Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 ífiiíii ipSÍM Um þessar mundir er mikið um að vera hjá Sinfóníuhljómsveitinni. Fyrir utan það að æfa fyrir næstu reglulegu hljómleika á fimmtudag, eru Sinfóníuhljómsveitin, Söngsveitin Fílharmonía og vænn hópur einsöngvara að búa sig undir nýstár- legt stórverkefni, flutning á óperunni La Traviata eftir Verdi, og hefur verið æft stíft síðan um miðjan janúar, iðulega að morgni, um miðjan dag og að kvöldi, að því er hljómsveitarstjórinn, Gilbert Levine, og Sue M. Porters sögðu blaða- manni Mbl., er hitti þau að máli. Sue M. Porters er það sem á ensku er nefnt „coacher“, en við eigum ekki einu sinni nafn yfir. „Coacher“ starfar við óperur, kennir raddirnar og undirbýr söngvarana áður en stjórnandinn kemur inn í myndina. Sue M. Porters, sem er fastur aðstoðarstjórnandi við óperuna í San Fransisco og hefur starfað þar fyrir utan með ýmsum söngv- urum og óperum, kom til íslands 19. janúar og tók til við að fara yfir verkið með söngvurunum. Fyrst einum og einum og síðan saman í smáhópum og með kórn- um. Gilbert Levine kom viku síðar. Hann sagði aö málið ætti nokkuð langan aðdraganda. Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, hefði nefnt við sig hugmyndina um að flytja La Traviata í hljómleikasal með þess- um hætti í janúar í fyrra. Fyrir meira en hálfu ári var það svo ákveðið er hann var hér á ferð í júní og um leið að nota aðeins íslenzka söngvara. Þá kvaðst hann hafa fært það í tal, að nauðsynlegt væri að fá mjög góðan og þjálfað- an „coacher". Hann leitaði ráða hjá einum af hljómsveitarstjórum Metropolitan-óperunnar, Richard Waitack, sem benti á Sue M. Porters, er oft vinnur með söngv- urum Metropolitan-óperunnar. Og hljómsveitarstjórnin hér ákvað að fá hana hingað. — Þetta er yfirleitt ákaflega vel skipulagt og undirbúið verk- efni, sagði Gilbert Levine. Við höfum nú fjögurra vikna æfingar, því hljómleikarnir verða 12. og-14. febrúar, og það þykir í rauninni ákaflega gott hvar sem er. Undir þetta tók Sue M. Porters og bætti við, að hér væri líka ákaflega vel unnið. Fólkið væri allt svo fúst til að leggja sig fram. Aldrei væri neikvætt svar, heldur alltaf tekið undir ef stungið væri upp á æfingum, og gilti það jafnt um einsöngvara og kórfólk, sem væri sjaldgæft í hvaða óperuhúsi sem er. Þótt þetta fólk vinni allt önnur störf, þá finnur það sér einfaldlega tíma til æfinga. Levine bætti því við, að hann væri feginn að ákveðið var að flytja verkið á ítölsku. Við það fengi það meira líf, og hann kvaðst mjög ánægður með ítölskuna hjá söngvurunum. Enda væri Sue Porters vel ítölskumælandi. Þau hefðu hitzt í New York, áður en hún fór til Islands og rætt um flutninginn á La Traviata. Hún hefði svo verið búin að vinna mikið og gott verk, þegar hann kom, og það gerði sitt verkefni miklu léttara. Kórinn væri góður og reiðubúinn til að taka þátt í verkinu sem drama, ekki bara söngur, og það mundi bæta upp- færsluna. Islenzkir söngvarar Einsöngvararnir í aðalhlutverk- unum eru Guðmundur Jónsson, Ólöf Harðardóttir og Garðar Cort- es og í minni hlutverkum Elísabet Erlingsdóttir, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Már Magnússon, Kristinn Hallsson, Halldór Vil- helmsson og Hjálmar Kjartans- son. Við spjölluðum um einsöngs- hlutverkin. Levine kvaðst ákaflega ánægður með söngvarana hér og Liósm. Ól. K. Mag. Hljómsveitarstjórinn Gilbert Levin og Sue M. Porter, sem þjálfar söngvarana. Garöar Cortes og Ólöf Harö- ardóttir syngja ásamt Guó- mundi Jónssyni aöalhlut- verkin í óperunni. rifjaði upp nokkur atvik í því sambandi. Upphaflega hafði Magnús Jónsson ætlað að syngja hlutverk Alfredos. Svo var það seint á haustmánuðum í nóvem- ber, að hann var á leið milli Evrópu og Ameríku um ísland, enda sagðist hann oft ferðast með Loftleiðum. Hann kvaðst hafa verið alveg uppgefinn og hlakkað til að komast heim. Þegar hann gekk inn í flugstöðina í Keflavík til að bíða þess að halda ferðinni áfram, sá hann að þar voru komnir Sigurður Björnsson og Jón Sen og hugsaði: Guð minn góður, nú er eitthvað að, allt farið í vaskinn! Þeir spurðu hvort ég gæti stansað í 2 daga, og það varð úr, þótt farangurinn minn yrði að halda áfram með vélinni. Þeir tjáðu mér, að Magnús væri hættur við að syngja hlutverkið. Þetta var meiri háttar áfall, því mér sýndist ekki líklegt að annar söngvari gæti þannig umsvifalaust komið inn í fyrir Alfredo. Bjóst við að við yrðum að sækja einhvern vanan hlutverkinu til New York eða annað. En þeir höfðu beðið mig um að hafa viðdvöl til að hlústa á Garðar Cortes sem ég var strax mjög ánægður með. Það var alveg stórkostlegt að geta fengið hann, sagði Levine. Þá sagði Gilbert Levine frá atviki, sem honum fannst ekki síður stórkostlegt. Það vantaði söngvara í 3 örstutt hlutverk, og talið að líklega þyrfti bara að sleppa þeim úr. Hann kvaðst hafa rætt þetta við kórstjórann Martin Hunger, sem benti strax á mann úr kórnum sjálfum, Kristin Sigur- mundsson. Hann gat sungið öll hlutverkin þrjú, þótt þau séu gerð fyrir mismunandi raddtegundir. Kristinn lærði hlutverkin á einum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.