Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Bílvelta í
Öxnadal
Akureyri, 24. marz.
TÍU ÁRA drengur varð fyrir
fólksbíl á Strandgötu á móts við
húsið nr. 29 um kl. 20 í gærkvöldi.
Hann meiddist illa á fæti og var
fluttur til læknismeðferðar á
sjúkrahúsið. Um kl. 2 í nótt valt
svo jeppi á þjóðveginum hjá Engi-
mýri í Oxnadal, en mikil hálka var
á veginum. Tveir menn, sem í
bílnum voru, meiddust nokkuð, en
þó ekki alvarlega.
Sv.P.
Akureyri:
Bruni í Hrað-
frystihúsi ÚA
Akureyri, 24. marz
Eldur kviknaði i hraðfrystihúsi
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
um kl. 15 í dag. Skemmdir urðu
ekki miklar að því er talið er og
eldurinn var slökktur mjög fljótt.
Verið var að vinna við logsuðu
við rör, sem lágu í einangruðum
stokk, þegar neisti komst í úreþan
einangrun sem var utan um rörin
svo að mikill og rammur reykur
gaus upp. Þegar slökkviliðið kom á
vettvang hafði starfsmönnum
hraðfrystihússins tekizt að
slökkva eldinn með handslökkvi-
tækjum, en mikill reykur hafði þá
borizt um húsið, einkum frysti-
klefa og vinnslusal. Slökkviliðinu
tókst að soga út reykinn með
sterkum reykblásara von bráðar,
en einhverjar skemmdir höfðu þá
orðið á húsinu af völdum reykjar-
ins og fiskurinn, sem var í vinnslu,
mun hafa tekið í sig reyk að
einhverju leyti. Ekki hefur verið
fullkannað enn hve miklar þær
skemmdir eru.
Sv.P.
Skemmdarverk
unnin í
Fellaskóla
AÐFARANÓTT sl. sunnudags var
brotist inn í Fellaskóla í Breið-
holti og miklar skemmdir unnar á
husakynnum skólans. Mál þetta er
í rannsókn.
Pétur Sigurðsson
formaður ASV:
Sjálfsagt mál
að koma inn með
sjúkan skipverja
„ÞÓTT við séum nú harðir í horn
að taka, þá hefur það aldrei
komið til greina af okkar hálfu
að fara að stöðva skip, sem leitar
til lands vegna veikinda skip-
verja,“ sagði Pétur Sigurðsson,
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða, er Mbl. spurði, hvort
einhverra aðgerða væri að vænta
vegna þess að ísafjarðartogarinn
Páll Pálsson kom inn til Boiung-
arvíkur eftir að verkfall undir-
manna var skollið á.
„Páll Pálsson kom inn til Bol-
ungarvíkur aðfaranótt fimmtu-
dagsins með veikan mann og tók
annan í hans stað,“ sagði Pétur.
„Þetta er svo sjálfsagt mál, að
vangaveltur um aðgerðir af okkar
hálfu þess vegna eru vægast sagt
furðulegar."
Pétur sagði, að ekki hefði verið
boðaður nýr sáttafundur í sjó-
mannadeilunni vestra.
INNLENT
Fulltrúar ASÍ og VSÍ sátu hvorir í sínu herberginu og hvikuðu hvergi. Lj&tm.Mhl.KriHtián.
Fulltrúar ASÍ ræða við ráðherra um félagsmálapakka
FULLTRÚAR Alþýðusam-
bands íslands áttu í gærmorg-
un fund með Svavari Gestssyni,
félagsmálaráðherra. „ Við reif-
uðum þessi félagslegu atriði,
sem eru á listanum hjá okkur
og ræddum hvernig staðið
skyldi að viðræðum um málin,“
sagði Ásmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri ASÍ, i sam-
tali við _ Mbl. í gærkvöldi.
Kvaðst Ásmundur búast við
því, að settir yrðu niður starfs-
hópar um einstök málefni.
Fulltrúar ASÍ áttu fund með
forsætisráðherra í síðustu viku
og sagði Ásmundur, að niður-
staða hans hefði orðið sú, að
eðlilegast væri að málið yrði
rætt við viðkomandi fagráð-
herra, þ.e. félagsmálaráðherra
og heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, en Svavar gegnir
báðum þeim ráðherraembætt-
um.
Samninganefndir ASI og VSI
komu til annars fundar hjá
sáttasemjara ríkisins í gær. Stóð
fundurinn í um tvær klukku-
stundir. Mbl. ræddi við Þorstein
Pálsson, framkvæmdastjóra
VSÍ, og Ásmund Stefánsson,
framkvæmdastjóra ASÍ, eftir
fundinn og að sögn þeirra
hreyfðust málin ekkert; full-
trúar ASÍ hvikuðu hvergi frá
kröfum sínum og fulltrúar VSÍ
ítrekuðu fyrri afstöðu sína til
þeirra krafna.
Frá minningarathöfninni í ísafjarðarkirkju. Ljó«in.: Vc«tfir«ka fréttabiaftið.
ísafjörður:
Fjölmenni við
minningarathöfn
Minningarathöfn um sjómenn-
ina fjóra er fórust á ísafjarðar-
djúpi 25. febrúar var haldin í
ísafjarðarkirkju sl. laugardag og
var hún mjög fjölmenn.
Sóknarpresturinn sr. Jakob Ág.
Hjálmarsson flutti minningar-
ræðu, sr. Gunnar Björnsson lék
einleik á selló og Sunnukórinn
söng. Að athöfninni lokinni var
gengið að minnisvarða sjómanna
og lagðir þar blómsveigar.
Námsfrádráttur
500 þús. krónur
— og milljón með námi erlendis
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Ragn
ar Arnalds, mælti í efri deild í
gær fyrir frumvarpi til laga um
tekjuskatt og eignarskatt. í
fyrstu grein frumvarpsins er lagt
til að námsfrádráttur hjá
mönnum 16 ára og eldri nemi
500.000 krónum og er frádráttur-
inn ekki tengdur launatekjum
þess, sem námið stundar, en
upphæðin er miðuð við a.m.k. 6
mánaða nám og lækkar frádrátt-
urinn hlutfallslega með skemmri
námstima. Sé nám stundað er-
lendis skal námsfrádráttur vera
tvöfalt hærri, eða ein milljón
króna.
MBL. hefur áður skýrt frá
tekjuskattsstiganum, sem er 20%
af fyrstu 3 milljónunum, 35% af
næstu þremur og 50% af skatt-
gjaldstekjum umfram 6 milljónir
króna. Tekjuskattur fyrirtækja er
65%.
Skattfrjáls eign einstaklings
skal vera 15 milljónir króna og
hjóna 30 milljónir, en af eignum
umfram það skal greiða 1,2%
eignarskatt.
Barnabætur skulu vera 130.000
krónur með fyrsta barni og 200
þúsund krónur með öðru barni og
fleirum, en fyrir börn yngri en 7
ára í lok tekjuárs skulu barnabæt-
ur 50.000 krónum hærri. Barna-
bætur með börnum einstæðra for-
eldra skulu vera 250.000 krónur
með hverju barni.
Vísitala bygg-
ingarkostnaðar
hækkar um 9,3%
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hefur hækkað um 9,3% á tímabil-
inu janúar til marz í ár miðað við
desember 1979. Er vísitalan nú
434,56 stig og gildir hún tímabilið
apríl til júní 1980.
Vísitala þessi er miðuð við
grunninn 100 í október 1975, en
vísitala miðað við eldri grunn,
október 1955 100, er 8629. Sam-
svarandi vísitölur frá því í des-
ember sl. voru 398 stig og 7894
stig.
Fundur iönrekenda með ráðherrum:
Einfaldað verði verð-
lagningarkerfi iðnaðar
STJÓRN Félags isl. iðnrekenda
ásamt framkvæmdastjóra og hag-
fræðingi sátu í gærmorgun fund
með nokkrum ráðherrum ríkis-
stjórnarinnar þar sem rædd voru
ýmis hagmunamái iðnaðarins i
framhaldi af bréfi er Davíð
Scheving Thorsteinsson, form.
FÍI, ritaði ríkisstjórninni 11.
febr. sl. Að sögn Davíðs var
ákveðið að ræða ekki nema um
þau atriði er þola enga bið, t.d.
gengisskráningu og uppsafnað
gengisóhagræði, en forsætisráð-
herra mun boða síðar til fundar
um framtiðarmálefni.
Fundinn sátu forsætisráðherra,
iðnaðarráðherra, viðskiptaráð-
herra, fjármálaráðherra og land-
búnaðarráðherra. Davíð sagði að
varðandi gengismálin hefði verið
lögð áherzla á að gengið yrði skráð
þannig að það kæmi bæði sjávar-
útvegi og iðnaði að gagni og ekki
yrðu gerðar sérstakar ráðstafanir
vegna sjávarútvegs. Rætt var um
uppsafnað gengisóhagræði, en lög-
um um aðlögunargjald var ætlað
að eyða því og kvað Davíð nauð-
synlegt að tryggja fjármagn til
þess áfram. Á fundinum kom í ljós
að þetta atriði hafði ekki verið
rætt innan ríkisstjórnarinnar og
kvað hann því hafa verið lofað að
það yrði afgreitt fyrir páska. Þá
var rætt um niðurtalningu verð-
bólgunnar í áföngum og sagði
Davíð að iðnrekendur hefðu lagt
áherzlu á að iðnaður nyti sömu
reglna í verðlagningarmálum og
innflutningur, þ.e. að auðvelduð
yrði verðlagning iðnvarnings til
samræmis við hækkaða kostnað-
arliði.
Kvað Davíð verðlagning-
arkerfi iðnaðarins þungt í vöfum
og mun seinvirkara væri að ná
fram nauðsynlegum hækkunum,
en t.d. varðandi almennan inn-
flutning. Sagði hann Tómas Árna-
son viðskiptaráðherra hafa tekið
vel í þetta atriði og í heild kvað
hann iðnrekendur nokkuð ánægða
með fundinn.
Líkfundur í
Rauðarárvík
Á sunnudag fannst lík af karl-
manni í Rauðarárvík fyrir neðan
Skúlagötu. Var ljóst að það hafði
legið alllengi í sjó. Talið er líklegt
að þarna sé um að ræða lík ungs
manns, Baldurs Baldurssonar,
sem hvarf í desember sl. Krufning
hófst í gær.
Sígarett-
um stolið
BROTIST var inn í verslunina
Ásgeir Tindaseli 2 um helgina og
stolið 25 lengjum af sígarettum.
Söluverðmæti þess magns er um
250 þúsund krónur.