Morgunblaðið - 17.02.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1980
+ Móöir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA Þ. BJARNADÓTTIR, Grettisgötu 30, er andaöist í Borgarspítaia 9. febrúar, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 19. febrúar kl. 15.00 Synir, tengdadætur og barnabörn.
+ Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍÐUR HJALTESTED, fré Vatnsenda, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. febrúar kl. 15. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Barnaspítala Hrlngsins. Börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Eiginmaöur minn GUÐJÓN E. JÓNSSON, fyrrv. útibússtjóri, Alfheimum 29, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. febrúar kl. 3. Þeir sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Jensína Jóhannsdóttir.
+ Innilega þökkum viö öllum sem heiöraö hafa minningu LÍNEIKAR ÁRNADÓTTUR, Ögri. Ennfremur þökkum viö starfsfólki á Elliheimilinu Grund fyrlr frábæra umönnun í veikindum hennar. Börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug vlö fráfall og útför fööur okkar, BJARNA ANDRÉSSONAR ÞÓRÐARSONAR. Sérstakar þakkir færum viö læknum og öllu starfsfólki sjúkrahúss Blönduóss og deild 3 b Landspítalans. Anna Andrésdóttir Kristinn Andrésson.
+ Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö útför eiginkonu minnar, móöur okkar, dóttur okkar og tengdadóttur LOVlSU SIGFÚSDÓTTUR, Laufhaga 5, Selfossi Þröstur Bjarnason og börn foreldrar og tengdaforeldrar.
+ Alúðar-þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóöur og ömmu KRISTÍNAR LÝDSDÓTTUR Barmahlíö 1 Björgvin Guömundsson Kristín Jónsdóttir Bryndís Guómundsdóttir Guöjón B. Jónsson og barnabörn
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu við fráfall og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, HREIDARS GUÐLAUGSSONAR, Ásgaröi 73. Ólina Kristinsdóttir, Gunnlaugur Kr. Hreiöarsson, Kolbrún Guömundsdóttir, Helgi Már Hreiöarsson, Guórún Sigmundsdóttir og barnabörn.
+ Þökkum innilega vináttu og hlýhug vegna andiáts og útfarar konu minnar, móður, tengdamóöur og ömmu AGÚSTU GUÐNADÓTTUR, Háaleitisbraut 54. Kristmundur Magnússson, Jón Valgeir Kristmundsson, Guóni Kristmundsson, Steinunn Anna Oskarsdóttir, tengdabörn og barnabörn.
SigriðurJ. Hjaltested
Vatnsenda — Minning
Á morgun verður til moldar
borin góð vinkona mín, frú Sig-
ríður Hjaltested. Hún hafði átt við
langvarandi vanheilsu að stríða og
kom því andlát hennar þ. 12. febr.
s.l. ekki á óvart. Sigríður fæddist
6. janúar 1896. Foreldrar hennar
voru hjónin Sigurveig Guðmunds-
dóttir og Jón Einar Jónsson,
prentari. Ung að árum giftist
Sigríður Lárusi Hjaltested
búfræðing að mennt og bjuggu
þau hjónin lengst af búi sínu að
Vatnsenda. Okkar fyrstu kynni
voru þau að við hjónin fengum lóð
undir sumarbústað í landi þeirra.
Þetta var í byrjun stríðsins og
þótti þá ákjósanlegt að komast
með smábörn burt úr bænum.
Betri nágranna hefðum við ekki
getað eignast. Lárus var ávallt
boðinn og búinn að veita okkur
hjálparhönd. Hann var einn af
þeim mönnum sem allt geta gert
og átti ráð við öllu. Ekkert vanda-
mál var svo erfitt að hann ekki
gæti leyst það. Frá þessum árum á
ég svo ótalmargar góðar og ljúfar
minningar sem nú koma upp í
huga minn. Á fögrum sumar-
morgnum var oft mannmargt
niðri við vatnið þegar mæðurnar
úr sumarbústöðunum í kring
gengu þar með börnum sínum á
leið sinni til þess að sækja mjólk
að Vatnsenda.
Ég man hvað litlu drengirnir
mínir tveir hlökkuðu alltaf mikið
til að koma niður að bænum. Þar
var svo margt forvitnilegt að sjá,
sumt að vísu hálf ógnvekjandi í
augum borgarbarnsins, en Lárus
var svo stór og sterkur að með
honum var alveg óhætt að fara í
kynnisferð í fjósið til þess að sjá
kálfana, meira að segja þótt naut-
ið væri þar líka og jafnvel var
hundunum tveim boðinn byrginn
ef Lárus leiddi þá. Sigríður mældi
yfirleitt mjólkina kvölds og
morgna og var það erilsamt starf,
en alla afgreiddi hún með sömu
ljúfu lundinni og bros á vör.
Ég man hversu gott var að
koma í eidhúsið til hennar. Alltaf
kaffisopi til á könnunni og oftast
ilmaði eldhúsið af kökulykt því
mikið var bakað. Þar voru ekki
neinir smáskammtar á ferðinni.
Eða þegar hún stóð yfir balanum
sínum í sólinni úti á hlaði og
skolaði þvottinn sinn. Það var
ekkert smávegis tau til þerris á
snúrunum hennar Sigríðar.
Þrátt fyrir mikið annríki var
eins og Sigríður hefði alltaf tíma
til alls. Aldrei man ég eftir að
hafa séð hana skipta skapi. Börnin
þeirra 7 voru öll enn í heimahús-
um. Allir þeirra vinir og kunningj-
ar voru ávallt velkomnir að Vatns-
enda og veit ég að margir eiga
góðar endurminningar þaðan. Þar
var því oft gestkvæmt og glatt á
hjalla. Mikið sungið og spilað á
gítar.
Fjölskyldan var öll söngelsk
enda eru tvær dæturnar í dag
þekktar söngkonur, þær Sigurveig
og Ingveldur.
Sigríður var félagskona í
Hringnum í mörg ár. Við Hrings-
konur minnumst hennar með
t
Sonur okkar, bróöir og unnusti
PÉTUR KRISTÓFER RAGNARSSON,
Rauöalæk 20,
veröur Jarösunginn frá Dómkirkjunni þrlöjudaginn 19. febrúar kl.
13.30.
Ragnar Ágústsson,
Guöný Pétursdóttir,
Ágúst Ragnarsson,
Rafn Ragnarsson,
Ragnar Ragnarsson,
Kristjana Ólafsdóttir.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og systir
SÓLVEIG SIGURJÓNSDÓTTIR,
Noröurbraut 23 B
Hafnarfiröi
veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi þriöjudaginn 19.
febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaö. Þeir sem vilja
minnast hennar er bent á Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra.
Hermundur Þóröarson,
Sigurdór Hermundsson,
Bjarni Hermundsson,
Siguröur Hermundsson,
Björg Bjarnadóttir,
Sólveig Siguröardóttir,
Anna Sigurjónsdóttir.
Sigrún Ólafsdóttir,
Ester Hurle,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Hermundur Sigurösson
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúö og vinarhug við fráfall
eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa
SIGURÐAR ODDSONAR,
Kjalardal, Skilamannahreppi.
Helga Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega sýnda samúö viö andlát og útför
MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Rifshalakoti.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og vináttu vegna andláts fööur okkar,
tengdafööur og afa,
BJÖRNS JÓNASSONAR,
Ytri-Reykjum,
Sólrún Björnsdóttir,
Björn Björnsson, Geröur Ólafsdóttir
og barnabörn.
þakklæti og virðingu fyrir mikið
og vel unnið starf.
Sigríður og Lárus voru samvalin
hjón, sem báru virðingu og ást
hvort til annars. Lárus dáði sína
fallegu konu og hafði oft orð á því
hversu lánsamur hann hefði verið
þegar hann eignaðist Siggu sína
„sætu“. Það viðurnefni hafði hún
fengið sem ung stúlka enda átti
hún það nafn með rentu.
Þótt vanheilsa síðustu ára hefði
sett sitt mark á ásjónu Sigríðar
var hún ennþá Sigga sæta í
mínum augum, þegar ég sá hana
síðast, skömmu fyrir síðustu jól.
Blessuð sé minning hennar.
Ragnheiður Einarsdóttir.
Á horni Bergsstaðastrætis og
Bjargarstígs, vestan Bergs-
staðastrætis og sunnan Bjarg-
arstígsins, stendur snotur, traust-
ur og vel hirtur, ljósmálaður
steinbær með þykkum veggjum og
snotrum gluggum í þeirri stærð,
er þá þótti hæfa. Húsið stendur
þétt á jörð, vingjarnlegt og hljóð-
látt.
Þarna bjó lengstum öðlings-
maðurinn Jón Einar Jónsson
prentari í Gutenberg, er einnig
var meðal frumherja Góðtempl-
ara-reglunnar á íslandi, og hin
mæta kona hans Sigurveig Guð-
mundsdóttir. Jón Einar var lengi
elzti prentari landsins og hafði
lært iðn sína austur á Seyðisfirði.
Þau Jón Einar og Sigurveig kona
hans eignuðust sex myndarbörn,
er öll brutu sér braut, bæði á sviði
verzlunar, prentiðnaðar og í þjón-
ustu Eimskipafélags íslands hér í
Reykjavík.
Og er tilefni þessara fáu lína
það, að Sigríður Guðný Hjalte-
sted, dóttir þeirra Jóns Einars og
Sigurveigar, fyrrum húsfreyja að
Vatnsenda við Elliðavatn, er látin
og verður jarðsett frá Fossvogs-
kirkju á morgun, mánudag kl. 3
e.h.
Sigríður fæddist hér í Reykjavík
þann 6. janúar 1896, — og þótti
með fegurstu stúlkum hér í bæ á
sínum yngri árum, — og hélt hún
þeim björtu og hlýju andlitsdrátt-
um, og því augnagliti, svo að segja
til hinztu stundar.
Á hennar ungu árum voru mikil
tún og ræktað land suður af
Rauðarárstígnum. Og þar uppi í
slakkanum, rétt suður af núver-
andi Háeigsvegi, var óvenjufagurt
hús, hvítt með fögrum burstum,
og jafnvel skrautlegum reykháf-
um. — Stóð það þarna í túni sem
höfðingssetur, — og voru hlið-
stólparnir við innkeyrsluna mynd-
arlegir, hvor með sína reisulegu
kúlu efst. Þarna bjó Pétur Hjalte-
sted með rausn. Verzlaði hann á
þeim árum niðri í bænum með
skartgripi, úr og klukkur, — og
þótti mikið til hans koma á þeim
árum. Eitt barna Péturs Hjalte-
sted og hans ágætu konu, Katrín-
ar Lárusdóttur frá Narfeyri á
Skógarströnd, var Lárus Hjalte-
sted, fæddur 22. febr. 1892. —
Hann útskrifaðist úr Verzlunar-
skóla íslands. — En hélt síðan til
Danmerkur og stundaði þar
búfræðinám.
Þau Sigríður og Lárus felldu
hugi saman, og stóð brúðkaup
þeirra með mikilli rausn þann 19.
des. 1915. Gjörðist Lárus nú ráðs-
maður föður síns að Sunnuhvoli,
og áttu þau Sigríður þar heimili
fyrstu árin, en fluttu síðan að
Oxnalæk í ölfusi og bjuggu þar