Morgunblaðið - 17.02.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1980
LOFTLEIÐUM
fSLENSK
MATVÆLI H/F
kynnir framleiðslu
sína i samvfnnu
við Hótel Lottleiði.
Nú er það síldarævintýri í Blómasalnum á
Hótel Loftleiðum.
Þar bjóðum við hverskyns lostæti úr „Silfri hafsins"
feitrí Suðurlandssíld, um 25 rétti: Marineraða síld,
kryddsíld á marga vegu og reykta sild, salöt og ídýfur,
ásamt reyktum laxi, graflaxi, reyksoðnum laxi og
smálúðu. Sannkallaður ævintýramálsverður
á tækifærisverði.
Notið tækifærið og snæðið kvöldverð í vistlegum
salarkynnum, sem skreytt er í þessu sérstaka tilefni.
Verið velkomln á sild Borðpantanlr I sfma 22322
Dagana 9.-18. febrúar
bakhjarl...
Sá sem sítur rétt
afkastar meiru
Drabert — skrifstofustólarnir, sem eru byggðir á hinni vinsæl
Relax — 0 — flex kenningu, fyrirbyggja þreytu meö því að sty
vel viö bakiö á yöur.
— Sannkallaðir bakhjarlar.
SK
l^KRIFSTOFU^Ú^2^
Hallarmúla 2 aími 83211.
Siggi flug
Ágætur vinur minn og starfsfé-
lagi um 30 ára skeið, Sigurður
Jónsson, verður sjötugur á morg-
un. Sigurður er löngu þjóðkunnur
maður, varð það reyndar fyrir
fimmtíu árum er hann starfaði
hjá Flugfélagi íslands númer tvö,
sem fyrsti flugmaður okkar, hand-
hafi flugmannsskírteinis nr. 1.
Sigurður er fæddur á Eyrarbakka
18 febrúar 1910 og ólst þar upp
fyrstu árin en ungur flyst hann til
Reykjavíkur með foreldrum
sínum.
Skólaganga hans mun ekki hafa
verið löng frekar en ýmsra á þeim
árum en notadrjúg var ágæt
kennsla sem hann naut í Landa-
kotsskóla og hefir Sigurður oft
minnst á veganesti það, sem hann
hlaut hjá nunnunum þar, með
þakklæti.
Snemma byrjaði Sigurður að
vinna fyrir sér eins og títt var um
unglinga á þessum árum og starf-
aði hann við Útvegsbanka Islands,
áður íslandsbanka, frá fermingar-
aldri til þess tíma er hann hóf
flugnám í Þýzkalandi haustið
1928.
Um námsdvöl sína í Þýzkalandi
1928—1930 hefir Sigurður nýlega
sent frá sér bók á þýzku, sem gefin
var út þar í landi á s.l. ári. Má það
telja óvenjulegt að útlendingur fái
gefna út bók eftir sig um jafn
tæknilegt málefni og hér um
ræðir, en fengur hefir þótt í
frásögnum Sigurðar, enda á hann
létt með að koma fyrir sig orði
bæði í töluðu og rituðu máli.
Ég mun ekki rekja störf Sigurð-
ar hjá Flugfélaginu á þessum
árum, þau eru alþjóð kunn og þá
einnig hin leiðu endalok félagsins,
þrátt fyrir óþrjótandi baráttu
þeirra er að félaginu stóðu, en
heimskreppan og skilningsleysi
ráðamanna þjóðarinnar urðu þess
valdandi að hin merka tilraun dr.
Aiexanders Jóhannessonar og fé-
laga hans, að koma hér á fót
flugsamgöngum, fór út um þúfur.
Á árunum eftir 1931 þegar
flugstarfsemi lá niðri starfaði
Sigurður m.a. hjá Happdrætti
Háskólans en hóf brátt að fljúga
að nýju er „Klemminn" og „Blue-
birdinn" komu til landsins á
árunum fyrir heimsstyrjöldina.
Sigurður starfaði sem flugmað-
ur hjá Flugfélagi íslands (áður
Flugfélagi Akureyrar) á fyrstu
árum stríðsins og flaug aðallega
„Waeo“ landflugvél. Þegar emb-
ætti flugmálastjóra var stofnað í
ársbyrjun 1945 varð Sigurður
fyrsti starfsmaður embættisins
auk Erlings Ellingsen flugmála-
stjóra.
Árið 1946 varð Sigurður skrif-
stofustjóri flugmálastjóra en
- sjötugur
síðar framkvæmdastjóri Loft-
ferðaeftirlitsins og byggði hann
þá starfsemi upp og mótaði frá
grunni.
Hér er í örstuttu máli rakinn
starfsferill Sigurðar, en hann hef-
ir í sinni ágætu bók, „Siggi Flug“,
er kom út fyrir nokkrum árum,
gert skemmtilega grein fyrir því
sem á daga hans hefir drifið og er
það merkileg saga.
Á siðari árum hefir hann oft
skrifað mjög hnyttilegar greinar í
dagblöðin um mál líðandi stundar
og jafnan slegið botninn í þær með
orðtakinu „Mér datt þetta (svona)
í hug“. Hefir hann látið sitthvað
fjúka enda er maðurinn ekki
myrkur í máli þegar honum finnst
að hlutirnir hafi farið úrskeiðis.
Drátthagur er Sigurður í besta
lagi og eru ýmsar mannamyndir
hans eftirsóttar.
Sigurður er kvæntur ágætri
konu, Guðbjörgu Sigurjónsdóttur,
og flyt ég þeim báðum árnaðar-
óskir á þessum merku tímamót-
um. Sigurður mun dveljast erlend-
is um þessar mundir.
Gunnar Sigurðsson.
Ágæti, aldni vinur!
Vegna þess að þú gistir Lux-
emburg á þessum tímamótum ævi
þinnar, má ég til með að senda þér
nokkrar línur. Þó ekki væri nema
til þess að rifja upp fáeinar
endurminningar.
Það var haustið 1918. Spánska
veikin hafði geisað sem hræðileg
drepsótt. Að henni lokinni byrjuðu
skólarnir aftur og fyrsta daginn í
Landakotsskólanum var mér sagt
að þú, þá átta ára drengur, hefðir
misst föður þinn. Ég man enn hve
ég vorkenndi þér innilega.
En tíminn leið og lítil börn
þurftu að hugsa um svo ótal
margt. Kunningsskapurinn hélst
og sjö árum seinna var ég búinn
að koma mér upp mótorhjóli (illu
heilli!) Margir voru kunningjarnir
sem vildu fá það lánað. Mér var
það alls ekki laust í hendi, en
einhvern veginn atvikaðist það
þannig, að ég lánaði þér það
mörgum sinnum.
Svo leið tíminn og um haustið
1928 varst þú valinn af forráða-
mönnum Flugfélagsins til þess að
fara til Þýskalands að læra að
fljúga. Tilviljunin var sú, að ég
hafði ákveðið um sama leyti að
fara til Þýskalands og læra
tannsmíðar. Svo urðum við sam-
ferða með gamla Goðafossi til
Hamborgar. Ég ætlaði að vera í
Berlín og þangað urðum við sam-
ferða. Halldór bróðir minn var þar
fyrir og hafði leigt húsnæði fyrir
CONCORD
Til sölu
„#**************************.„
*v—■— ----------------------\*
»
»
»
*
»
»
*
*
*
*
*
»
«
«
*
♦
*
«
*
«
«
«
«
»
«
Árgerð 1978, ekinn 26.000 km. 6 cyl.
258 cid. vél, sjálfskiptur, vökvastýri,
aflhemlar, hiti í afturrúóu, kassettu-
útvarp, nagladekk.
Uppl. ( síma 52647
♦
*
*
*
*
*
*
*
*
«
♦
♦
«
»
«
*
*
«
«
«
«
«
*
«
«
«
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
okkur. Ég sagði þér að þú gætir
búið hjá okkur þangað til þú
fengir að vita hvert ætti að senda
þig. Og allan tímann sem þú varst
við flugnámið, var öðru hvoru
verið að flytja þig á milli skóla og
þá gistirðu alltaf hjá mér þetta
viku til tíu daga í senn. Þú svafst
alltaf fyrir ofan mig í rúminu
mínu, en fyrir þá, sem ekki þekkja
söguna alla, skal á það bent, að þá
vorum við báðir tá-grannir. Bitte
schön!
Já, oft var gaman þá. Margt
fórum við saman og margt sáum
við. En það var hrein hending að
við drykkjum annað en öl, blessað
ölið, svo aldrei var um vott af
óreglu að ræða.
Aldrei gieymi ég því þegar þú
fórst út að skemmta þér og
gleymdir húslyklunum. Þegar þú
komst aftur heim nálægt mið-
nætti, uppgötvaðir þú lyklaleysið,
vildir ekki vekja upp en varst ekki
aldeilis í vandræðum. Fórst ein-
faldlega í neðanjarðarbrautina,
fannst þar rólegan vagn. Þar var
hlýtt og notalegt. Svo rúllaðir þú
steinsofandi fram og aftur um
Berlín fyrir tuttugu aura og komst
heim klukkan sjö um morguninn í
fínasta skapi og sagðir mér alla
söguna.
Og fórum við í Scala og Haus
Vaterland. í litlu notalegu
stammkránni „Dortmunder Un-
ion“ hittum við oft landa okkar og
drukkum þar þetta afbragðs öl
fyrir 35 aura glasið.
Berlín var þá einhver fegursta
og hreinlegasta stórborg heimsins.
Fyrir okkur, hér norðan af hjara
veraldar, var þetta hreinlega und-
ursamlegt fyrirbæri. Við vorum
fljótir að aðlagast, enda hittum
við alls staðar ágætis fólk. Þú
alltaf jafn úrræðagóður, hvort
sem var til munns eða handa. Því
var oft gert að gamni sínu og
sungið: „Ich bin der Mann der
alles kann, fangen Sie ohne mich
nicht an“.
Margt hefir skeð síðan og ekki
má gleyma því að þú hefir unnið
það þrekvirki að skrifa námsend-
urminningar þínar á þýsku og að
bókin er fyrir nokkru komin á
þýska bókamarkaðinn og hefir
verið tekið með ágætum.
Það er margt sem þér, aldni
vinur, er til lista lagt. Snemma
komu fram þínir ágætu eiginleik-
ar í teikningu. Margt manns-
andlitið hefur þú fest á pappír og
það með miklum ágætum. í því
sambandi dettur mér í hug gamla
sagan um hinn fræga ítalska
málara Tizian. Hann var að byrja
að mála mynd af Karli V keisara
Þýskalands og Rómaríkis. Þá
spurði málarinn hvort hans há-
tign væri það ljóst, að þetta yrði
þriðja myndin sem hann málaði af
honum. „Þá er þetta í þriðja sinn
sem þér gjörið mig ódauðlegan,"
svaraði keisarinn. Það hlýtur að
vera ánægjulegt að geta gert slíkt.
Um leið og ég óska þér og þínum
allra heilla og alls þess besta sem
tengt er hamingjunni, vil ég að
lokum segja það, að hvar sem þú
hefir farið eða komið, hefir ávallt
fylgt þér fjörgandi, hjartayljandi
logi, sem ég veit að mun fylgja þér
til hinsta dags.
Friðrik Dungal.
P.S. Sigurður dvelur nú hjá
dóttur sinni og tengdasyni. Heim-
ilisfangið er: c/o Johannsson
16 Rue de la Liberation
ITZIG / Luxemibourg.