Morgunblaðið - 07.02.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
Skæruliðar Föðurlandsfylkingarinnar æfa hergöngu, en aðrir eru í
boltaleik með brezkum gæzluhermönnum í einum af þeim 14 búðum
sem 21.000 skæruliðar í Rhódesíu dveljast í.
Árás á heimili
Robert Mugabes
^ Sáljsbury. 6. íebrúar. AP.
ÁRÁS var gerð í dag með eld-
flaugum og sprengjum á heimili
skæruliðaforingjans Robert Mug-
ábes í úthverfum Salisbury. Mug-
abe sakaði ekki. en einn af
frambjóðendum hans, Kumbirai
Kangayi, slasaðist alvarlega,
þegar önnur árás var seinna gerð
á heimili hans.
Skömmu síðar undirritaði
brezki landstjórinn, Soames lá-
varður, tilskipun um að hert
verði á aðgerðum sem eiga að
koma í veg fyrir stigmögnun
ofbeldisverka fyrir kosningarnar
27. til 19. febrúar er eiga að leiða
til sjálfstæðis Rhódesíu.
Tveir blökkumenn voru hand-
teknir vegna árásarinnar á heimili
Mugabes. Kangayi, sem særðist,
hefur farið með samgöngu- og
velferðarmál í flokknum Zanu.
Hann er talinn úr lífshættu og
honum líður vei eftir atvikum.
Þessar síðustu árásir fylgja í
kjölfar vaxandi ofbeldisverka
síðan vopnahlé komst á fyrir
einum mánuði. Um 800 manns
hafa verið dæmdir undanfarnar
sjö vikur fyrir ofbeldisverk.
Seinna sakaði Mugabe stuðn-
ingsmenn Abel Muzorewas fyrr-
verandi fotsætisráðherra um
skipulega tilræðisherferð gegn
flokki sínum. Hann sakaði jafn-
framt Soames lávarð um að draga
taum flokks Muzorewas og gagn-
rýndi tilskipun hans um baráttu
gegn ofbeldisverkum er hann telur
fyrsta skref í þá átt að banna
Zanu.
Hvarf olíuskips
var sett á svið
London. 6. íebrúar. AP.
SHELL Oil International í London ætlar að höfða mál til að krefjast 15 milljón punda í bætur frá
ónafngreindu fyrirtæki í Suður-Afríku vegna hvarfs risaolíuskipsins Salem sem sökk með
dularfullum hætti undan strönd Vestur-Afríku 17. janúar. Jafnframt hefur stjórnin í Kuwait hætt
olíusölu til ítalska fyrirtækisins Pontoil þar til rannsókn hefur farið fram á hvarfi Salem og
ráðsmaður í Kuwait kallar hvarfféð „einhverjar mestu sjóránsaðgerðir þessarar aldar“.
Getum er að því leitt að
fyrirtækið sem Shell stefnir sé
suður-afríska ríkisolíufyrirtæk-
ið þótt Shell vilji ekki nefna
fyrirtækið vegna lagaákvæða.
Shell sagði í síðustu viku að
fyrirtækið hefði átt farm Sal-
ems, 193.000 lestir af hráolíu frá
Kuwait. Það hefur þegar höfðað
mál til að krefjast 24,7 milljón
punda af Frederick Soudan, for-
manni Oxford Shipping Co. sem
er skráð í Líberíu og átti olíu-
skipið sem var 214.000 lestir.
Soudan hefur neitað því fyrir
milligöngu lögfræðinga sinna í
London að hann beri ábyrgðina á
hvarfi Salems sem átti að fara
til Ítalíu með farminn. Soudan
fór frá London til Genfar fyrir
fimm dögum, daginn eftir að
Lloyds-tryggingafyrirtækið og
Scotland Yard hófu rannsókn á
einhverju mesta svindli sem um
gæti í sögu kaupsiglinga eins og
komizt var að orði.
Rannsóknarmenn segja að olí-
unni virðist hafa verið skipað í
land á laun í Durban þar sem
Salem hafði viðkomu 27. des-
ember þótt það hefði ekki verið
ráðgert og þótt það væri brot á
ströngu olíubanni Arabaríkja á
Suður-Afríku. Grunur leikur á
að skipið hafi verið dulbúið svo
að það þekktist ekki.
Síðan er talið að geymar
Salems hafi verið fylltir sjó svo
að skipið hafi virzt fullhlaðið.
Fimmtán dögum síðar er sagt að
skipinu hafi verið sökkt út af
Senegal á einhverju mesta dýpi
á Atlantshafi til að tryggja að
kafarar kæmust ekki að því.
Lloyds hafði tryggt skipið og
farm þess fyrir 80 milljónir
dollara og kröfurnar sem fyrir-
tækið fær á sig verða einhverjar
hinar mestu sem um getur í
siglingasögunni, nema því aðeins
að sannað verði að brögð hafi
verið í tafli.
Suður-Afríka kaupir olíu hvar
sem hana er að fá og öll olíukaup
landsins eru hulin miklum
leyndarhjúp þannig að auðvelt
er að semja við stjórnvöld þar
um skuggaleg viðskipti án þess
að spurt sé um nokkuð. Oft
greiða Suður-Afríkumenn 20
dollurum meira fyrir olíutunn-
una en Opec setur upp.
Friðarganga stöðvuð á
landamærum Kambódíu
Aranyaprateht. Thailandi. 6. febrúar. AP.
RÚMLÉGA 120 Evrópumenn og
Bandaríkjamenn, þar af margt
þekkt fólk, gengu í dag að brú
yfir landamæri Thailands og
Kambódiu, en beiðni þeirra um
að fara inn í landið með vistir var
ekki svarað.
Göngumönnum kom þetta ekki
á óvart og þeir höfðu áður sagt
að þeir hefðu hætt við að fara yfir
landamærin. Fréttir hermdu að
víetnamskir hermenn hefðu kom-
Samband milli
Kórenríkjanna
Panmunjom. 6. febrúar. AP.
NORÐUR- og Suður-Kórea
ákváðu í dag að koma aftur á
beinu símasambandi milli
Pyongyang og Seoul að því er
suður-kóreskur talsmaður til-
kynnti í dag.
Norður-Kóreumenn rufu sam-
bandið einhliða 1976, skömmu
eftir morð tveggja norður-kór-
eskra landamæravarða á tveim-
ur bandarískum hermönnum á
vopnlausa svæðinu. Samband-
mu var upphaflega komið á
1972.
Hins vegar munu aðeins full-
trúar í viðræðum kóresku
ríkjanna, sem nú eru nýlega
hafnar, nota nýju línuna.
Samkomulag tókst um nýju
línuna þegar aðalfulltrúar kór-
esku nefndanna ræddust við
stuttlega skömmu eftir fund
viðræðunefndanna sem var
haldinn í því skyni að undirbúa
fund forsætisráðherra land-
anna.
ið fyrir hindrunum rétt innan við
landamærin til að koma í veg
fyrir að göngumenn færu yfir
þau.
Fulltrúar hópsins lásu upp í
hátölurum áskoranir „til þeirra
sem hafa staðið hinum megin við
landamærin" að leyfa 20 flutn-
ingabifreiðum að fara með vistir
og læknalið inn í Kambódíu til að
hjálpa „þeim sem af hefðu lifað of
langan harmleik."
Milli tíu og tuttugu verðir,
annað hvort Víetnamar eða stuðn-
ingsmenn Heng Samrins, höfðu
áður sézt á vappi handan árinnar
sem myndar landamærin, en ekk-
ert svar barst við beiðni göngu-
manna. Þeir settust þá niður á
veginum sem liggur að landamær-
unum og voru beðnir að hugleiða í
fimm mínútur „fallvaltleika
lifsins" og „vandkvæði á því að ná
fram friði“.
Síðan söng hópurinn „We Shall
Overcome“, sál bandarísku
mannréttindahreyfingarinnar
undir forystu bandaríska mann-
réttindaleiðtogans Bayard Rustin.
Seinna fóru fjórir thailenzkir
búddamunkar með bæn.
Flestir göngumenn höfðu ekki
vegabréf meðferðis. Stjórnin í
Phnom Penh hafði áður kallað
gönguna „mjög rætna aðgerð" sem
miðaði að afskiptum af kambó-
dískum innanlandsmálum og
sagði að göngumönnum yrði ekki
leyft að fara inn í landið. Vistirn-
ar verða afhentar Rauða krossin-
um á morgun.
„Við erum ekki hingað komin til
að fella fyrirfram dóma um
ástandið heldur aðeins til að varpa
fram spurningum um hvers vegna
Kambódía hleypir ekki fleiri
læknum og meiri matvælum inn í
landið," sagði bandaríska söng-
konan Joan Baez. Meðal annarra
kunnra göngumanna voru norska
leikkonan Liv Ullmann, brezki
þingmaðurinn Winston Churchill,
Gyðingapresturinn Marc Tannen-
baum frá Bandaríkjunum og
nokkrir franskir stjórnmálamenn,
listamenn og rithöfundar.
Leo Cherne, leiðtogi alþjóðlegr-
ar hjálparnefndar, sagði að gang-
an hefði tekizt vel í alla staði og
kvað athygli heimsins sem atburð-
irnir í Afganistan og íran hefðu
dreift, hafa aftur beinzt að Kam-
bódíu.
Þetta gerðist
1976 — Skipun Hua Kuo-feng í
stöðu forsætisráðherra Kína
kunngerð.
1976 — 30 daga geimferð
tveggja Rússa lýkur.
1971 — Geimfararnir í Apolio
14 lenda á Kyrrahafi eftir tungl-
ferð.
1948 — Eisenhower segir af sér
sem herráðsforseti og Omar
Bradley tekur víð.
1944 — Þjóðverjar ráðast á
Bandamenn við Anzio, Ítalíu.
1941 — Bretar taka Benghazi.
1920 — Bolsévíkar taka Koltc-
hak aðmírál af lífi.
1878 — Leo páfi XIII kjörinn.
1849 — Stórhertoginn af Tosc-
ana flýr til Gaeta, Italíu.
1831 — Stjórnarskrá Belgíu
birt.
1816 — Símoni Bólivar falið að
stjórna innrás í Venezúela frá
Haiti.
1793 — Austurríkismenn og
Prússar gera bandalag gegn
Frökkum.
1554 - Herlið Sir Thómas
Wyatt sækir til Lundúna.
1550 — Júlíus páfi III kjörinn.
Afmæii. Charles Dickens, brezk-
ur rithöfundur (1812-18701 -
Sir Thomas More, enskur stjórn-
málaleiðtogi (1478—1535 —
Dimitri Mendeleyev, rússneskur
efnafræðingur (1834 — 1907) —
Alban Berg, austurrískt tón-
skáld (1885-1935) - Sinclair
Lewis, bandarískur rithöfundur
(1885-1951).
Andlát. 1837 Gústaf IV Svíakon-
ungur — 1878 Píus páfi IX —
1937 Elihu Root, stjórnmálaleið-
togi.
Innlent. 1911 Fiskifélag Íslands
stofnað — 1950 Alþingi sam-
þykkir aðild að Evrópuráðinu —
1826 Amtmannshúsið á Möðru-
vöilum brennur — 1848 Auglýs-
ing Stefáns Gunniaugssonar
landfógeta um íslenzka tungu í
íslenzkum kaupstað („hvað allir
athugi!“) — 1959 Fyrsti togarinn
dæmdur eftir útfærsluna í 12
mílur — 1959 Ofviðrið á
Nýfundnalandsmiðum — 1974
Concorde kemur — 1917 f. Gylfi
Þ. Gíslason — 1904 f. Ragnar
Jónsson í smára — 1908 f.
Sverrir Kristjánsson sagnfr.
Orð dagsins. í þá daga var hann
vitrari en nú: hann fór oft að
mínum ráðum — Winston
Churchill, brezkur stjórnmála-
leiðtogi (1874-1965).
Norðmenn beiskir
út af orðsendingu
Frá fréttaritara Mbl. i Ósló í gær.
ÍSLENDINGAR munp brjóta gegn öllum venjulegum hafrétti ef
fieir halda til streitu þeirri yfirlýsingu sinni, að öll loðna milli
slands, Jan Mayens og Grænlands sé íslenzk, af því hún hrygni
við ísland, að sögn aðalritara sambands fiskibátaútgerðar-
manna, Leiv Grönnevet.
Þetta eru ein af mörgum
beiskjulegum ummælum um
loðnuorðsendingu íslendinga, er
send var til að svara þeim ugg er
Norðmenn létu í ljós, að Islend-
ingar kynnu að veiða of mikið af
loðnu í vetur. Norskir fiskimenn
telja orðsendinguna tilraun til
að meina Norðmönnum að taka
þátt í loðnuveiðinni á þessum
slóðum.
Þolinmæði fiskibátaeigenda er
á þrotum og krafan um norska
fiskveiðilögsögu umhverfis Jan
Mayen hefur fengið byr undir
báða vængi síðan íslendingar
segir
sendu orðsendinguna,
Grönnevet.
Samband fiskibátaeigenda
hefur samþykkt að kalla saman
sérstakan fulltrúafund til að
ræða hugsanlegar aðgerðir, ef
Jan Mayen-málið verður ekki
útkljáð fyrir apríllok. í næstu
viku heldur sambandið stjórn-
arfund og síðustu skref íslend-
inga í Jan Mayen-deilunni hafa
verið sett á dagskrá.
Samband fiskibátaeigenda
nær til eigenda 421 fiskibáts um
allt landið og er aðili að Norges
Fiskarlag.
Tilræði í Sviss
Bcrn, 6. febrúar. AP.
SENDIHERRA Tyrklands í Sviss,
Dogan Turkmen, særðist þegar
tilraun var gerð til að ráða hann
af dögum í dag og samtök arm-
enskra hryðjuverkamanna lýstu
yfir að þau bæru ábyrgðina.
Allt að sex kúlum var skotið á
bifreið Turkmens, en hann fékk
aðeins smáskrámu á enni og öku-
manninn og öryggisvörð í fram-
sætinu sakaði ekki. Turkmen fékk
að fara úr sjúkrahúsi í Bern innan
aðeins tveggja tíma. Árásarmenn-
irnir flúðu í stolnum bíl.
Talsmaður svissneska dómsmála-
ráðuneytisins sagði að hópur sem
kallaði sig „Herstjórnina til hefnd-
ar þjóðarmorðinu á Armenum"
hefði hringt í frönsku fréttastofuna
AFP til að lýsa sig ábyrgan.
Armenskir hryðjuverkamenn
sögðu ,í fyrra að þeir hefðu verið
ábyrgir þegar sprengjur ollu spjöll-
um á skrifstofu ræðismanns Tyrkja
í Genf og tyrkneska flugfélagsins
þar. Sprengja sprakk seinna nálægt
bifreið tyrkneska vararæðismanns-
ins í Genf og tveir svissneskir
vegfarendur særðust. í nóvember
var sonur tyrkneska sendiherrans í
Hollando skotinn til bana í Haag.
Árásin í Bern í dag er talin fyrsta
árás hryðjuverkamanna gegn
diplómat í höfuðborg Sviss.