Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
31
112
Útflutningsuppbótaþörfin 15,2 milljarðar:
Unnið að mótun
heildarstefnu
í landbúnaði
— segir Pálmi Jónsson
Á FUNDI neðri deildar Al-
þingis á fimmtudaginn var
fram haldið 2. umræðu um
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins og fyrihugaða lántöku
vegna útflutningsuppbóta.
Árni Gunnarsson (A) tók
fyrstur til máls og kvaðst vilja
beina spurningum til Pálma
Jónssonar landbúnaðarráð-
herra um framhald á greiðslu
útflutningsuppbóta. Hann
kvaðst hafa fengið viðbótar-
upplýsingar frá Hagstofu
Islands um útlutningsupp-
bótaþörfina 1979—’80. Væri
hún að öllu óbreyttu og miðað
við gefnar forsendur 15,2
milljarðar en kunni að hækka
í 20 milljarða króna. Sam-
kvæmt þessu væri fyrirsjáan-
legur umtalsverður fjárskort-
ur til þess að mæta þörfinni.
Spurði þingmaðurinn hvort
einhverjar ráðstafanir væri
búið að gera til þess að mæta
þessari fjárþörf eða væri
niðurskurður á döfinni. Einnig
spurði hann um fyrirhuguð
fjárframlög til jarðræktar og
kvað það fáranlegt að leggja
fram fé til túnræktar þegar
við ættum við offramleiðslu-
vandamál að stríða.
Pálmi Jónsson landbúnað-
arráðherra kvaðst ekki kann-
ast við töluna 20 milljarðar.
Hann sagði að í fjarlagafrum-
varpinu væri gert ráð fyrir því
að mæta útflutningsuppbóta-
þörfinni með framlagi sem
næmi 10% af heildarfram-
leiðslu landbúnaðarafurða
eins og lög gerðu ráð fyrir en
það væru um 8,2 milljarðar.
Ráðherrann sagði að þá
vantaði kannski 6—7 millj-
arða, sem yrði að brúa. Þessi
tala kynni að verða lægri, t.d.
hefði í fyrra verið talið að
vantaði 5—6 milljarða en þeg-
ar dæmið var gert upp hefði
vantað 3,5 milljarða. Það
kæmi ekki í ljós fyrr en í lok
verðlagsársins 31. ágúst hve
mikið vantaði upp á. Fækkun
gripa ætti einmitt að valda því
að upphæðin yrði lægri. Pálmi
sagði að unnið væri að heild-
arstefnumótun í landbúnaði
og sagðist vona að unnt yrði að
kynna hana á þessu þingi.
Þegar hún lægi fyrir yrði hægt
að ákveða í ríkisstjórninni
hvernig vandanum yrði mætt.
Hann sagði ennfremur, að
það væri ljóst, að fé yrði
áfram veitt til jarðræktar-
framkvæmda.
Árni Gunnarsson tók aftur
til máls og þakkaði ráðherran-
um svör hans. Niðurstaðan af
svörum hans væri einföld.
Þarna væri á ferðinni eitt
mesta vandamál, sem þjóðin
ætti við að glíma. Sveigjan-
leiki til breytinga á fjárlaga-
frumvarpinu væri mjög lítill,
m.a. vegna hárra framlaga til
landbúnaðar. Menn yrðu að
viðurkenna vandann og viður-
kenna að núrverandi stefna í
landbúnaði væri gjörsamlega
hrunin. Eitt helsta vandamál
þingsins væri að móta nýja
landbúnaðarstefnu.
Pálmi Jónsson kvaðst vilja
mótmæla því að málefni land-
búnaðarins væri stærsti vand-
inn í dag. Orsaka vandans
væri ekki að leita í stefnunni
nema að litlu leyti, það væri
verðbólguvandinn og verðlags-
þróunin í landinu sem ættu
stærstu sökina. Pálmi Jónsson
þakkaði að lokum breyttan tón
í ræðu Árna frá því sem hefði
verið í ræðum sumra flokks-
bræðra hans.
Málið var því næst tekið út
af dagskrá og atkvæðagreiðslu
frestað.
Sigurvegararnir Stig Werdelin og Steen Möller ásamt formanni Bridgefélags Reykjavíkur, Jakobi R.
Möller.
Glæsilegur sigur danska
parsins á Stórmóti BR
STIG Werdelin og Steen Möller
sigruðu örugglega á Stórmóti
Bridgefélags Reykjavíkur sem
fram fór á Hótel Loftleiðum um
helgina. Hlutu þeir félagar 386
stig yfir meðalskor eða 200 stigum
meira en parið sem hafnaði í öðru
sæti. Má segja að ekkert íslenzka
parið komist með tærnar þar sem
Danirnir hafa hælana en sam-
kvæmt útreikningi fengu þeir
71,6% skor sem verður að teljast
mjög hátt í móti sem þessu.
Keppnin hófst kl. 13 á laugardag
með því að Jakob R. Möller,
formaður Bridgefélags Reykjavkur,
setti mótið og bauð gesti velkomna
og þá sérstaklega Steen og Stig.
Staðan eftir 10 umferðir:
Guðbrandur Sigurbergsson Stig
Oddur Hjaltason 120
Skúli Einarsson — Þorlákur Jónsson 97
Hjalti Elíasson — Ásmundur Pálsson 90
Stefán Guðjohnsen — Jóhann Jónsson 88
Steen Möller — Stig Werdelin 83
Gísli Hafliðason — Sigurður Þorsteinsson 65
Fátt markvert gerðist fyrstu
umferðirnar: Steen og Stig skoruðu
ætíð eitthvað í hverri umferð.
Guðbrandur og Oddur skoruðu
mikið. Staðan eftir 20 umferðir: Guðbrandur — Oddur Stig 131
Hjalti — Ásmundur 121
Ragnar — Sævin 118
Hannes J. — Ágúst H. 113
Skúli — Þorlákur 92
Stig — Steen 92
Allt hafði gengið á afturfótunum
hjá Stig og Steen í síðustu umferð-
unum. Höfðu þeir farið niður í 11.
sæti en þá brast stíflan. Mátti heita
að þeir skoruðu látlaust eftir þetta
og fengu þeir 48 stig yfir meðalskor
í einni setunni af 51 mögulegu.
Spilað var til klukkan rúmlega 2
aðfaranótt sunnudagsins og á
tímanum milli kl. 12 og 2 tóku Stig
og Steen afgerandi forystu. Sögðu
þeir í pallborðsumræðum að spila-
mennsku lokinni að á þessum tíma
hefðu andstæðingar þeirra gert
verstu villurnar og hefði þreyta
verið farin að hrjá margan spilar-
ann.
Staðan eftir 30 umferðir:
Stig
Steen — Stig 315
Stefán — Jóhann 143
Ragnar B. — Sævin B. 143
Hjalti — Ásmundur 140
Gísli — Sigurður 127
Brldge
Umsjón» ARNÓR
RAGNARSSON
Allan sunnudaginn skoruðu Dan-
irnir látlaust meðan íslenzku pörin
fengu jákvæðan og neikvæðan ár-
angur til skiptis. Keppnin um
fyrsta sætið var búin og aðeins
spurningin hverjir hrepptu 2., 3. og
4. sætið.
Lokastaðan: gtjg
Stig Werdelin —
Steen Möller 386
Gísli Hafliðason —
Sigurður B. Þorsteinss. 186
Ragnar Björnsson —
Sævin Bjarnason 175
Stefán Guðjohnsen —
Jóhann Jónsson 131
Hjalti Elíasson —
Ásmundur Pálsson ’ 129
Guðbrandur Sigurbergss. —
Oddur Hjaltason 120
Jón Ásbjörnsson —
Símon Símonarson 120
Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartars. 107
Ingvar Hauksson —
Orwelle Utlay 104
Hannes Jónsson —
Ágúst Helgason 86
Röð efstu paranna kom nokkuð á
óvart og má telja öruggt að þetta sé
bezti árangur sem Gísli, Sigurður,
Sævin og Ragnar hafa náð í keppni
á undanförnum árum.
Veitt voru gullstig til 8 efstu
paranna og fékk 8. parið 1 gullstig,
7. parið 3 gullstig, o.s.frv.
Að lokinni spilamennsku fóru
fram pallborðsumræður við gestina
undir stjórn Jakobs R. Möllers.
Kom þar m.a. fram að hjá þeim
félögum að þeir töldu að tslend-
ingar ættu mörg góð pör en það
virtist sem vantaði toppspilara í
landslið. Þá kom fram að yfir 20
pör spila „nákvæmnislaufið" eða
„Precision" og töldu Stig og Steen
að margir af þeim spilurum sem
nota það kerfi ráði eki að öllu leyti
við það og væri heppilegra að nota
kerfi þar sem 1 lauf og 1 tígull
væru litasagnir. Þeir félagar voru
mjög ánægðir með mótsstjórnina
og sögðust aldrei hafa séð það áður
að útskrift á spilum og skor væru
gefin upp samtímis.
Þeir félagar sögðu að í Dan-
mörku væru margir ungir og efni-
legir spilarar og þyrftu þeir ekki að
hafa áhyggjur af framtíðinni í
þeim efnum. Aftur á móti væru
danskir spilarar lítið betur settir
en íslendingar hvað varðaði að fá
að reyna sig við spilara frá öðrum
þjóðum. Steen og Stig eru báðir
lögfræðingar frá Kaupmannahöfn
og hafa þrívegis orðið í öðru sæti í
Sunday Times-keppninni. Stig
sagði að þeir félagar hefðu átt mjög
góða möguleika á að vinna keppn-
ina a.m.k. einu sinni en ekki tekist.
Þá kom fram að peningaverðlaun í
Sunday Times-keppninni eru engin.
í lok pallborðsumræðnanna kom
fram ábending frá einum spilar-
anna, Lárusi Hermannssyni, þess
efnis að Danirnir yrðu látnir vita
af skemmtistaðnum Hollywood og
vakti ábending mikla kátínu.
Keppnisstjóri á Stórmótinu var
Vilhjálmur Sigurðsson. Reikni-
meistari Þorfinnur Karlsson og
honum til aðstoðar Vigfús Pálsson.
Um verðlaunaafhendingu sá Si-
gmundur Stefánsson.
Allii þekkj
BRILLO
Brillo sápusvampurinn er þín daglega hjálp viö
ræstinguna í eldhúsinu.
Hann auöveldar hreinsun á pottum, pönnum, ofnum,
eldavélum og fíeiru sem mikiö mæðir á og skilar
því skínandi hreinu og fáguöu.
BRILLO ÞÍN DAGLEGA HJÁLP.,