Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 Ljósm. Emilía. Starf.sfólk Klakahallarinnar að undirbúa opnun verzlunarinnar. Klakahöllin: Jógúrtís meðal nýjunga KLAKAHÖLLIN er ný ísbúð sem opnuð hefur verið í verzl- unarhúsnæði Mjólkursamsöl- unnar að Lausavegi 162. EMMESS ísvörur og mjólkur- drykkir verða á boðstólum í fjölbreyttum útgáfum og skyndiréttir eins og skyr með rjóma, jógúrt. heitar samlok- ur og hamborgarar. INNLENT Helztu nýjungarnar sem boðið verður upp á er jógúrtís, en hann er búinn til úr jógúrt og því fitulítill, mysudrykkur sem kallaður er Sopi og hnetu- jógúrt. Þá verður hægt að fá sérskreyttar ístertur í tilefni tyllidaga. Klakahöllin verður opin alla daga frá kl. 10.00 til 23.00. Hönnun húsnæðis var í höndum arkitektanna Guð- mundar Kr. Guðmundssonar og Ólafs Sigurðssonar, yfir- smiður var Ólafur Nilsen trésmíðameistari. Verzlunar- stjóri er Bent Bryde mjólkur- fræðingur. Um auglýsingar og skreytingar sá Auglýsinga- stofa Kristínar. §kólasýning opnuð í Ásgrímssafni í dag í DAG verður hin árlega skóla- sýning Ásgrimssafns opnuð og er hún 16. sýningin sem safnið efnir til fyrir skólanemendur. Eins og á fyrri sýningum safnsins var leitast við að hún yrði sem fjölþættust, og sýnir hún meðal annars ýmsar hliðar á list Ásgríms Jónssonar á 50 ára tímabili. Á heimili listamannsins er komið fyrir t'eikningum úr þjóð- sögum ásamt nokkrum alda- móta-olíumálverkum. I hluta af vinnustofu Ásgríms má sjá nokkrar vatnslitamyndir af breytilegu veðurfari. Meðal þeirra eru tvær myndir frá Þingvöllum, útsýn yfir vatnið, málaðar á nákvæmlega sama stað, önnur í skúraveðri, en hin þegar upp stytti. í mörgum myndum Ásgríms Jónssonar, sérstaklega í vatnslitamyndun- um, er áberandi sá þáttur í list hans að nota veðrabrigðin í náttúrunni sem viðfangsefni. Guðmundur Benediktsson myndhöggvari aðstoðaði við val mynda, og annaðist uppheng- ingu þeirra. Skólasýningar Ásgrímssafns virðast njóta vaxandi vinsælda, en nemendur úr hinum ýmsu skólum borgarinnar, og utan hennar, hafa heimsótt hús Ásgríms, en heimili hans er í sömu skorðum og var þegar hann kvaddi það í hinzta sinn. Skólayfirvöld borgarinnar hafa stuðlað að heimsóknum nemenda í söfn, enda virðist slík listkynning sjálfsagður þáttur í námi uppvaxandi kynslóðar. Og fróðlegt er fyrir nemendur að líta með eigin augum hina miklu listaverkagjöf Ásgríms Jónsson- ar, sem hann ánafnaði þjóð sinni, og varðveitt er í húsi hans. Sýningin er öllum opin sunnu- daga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeyp- is. Sértíma geta skólar pantað hjá forstöðukonu Ásgrímssafns í síma 14090 og 13644. Ásgríms- safn, Bergstaðastræti 74. Kristniboðsvika í Hafnarfirði KRISTNIBOÐSDEILD KFUM og K í Hafnarfirði efnir til árlegrar kristniboðsviku og hefst hún með guðsþjónustu í kapellu Víðistaðasóknar í Hrafnistu kl. 14 í dag, sunnudag. Samkomur verða síðan hvert kvöld vikunnar í húsi KFUM og K að Hverfisgötu 15, sem hefjast kl. 20:30 og verður hin síðasta sunnudaginn 17. febrúar. í guðsþjónustunni í dag þjónar Guðmundur G. Hagalín heim- sækir opinbera starfsmenn GUÐMUNDUR G. Hagalín mun verða gestur opin- berra starfsmanna ás^mt Sigríði Hagalín leikkonu og Baldvin Halldórssyni leikara n.k. þriðjudags- kvöld, 12. febrúar, að Grettisgötu 89 kl. 20.30. Baldvin mun þar segja frá kynnum sínum af skáldinu, Sigríður Hagalín les sögu Guðmundar „Móð- ir barnanna" og Guðmund- ur spjallar um rithöfundar- starf sitt og svarar fyrir- spurnum. Þessi bók- menntakynning er liður í starfi fræðslunefndar BSRB. Áður hefur Halldór Laxness komið í heimsókn og framhald mun verða á þessari starfsemi. sr. Sigurður H. Guðmundsson fyrir altari, Benedikt Arnkelsson guðfræðingur predikar og Halldór Vilhelmsson syngur einsöng. Á samkomunni um kvöldið talar sr. Frank M. Halldórsson og verður á kvöldsamkomunum kynnt starf Sambands ísl. kristniboðsfélaga í Eþíópíu og Kenýa. Susie Bach- mann og Páll Friðriksson hafa að undanförnu dvalist í Kenýa og segja þau frá starfinu þar, en þar dveljast nú hjónin Kjellrún og Skúli Svavarsson. Aðrir er koma fram á kristniboðsvikunni eru sr. Valgeir Ástráðsson, Helgi Hró- bjartsson, sr. Bernharður Guð- mundsson, Helga Steinunn Hró- bjartsdóttir, sr. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir, sr. Gunnþór Inga- son, Katrín Guðlaugsdóttir, Gísli Arnkelsson og Gunnar Sigurjóns- son. Á síðustu samkomunni syngur Æskulýðskór KFUM og K í Reykjavík og á öllum samkomun- um verður tekið á móti gjöfum til kristniboðsstarfsins. Paniwj er euji ulji -uQnr, aem er á hirm um afi einn eihittíi þoxtara xmviHnffjn glutíxt. MaU, IS, i Mynd þessi er tekin í Ásgrimssafni þegar Sigrún Guðmundsdóttir æfingakennari kom með nemendur í hóp 7 úr Fossvogsskóla á barnaárs-sýningu safnsins, ásamt þremur kennaranemum. Sátu þeir á gólfinu með börnunum og sögðu þeim þjóðsögur sem tengdar voru myndum á sýningunni, m.a. Hlina kóngssyni og Búkollu. Myndina tók einn af kennurunum. Ekki grundvöllur til að ná árangri gegn verðbólgu - segir Sighvatur Björgvinsson form. þingflokks Alþýðuflokks- ins um málefnagrundvöll ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen „ÞAÐ eru ýms fögur fyrirheit í þessum stjórnarsáttmála, þann- ig að út frá orðanna hljóðan má segja, að hann geymi ýmislegt jákvætt. En það er líka ýmis- legt neikvætt í honum og meg- inatriðið er það, að þessi samn- ingur er ekki grundvöllur til að ná árangri í baráttunni við verðbóiguna," sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður þing- flokks Alþýðuflokksins, er Mbl. spurði hann í gær álits á málefnasamningi ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen. „Ég held, að þessi stjórnar- sáttmáli boði áframhald þess stjórnarfars, sem verið hefur í landinu undanfarin ár,“ sagði Sighvatur. „Það verður efnt til hallareksturs á ríkissjóði og skuldasöfnun erlendis og einnig virðist stefnt að því að taka stóra niðurgeiðsludýfu með svip- uðum hætti og á undanförnum árum, með peningum, sem ekki eru til. Þetta hlýtur svo óhjá- kvæmilega að koma fram í allverulegri hækkun á almenn- um sköttum. Þannig sýnist mér að segja megi, að þetta sé skammgóður vermir. Menn ná því ef til vill að láta hjólin snúast í 6 til 8 mánuði, en þá fer allt á hliðina og geysilegur fjárhagsvandi ríkissjóðs bætist ofan á verð- bólguvandann. Afleiðingarnar hljóta að verða mikil kjaraskerð- ing hjá fólkinu í landinu. Mér finnst athyglisvert við þennan stjórnarsáttmála, hvað hann er opinn og laus, þegar það er haft í huga, að allir flokkar sögðu við upphaf stjórnarmynd- unartilrauna, að það sem læra mætti af undanförnum árum, væri meðal annars það að fara ekki í ríkisstjórn, nema allir endar væru fastbundnir. Ég minnist nú sérstaklega ítrekaðra yfirlýsinga framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna um það, að alla enda yrði að binda fasta. Ég fæ hins vegar ekki betur séð en að í þessum stjórn- arsáttmála sé enginn endi fast- ur, heldur allir endar lausir. Við þennan stjórnarsáttmála er því ekki hægt að binda miklar vonir. Engu að síður óska ég nýrri ríkisstjórn góðs og vona, að í framkvæmdinni reynist hún þjóðinni betur, heldur en ráða má af því vegarnesti, sem hún hefur í stjórnarsáttmálanum."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.