Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
27
Ragnheiður varð
þýzkur meistari
„Ragnheiður hljóp frábærlega
síðustu 200 metrana. stakk
keppinauta sína af og varð vest-
ur-þýzkur stúlknameistari á
mjög góðum tíma, 4:23,5 mínút-
um, en það er betri árangur en
vestur-þýzka metið í flokki 17 ára
og yngri,“ sagði Hanno Rhein-
eck, sem er islenskum frjáls-
iþróttamönnum að góðu kunnur.
í spjalli við Mbl.
Hanno fylgdist með er íslenzku
frjálsíþróttakonurnar, systurnar
Rut og Ragnheiður Ólafsdætur úr
FH kepptu nýlega á innanhúss-
meistaramóti Vestur-Þýzkalands í
frjálsíþróttum fyrir 17 ára og
yngri, en á mótinu stóðu þær
systur sig stórvel, Ragnheiður
sigraði í 1500 metra hlaupinu og
Rut varð fjórða í 800 metra hlaupi.
Frábært hjá hinum ungu og efni-
legu frjálsíþróttakonum, sem
verða 16 og 17 ára á þessu ári, því
Þjóðverjar eru sem kunnugt er
eitt mesta frjálsíþróttaveldi
heims.
Þær systur hafa dvalið í vetur í
Köln við æfingar hjá þjálfaranum
Lutz Múller, sem m.a þjálfar
vestur-þýzka methafann í milli-
vegalengdahlaupum, Brigitte
Kraus, sem m.a. varð Evrópu-
meistari innanhúss í 1500 m
hlaupi 1976. Keppa systurnar fyrir
sama félag og Kraus, eða ASV
Köln.
Hanno sagði að lengst af hefði
Ragnheiður verið í öðru sæti í
hlaupinu, en er hringur var eftir,
þ.e. 200 metrar, tók hún góðan
endasprett, geystist fram úr
stúlku er hafði leitt mest allt
hlaupið. Stúlkan í öðru sæti hlaut
4:27,4 mínútur. Árangur Ragn-
heiðar er nýtt íslandsmet innari-
húss, og hennar langbezti tími í
1500 metra hlaupi. Nálgast hún
óðfluga utanhússmet Lilju Guð-
mundsdóttur ÍR 4:19,3 mínútur, en
fyrra innanhússmetið átti Lilja
4:27,4 mínútur, sett í Turku er
Lilja varð finnskur meistari inn-
anhúss 1977.
Rut varð fjórða, eins og áður
segir, á 2:11,4 mínútum, sem er
sami árangur og hún hefur áður
náð. Sigurvegarinn í hlaupinu
fékk 2:06,0 mínútur, að sögn
Hannos. Þær systur dveljast nú
við æfingar í Kaliforníu, í San
Diego, með félagi sínu, ASV-
Köln. — ágás.
• Sigurður Helgason deildarstjóri sæmdur gullmerki ÍSÍ af Gísla
Halldórssyni forseta ÍSÍ.
• Hermann Sigtryggsson frá Akureyri tekur við heiðursorðu ÍSÍ.
Hermann er íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Akureyrar.
íslandsmót fatlaöra
íslandsmót 1980 í borð-
tennis, boccia, bogfimi og
sundi.
Ákveðið er að íslandsmót í borð-
tennis. boccia, bogfimi og sundi,
fari fram i Reykjavík 18.—20.
april n.k.
Aðeins verður keppt í þeim
greinum þar sem 2 eða fleiri eru
skráðir þátttakendur.
Veitt verða 1., 2. og 3. verðlaun
i öllum flokkum allra íslands-
mótanna.
Nánari upplýsingar um tíma-
setningu verða tilkynntar síðar.
Skriflegar þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist íþróttasam-
bandi fatlaðra, Box 864, eigi
síðar en 8. apríl n.k.
• Ragnheiður Ólafsdóttir FH
stóð sig frábærlega vel á innan-
hússmeistaramóti Vestur-Þýzka-
lands í frjálsiþróttum fyrir 17
ára og yngri á dögunum.
SAMBANDSSTJÓRN Í.S.Í hélt
fund i Reykjavik 15. mars sl. í
sambandsstjórninni eiga sæti
formenn allra sérsambanda og
héraðssambanda. auk fram-
kvæmdastjórnar Í.S.Í., samtals
um 50 manns.
Meðal viðfangsefna fundarins
var að ganga frá skiptingu út-
breiðslustyrks til sérsamband-
anna, samtals að upphæð kr. 35,0
milljónir. Einnig staðfesti fund-
urinn lög íþróttasambands fatl-
aðra, sem stofnað var 17. maí á sl.
ári og auk þess breytingar á
lögum nokkurra annarra sérsam-
banda.
Þá ræddi sambandsstjórnar-
fundurinn rækilega um fræðslu-
mál íþróttahreyfingarinnar, sem
nú eru mjög i brennidepli og
einnig var gerð ýtarleg grein
fyrir undirbúningi Íþróttahátíð-
ar Í.S.Í., sem fram fer í
Reykjavik 26.-29. júní í sumar.
Á fundi sambandsstjórnarinn-
ar voru kjörnir 3 heiðursféiagar:
Björgvin Schram. stórkaupm.,
óskar Ágústsson, iþróttakennari
og Úlfar Þórðarson, læknir.
Hermann Sigtryggsson,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Ak-
ureyringa, var sæmdur Heiðurs-
orðu Í.S.Í. og Sigurður Helgason,
deildarstjóri var sæmdur gull-
merki Í.S.Í.
648 stig í
tíu leikjum!
LOKIÐ er nú íslandsmótinu i
körfuknattleik og bikarkeppn-
inni. Trent Smock hjá ÍS varð
stigahæstur. frá því hefur verið
skýrt.
Jón Sigurðsson. körfu-
kóngurinn hjá KR var kjörinn
leikmaður mótsins af Mbl. En
afrek eins leikmanns í l.deild ber
ekki að feia og það er afrek
Danny Shous hjá Ármanni. Hann
gerði sér lítið fyrir og skoraði
648 stig í 10 leikjum í 1. deild. Er
það milli 60 og 70 stig að
meðaltali i leik. þ.á m. 100 stig í
einum leik í Borgarnesi. Hvort að
nokkur á eftir að leika þennan
leik eftir Danny verður að teljast
frekar ólíklegt, enda maðurinn
engum likur.
• Danny Shous skoraði
648 stijf í 10 leikjum!
• Svo sem skýrt var frá i Mbl. á þriðjudaginn, fór fram
úrslitakeppnin i yngri flokkunum i handknattleik um siðustu helgi.
Hér fylgja myndir af Haukum og Vikingi, sem urðu í öðru og þriðja
sætinu i 5. flokki, en úrslitakeppnin i þeim flokki fór fram að Varmá.
Ljósm. — gg.
• Þrír nýkjörnir heiðursfélagar ÍSÍ (f.v.): Úlfar Þórðarson, læknir, óskar Ágústsson, íþróttakennari, og
Björgvin Schram, stórkaupmaður.