Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
21
Erfiður róður
ensku lióanna
NOTTINGHAM Forest,
Evrópumeistararnir í knattsp-
yrnu mæta Ajax írá Ilollandi í
4-liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða í knattspyrnu.
Forest á heimaleik sinn á und-
an, en heimaleikirnir allir í
keppninni fara fram 9. apríl.
Útileikirnir 23. apríl. Er óhætt
að spá því að viðureign Forest
og Ajax verður tvísýn, enda tvö
afar sterk 115 þar á ferðinni.
Ajax vann þessa keppni þrjú ár
í röð eigi alls fyrir löngu.
Annars drógust eftirtalin lið
saman i keppnunum þremur.
Meistarakeppnin:
Nott.Forest — Ajax
Real Madrid — Hamburger SV
Keppni bikarhafa:
Arsenal — Juventus
Nantes — Valencia
UEFA-keppnin:
Bayern — Frankfurt
Stuttgart — Mönchengl.bach
Leiðin er fjarri þvi að vera
greið í úrslitaleikinn fyrir Ars-
enal, hins vegar má fastlega
búast við því að vestur-þýsk lið
leiki til úrslita um UEFA-bikar-
inn.
Setti Sigurður met?
SIGURÐUR Sveinsson Þrótti gerði sér lítið fyrir og skoraði 18
mörk er lið hans lagði að velli Þór frá Akureyri um helgina. i 2.
deild. Má mikið vera ef þetta er ekki íslandsmet í skorun í
deildarleik. Gaman væri að fá upplýsingar um ef einhver vissi um
að skorað hefði verið meira í leik í íslandsmóti. Á myndinni er
Sigurður að reyna að brjótast í gegn.
Sjá allt um handknattleik helgarinnar á bls. 24 og 25. þr.
Titillinn aftur
til Laugdæla
LAUGDÆLIR, lið íþróttakenn-
araskólans á Laugarvatni, urðu
íslandsmeistarar í blaki um
helgina, annað árið í röð, er
liðið lagði Þrótt að velli í
fjörugum leik. Endaði leikur-
inn 3—0 fyrir UMFL og var
leikurinn fjarri því að vera eins
ójafn og þær tölur kunna að
gefa til kynna. Þróttur hefur
nú 22 stig og hefur lokið
leikjum sinum. Hins vegar hef-
ur UMFL 24 stig og á eftir einn
leik, gegn ÍS á morgun.
Fyrsta hrinan var bráðfjörug
og gekk þar á ýmsu. Það voru
Laugdælir sem hrepptu sigur,
15—13. Eins unnu þeir aðra
hrinuna, en gangur leiksins var
þá furðulegur. UMFL komst
nefnilega í 14—1. Þróttarar gáf-
ust þó ekki upp og börðust eins
og ljón, minnkuðu muninn þann-
ig á skömmum tíma í 13—14. Þá
loks kom sigurstigið hjá UMFL.
Þriðja hrinan var eins og hinar
tvær, mikil baráttuhrina og
lífleg. Var jafnt 15—15 og í
framlengingu tókst UMFL að
knýja fram sigur, 17—15.
Falllið UMSE kom í bæjarferð
og varð það ekki frægðarför.
Liðið tapaði 0—3 fyrir Víkingi
og mætti síðan ekki til leiks gegn
ÍS, tvö létt stig það hjá ÍS.
í fyrstu deild kvenna varð
Víkingur endanlega íslands-
meistari, sigraði iMA 3—0. gg
• Handknattleiksmaðurinn góðkunni, Björgvin Björgvinsson, heíur gert það
mjög gott í vetur í V-Þýskalandi með liði sínu TVG Bremen (Grambke). Björgvin
er annar markhæstur í liðinu með 60 mörk. Á myndinni er Björgvin í stellingu
sem allir handknattleiksunnendur hafa séð hann í, og ef að líkum lætur hefur
boltinn hafnað í neti andstæðinganna skömmu síðar, en þeir voru Göppingen að
þessu sinni. Ljósm. Klaus Weingartenér
„Sterkasta vopn Vals
er viljinn til að
sigra Grosswaldstadt"
— segir Björgvin Björgvinsson
„Þetta hefur verið sérlega
góð auglýsing fyrir Reykjavík
og fsland að lið frá Reykjavik
skuli hafa náð þeim góða
árangri að komast i úrslit
Evrópumeistarakeppninnar i
handknattleik. ísland hefur
varla veið meira í sviðsljósinu
hér siðan i þorskastríðinu."
sagði hinn kunni handknattl-
eiksmaður Björgvin Björgvins-
son er Mbl. ræddi við hann og
innti hann eftir högum hans og
um leið hvort hann teldi að
Valur ætti möguleika á móti
hinu sterka liði Grosswaldstadt
á Iaugardag.
—Þjóðverjarnir eru sterkir,
sagði Björgvin, en Valur með
sína miklu baráttu og vilja getur
náð langt á móti þeim. Þeir eru
með níu landsliðsmenn og hafa
mikla reynslu. Okkur í Grambke
tókst að gera jafntefli við þá,
15—15, og vorum fyrstir til þess
að taka af þeim stig. Valsmenn
mega ekki bera neina virðingu
fyrir liðinu, þeir geta vel komið
þeim á óvart með miklu keppn-
isskapi og félagsanda. Þeir verða
að passa sig á að hleypa leiknum
ekki út í hraða. Lið Gross-
waldstadt er alhliða sterkt. Góð-
ar skyttur, línumenn og markv-
örður sem allir þekkja. Hoff-
mann er sá besti sem ég hef
leikið á móti, sagði Björgvin. En
ég vil undirstrika það, að
sterkasta vopn Vals í leiknum á
laugardag er viljinn til þess að
sigra i leiknum.
—Mér hefur gengið ágætlega
hér í vetur, er annar markhæst-
ur í liðinu með um 60 mörk. Við
erum reyndar í fallhættu og
verðum að standa okkur vel ef
við eigum að halda sæti okkar í
deildinni. Gunnar Einarsson er
meiddur í hné eins og stendur og
gat ekki leikið með síðasta leik.
—Það gæti allt eins farið svo
að ég kæmi heim í sumar,
alkominn. Ég er með ágæt tilboð
frá nokkrum liðum hér, þar á
meðal Essen, en óvíst hvort ég
tek þeim. Komi ég heim er ég
hættur að keppa með meistara-
flokki, en tæki hugsanlega að
mér þjálfun.
Að lokum sagðist Björgvin
vilja óska Valsmönnum góðs
gengis í úrslitaleiknum og sagð-
ist hlakka til að horfa á landa
sína í sjónvarpinu taka duglega
á móti Þjóðverjunum og helst að
vinna þá. — þr.
• Ingi Þór Jónsson virð-
ist eitthvað mæðulegur
þar sem hann stendur á
verðlaunapallinum, ekki
í fyrsta skiptið. Kannski
að peningurinn um háls-
inn á honum sé þungur.
Sjá nánar um meistara-
mótið í sundi á blaðsíðu
23. Ljósm. — gg.
Víkingur,
FH fengu
ÞRÍR leikir fóru fram i 1. deild
kvenna i handknattleik um
helgina. Fyrsti þeirra var leik-
inn á laugardaginn, en þá
áttust við FH og Grindavik í
Hafnarfirði. Er skemmst frá
því að segja, að FH vann
algeran yfirburðasigur, 30—7,
eftir að staðan i hálfleik hafði
verið 13—3. Mörk FH skoruðu
þær Katrin 15, Sólveig 6, Krist-
jana og Ellý 3 hvor, Björg 2 og
Svanhvít 1 mark. Fyrir Grinda-
vik skoruðu þær Sjöfn og Hild-
ur 3 hvor, Rut eitt mark.
Fram sigraði Hauka af miklu
öryggi, 18—13, og er þá útséð um
að nokkurt lið geti náð Fram að
stigum, stúlkurnar eru öruggir
Islandsmeistarar og vel að þeim
sigri komnar. Staðan í hálfleik var
11—7 fyrir Fram, sem var yfir
allan leikinn. Mörk Fram skoruðu
þær Guðríður 7, Þórlaug og Jenný
3 hvor, Oddný og Sigrún 2 hvor og
Fram og
stig
Kristín 1 mark. Margrét var að
venju markhæst hjá Haukum með
6 mörk, lék þó ekki vel. Betur lék
Hólmfríður sem skoraði 3 mörk,
Halldóra skoraði tvívegis og þær
Svanhildur og Sjöfn eitt hvor.
Loks ber að geta leiks KR og
Víkings. KR var yfir, 6—3, í
hálfleik, en síðan var liðið hvorki
fugl né fiskur í síðari hálfleik og
Víkingur seig fram úr og sigraði
12—9. Víkingarnir voru í heildina
séð mun ákveðnari og handknatt-
leikurinn sem liðið sýndi nokkrum
sinnum mjög framba^rilegur, KR-
ingarnir voru hins vegar sýnilega
áhugalitlir. Fyrir Víking skoraði
Ingunn 6 mörk, Eiríka 3, Sigrún 2
og Guðrún 1 mark. Hansina skor-
aði 6 mörk fyrir KR og var
yfirburðamanneskja í liðinu
ásamt Ásu í markinu. Þær Guð-
rún, Anna Lind og Arna skoruðu
sitt markið hver fyrir KR. — gg.