Morgunblaðið - 25.03.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
5
ROTARYKLÚBBUR Kefla-
víkur hélt árshátíð sína 29.
febrúar síðastliðinn. Ennfrem-
ur var haldið upp á 75 ára
afmæli Rotary International.
Við það tækifæri var Jóhanni
Péturssyni veitt æðsta heiðurs-
merki Rotary og gerður að Paul
Harris félaga. Jóhann hefur
verið félagi í Rotaryklúbb
Keflavíkur síðan 1947, hann var
umdæmisstjóri Islenska Rotary
umdæmisins 1976—77. Jóhann
er stöðvarstjóri Pósts og síma í
flugstöðinni á Keflavíkurflug-
velli. Kona Jóhanns er Kristrún
Helgadóttir.
INNLENT
F I A T
ananm
hefur svo sannarlega sannað ágæti sitt á Islandi
enda hefur hann veriö einn vinsaelasti smábíll
hér á landi síöan 1972.
27
hefur eitt hæsta endursöluverð notaöra bíla.
annam
eyöir u.þ.b. 5—6 lítrum per lOO km.
aaaam
kostar meö ryövörn frá aöeins kr. 3.850.000.-
mm
Þursaflokk-
urinn leik-
ur í V.í.
ÞURSAPLOKKURINN heldur
tónleika í hátíðarsal Verslunarsk-
ólans í kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.30. Tónleikarnir eru haldnir á
vegum listafélags V.í.
Maðurinn
og tréð
LANDSSAMTöKIN Líf og land
halda borgaraþing um Manninn
og tréð að Kjarvalsstöðum helg-
ina 29. og 30. mars. Á þinginu
flytja ýmsir helstu sérfræðingar
og áhugamenn landsins um trjá-
rækt stutt erindi en á milli verða
flutt skemmtiatriði af ýmsum
þekktum listamönnum.
Meðan á þinginu stendur verða
sýndar innlendar og erlendar
kvikmyndir sem snerta efni þings-
ins. Anddyri og göng Kjarvals-
staða verða skreytt lifandi trjám.
Þingið hefst klukkan 10 árdegis
báða dagana. Eftir hádegi á
sunnudag verða umræður um
stöðu og stefnur í trjáræktarmál-
um Islendinga. Aðgangseyrir er
enginn.
GANGANDI vegfarendur:
Notið gangbrautirnar. Notið
þær rétt og án þess að slaka á
varúðarskyldu ykkar.
Slysavarnafélag íslands
Músíkhópurinn:
Nýleg tónverk flutt
á Kjarvalsstöðum
Stórmeistarinn átti aldrei
möguleika gegn Margeiri
Vorum að fá nýja sendingu af
árgerð 1980, sem er enn fullkomnari bíll
en áður hefur fengizt.
FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
DAVk1 SIGURÐSSON hf
SfÐUMÚLA 35, SÍMI 85855.
MÚSÍKHÓPURINN efnir í dag
til tónleika að Kjarvalsstöðum,
en hópurinn hefur að markmiði
að vinna að tónleikahaldi i höfuð-
borginni og víðar þar sem flutt
eru ný eða nýleg tónverk eftir
tónskáld innan hópsins sem utan,
með aðstoð annars ungs tónlist-
arfólks.
Árið 1974 tóku íslendingar fyrst
þátt í hátíð Ung Nordisk Musik,
sem þá var haldin í Svíþjóð, en
það er samnorrænn félagsskapur,
sem stendur að árlegri tónlistar-
hátíð til skiptis á Norðurlöndun-
um. í frétt frá Músíkhópnum segir
að ákveðnir einstaklingar hafi
verið athafnamestir varðandi
þessa tónlistarhátíðir og hafi hóp-
ur þessi verið stofnaður utan um
þennan áhuga.
Efnisskrá tónleikanna, sem
hefjast kl. 20:30 í kvöld, og flytj-
endur eru:
IVP eftir Karólínu Eiríksdóttur,
flytjendur Friðrik M.Baldursson,
Kolbeinn Bjarnason og James
Kohn, en verkið var samið 1977.
Blik eftir Áskel Másson, flytjandi
Einar Jóhannesson. Er Blik hið
þriðja í röð einleiksverka höfund-
ar, samið fyrir klarinettleikarann.
Næturljóð I eftir Jónas Tómasson,
samið í tilefni 30 ára afmælis
Tónlistarskóla ísafjarðar vorið
1978 og frumflutt þá. Flytjendur
Bernard Wilkinson, Haraldur
Arngrímsson, James Kohn og
Hjálmar H. Ragnarsson. Verses
and kadenzas eftir John Speight,
samið árið 1979 fyrir þau Einar
Jóhannesson, Hafstein Guð-
mundsson og Sveinbjörgu Vil-
hjálmsdóttur. Sónata VIII eftir
Jónas Tómasson, samin 1973,
flytjandi Þorkell Sigurbjörnsson.
Sex japönsk ljóð eftir Karólínu
Eiríksdóttur, sem Signý Sæ-
mundsdóttir syngur og með henni
flytja verkið Bernard Wilkinson
og James Kohn. I svart hvítu —
tvær etýður fyrir einleiksflautu
eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
flytjandi Manuela Wiesler. Verkið
frumflutti Manuela Wiesler sl.
vetur á ísafirði og var það samið
fyrri hluta árs 1978. Að lokum er
svo annað verk eftir Áskel Más-
son, Sýn og er það frumflutningur
þess. Kór Tónlistarskólans í
Reykjavík syngur undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar og leik-
ur Reynir Sigurðsson á slagverk.
Var verkið samið á árunum 1974
og 1975.
Þrengdi hann mjög að stór-
meistaranum og þar kom að
riddari féll óbættur og gafst
Schamakowich upp skömmu
síðar eða í 23. leik. I skák Jóns
kom upp Aljekinvörn, en hana
þekkir Álburt vel. Engu að síður
fékk Jón góða stöðu en í miklu
tímahraki missti hann tökin á
skákinni og gafst upp í 48. leik.
Margeir hefur sótt mjög í sig
veðrið eftir slaka byrjun og
hefur 3 Vt vinning, hefur unnið 3
skákir í röð. Jón hefur á sama
tíma misst flugið eftir' góða
byrjun og hefur 3 vinninga.
Geller og Larsen eru efstir og
jafnir með 5 vinninga og tefla
saman í 7. umferð. Er búist við
hörkuviðureign milli þessara
gamalkunnu meistara.
Jóhann Pétursson hlýtur
æðsta heiðursmerki Rotary
Jóhann Pétursson
MARGEIR Pétursson sigraði
bandaríska stórmeistarann
Schamakowich í snaggaralegri
skák í 6. umferð Luis D.
Statham skákmótsins í Lone
Pine á sunnudaginn. Jóni L.
Árnasyni gekk ekki eins vel,
hann tapaði fyrir bandaríska
stórmeistaranum Alburt. Báðir
stórmeistararnir eru rússnesk-
ir að þjóðerni en hafa báðir
flúið vestur fyrir járntjald.
í skák Margeirs kom upp
Grunfeld-vörn en þar er Mar-
geir vel heima í fræðunum.
m
mest seldi
ill i Evropu
15 ár
og ekki að ástæðulausu