Morgunblaðið - 07.02.1980, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
bessi hestur. Ginger. íéll ofan í gamlan brunn sem nokkrar spýtur
voru yfir í Madera. Kaliforníu og eigandinn, W. A. Gray, fann hann
ekki fyrr en einum og hálfum degi síðar. Gray sagði að Ginger væri
rólyndur hestur og það hefði bjargað lífi hans. Hér er unnið við að
lyfta hestinum upp úr brunninum.
Vinstrimönnum í
Salvador sleppt
San Salvador. E1 Salvador.
6. febrúar. AP.
HÆGRISINNAÐIR
hryðjuverkamenn rændu
þremur kommúnistaleið-
togum í dag og hótuðu að
drepa þá ef vinstrisinnar
hörfuðu ekki úr spænska
sendiráðinu sem þeir hafa
lagt undir sig í kvöld, en
slepptu þeim seinna og
skiluðu gíslunum heilum á
húfi án þess að gefa nokkra
skýringu.
Hægrimennirnir höfðu einnig
hótað að brenna sendiráðið með
vinstrisinnunum. Um 20 félagar
úr hreyfingunni Alþýðu bandalag-
ið 28. febrúar lögðu sendiráðið
undir sig í gær án þess að mæta
mótspyrnu og tóku spænska sendi-
herrann og átta menn aðra í
gíslingu. Krafa þeirra er sú að
Spánn slíti stjórnmálasambandi
við stjórn E1 Salvador og að
fjórum félögum þeirra verði sleppt
úr haldi.
Annar vinstri foringi var skot-
inn til bana með vélbyssu á
heimili sínu í gærkvöldi og um 100
róttækir skólanemendur halda
enn í gíslingu Eduardo Colindres
menntamálaráðherra og hundruð-
um annarra gísla í menntamála-
ráðuneytinu. Þeir krefjast ókeypis
skólagöngu.
Karpov fær
„skák-óskar66
Barcelona. fi. febrúar. AP.
ALÞJÓÐASAMBAND skák-
fréttaritara (IACIIW) hefur
veitt Anatoly Karpov frá
Sovétríkjunum „Óskars-
verðlaun“ skáklistarinnar.
Verðlaunin voru veitt eft-
ir atkvæðagreiðslu 111
skákfréttaritara sambands-
ins í 36 löndum.
Karpov hlaut 1.218 stig og
næstir honum voru landi
hans Mikhail Tal með 1.203
stig og Viktor Korchnoi með
971 stig.
Spænskt fyrirtæki stendur
fyrir verðlaunaveitingunni
sem nú fer fram í 13. sinn.
Valið stóð á milli skákmanna
sem tefldu minnst 24 skákir
gegn stórmeisturum í fyrra.
Lajos Portisch, Ungverja-
landi, var í fjórða sæti með
863 stig, en síðan komu: 5.
Garry Casparov, Sovétríkj-
unum, 545. 6. Hubner, Vest-
ur-Þýzkalandi og Tigran
Petrosajn, Sovétríkjunum,
525 stig hvor. 8. Lev Polugej-
evsky, Sovétríkjunum, 498. 9.
Ulf Andersson, Svíþjóð, 390.
10. Bent Larsen, Danmörku,
376.
Þeir sem áður hafa fengið
„skák-óskarinn“ eru: Larsen,
1965, Boris Spassky, Sov-
étríkjunum, 1968 og 1969,
Bobby Fischer, Bandaríkjun-
um, 1970,1971 og 1972, Karp-
ov 1973,1974,1975,1976,1977
og 1979 og Korchnoi 1978.
Guðmundur Karlsson:
Hvers vegna hefur Egg-
ert Haukdal ekki verið
tekinn í þingflokkinn?
MORGUNBLAÐIÐ spurði Guð-
mund Karlsson. þingmann
Sjálfstæðisflokks úr Suður-
landskjördæmi. hvers vegna
Eggert Haukdal, kjörinn af
L-lista í sama kjördæmi. hefði
ekki enn verið tekinn inn í
þingflokk sjálfstæðismanna.
Guðmundur sagði mál þetta
hafa verið rætt í þingflokki
sjálfstæðismanna fljótlega eftir
síðustu kosningar. Það hafi verið
skoðun meirihluta þingmanna
flokksins, þ.á m. sín og Steinþórs
Gestssonar, að mál þetta snerti
ekki sízt samtök sjálfstæðisfólks
í Suðurlandskjördæmi og því
væri eðlilegt að þau fjölluðu um
málið áður en þingflokkurinn
gerði endanlega upp hug sinn.
Það hefði þegar verið rætt bæði i
flokksfélögum og fulltrúaráðum
og stefnt væri að aðalfundi
kjördæmaráðs, þar sem línur
myndu skýrast.
Guðmundur sagði það enn-
fremur sína skoðun og margra
Guðmundur Karlsson
annarra sjálfstæðismanna í Suð-
urlandskjördæmi, að ljúka
þyrfti þessum málum þann veg,
að styrkti Sjálfstæðisflokkinn í
kjördæminu til frambúðar, svo
fyrirbyggt yrði skipt framboð
aftur. Tryggja yrði að lög og
leikreglur Sjálfstæðisflokks um
undirbúning og ákvörðun fram-
boða á vegum flokksins væru
virt, annað hvort með prófkjör-
um eða meirihlutaákvörðun
kjördæmisráðs. Hvor leiðin sem
farin yrði, en þar um hefur
kjördæmisráð ákvörðunarvald,
þyrfti hún í framkvæmd að lúta
lögum og reglum flokksins og
verða hin sama í þessu kjördæmi
sem öðrum.
Þeir atburðir, sem nú eru að
gerast í íslenzkum stjórnmálum,
þ. á m. afstaða þingflokks og
flokksráðs til yfirstandandi
stjórnarmyndunar, kunna að
hafa áhrif á framvindu þessa
afmarkaða máls, sem hér er um
spurt. En það eru samtök flokks-
fólks heima í kjördæminu sem
verða að leggja línurnar og það
er von mín, að þrátt fyrir blikur
á lofti þróist mál þann veg, að
sjálfstæðisfólk í Suðurlands-
kjördæmi megi standa saman í
sterkri og órofa fylkingu í fram-
tíðinni.
Samtöl Stein-
gríms við Geir
MISSKILNINGUR hefur orðið
milli blaðamanns Morgunblaðs-
ins og Steingríms Hermannsson-
ar formanns Framsóknarflokks-
ins varðandi samtöl Steingríms
og Geirs Ilallgrímssonar, sem frá
er skýrt í Mbl. í gær.
Steingrímur kveðst hafa farið
heim til Geirs 27. janúar sl.
klukkan 14 og sagt mikinn áhuga
framsóknarmanna á samstjórn
Sjálfstæðisflokks, Alþýðubanda-
lags og Framsóknarflokks, en Geir
þá talið slíkt útilokað.
„MÍN afstaða á miðstjórnar-
fundinum mótaðist af því að
reynt yrði til þrautar allar
leiðir til sátta,“ sagði Stefán
Jónsson frá Kagaðarhóli,
formaður kjördæmisráðs
Sjálístæðisflokksins í Norð-
urlandskjördæmi vestra, en
hann var einn þriggja mið-
stjórnarmanna, sem sat hjá,
er hörmuð voru vinnubrögð
Gunnars Thoroddsen við
stjórnarmyndunina. „í þeirri
stöðu, sem nú er upp komin,
duga engin stóryrði eða ásak-
anir, heldur er höfuðnauðsyn
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
forysta hans og þingflokkur
sýni samkomulagsvilja og
gangi inn í stjórnarmyndun-
arviðræður. Á þann hátt gæti
flokkurinn náð einingu um
málefnalega afstöðu til þátt-
töku í ríkisstjórn.'1
„Slík ábyrg afstaða til að
koma á fót ríkisstjórn, er njóti
meirihluta Alþingis, er þjóð-
inni nú nauðsyn vegna þeirra
miklu vandamála í þjóðar-
búskapnum, sem hafa hlaðizt
upp á síðasta ári. Ég tel enn,
að tími sé til að samræma
sjónarmið sjálfstæðismanna
Miðvikudaginn 30. janúar ræddi
Steingrímur aftur við Geir og
gerði honum þá grein fyrir hug-
myndum Gunnars um stjórnar-
myndun og nefndi einnig, að
Sjálfstæðisflokkurinn kæmi þar
til samstarfs.
Steingrímur kveðst enn hafa
ítrekað þetta við Geir 1. febrúar,
en þá hafi Geir talið líkurnar hafa
stórversnað við það sem á undan
væri gengið.
Mbl. biðst afsökunar á þessum
misskilningi.
um stjórnarþátttöku, sé af
sanngirni beitt viturleika og
ítrasta samkomulagsvilja. A
þessu stigi vil ég ekki segja
meira um það, því að málið er
á viðkvæmu stigi, en verði
ekki skynsamlega á málum
haldið og af hófsemi, þá hef ég
ekki sagt mitt síðasta orð um
þessi efni.“
Atriði úr kvikmyndinni „Veldi
ástríðnanna" eftir Oshima.
Kvikmynd
eftir Oshima
í FYRRA og hittifyrra tók Fjala-
kötturinn upp á þeirri nýbreytni
að bjóða þeim sem ekki eru
meðlimir í Fjalakettinum upp á
svokölluð kynningarskírteini sem
gilda á fjórar myndir. Nú verður
einnig boðið upp á þessi skírteini
og verður byrjað á myndinni
„Veldi ástríðnanna" eftir Nagisa
Oshima. Hún verður sýnd í Tjarn-
arbíói í kvöld, fimmtudag, kl. 21, á
laugardaginn kl. 17 og á sunnudag-
inn kl. 17,19:30 og 22.
Þetta er japönsk-frönsk mynd
frá árinu 1978. Hún fjallar um tvo
elskendur sem drepa eiginmann
konunnar. En karlinn gengur aftur
og angrar elskendurnar í leikjum
sínum.
Nagisa Oshima fékk leikstjóra-
verðlaunin á Cannes ’78 fyrir þessa
mynd.
Leikritið „Vals“ eftir Jón Hjartarson sem fékk verðlaun í
leikritasamkeppni Menningar- og fræðslusambands alþýðu hefur
verið sýnt víða á vinnustöðum og hlotið góðar undirtektir.
Myndin er frá sýningu leikritsins í Bæjarútgerð Reykjavíkur í
gœr. Ljósm. RAX
Stefán frá Kagaðarhóli:
Enn er unnt að
ná samkomulagi