Morgunblaðið - 17.02.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1980
Listfræðsla á
ráðstefnu Lífs
og lands í dag
í tjær hófst á Kjarvalsstöðum ráð-
strfnan Maður og list, sem samtökin
Líf ok land gangast fyrir. Var fyrir
háöogi í erindum fjallað um stöðu
listar og eftir hádegi um aðstöðu
listafólks og stóð ráðstefnan allan
daginn. í dag verður henni fram
halog fjallað um listfræðslu
fyrir hádegi. cn eftir hádegi verða
pallborðsumræður, sem fulltrúar
ýmissa listgreinafélaga taka þátt í
undir stjórn Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. Hefjast þær kl. 13.30, en
kl. 15.00 lýkur umræðum. tekur við
tónlistarflutningur Þursaflokksins
og gerningur kl. 15.30.
Ljósm. Mbl. Emilía.
Svipmynd frá ráðstefnu Lífs og lands í gærmorgun. Ráðstefnugestir hlýða
á leik Manuelu Wiesler og Helgu Ingólfsdóttur.
Ráðstefnan hefst kl. 10 f.h. í dag.
Verða flutt 12 stutt erindi. Fundar-
stjóri er Ögmundur Jónasson. Björn
Th. Björnsson flytur erindi er nefnist
„Af þráðum og reiptöglum", Gylfi
Gísalon talar um alþýðufræðslu og
listir, Ernir Snorrason um list og
uppeldi, Jónas Pálsson um list í
grunnskólum, Heimir Pálsson um
list í menntaskóla, Þorkell Helgason
um list í háskóla. Kl. 11.00 verður hlé
á erindum og Arnar Jónsson les ljóð.
Þá talar Stefán Edelstein um hlut-
verk og tilgang tónlistarskóla, Einar
Hákonarson um myndmennt, Pétur
Einarsson um leiklistarskóla, Þránd-
ur Thoroddsen um kvikmyndaskóla,
Hrafn Gunnlaugsson um meningar-
pólitík og Kjartan Ragnarsson um
mann og list. í matarhléi fremur
Hannes Lárusson gerning.
Sýningu Jóns Gunnarsson-
ar listmálara í Norræna
húsinu lýkur í kvöld klukkan
22. Á sýningunni eru 68
verk og eru öll til sölu.
Aðsókn að sýningunni hefur
verið mjög góð að sögn lista-
mannsins.
Henda varð um 10 tonnum af línufiski úr Sævari í sjóinn á strandstað vegna þess að olía hafði komizt
í fiskinn, en til hafði staðið að landa honum til vinnslu. Vinstra megin við brúna eru menn að bogra
yfir vatnsdælunni og slangan liggur niður i lestina. Eins og sjá má hallar báturinn æði mikið.
Ljósmyndir Mbl. Kristján.
Unnið að björgun á
strandstað í skaf ningsroki
EKKI tókst að ná vélbátnum
Sævari KE 19 af strandstað við
innsiglinguna i Sandgerði í
fyrrinótt. cn aðstæður allar voru
hinar erfiðustu vegna roks.
Laust eftir miðnættið á fjörunni
var hafist handa við björgun.
Taug var sett í bátinn og hélt
krani í landi við hana. Um 15
björgunarmenn komust um borð
í Sævar skömmu eftir miðnætti,
flestir félagar í björgunarsveit
SVFÍ í Sandgerði. Voru þeir vel
búnir tækjum og sýndu af sér
mikla hörku við björgunarstarf-
ið undir stjórn Óskars Guð-
mundssonar vcrkstjóra í Ytri-
Njarðvík.
Báturinn réttist nokkuð af, en
þó var hallinn mjög mikill og
erfitt að fóta sig í rokinu og
rigningunni. Jafnframt því að um
10 tonnum af fiski var hent í
sjóinn unnu menn við það að
þétta bátinn fyrir flóðið og loka
honum ofan þilja eins og hægt
var. Fiskinum varð að henda í
sjóinn þar sem olía hafði komist í
hann. Þá náðist að dæla sjónum
úr bátnum og virtist hann lítið
skemmdur, enda lak lítið inn
í hann að lokinni dælingu.
Björgunarmenn höfðu lokið
störfum sínum á fjórða tímanum
og hurfu þeir þá frá borði, enda
komið skafningsrok. Svo mikið
var rokið að björgunarmenn gátu
ekki siglt á hraðbátnum i land
þar sem ekki var unnt að stjórna
honum í rokinu. Urðu þeir því að
draga sig í land á gúmmífleka
eftir tauginni frá krananum. Rétt
í þann mund sem mannskapurinn
var kominn upp á malarkambinn
við strandstað féll Sævar aftur á
hliðina og fyllti á ný. Hefði getað
farið illa ef menn hefðu verið um
borð, því báturinn lagðist enn
meira á hliðina en áður.
Björgunarmenn koma hinir vígreifustu um borð til björgunar.
L
þessa skrá í tölvu Skýrsluvéla
ríkisins og Reykjavíkurborgar
og hefur lögreglan aðgang að
þeirri tölvu. Bifreiðaeftirlitið
hefur tölvufært bifreiðaskrána
nú um nokkurt skeið og hefur
það verið til aukins öryggis og
flýtis fyrir alla aðila.
William sagði að hagræðið
af tölvunum væri augljóst. Öll
' Samkvæmt upplýsingum
Williams Th. Möller, aðal-
fulltrúa við lögreglustjóra-
embættið, fékk lögreglan að-
gang að þessari nýju tækni um
síðustu mánaðamót. Hefur
tveimur tölvuskermum verið
komið upp i Lögreglustöðinni,
öðrum í fjarskiptastöð lög-
reglunnar, sem opin er allan
sólarhringinn og hinum á
skrifstofunni, þar sem af-
greiðsla sekta fer fram. Hafa
siðustu vikurnar verið notaðar
til þess að þjálfa starfsfólkið í
notkun þessara handhægu
}■ jalpartækja við löggæzluna.
Lögreglan tekur tölvu-
tæknina í sína þjónustu
Ragnar Bergsveinsson aðalvarðstjóri í fjarskiptastöð lögreglunnar kallar fram upplýsingar á
skerminn. William Thomas Möller fylgist með og fjær má sjá Einar Halldórsson lögreglumann við
símaborð lögreglunnar.
.LÖGREGLAN í Reykjavík
hefur nýlega tekið tölvutækn-
ina í þjónustu sína. Fyrst um
sinn verður bifreiðaskráin í
tolvunni en síðan er ætlunin
að bæta inn á tölvuna öðrum
upplýsingum, sem nauðsyn-
legt er fyrir lögregluna að
hafa tiltækar með litlum
fyrirvara.
Sem fyrr segir hefur lögregl-
an nú þegar aðgang að bif-
reiðaskránni fyrir allt landið.
Bifreiðaeftirlit ríkisins færir
Tf
ökutæki á landinu væru skráð
hjá Bifreiðaeftirlitinu og getur
fjarskiptastöð lögreglunnar
kallað fram samstundis allar
nauðsynlegar upplýsingar um
einstök ökutæki hvenær sem
er sólarhringsins. Gefur tölvan
upplýsingar um ökutækið og
eiganda þess og ennfremur
hverjir hafa átt viðkomandi
ökutæki. Ef lögreglumenn við
gæzlustörf þyrftu á upplýsing-
um að halda um einstök öku-
tæki mætti fá þau á örskömm-
um tíma og einnig gætu lög-
reglumenn úti á landi notfært
sér þessar upplýsingar, þar
sem fjarskiptastöðin er opin
allan sólarhringinn. Þá flýtir
tölvutæknin skiljanlega mjög
fyrir allri sektaafgreiðslu.
William sagði að í fram-
tíðinni yrði væntanlega fleiri
upplýsingum bætt inn á tölv-
una, t.d. ökuferilsskrá og
mætti þá t.d. með skömmum
fyrirvara sjá hvort ökumenn
eru réttindalausir eða ekki.
„Ég vil taka það fram,“ sagði
William, „að hér er ekki um að
ræða víðtækara eftirlit lög-
reglunnar með borgurunum,
heldur er hér fyrst og fremst
um að ræða hagræðingú og
betri vinnubrögð."