Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 Merki Ólympíuleikanna. Áletrunin er á þessa leið: „Ólympíuleikarnir endur- spegla sókn mannkyns til friðar og framfara.“ Sjónvarpsleikar í stað Moskvu-leika? Brezka tímaritið Economist gerir það að tillögu sinni að Olympíuleikarnir í sumar verði gerðir að „sjónvarpsleikum“ þannig að þeim verði dreift á marga staði og þannig verði búið um hnútana að tryggt verði að sem flestir áhorfendur víðs vegar í heiminum geti fylgst með leikunum. “Fjöldi þess fólks sem Ól- ympíuleikarnir veita upplyft- ingu er meiri en þeirra um það bil tveggja af hundraði gáfu- fólks sem fylgist með stjórnmál- um af lifandi áhuga," segir blaðið. „Þess vegna ættu stjórn- málamenn ekki að tala um að hundsa leikana eins og Carter forseti gerir heldur flytja þá.“ „Þeir sem eru hlynntir því að færa leikana stinga venjulega upp á Ólympíuleikvöngunum 1972—76 í Montreal eða Miinch- en; slíkir flutningar hljóma skynsamlega, en því aðeins að þeir beri árangur og hvernig á að sannfæra Ólympíunefndina (IOC) sem er komin í sjálfheldu? En ef bandamenn Bandaríkja- manna sýna meiri rögg er eng- inn þessara þriggja erfiðleika óyfirstíganlegur," segir Econom- ist. 500 milljónir „Yfir 500 milljónir sjónvarps- áhorfenda munu fylgjast með Ólympíuleikunum," heldur blað- ið áfram, „auk um 0.03% þess fjölda, sem munu fylgjast með leikunum á staðnum og mundu valda húsnæðiserfiðleikum í hvaðá borg sem væri, þar sem leikar eru haldnir. Ef leikarnir verða fluttir frá Moskvu væri augljósasta lausnin sú að gera þessa 1980-leika að sjónvarps- leikum, dreifa hinum ýmsu keppnisgreinum til ólíkra, ríkra sem fátækra, íþróttaáhugaþjóða, tengja þær með sjónvarpi og myndsegulbandi við áhorfendur um allan heim, sjá til þess að sjónvarpað verði frá leikunum um gervihnött til helztu sjón- varpsglápssvæða á þægilegum frítímum og verja öllum nýjum styrkjum til þess að standa undir þeim aukakostnaði, sem fylgir því að sjónvarpa frá leik- unum.“ Economist vitnar í þau orð ritara alþjóðaklúbbs íþrótta- manna, Derek Johnsons, í Daily Mail, að þótt „lyfjagjafir þekkist meðal vestrænna íþróttamanna skipuleggi íþróttafélög í Aust- ur-Evrópu lyfjagjafir handa íþróttamönnum“ og segir að lyfjahneykslið í íþróttaheimin- um sé bandamaður vestrænu ríkjanna. „Fáum IOC til að flytja leik- ana frá Moskvu með því að segja nefndinni að fyrir Ólympíuleik- ana í Los Angeles 1984 muni öll siðmenntuð lönd krefjast með lögum lyfjaprófs á öllum íþróttakeppendum „af heilbrigð- isástæðum“,“ segir Economist. ísknattleikur í Pakistan „I sjónvarpsleikunum 1980 skal stungið upp á því, að keppnin í ísknattleik fari fram i Pakistan, hnefaleikakeppnin í einhverju Afríkulandi þar sem þeir séu vinsælir, róðrakeppnin í Júgóslavíu, fimleikarnir í Kína, en að öðru leyti skal keppni i einstökum greinum- fara fram þar sem hver keppnisgrein um sig er vinsælust (júdó í Japan o.s.frv.)," segir blaðið. Economist segir, að ef Ólymp- íuleikarnir verði fluttir frá Moskvu muni það sýna venju- legum Rússum fram á að „önnur lönd heims hafi viðurstyggð á innrás hinna öryggislausu ein- ræðisherra, sem eru valdhafar þeirra, í Afghanistan". „Slíkt mundi stöðva hina kostnaðar- sömu sjónvarpssýningu fyrir heiminn, sem þjónar þeim til- gangi (í anda meiri þjóðernis- hyggju en Ólympíuleikar nazista 1936) að sýna að þessir einræð- isherrar njóti alþjóðlegrar við- urkenningar og hylli.“ Mikið áfall Blaðið Sunday Times tekur í sama streng og segir, að það yrði alvarlegt áfall fyrir Rússa ef leikarnir yrðu ekki haldnir í Moskvu, enda hafi þeir varið 250 milljónum rúblna í smíði leik- vangs og mannvirkja til þess eins að vekja hrifningu körfu- boltamanna frá Tékkóslóvakíu." Ef leikarnir verða hundsaðir mun það hafa miklu meiri áhrif á þá en hömlur Carters forseta á kornsölu. Þetta er hið gullna tækifæri til þess að ná í nauð- synlegan vestrænan gjaldeyri og líka til þess að sýna efagjörnum heimi „fyrirmyndarborg komm- únista". Enn fremur hafa þeir gert svo gífurlega mikið úr leikunum í augum venjulegra rússneskra borgara, að erfitt er að sjá fyrir hvaða hugsanleg áróðurskúvending gæti bætt þann skaða, sem af því mundi leiða ef leikarnir yrðu hundsað- ir.“ En Sunday Times segir, að í Moskvu trúi því ekki nokkur maður að vestræn ríki muni hundsa Ólympíuleikana og vitn- ar í einn starfsmann skipulags- nefndarinnar, A.E. Starodoub, sem sagði undrandi þegar hon- um var gefið í skyn að leikarnir yrðu hundsaðir: „Hundsaðir? Pólitísk þvæla! Við efumst um að svo fari.“ Því halda Rússar ótrauðir áfram að undirbúa leikana, sem eiga að hefjast 19. júlí, þegar þeir gera ráð fyrir að fleiri útlendingar stígi fæti í Moskvu en nokkru sinni síðan her Napó- leons kom þangað (Einn leið- sögumaður frá Intourist mun sjá um hveja 15 gesti). Opinber sovézk mynd af Ólyrnpíuþorpinu. Á næstu vikum munu milljón- ir manna um heim allan þurfa að greiða meir fyrir tannfyll- ingar og fyrir filmur í myndavél- arnar. Það verður líka erfiðara að fá ríku frænkuna til að fallast á að kaupa silfurborðbúnað í brúðargjöf eða fá samþykki heimilislæknisins til að fyrir- skipa röntgenmyndatöku. Áð undanförnu hefur verð á gulli rokið upp lítil 200 prósent og það hafa þótt forsíðufréttir, en á meðan hefur silfurverð hækkað um meir en 550 prósent án þess að vekja ýkja mikla athygli. Það hafa orðið miklar vangaveltur um ástæður þess, að gull hefur hækkað svo mjög í verði, en lítil svör hafa fengist. Á silfurmarkaðnum hafa farið fram ítarlegar athuganir, sem gefið hafa dágóð svör. Þessa óvenjulegu hækkun silf- urverðs má rekja að mestu til aðgerða eins manns, Nelsons Bunkers Hunt, og fjölskyldu hans. Bunker Hunt er einn tíu erfingja að auði, er nam 800 milljörðum ísl. króna og var arfur hins þjóðfræga olíukóngs í Dallas, H.L. Hunts en hann lést árið 1974. Erfingjar hans hafa ekki látið sitt eftir liggja og hinir vesælu Maður- inn sem á silfur- fjallið 800 milljarðar H.L. Hunts hafa í höndum þeirra orðið að 2000 milljörðum króna. Ástæðan er að hluta til þaulhugsuð og stór- tæk kaup á silfurmörkuðum heims. Yfirvöldum líst ekki á blikuna Reyndar hafa afrek Bunkers Hunts á silfurmörkuðum haft svo víðtækar afleiðingar, að al- ríkisstofnun sú í Washington, sem annast eftirlit með kaup- höllum — Nefndin um samn- ingsbundin kauphallarviðskipti — hefur knúið fram breytingar á reglum þeim, er gilda í stóru kauphöllunum í New York og Chicago í því skyni að stemma Mark Frankland/OBSERVER: Pólverjar eru að ókyrrast undir okinu EFNAHAGSVANDI og sívaxandi óánægja almenn- ings með úrræðaleysi stjórnvalda herja í Póllandi. Edward Gierek, formaður pólska kommúnistaflokks- ins, viðurkenndi fúslega í hverri ræðunni á fætur annarri í síðasta mánuði, að þjóðin væri komin í ógöngur. í ræðum sínum minntist hann á öll helztu áhyggjuefni almennings: Hvers vegna er skortur á kolum í landi svo auðugu að kolum? Hvers vegna er raf- magnsskortur í flestum bæj- um? Hvers vegna er rekstur járnbrautalesta í molum? Hvers vegna verður fólk að bíða í átta ár eftir íbúð? Hvers vegna eru ekki nógar vörur í verzlunum? Gierek fullyrðir að forysta flokksins geri sér fulla grein fyrir erfiðleikunum og að þeir haldi fyrir honum vöku. En Pólverjar eiga við alvar- legri vanda að stríða en efna- hagserfiðleika. Efnahagsvand- inn minnir fólk á takmörk pólska stjórnarkerfisins og innbyggðan veikleika þess. Um það fjallar mjög athyglisverð skýrsla, sem 50 pólskir menntamenn sömdu. Þeir eru margir meðlimir í kommún- Peter Ristic/QBSERVER: Tito ætlar eng- um að feta í fótspor sín! Langt er síðan ákveðið var, hvað við tekur, þegar Tító fellur frá — en þó er ekki víst, að allt fari svo sem ætlað er. Meiningin er, að enginn taki við af Tító. Forseti á aldrei framar að ríkja í Júgóslavíu. Nokkrir stjórnmálamenn eiga að taka við völdum hans. Tító hefur ákveðið að ríkis- stjórn landsins og yfirstjórn flokksins skipti með sér for- setaembættinu. Ákvarðanir eiga að vera teknar í samein- ingu og bróðerni og forsæti stjórnanna á að vera í höndum stjórnarmanna í eitt ár í senn. I ríkisstjórninni ei'ga sæti fulltrúar frá ríkjunum sex og svæðunum tveim, sem saman mynda Júgóslavíu. Tító hefur ávallt átt forsæti í henni. Á hverju ári er útnefndur vara- forseti, sem stjórnar fundum og skipuleggur þá. Lazar Kolisevski frá Make- dóníu, sem er 65 ára, er núverandi varaforseti ríkis- stjórnarinnar. Ef Tító fellur frá verður litið á hann sem ábyrgðarmesta mann íandsins, þann sem gegnir opinberum skyldustörfum forseta. En inn- an stjórnarinnar yrði hann ekki valdameiri en hver hinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.