Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
33
Sveinn Jóh. Þórðarson, Innri-Múla, Barðaströnd:
Sjaldan veldur einn
þá tveir deila
Það hefur verið mikið rætt og
ritað að undanförnu um Sjálf-
stæðisflokkinn, einstaka þing-
menn hans, stefnu flokksins og
myndun núverandi ríkisstjórnar,
skrif og myndir manna um framá-
menn flokksins. Langar mig að
leggja þarna orð í belg, þó ég telji
mál að linni.
Þá er það fyrst Sjálfstæðis-
flokkurinn. Við erum sammála
um, að hann á að vera flokkur
allra stétta og manna, hvar sem
þeir búa á landinu. Frjálslyndur
flokkur, sem styður fyrst og
fremst frjálst framtak, einstakl-
ingana, en viðurkennir samvinnu-
og ríkisbúskap, þar sem það hent-
ar betur. Við viljum ekki þá stefnu
Steingríms Hermannssonar að
flokka þjóðina í tvær fylkingar,
hægri og vinstri, og ræða svo ekki
við nema aðra fylkinguna. Ég
held, að það sé misskilningur hjá
Steingrími H. að halda, að menn
kjósi bara um eitt mál þegar þeir
ganga að kjörborðinu (hægri eða
vinstri).
Ég er sammála meirihluta þing-
flokks Sjálfstæðisfl. um að ekki
hafi verið rétt staðið að myndun
núverandi ríkisstjórnar og brotn-
ar þar reglur Sjálfstfl. (en ekki
reglur lýðræðisins). En ástæðurn-
ar munu vera margar. Ætla ég
ekki hér að skrifa um þar, en segja
bara: Sjaldan veldur einn þá tveir
deila.
Þess vegna tel ég, að við eigum
nú að slíðra sveðju og styðja okkar
ráðherra eins og við getum og
koma okkar helstu stefnumálum
þar að, eins og hægt er í þriggja
flokka stjórn. Efast ég ekki um
vilja ráðherra okkar. Sömuleiðis
mun stór hluti kjósenda Sjálfstfl.
vilja það. Með því gerum við
Sjálfstfl. mest gagn og snúum á
andstæðingana.
Þá eru það kosningaúrslitin.
Menn tala um tap Sjálfstfl. Ég tel
tapið ekki vera nema í Reykjavík,
þar virðist Sjálfstfl. vera að tapa.
Ástæðurnar tel ég fyrst og fremst
vera prófkjörunum að kenna. Út
úr þeim kemur röng uppstilla.
Önnur ástæða er röng túlkun á
stefnu Sjálfstfl. Það þýðir ekkert
að vera með aðra stefnu í
Reykjavík og aðra úti á landi. Mér
virðast sumir af yngri þingm.
flokksins í Rvík gera það. Það
gengur ekki í Reykvíkinga af
þeirri ástæðu, að þeir eru að
stórum hluta dreifbýlisfólk og
hafa fullan skilning á málum
dreifbýlisins.
Þá ætla ég að víkja að fjölmiðl-
um. Mér finnst eðlilegt að útvarp
og sjónvarp reyni að leiða menn
saman í þáttum sínum. En svo
þarf að vera mat forystumanna
flokkanna, hvort þeir telja rétt að
ota fprystumönnum sínum saman
þar. Ég er á móti því. Ég hef alltaf
álitið Morgunblaðið vera fyrst
málgagn okkar sjálfstæðismanna,
hvar sem við búum. Nú, eftir að
stjórnin var mynduð, finnst mér
það hafa snúist gegn okkur, sem
búum í sveitum landsins. Þykir
mér það miður. Það get ég sagt
Morgunblaðinu, að það er jafn
mikils virði fyrir Sjálfstfl. at-
kvæði úr sveit og kaupstað. Ég
veit ekki hvort sá, sem skrifar
Staksteina 22/2 er nokkuð meiri
sjálfstæðismaður en undirritaður.
Vil ég biðja hann að gjöra svo vel
og taka það skriflega aftur og hafa
nafn sitt undir, að ég og aðrir í
sveitum sem styðja Sjálfstfl. séum
Framsóknar-sjálfstæðismenn. Ég
held, að þeir sem ráða skrifum
Morgunblaðsins ættu ekki að vera
að ota neytendum og bændum
saman. Þeir þurfa frekar á öðru að
halda. Ef Morgunblaðið ætlar að
hætta að styðja sjálfstæðismenn,
hvar sem þeir búa og eitthvað fari
öðru vísi en við hefðum óskað, þá
þurfum við að fá okkur annað
málgagn, sem hjálpar okkur að
sameina okkur aftur en elur ekki á
hrepparíg eins og Morgunblaðið
gerir nú. Við verðum að leyfa fólki
að búa þar sem því finnst best að
vera. Það þýðir ekkert að vera að
rífast um að þessi og þessi sé
styrktur meir en hinn.
Ég spyr: Hvað er styrkurog
hvað er hagstjórnartæki?
Að lokum þetta. Ég er sammála
þeim mörgu sjálfstæðismönnum,
sem vilja kalla saman landsfund á
þessu ári. Þurfum við þá að stokka
svolítið upp í forystusveitinni og
fá þar inn menn, sem geta samein-
að kraftana á ný og fylgt þeirri
frjálslyndu stefnu, sem flokkurinn
hafði. Dettur mér þá í hug m.a.
nafn Björns Bjarnasonar (Bene-
diktssonar).
Skrifað á sólríkum góudegi,
Sveinn Jóh. Þórðarson.
Frá sýningu Sigrúnar í bókasafninu á ísafirði.
Sigrún Eldjárn
sýnir á ísaf irði
OPNUÐ hefur verið sýning á
grafíkmyndum eftir Sigrúnu Eld-
járn í bókasafninu á Isafirði. Á
sýningunni eru 20 myndir unnar á
árunum 1977—1980. Sýningin
verður opin á venjulegum af-
greiðslutíma safnsins, virka daga
kl. 2—7, nema fimmtudaga kl.
2—9 og laugardaga kl. 2—4. Sýn-
ingin stendur til 30. mars.
Sigrún Eldjárn er fædd í
Reykjavík 1954. Hún stundaði nám
við Myndlistar- og handíðaskóla
íslands 1974—’77 við grafíkdeild.
Haustið 1978 fékk hún styrk úr
Menningarsjóði til Póllandsfarar og
dvaldi um skeið við Listaakademí-
urnar í Varsjá og Kraká.
Sigrún hefur haldið eina einka-
sýningu í Reykjavík en auk þess
tekið þátt í samsýningum hérlendis,
í Pollandi og á Norðurlöndunum.
Hún er ein af aðstandendum Gall-
erís Langbrókar á Vitastíg 12 Rvík
og selur verk sín þar.
Sigrún Eldjárn á verk í eigu
Listasafns íslands og Listasafns
ASÍ.
34 þúsund haf a
séð Stundarfrið
Sýningum fer nú fækkandi
SÝNINGUM fer nú dð fækka á
Stundarfriði eftir Guðmund Steins-
son, sem frumsýnt var í Þjóðleikhús-
inu fyrir um það bil einu ári síðan.
Verður 70. sýning verksins næstkom-
andi miðvikudag 26. mars og hafa nú
34 þúsund áhorfendur séð sýninguna.
Stærstu hlutverkin eru í höndum
Kristbjargar Kjeld, Helga Skúlason-
ar, Þorsteins Ö. Stephensen, Guð-
bjargar Þorbjarnardóttur, Sigurðar
Sigurjónssonar, Guðrúnar Lilju
Þorvaldsdóttur og Guðrúnar Gísla-
dóttur. Stefán Baldursson er leik-
stjóri sýningarinnar, en leikmyndin
er eftir Þórunni Sigríði Þorgríms-
dóttur.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Bólstrun, klæöningar
Klæöum eldri húsg. ákl. eöa
leöur. Framl. hvíldarstóla og
Chesterfieldsett.
Bólstr. Laugarnesvegi 52,
Sími: 32023.
Húsnæöi óskast
Óskum eftir aö taka á leigu 2ja
herb. íbúö í Reykjavík eöa Kópa-
vogi sem gæti orðiö laus í ágúst
n.k. Allar nánari upplýsingar í
sfma 43161.
aö leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur.
Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Ú — 4822".
Garður
3ja herb. íbúö í tvfbýli. Öll
nýtekin í gegn í góöu ástandi.
Allt sér.
Viölagasjóöshús í góöu ástandi.
Bflskúr.
Eldra einbýlishús á tveimur
hæöum í góöu ástandi. Stór
eignarlóð fylglr.
Hafnir
Eldra elnbýlishús í góöu ástandi.
ýmis hlunnindi fylgja.
Vogar
Neöri hæö í tvíbýli ásamt
bflskúr.
Parhús f smíöum aö mestu búiö
að utan. Einangraö aö innan. Allt
efnl í miöstöðvarlögn fylgir.
Eignamiölun Suðurnesja,
Hafnargötu 57, sími 3868.
Lögg. skjalaþýð., dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824, Freyju-
götu 37. Sími 12105.
IOOF Rb. 1 = 1293258%—9. I.
□ Edda 59803257= 5
Fíladelfía
Almennur Biblíulestur í kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Elnar J.
Gíslason.
Farfuglar
Skemmtifundur föstudaginn
28.3. kl. 8.30 Laufásveg 41.
Stjórnin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Aöalfundurinn veröur í kvöld 25.
mars kl. 8.30 í félagsheimilinu
Baldursgötu 9. Venjuleg aöal-
fundarstörf. Kaffiveitingar. Fjöl-
menniö.
Stjórnln.
A.D. K.F.U.K.
og Hlíöarkonur
Munlö aöalfundinn í kvöld kl. 8.
Fjölmennið.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Biblíuorö og bæn.
Aðalfundur
Sálarrannsóknafélags Suöur-
nesja veröur haldinn þriöjudag-
inn 1. apríl n.k. kl. 20.30 ( húsi
félagsins Túngötu 22, Keflavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf. Lagabreytingar.
Félagar mætið vel og stundvís-
lega. Stjórnin.
Aðalfundur
Aöalfundur Sunddeildar Ár-
manns verður haldinn þriöju-
daginn 25. mars kl. 20.00 í
Snorrabæ.
Stjórnin.
GEÐVERNDARFÉLAG
ISLANDS
| radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
10 tonna bátur
Höfum til sölu 10 tonna súðbyrðing, smíðaár
1972, útbúinn til handfæra, línu, neta- og
togveiöa. Báturinn er til afhendingar strax.
Myndir af bátnum og nánari uppl. á skrifstof-
unni.
Eignaval sf„
Miðbæjarmarkaðinum, sími 29277.
Grétar Haraldsson hrl. Bjarni Jónsson sími
20134.
Jörð til sölu
Jörðin Skarð í Gnúpverjahreppi er til sölu.
Uppl. gefur oddviti Gnúpverjahrepps, sími
99-6038-
Til sölu
3ja herb. íbúö í þriöja flokki Byggingarfélags
alþýöu.
Félagar sendi umsóknir á skrifstofu félags-
ins, Bræðraborgarstíg 47, fyrir 15. apríl 1980.
Stjórnin.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SEL JA?
1*1 Al (.I.YSIR I M AI.LT I.ANI) ÞF(.AR
1*1 AM.LYSIR I MORíil''NBLADIM'