í Súlnasal kl. 12.15 stundvíslega.
Dagskrá fundarins er samkvæmt 18. grein
laga félagsins.
Félagsmenn eru beönir aö fjölmenna á
aöalfundinn og tilkynna þátttöku sína á
skrifstofu félagsins fyrir þriöjudagskvöld hinn
12. febrúar í síma 27066 eöa 10650.
Með kveðju,
Stjórn F.Í.S.
Eigum til allar tegundir af hinum þekktu
I
Fiskarsskærum
Stór sníðaskæri, heimilisskæri hægri og vmstri
handa, eldhússkæri og saumaskæri.
Einnig v-þýzk barnaskæri fyrir föndur og í skól-
ann. Naglaskæri, hárskæri og takkaskæri.
Póstsendum
Laugavegi 29. Simi ^4320 og ■ :.
DCD/CnCI AKI
nr n aci/
Fiskihagfræði
Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiðs um
„Fiskihagfræði“ að Hótel Esju dagana 11.—14.
febrúar kl. 15—19 dag hvern.
Tilgangur námskeiðsins er að gera grein fyrir
kenningum hagfræðinnar um hvernig hag-
kvæmast er að nýta auðlindir sjávar. Fjallað
verður um náttúruskilyrði á miðunum um-
hverfis ísland og rætt um alþjóðasamninga j
sem í gildi eru um fiskveiðar. Síðan veröur
gerð grein fyrir helstu kenningum á sviði
fiskihagfræði og rætt um íslenskan sjávarút- I
veg og stöðu hans.
Námskeiö þetta er ætlaö forsvarsmönnum
fyrirtækja og sjávarútvegi skipstjórnar-1
mönnum og öörum þeim sem áhuga hafa á
málum útgerðar.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður prófessor Gylfi
Þ. Gíslason, en gestir í umræðutímum á nárrfskeið-
inu verða Jón Jónsson forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, Ragnar Arnason hagfræðingur, Þorkell
Helgason dósent við verkfræöi- og raunvísinda-
deild Háskóla íslands og Jónas Blöndal skrifstofu-
stjóri Fiskifélags íslands.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar á
skrifstofu Stjórnunarfélags íslands, sími 82930.
Prófessor
Gylfi Þ. Gíslason
SfÖumúla 23 — Sfmi 82930