Morgunblaðið - 07.02.1980, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
t Eiginmaöur minn, SIGFÚS GUÐFINNSSON, andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, miövikudaginn 6. febrúar. María Anna Kristjánsdóttir.
t Eiginmaöur minn og stúpfaöir okkar, ÞORGEIR ÞORSTEINSSON, Höröalandi 14, lést í Landspítalanum, þriðjudaginn 5. febrúar. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Guörún Guömundsdóttir, Ragnar Guömundsson.
t Konan mín og móðir okkar, ÁGÚSTA GUONADÓTTIR, Háaleítisbraut 54, andaöist á heimili sínu 5. febrúar Kristmundur Magnússon og börn.
t Faðir okkar og tengdafaðir ÓLAFUR EINARSSON frá Háholti andaðist 5. febrúar. Jarðarförin ákveöin síðar. Hulda Ólafsdóttir Getz Kristján J. Ólafsson og tengdabörn.
t Eiginkona mín MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR Krosseyrarvegi 11, Hafnarfiröi, andaöist á Borgarspítalanum aðfaranótt 6. febrúar. Gunnar Ásgeirsson og dætur.
Móöir okkar, INGIBJÖRG EYVINDSDÓTTIR, Fremrahálsi í Kjós, verður jarðsungin frá Reynivallakirkju, laugardaginn 9. febrúar kl. 2.00. Kristín Jónsdóttir og systkini.
t Útför bróður okkar JÓNS SIGUROSSONAR Götuhúsum, Stokkseyri fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 2. Systkinin.
t Útför eiginkonu minnar KARENAR ÁSGEIRSSON (fædd Mogensen) Laufásvegi 17 veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. þ.m. kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameins- félagiö. F.h. aöstandenda . . . Þorvaldur Asgeirsson.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og stúpfaðir,
VILHJÁLMUR JÓNASSON,
húsgagnameistari,
er andaðist 30. janúar verður jarðsunginn í Fossvogskirkju 8.
janúa1' kl. 10.30.
Ragnhildur Á. Jónsdóttir,
Kristjana Vilhjálmsdóttir,
Einar Vilhjálmsson,
Ragnhildur Vilhjálmsdóttir,
Fríður Guðnadóttir,
Jón S. Guðnason.
Birgir G. Albertsson:
Til umhugsunar fyrir
Amór Stígsson á ísafirði
Það er ekki á hverjum degi, sem
mér veitist sá óvænti heiður að fá
opið bréf frá aðila, sem ég hef
persónulega ekkert nema gott um
að segja. Eg tel því rétt og skylt að
þakka þessa hugulsemi, en furða
mig á því hve lítil þúfa getur velt
þungu hlassi. Grein mín í Morgun-
blaðinu 22. jan. s.l. var fyrst og
fremst hugsuð sem lítils háttar
mótvægi við þeim einhæfa og
neikvæða málflutningi, sem átt
hefur sér stað vegna ferðalaga
útlendinga á Hornströndum. Þar
tel ég vísvitandi farið í mann-
greinarálit þegar eingöngu er veg-
ið að Dick Phillips og ferðahópum
hans.
Einhverra hluta vegna hefur
hluti greinar minnar komið illa
við Arnór Stígsson frá Horni og
verð ég þó að segja að á því átti ég
síst von. Þar er ég alls ekki að
beina spjóti mínu að honum né
fjölskyldu hans en benda á ein-
faldar staðreyndir.
Kveikjan að þeim blaðaskrifum
sem átt hafa sér stað frá s.l.
hausti er grein Vestfirska frétta-
blaðsins 18. okt. s.l. Sú grein var
þess eðlis að Dick Phillips hlaut að
bera hönd fyrir höfuð sér. Það
gerir hann í símtali við Morgun-
blaðið 24. okt. Þar segir hann
grein Vestf. fréttablaðsins upp-
fulla af rugli og þvættingi. Að
mörgu leyti held ég að óhætt sé að
taka undir þau orð, þótt ákveðinn
sannleikur hljóti að fljóta með.
Um þau atriði mun ég ekki
fjölyrða hér, en snúa mér beint að
bréfinu frá Arnóri Stígssyni. Þar
sem Arnór segist einn vita hvað er
satt og bregður mér vísvitandi um
ósannindi, þá er rétt að líta nánar
á þá hlið málsins. Aðrir en ég hafa
blásið þessi mál út í blöðum þótt
Arnór gefi það í skyn, enda var
grein mín alls ekki í þeim dúr né
skrifuð af þjónkun við útlendinga,
heldur í þeim tilgangi að fara
varlega í dómum um aðra og láta
hvern sem í hlut á njóta sannmæl-
is. Hvar hefur Dick Phillips sagt
að „allar frásagnir aðrar en hans
séu rugl og þvættingur m.a.s. hans
óbreyttu orð“? Þetta er stór full-
yrðing, sem Arnór þarf að sjálf-
sögðu að standa við.
Eg hef hvergi minnst orði á
umgengni útlendinga á Horni,
enda enga reynslu af slíku þar. Ég
sagði hins vegar frá persónulegri
reynslu minni og hafði þá jafn-
framt í huga orð Jósefs Vern-
harðssonar eftirlistsmanns með
slysavarnaskýlunum á Horn-
ströndum: „Mér er óhætt að full-
yrða að ástand skýlanna hefur
aldrei verið betra en núna.“
Ég sagði nær orðrétt í grein
minni: „Umgengni hefur aldrei
verið betri en nú og húseigendum
aukið öryggi að dvöl þessa fólks."
Þar á ég reyndar ekki síður við
aðra ferðamenn, sem koma sér til
hvíldar og hressingar á þessar
slóðir.
Aukið aðhald og eftirlit er þó
nauðsynlegt, því að vaxandi ferða-
mannastraumur kallar á bætta
umgengnishætti.
Þeirri staðreynd, að hópar eða
einstaklingar á vegum D.Ph. hafi
dvalist í íbúðarhúsi Arnórs, hef ég
hvergi mótmælt. Þar er um aug-
ljós mistök að ræða, sem ég reyni
á engan hátt að réttlæta, enda
ekki mitt mál. Hins vegar stendur
hvergi, að fólki sé óheimilt að
koma inn og húsið auk þess ólæst.
Hitt íbúðarhúsið á Horni er aftur
á móti vandlega læst, ef ég man
rétt. Gæti það hugsanlega að
einhverju leyti skýrt misnotkun
og misskilning, sem hefur átt sér
stað.
En er það sannleikanum sam-
kvæmt Arnór, „að fólkið hafi búið
margar vikur í húsinu s.I.
sumar.,,? Það hljóta þá að hafa
verið strandaglópar eða eftirlegu
kindur, sem hafa misst af hópn-
um.
Um símtal okkar Arnórs fyrir
nokkrum árum skal ég ekki fjöl-
yrða. Þar hljóp ég í skarðið fyrir
D.Ph., þar sem íslenskukunnátta
hans var á lágu stigi. Allt var það
samtal í bróðerni, enda skipti það
mig engu hvort húsið fengist
lánað eða ekki til afnota stuttan
tíma á sumrin.
Mér finnst því nokkuð hátt reitt
til höggs, þegar mér eru bornar
rangfærslur á brýn. Ég nefni það
hvergi orði, að umræddur D.Ph.
hafi fengið leyfi fyrir húsinu. Ég
sagði aðeins, að beiðni hans hefði
ekki verið tekið fjarri, en um
samfellda notkun yrði ekki að
ræða.
Var tilgangurinn fyrst og
fremst sá, að geta hlaupið í
húsaskjól til ráðstefnu- og fyrir-
lestrahalds, ef illa viðraði. Með
samfelldri notkun á ég við dvöl í
húsinu, því að hópurinn hafði með
sér stórt tjald til fyrirlestra auk
hins venjulega ferðabúnaðar.
Um tilfinningalegu hlið málsins
get ég verið Arnóri sammála, ef
eignir fjölskyldu minnar á Hest-
eyri hefðu verið notaðar á líkan
hátt. Ég lagði fulla áherslu á það í
grein minni, að viðbrögð flestra
hefðu orðið álíka, hefðu þeir staðið
í sporum Arnórs og fjölskyldu
hans. Hins vegar höfum við aldrei
meinað neinum afnot af verzlun-
arhúsinu á Hesteyri, sem staðið
hefur ólæst í mörg ár. Hafa þó
margir komið þar án þess að
spyrja leyfis.
Um það, að ég hafi borið á
ykkur ósannindi vísa ég til föður-
húsanna, þar sem ég tel, að
augnabliks vanhugsun hafi ráðið
orðalaginu og bréf Arnórs lesið
með það í huga.
Með bestu kveðju og ósk um gott
sumar á Hornströndum.
Vitni vantar
FIMMTUDAGINN 31. janúar s.l.
um klukkan 16 varð árekstur milli
skellinöðru og bifreiðar á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar.
Skellinaðran ók norður Grensás-
veginn en bifreiðin ók suður
Grensásveginn og beygði austur
Miklubrautina og í veg fyrir
skellinöðruna. Þar sem ágreining-
ur er um stöðu umferðarljósanna
þegar atburðurinn varð eru vitni
beðin að gefa sig fram við slysa-
rannsóknadeild lögreglunnar.
Brenndu
sovézka fánann
LuxemborK' 4. febrúar. AP.
UM 200 manns mótmæltu innrás
Sovétríkjanna í Afganistan og
handtöku Sakharovs með að-
gerðum fyrir utan sovézka sendi-
ráðið um helgina. Fundarmenn
tilheyrðu ýmsum stjórnmála-
flokkum, og er starfsmenn
sendiráðsins neituðu að taka við
mótmælaskjali þeirra brenndu
mótmælendurnir tvo sovézka
fána.
Barónsfrú Summer-
skill látin
London, 4. febrúar. AP.
EINN af frumkvöðlum brezkrar
kvenréttindabaráttu Summer-
skill barónsfrú, lézt á heimili
sínu í Lundúnum í dag, 78 ára að
aldri. Hún var þingmaður í alls
42 ár, í neðri deildinni frá 1938
til 1961 og í lávarðadeildinni frá
1961.
t
Vinur okkar,
GUÐJÓN ÞÓRARINSSON,
Örfjörð Lækjarbug
í Mýrasýslu,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju, laugardaginn 9. febrúar kl.
14.00.
Bílferð verður frá Umferöarmiðstöðinni kl. 10.00.
María Guðmundsdóttir, Sigríður Sveinbjörnsdóttir,
Valtýr Guðjónsson, Elín Þorkelsdóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir, Gíslí Þórðarson,
Gyða Guðjónsdóttír, Franklín Jónsson.
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jarðarför
ÓLAFS GUÐJÓNSSONAR
Litlaskarði.
Rannveig Jóhannsdóttir, Jóhann Ólafsson,
Sigurður Þ. Ólafsson, Dóra Sigurðardóttir,
Guðbjörn Ólafsson, Valdís Armann,
barnabörn og aörir aðstandendur.
t
Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, sonar míns og föður okkar,
BJARNA ÆVARS ÁRNASONAR,
tækniteiknara.
Sérstakar þakkir til Guðmundar Eyjólfssonar, læknis og starfs-
fólks deildar A-7 Borgarspítalanum fyrir allt sem þau gerðu fyrir
hann.
Lóa Guömundsdóttir,
Guömundur Árni Bjarnason, Sólveig Jónsdóttir.
Sólveig Bjarnadóttir,
Díana Bjarnadóttir,