Morgunblaðið - 17.02.1980, Síða 32
SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1980
Leiðangursstjóri
þýzka
svifflugleiðangursins
1938 í heimsókn:
Sandskeiðs-
umslögin
ganga á 800
þús. krónur
1>ÝZKI fluKmaöurinn Brunu
Bauman, sem kum hingað til
lands árið 1938 með fyrstu
flugvélina sem ílentist á
íslandi, er nú staddur hér i
heimsúkn ug meðfylgjandi
mynd tók ólaíur K. Magnússun
þegar Brunu var að skuða
umrædda vél á Reykjavíkur-
fiugvelli í ga'r. Klemm 25 TF-
SUX, en þetta er elzta vélin á
landinu ug m.a. fyrsta vél sem
lenti í Vestmannaeyjum undir
stjurn Agnars Kufued-Hansens
flugmálastjúra.
Bruno var leiðangursstjóri í
þýzka svifflugleiðangrinum sem
kom hingað til þess að þjálfa
íslenzka flugmenn og kom
Klemminn með Dettifossi til
landsins. Að lokinni dvöl Þjóð-
verjanna var Klemminn skilinn
eftir og einnig svifflugvélar.
Bruno Bauman var prófessor í
Á Reykjavíkurflugvelli í gær við gamla Klcmmann. Frá vinstri: Bruno Bauman, Agnar
Kofoed-IIansen flugmálastjóri og Helgi Filippusson sem var einn af íslendingunum sem hlaut þjálfun
hjá þýzku svifflugsveitinni.
flugeðlisfræði á stríðsárunum og
barðist mikið fyrir eflingu flugs-
ins.
Bruno flaug fyrsta póstflugið
með landflugvél á íslandi árið
1938, en það var frá Sandskeiði
til Reykjavíkur með sérstimpluð
umslög. Var umslagið selt á 35
aurá eða 50 aura, en nú ganga
þau á alþjóðafrímerkjamarkaði
á 2000 dollara eða liðlega 800
þúsund krónur.
Hreinsanir í Alþýðubandalaginu:
V erkalýðsleiðtogar nir
felldir úr flokksráði
MIKLAR hreinsanir standa nú yfir í
Alþýðubandalaginu. Á félagsfundi í
Alþýðuhandalagsfélaginu í
Reykjavík á fimmtudag var kosið i
flokksráð Alþýðubandalagsins og
gerðust þá þau tíðindi. að allir
helztu verkalýðsforingjar flokksins
voru felldir, en flokksráðið er ein
valdamesta stofnun flokksins. Þeir.
sem ekki náðu kjöri eru Snorri
Jónsson, forseti Alþýðusambands
íslands. Guðmundur J. Guðmunds-
son. alþingismaður og formaður
Verkamannasambands Islands. Ing-
ólfur Ingólfsson. fyrrum forseti Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands og formaður Vélstjórafélags
íslands og Einar Ögmundsson, for-
maður Landssambands vörubifreiða-
stjóra.
Morgunblaðið spurði í gær Guð-
mund J. Guðmundsson um þessa
atburði og vildi hann ekkert um þá
segja, annað en það, að honum dytti
einna helzt í hug, að meðai flokksfor-
ystunnar væri litið á þessa fjóra
fory stu menn verkalýðsh reyf ingar-
innar sem eins konar „fjórmenn-
ingaklíku". Spurningin væri aðeins,
hvernig aðgerðum gegn „fjórmenn-
ingaklíkunni" yrði nú fylgt eftir.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær, munu
þessi uppskipti eiga sér nokkuð lang-
an aðdraganda. Einn forystumann-
anna í verkalýðshreyfingunni, sem
nær kosningu er Ásmundur Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins, en hann mun vera kosinn í
flokksráðið án samráös við hann
sjálfan. Ásmundur mun vera erlendis
og með hliðsjón af því, að hann
neitaði að taka sæti í miðstjórn
flokksins, mun kosning hans í flokks-
ráð vera eitthvert sjónarspil, þar sem
búizt er við að hann muni ekki vilja
sitja í ráðinu.
Þeir, sem standa fyrir þessum
hreinsunum munu vera hinir nýju
valdaaðilar flokksins, Svavar Gests-
son, Hjörleifur Guttormsson og Óiaf-
ur Ragnar Grímsson, sem kallaðir
hafa verið menntamannaklíkan. Þeir
munu vera að treysta aðstöðu sína
innan flokksins, veita áðurnefndum
forystumönnum ráðningu, þar sem
þeir hafi ekki verið nægilega flokks-
AFLI vertíðarbátanna, sem
róa frá verstöðvum sunnanlands,
hcfur verið nokkuð misjafn að
undanförnu og hafa bátar fengið
allt upp i 50 tonn í róðri og niður
i -nokkur hundruð kíló. Síðustu
daga hefur tíð yfirleitt verið
sæmileg, en hefur í heildina verið
nokkuð erfið það sem af er árinu.
Morgunblaðið ræddi í gær við
vigtarmenn og fréttaritara á
nokkrum verstöðvum og fékk hiá
þeim eftirfarandi fréttir:
Ágætur afli hefur verið hjá
Sandgerðisbátum og hafa þeir sótt
á Jökulgrunn og Jökultunguna, en
minna verið á heimaslóðum. Afli
hefur verið að glæðast hjá neta-
bátunum og einn bátur sem var
við veiðar í Víkurál hefur tvisvar
þægir. Missætti Snorra Jónssonar við
fiokkinn hófst þegar ákveðið var
framboð flokksins 1978 og hann sagði
sig úr uppstillinganefnd. Guðmundur
J. Guðmundsson mun hafa verið
andsnúinn nýlegri stjórnarmyndun,
landað góðum afla með fárra daga
millibili, fyrst 43 tonnum og síðan
53. Óvíst er talið að fiskurinn
gangi nær, sjávarskilyrði ekki
talin hagstæð. Frá Sandgerði róa
milli 30 og 40 bátar.
Frekar dræmur afli hefur verið
hjá Keflavíkurbátum að undan-
förnu en aðfararnótt föstudags
lönduðu nokkrir bátar miklum
afla, Sandáfell 40 tonnum og
Pétur Ingi 31 tonni, trollbátar
hafa fengið 15—17 tonn og línu-
bátar mest fengið rúm 7 tonn.
Vertíðarbátum fer nú fjölgandi á
Suðurnesjum, en þeir leggja afla
sinn upp á hinum ýmsu verstöðv-
um, flækjast á milli þeirra eftir
aðstæðum, eins og vigtarmennirn-
ir komust að orði.
Ingólfur Ingólfsson bauð vinstri
stjórninni byrginn í fyrra, er kjara-
mál sjómanna voru efst á baugi og
Einar Ögmundsson mun hafa átt
erfitt uppdráttar innan flokksins nú
um nokkurra ára skeið.
Fleiri menn eru hreinsaðir út og
rná þar m.a. nefna Þröst Ólafsson
hagfræðing. Maður, sem kunnugur er
í flokknum, kvað fall þeirra Guð-
mundar J., Ingólfs og Snorra enga
tilviljun. Um væri að ræða áminningu
til þeirra um að þeir skuli hafa sig
hæga, þeir væru ekki ómissandi.
Þessi sami maður kvaðst þó vona, að
þessi ráðning snerist ekki upp í það,
að verkalýðshreyfingin væri ekki
ómissandi í Alþýðubandalaginu.
í Vestmannaeyjum var sagt
fremur lítið að frétta, þar væri
bátaafli lítill, en togarar hefðu
fiskað vel að undanförnu, eins og
fram hefur komið. Hefur afli verið
mjög misjafn hjá bátunum, allt
frá engu upp í 20 tonn og það
jafnvel þótt þeir hafi verið að hlið
við hlið. Ekki hafa allir bátar
hafið veiðar, en þeim fer fjölgandi
og færist líf í atvinnu í landi eftir
því sem bátunum fjölgar og þörf á
að vinna meira en dagvinnutíma,
eins og verið hefur að undanförnu.
Vertíðin hjá bátum, sem róa frá
Höfn, hefur verið léleg og eru
komin á land 1.800 tonn á móti
2.600 tonnum á sama tíma í fyrra.
Tveimur bátum fleira er þó á línu,
Búist við
að loðnu-
veiðunum
ljúki i dag
ÁGÆT loðnuveiði var í
fyrrinótt á miðunum
grunnt undan Langanesi
enda bezta veiðiveður.
Helmingur loðnuflotans
hefur veitt síðasta farminn
áður en veiðarnar verða
stöðvaðar en ennþá voru
eftir um 25 bátar á miðun-
um eða helmingur flotans
um hádegisbil í gær. Marg-
ir bátanna voru langt
komnir með að fylla sig og
er fastlega búist við því að
þessari lotu loðnuveiðanna
Ijúki í dag.
Aflinn á föstudag var 4585 lestir
hjá 9 bátum og frá miðnætti í
fyrrinótt til hádegis í gær höfðu
15 bátar tilkynnt afla, samtals
8610 lestir. Heildaraflinn var þá
orðinn um 267 þúsund lestir á
vertíðinni. Þar sem bátarnir hafa
nú verið að veiða síðustu farmana
fyrir veiðistoppið fara margir
þeirra með aflann til heimahafna
en aðrir landa aflanum á Raufar-
höfn og Austfjarðahöfnum.
Eftirtaldir bátar tilkynntu afla
í fyrrakvöld og fram til hádegis í
gær:
Sæbjörg 570, Skarðsvík 630,
Helga II 520, Svanur 670, Fífill
600, Harpa 620, Skírnir 420, Þórð-
ur Jónasson 490, Gullberg 590,
ísleifur 440, Rauðsey 600, Hrafn
650, Pétur Jónsson 670, Gígja 730,
Þórshamar 520, Gísli Árni 600,
Magnús 510, Dagfari 500.
Brutu rúður í
sjúkrahúsinu
Siglufirði, 16. febr.
SÁ fáheyrði atburður gerðist í
nótt að drukknir menn brutu
rúður í sjúkrahúsinu hér í bænum.
Menn eru að vonum hneykslaðir á
þessu framferði og vona að fram-
vegis fái sjúkrahúsið að vera í
friði fyrir rúðubrjótum.
-m.j.
en hvort tveggja veldur minni
afla, stirðar gæftir og minni og
lélegri fiskur, voðalegt rusl, eins
og orðað var. Vinna í frystihúsi
hefur verið 8—10 tímar á dag að
undanförnu, en ekki unnið á laug-
ardögum, sem yfirleitt er þó gert
alla vertíðina.
Frekar önugt hefur verið
síðustu daga að sækja sjóinn hjá
Ólafsvíkurbátum, en afli hefur þó
ekki verið mikill þótt gefið hafi.
Binda menn vonir við að hann sé
þó að glæðast og fiskur eigi eftir
að ganga meira á miðin og munu
nokkrir bátar hafa komizt í góðan
fisk í Víkurál um og fyrir helgina.
Hefur stirð tíð orðið til þess að
margir línubátanna eru nú að
skipta yfir á netaveiðar.
Stirðar gæftir vertíðar-
báta og af linn lélegur