Morgunblaðið - 07.02.1980, Side 13

Morgunblaðið - 07.02.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 13 stigu við aðgerðum Hunt-fjöl- skyldunnar. Bunker Hunt og einn bræðra hans, Herbert Hunt, svöruðu ásókn ríkisbáknsins þegar í stað og keyptu sér 3 prósent hlut í einu arðsamasta verðbréfa- og kauphallarfyrirtæki í New York, Bache-samsteypunni, fyrir að- eins 1140 milljónir ísl. króna. Auk þess sem H.L. Hunt ávaxtaði arf sinn ríkulega tókst honum að stofna til ótrúlega flókinnar fjölskyldu. H.L. Hunt lét eftir sig þrjá erfingjahópa. Hin svokallaða „fyrsta fjölskylda" eru sex eftir- lifandi börn með fyrstu eigin- konu hans Lydiu Bunker 'Hunt. Fremstur í þeirra hópi er Nelson Bunker, sem rekur viðskipti sín að miklu leyti með yngri bróður sínum William Herbert, er hefur á sinni hendi olíuviðskipti fjöl- skyldunnar. Auður „fyrstu fjöl- skyldunnar“ kemur úr sjóðum, sem H.L. stofnaði árið 1935. Sjóðir þessir eiga meirihluta í Placid-olíufélaginu, sem meðal annarra eigna á olíulindir sem metnar eru á 800 milljarða króna. „Önnur fjölskylda" saman- stendur af annarri eiginkonu H.L. Hunts, Ruth, og hennar fjölskyldu. Frú Ruth Hunt, Ray sonur hennar og tvær dætur erfðu um 80 prósent í hinu upphaflega Hunt-olíufélagi. Það er gríðarstórt fyrirtæki, sem á miklar fasteignir og eignir í landbúnaði og er einkum stjórn- að af Ray Hunt. Árið 1978 kom á daginn, að til var „þriðja fjölskyldan“. Kona nokkur frá Shreveport í Louisi- anafylki, Frania Tye að nafni, gaf sig fram og kunngerði, að hún hafði einnig verið gift ætt- föðurnum. Fyrsta fjölskylda, að kalla má eign Nelsons Bunkers, hefur tekið ástfóstri við kauphallar- viðskipti. Í fleiri en eitt skipti hefur þessi ást hennar á kaup- hallarvörum valdið beinum árekstrum við alríkisstjórnina. Það er silfur, sem vakið hefur athygli almennings á Nelson Bunker Hunt undanfarna mán- uði. Skráð viðskipti hans ná aftur til ársins 1974, er hann veitti viðtöku miklu magni af silfri á 1308 krónur únsuna, þegar gangverðið var 16000 krónur fyrir sama magn. Árið 1976 átti dótturfyrirtæki Hunts 20 milljón únsur af silfri, sem á þeim tíma var metið á 2000 krónur fyrir únsu. Hunt áleit það allt of lágt verð miðað við að ársframleiðsla silfurs var aðeins 300 milljón únsur, en ársneyslan 500 milljónir og fór vaxandi samfara auknum vinsældum ljósmyndatöku svo og síauknum fjölda tanna, sem þurfti að fylla um allan heim. Einokunaraðstaða í vonbrigðum sínum hóf hann að beita markvissum brögðum í þeirri viðleitni að fá fram verð- Nelson Bunker Hunt hækkun. Að lokum hækkaði silí- ur í verði, að sjálfsögðu, fyrir áhrif gullverðs og markaðsað- gerðir Hunts jukust. Álitið er, að silfureign hans nemi nú eitthvað um 23 milljónum únsa, en það er ekki síður mikilvægt, að hann er sagður hafa í höndum meir en 4000 samninga um fyrirfram- kaup á silfri. Þetta táknar í raun og veru, að Bunker Hunt og fáeinir meðeigendur í Austur- löndum nær eiga meir en nóg af málminum til að þrengja að silfurmarkaðnum, ef þeim sýnist svo. Völd Hunts á þessum vett- vangi hafa dregið að sér athygli áðurnefndrar kauphallarnefnd- ar í Washington, en henni hefur tekist að rekja meginhluta verð- hækkana á silfri að undanförnu til Hunt-fjölskyldunnar með því að yfirfara þúsundir kaupsamn- inga hjá kaupamiðlurum um gervöll Bandaríkin. Þrátt fyrir takmarkanir reglu- gerða, er engin vafi á, að hagn- aðurinn hefur verið gífurlegur. Sumir sérfræðingar giska á að hann nemi meir en 400 milljörð- um króna. Hagsmunir „fyrstu fjölskyldu" ná langt út fyrir silfur. Þeir spanna olíu- og jarðgaslindir í átta fylkjum, og milljónir ekra í landbúnaðarhéruðum, þar á meðal fjögur milljón ekrur í Ástralíu einni. Hún á stærstu sykurrófuakra í Bandaríkjunum, 2.5 milljón tonna kolanámur, hinar 400 pizza-sölur í Shakey- keðjunni, 1000 hreinræktaða hesta, svo og fótboltaliðið í Dallas, fótboltaliðið Kansas City Chiefs og heimsmeistarakeppn- ina í tennis. En auk þess að vera meðal ríkustu fjölskyldna í Bandaríkj- unum er hún jafnframt ein sú umdeildasta. Hún sýnir starfs- fólki sínu fádæma tortryggni og heldur ævinlega, að það sé að sækjast eftir hlut í auðæfum hennar. Stj órnmálaskoðani r fjölskyldumeðlima hafa einnig vakið athygli. Bunker Hunt er í stjórn hins hægri-sinnaða John Birch Society, sem er þekkt fyrir að vera í röð við Gyðinga, frjálslynda (þar á meðal Rocke- fellerfjölskylduna), og blökku- menn. Gierek: andvökunætur. istaflokknum og enginn þeirra er þekktur andófsmaður. Hópurinn kallar sig „Reynsla og framtíðin" og hittist fyrst fyrir ári síðan með blessun flokksforystunn- ar. Skýrslan var send Gierek þrátt fyrir, að hún var ekki vel séð af yfirvöldum. Eintak komst í hendur andófsmanna, sem birtu hana í málgagni sínu. í skýrslunni er veikasti blettur pólska stjórnmálakerf- isins ræddur: Það er engin lögleg leið til að skipta um ríkisstjórn og enginn vegur fyrir almenna borgara að hafa áhrif á stjórnmál. í skýrslunni segir, að þetta hafi sannfært almenning um, að „róttæk breyting á félags- og stjórn- málakerfinu sé, bæði í senn, alveg nauðsynleg og algjör- lega ógerleg“. Forystumenn hafa bannað opinber skrif eða umræðu um efnahagserfiðleika landsins, sem hefur sameinað almenn- ing og menntamenn í gagnrýni á ritskoðun. Jafnvel háttsettir blaðamenn flokksmálgagna hafa sagt opinberlega, að ríkisstjórnin geti ekki lengur leyft sér að segja „hálfan sannleikann" og „forðast óþægileg málefni". Það er óumflýjanlegt, eins og komið er, að sovézk yfir- stjórn í Póllandi verði æ óvin- sælli. Um leið og vinsældir flokksins dvína hafa kaþólska kirkjan og samtök andófs- manna vaxið mjög í áliti. En Gierek hefur ekki sýnt nein merki þess að hann ætli að boða miklar breytingar á flokksfundinum, sem haldinn verður í febrúar. Tito: hann ætlar að taka emb- ættið með sér í gröfina. Næsta sumar mun Kolisevski láta af embætti og einhver annar taka við samkvæmt reglunni um að öll störf eigi að ganga á milli fulltrúanna. Þeir, sem vit hafa á, munu hins vegar hafa meiri áhuga á flokksstjórninni, þegar Tító fellur frá. Hana sitja 24 menn, sem kjörnir eru til fjögurra ára í senn. Tító er foringi þeirra. Þetta er mikilvægasta stjórn landsins. Stevan Doronjski, sem er 60 ára, er nú yfirmaður hennar, en í október rennur eins árs tímabil hans út og völdin fær einhver annar stjórnarmanna. Enginn veit hver mun taka við af honum og það ætti ekki að skipta höfuðmáli, vegna þess að samkvæmt bókstafnum hef- ur stjórnarformaður ekki meira vald en hinir, þar sem ákvarðanir eru teknar í sam- einingu. Það er spurning, hversu lengi sameiginleg og tíma- bundin forysta getur gengið, án þess að einhver komi fram sem leiðtogi. „Fyrst í stað munu þeir allir standa saman,“ sagði einn embættismaður mér, „en ég held að á endanum hljóti einhver að reyna að trana sér fram.“ Hann bætti við að sá yrði aldrei eins valdamikill og Tító, forseti og stofnandi Júgó- slavíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.