Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
17
Gamanbingó til styrktar
Sólheimum í Grímsnesi
Aðalverkefni Lionsklúbbsins
Ægis hefir frá upphafi beinst
að því að aðstoða. efla og
styrkja heimili þroskaheftra að
Sólheimum Grímsnesi. Núver-
andi verkefni klúbbsins er að
standsetja og endurbyggja
sundlaug og búningsklefa á
Sólheimum. en þessi mannvirki
voru komin í hina mestu niður-
níðslu og raunar orðin ónothæf
vegna viðhaldsleysis.
Síðastliðið vor hófst klúbbur-
inn handa við að lagfæra og
endurbyggja þessi mannvirki.
Framkvæmdir þessar hafa
kostað mikið fé og margar
milljónir vantar enn til að ljúka
verkinu, en klúbbfélagar hafa
einnig lagt fram mikið starf í
sjálfboðavinnu.
Markmiðið er að hinir þroska-
heftu vistmenn á Sólheimum
geti farið að nota sundlaugina í
vor og er beðið með mikilli
eftirvæntingu eftir því á staðn-
um að klúbburinn ljúki þessu
verkefni þannig að vistmenn
geti aftur farið að nota sund-
laugina. Ástæðulaust er að taka
fram hversu bráðnauðsynlegt er
að koma lauginni og aðbúnaði
öllum í það horf að viðunandi sé,
því að allir vita hversu stór
þáttur í heilsu þroskaheftra
hverskonar líkamsrækt er. Hún
bætir líkamlegt þrek þeirra og
veitir þeim ómældar ánægju- og
gleðistundir.
Fjáröflun Ægis vegna þessa
verkefnis verður með svonefndu
GAMANBINGÓI í Sigtúni í
kvöld kl. 19.30. Við hvetjum alla
þá, sem vilja veita þroskaheft-
um lið að mæta í Sigtúni í kvöld,
en auk fjölda verðmætra vinn-
inga er hér á ferðinni afbragðs
fjölskylduskemmtun, sem verð-
ur í umsjá Svavars Gests, sem
stjórnar bingóinu, Sigfúsar
Halldórssonar og Guðmundar
Guðjónssonar, einsöngur með
undirleik Sigfúsar og Baldurs
Brjánssonar, sem sýnir töfra-
brögð.
í anddyri Sigtúns taka á móti
samkomugestum þeir Jörundur,
Ómar Ragnarsson, Halli og fl.
og bjóða bingóspjöld til sölu.
(Fréttatilkynning)
sokkabuxurnar,
^ þma tra morgm i
kvölds. Þú finnur áhrifin
strax og þau eru stórkot
^ Wæturnir
eru þér
mikilvægir, hvers vegm
aö gera eitthvað fyrir
Gefðu þeim Sheer Energy,
í næstu verzlun. ' Jp
UM/i . .
cJémcrióhdr
Tunguhálsi 11, sími 82700
ALLT AMERISKT
NEMA EYÐSLAN
Hún er um, og undir 121. á 100 km.
6 cyl. 258 cid vél. Sjálf-
skipting, vökvastýri, afl-
hemlar, hiti í afturrúðu,
hallanleg stólabök, pluss-
aklæði, viðarklætt mæla-
borð, o.s.frv. Amerískur
lúxusbíll með öllu.
Bjóóum einnig
SPIRIT m/4 cyl.vél.
Bensinnotkun
9-10 1. /lOOkm.
ri
American
Motors
Einkaumboöáfslandi
Fólksbíll meÓ öllu,líkafjórhjóladrifi
Eagle er fyrsti ameríski fólksbíllinn, sem bú-
inn er fjórhjóladrifi (Full-time-four-wheel-
drive). Það eykur stöðugleika bilsins í hálku,
bleytu og á lausu yfirborði vegar og gefur
honum jeppaeiginleika í akstri utan vega.
I Eagle er auk þess allur sami búnaður sem í
Concord.
/ AÍft á sama Staö Laijgavegi TW-Sírni 2224ÖI
EGILL. /
VILHJALMSSON HF.l