Morgunblaðið - 25.03.1980, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Tannlækna-
félag íslands
2. grein.
Fyrsta stóráhlaupiö var gert á
Los Angeles, þar sem borgar-
stjórnin haföi áriö 1974 sam-
þykkt aö flúorblanda drykkjar-
vatn. Vopn NHF var rannsókn
gerö af dr. Yiamouyannis, sem
gaf í skyn, aö samhengi væri milli
flúorblöndunar og aukinna
dauösfalla af völdum krabba-
meins. Ýmsir í heilbrigöisþjón-
ustunni kynntu sér rannsóknirnar
og bæklinga þá sem á eftir
komu. Meöal þessara manna var
dr. Thomas Mack í Los Angeles,
kennari í samfélagslækningum
og sérfræöingur í faraldsfræði
krabbameinssjúkdóma, en far-
aldsfræði er sú grein læknis-
fræöinnar sem rannsakar tíðni
sjúkdóms, orsök og varnir í
þjóöfélagshópum. Vinnubrögö-
um dr. Yiamouyannis er best lýst
meö úrdrætti úr greinargerð dr.
Macks:
„Ég get ekki látiö vera aö
minnast á uppsetningu skjalanna
sem þér senduö mér," skrifaöi
dr. Mack. „Þrátt fyrir hve alvar-
legt viökomandi mál er, minnir
útlitiö á þessum blöðum meir á
áróöursflugrit en vísindalegt
alvörumál. Ekkert gefur til kynna,
aö efni sem um er fjallað sé
skrifaö meö þaö fyrir augum aö
birta það í vísindaritum. Víða
rekur maöur augun í niöurstööur
sem mestmegnis eru slagorð,
sem sett eru fram ógætilega og
án varnagla. Af þessum ástæö-
um hlýtur lesandinn fljótlega aö
álykta aö hlutlægni hafi ekki
verið gætt. Þessi rangfærsla er
svo yfirþyrmandi og augljós og
röksemdafærslan svo gróf og
barnaleg, aö lesarinn ályktar að
höfundinum séu gjörsamlega
framandi grundvallarreglur far-
aldsfræðinnar, þrátt fyrir hæfi-
leika á vissu sviði.“
Almenningur þekkir yfirleitt
ekki grundvallaratriði faralds-
fræöinnar og doktorsnafnbót í
heimspeki getur vakið traust
fólks enda þótt um einbera
endileysu sé aö ræða. Þau voru
áhrifin í Los Angeles. Hrollvekjan
sem NHF og aörir andstæöingar
flúorblöndunar notuöu í sínum
áróðri sigraöi tannheilbrigöis-
sjónarmiðin.
í byrjun ársins 1975 hófu dr.
Yiamouyannis og dr. Burk sam-
starf. Eins og NHF er dr. Burk
mikill baráttumaður fyrir hinu
gagnslausa krabameinsmeöali,
Lactrile og hann og NHF hafa
sömu andúö á flúorblöndun.
í grein, sem var ávöxtur þessa
samstarfs, var því haldiö fram að
25 þús. fleiri dauösföll ættu sér
staö árlega af völdum krabba-
meins í þeim borgum Bandaríkj-
anna þar sem vatn væri flúor-
blandaö. Fullyrðingin var byggö
á samanburöi á dánartölum
vissra tegunda krabbameins á
nokkrum stööum þar sem flúor-
blöndun drykkjarvatns fer fram
og þar sem þaö er ekki flúor-
blandað. í júlí 1975 lét þingmað-
urinn Delaney skrá rannsóknina í
þingtíöindi og heimtaði aö öll
flúorblöndun yrði stöövuö þegar
í staö.
Krabbameinsstofnunin
(National Cancer Institute, NCI)
kynnti sér rannsóknina meö lítilli
hrifningu. Ekki haföi veriö tekiö
tillit til þekktra áhættuþátta, sem
hafa áhrif á dánartíðni af vissri
tegund krabbameins, eins og
faraldsfræöilegri rannsókn bar.
NCI rannsakaði allar heimildir á
nýjan leik meö tilliti til kynþátta-
legra, landfræðilegra og efna-
hagslegra atriöa, og annarra
grundvallarþátta í faraldsfræöi-
legum rannsóknum. Og áöur-
nefndur mismunur á dánartölu af
völdum krabbameins hvarf meö
öllu.
Óbugaöir komu Burk og Yiam-
ouyanni aftur fram á ritvöllinn
meö enn eina rannsókn. Aö
Krabbameins-
draugurinn
vakinn upp
þessu sinni báru þeir saman
dánartölur af völdum krabba-
meins í tíu stórum borgum, sem
höföu flúorblandaö drykkjarvatn,
viö samsvarandi tölur í öörum 10
borgum, sem ekki höföu blandað
flúori í drykkjarvatn sitt. Borg-
irnar meö flúorblönduöu drykkj-
arvatni höföu aftur fleiri krabba-
meinsdauðsföll. Á því 20 ára
tímabili, sem athugunin náöi til,
var dánartala af völdum krabba-
meins 10% hærri í borgum meö
flúorblandað drykkjarvatn en í
þeim sem voru án þess. í des-
ember 1975 kom rannsóknin í
þingtíöindum og var heimtaö að
allri flúorblöndun væri hætt.
Þessi nýja rannsókn var enn
óvísindalegri en sú fyrri. Eftir því
sem einn starfsmaöur NCI sagði,
sýndi hún „Þau lélegustu vinnu-
brögð sem hingaö til höföu verið
viöhöfö varöandi flúorrann-
sóknir."
Doktorunum Burkley og Yiam-
ouyanni haföi einhvern veginn
tekist aö viröa aö vettugi þýö-
ingarmestu grundvallaratriöin
varöandi dánartölu af völdum
krabbameins: aldur, kyn og
kynþátt. Gamalt fólk dreyr frem-
ur af krabbameini en ungt fólk.
Dánartalan af völdum krabba-
meins er hærri hjá karlmönnum
en hjá kvenfólki, og hjá svörtum
tíðari en hjá hvítum. Ef ekki er
tekiö tillit til þessara atriöa verö-
ur samanburður á dánartölum af
völdum kraþbameins út í bláinn.
Þegar vísindamenn frá NCI
yfirfóru aftur heimildir Burk-
Yiamouyannis, komust þeir að
því aö mismunurinn á dánartöl-
um krabbameins átti eingöngu
rætur sínar aö rekja til aldurs og
kynþáttar fólksins.
Áfram til Evrópu
Þar sem vísindamenn hjá NCI
höföu nú hafnað rannsóknum dr.
Burk, sem hann haföi unniö að
aö undirlagi National Health Fed-
eration, hélt hann meö þær til
Hollands og Englands. Sem fyrr
sagði var Hollandsferöin mesta
frægöarför. En Bretar héldu ró
sinni. Bæði læknasamtökin og
Háskólinn í Oxford höföu þá
nýlega lokiö við rannsóknir á
hugsanlegu sambandi milli flúor-
blöndunar og krabbameins. í
janúar 1976 komst Royal College
of Physicians að þeirri niður-
stööu „aö engar sannanir væru
fyrir því aö flúor yki tíöni krabba-
meins eöa dánartíöni af völdum
krabbameins í neinu líffæri". Ox-
fordrannsóknin komst aö svip-
aöri niðurstööu.
Þar aö auki höföu Bretar
heyrt, aö NCI hefði hafnaö rann-
sóknum Burk-Yiamouyannis.
Þeim var einnig kunnugt um að
sjálfstæöar rannsóknir vísinda-
stofnunar Háskólans í Rochester
höfðu staöfest niðurstööur NCI.
„Ef málið heföi fengiö aö
þróast á eðlilegan hátt,“ sagöi
einn úr rannsóknarhópnum frá
Oxford, „heföi málinu veriö lokiö
þar meö. En því miður var því
ekki aö heilsa.“ Bresku vísinda-
mennirnir sáu aö staöreyndir
giltu ekki eins og á málum var
haldiö.
„Þaö sem vakti fyrir andstööu-
mönnum flúorblöndunar," segir
fulltrúi Bandaríska tannlæknafél-
agsins, „er að láta í veöri vaka aö
vísindamenn séu ósammála.“
„Hinar svokölluöu rannsóknir“
eru einungis til aö villa um fyrir
fólki. Sannleikurinn kom síöar
fram. Grein, sem birtist í breska
læknaritinu, The Lancet, upplýsti
aö doktorarnir Burk og Yiam-
ouyannis heföu byrjaö dreifingu
á fullyröingum sínum í Bretlandi.
Með hjálp andstæöinga flúor-
blöndunar í Bretlandi voru hinar
villandi upplýsingar þeirra send-
ar þingmönnum, heilbrigðisyfir-
völdum og vatnsveitustjórnum til
aö sýna þeim fram á aö flúor-
blöndun ylli mörgum krabba-
meinsdauösföllum.
Á meðan á þessu stóð hélt
NHF í Bandaríkjunum því fram
aö fulltrúarnir frá NCI leyndu
heimildum, ákæra sem aö lokum
haföi sín áhrif í Bretlandi. í
þinginu ásakaöi einn af þing-
mönnunum bresk heilbrigöisyfir-
völd um aö leiða yfirvöld á
villigötur hvaö varöaöi flúor-
blöndun og einnig um aö leyna
sannleikanum og „væri þagnar-
skyldu borið ''iö“.
Uppljóstrun NCI
Að sögn vitna í nefnd fulltrúa-
deildarinnar neitaöi NCI aö gefa
NHF vissar upplýsingar. Synjunin
var þó ekki nærri eins alvarleg
eins og þingmönnum var síöar
talin trú um.
NCI sendi dr. Burk fyrst eintak
af ritinu „U.S. Cancer Mortality
by County, 1950—1969", sem
hann notaöi seinna til úrvinnslu
viö fyrstu Burk-Yiamouyannis
skýrsluna. Eftir aö NCI haföi
endurskoðaö þá skýrslu, fór dr.
Yiamouyannis fram á aö fá afrit
af endurskoöunargögnum NCI.
Þau voru send honum. Notaöi dr.
Yiamouyannis þau gögn aftur til
gagnárásar á endurskoöun NCI.
Þegar hann vildi fá næstu
skýrslugögn urðu fulltrúar frá
NCI ekki viö þeim tilmælum. Þeir
bentu á að heimildirnar væru úr
hagtíðindum og heilbrigöis-
skýrslum og sögöu honum bein-
línis aö gera sína eigin útreikn-
inga. Dr. Robert N. Hoover frá
NCI sagði viö nefnda vitnaleiðslu,
„aö þessar tölur væru auðfengn-
ar öllum sem eiga venjulegt
bókasafnskort".
Til aö athuga sannleiksgildi
þessa fór fulltrúi frá Neytenda-
samtökunum (Consumers Union)
á almenningsbókasafn staöarins.
Öll bindin nema tvö, bæöi frá
árinu 1950, voru í bókasafninu,
spölkorn frá skrifstofunum.
Símtal bókavaröar viö næsta
bókasafn nægöi til aö hafa upp á
bindunum tveim sem í vantaöi.
Vegna ásakananna og þeirrar
miklu auglýsingar sem NHF fékk
í Stóra-Bretlandi ákváöu lækn-
arnir Richard Doll og Leo Kinlen,
læknaprófessorar í Oxford, aö
hefja nýja rannsókn. Þeir sögöu
þetta vera í þeim tilgangi aö
„fullvissa sig um sannleikann í
málinu, því þeir óttuöust aö
misnotkun Burk og Yiamouyann-
is á tölulegum upplýsingum gæti
orðiö heilsu breskra skólabarna
til tjóns í framtíðinni“. Á sama
tíma fór Konunglega breska
læknafélagiö fram á þaö viö
Konunglegu tölfræðistofnunina
að hún léti í té formlega umsögn
um dánartíöni af völdum krabba-
meins.
Umsögn þessi birtist í „The
Lancet" og víöar áriö 1977.
Læknarnir Doll og Kinlen skrif-
uðu í „The Lancet" aö ekkert
gagnanna „gefi neir.a ástæöu til
aö álíta aö neitt samband sé milli
flúorblöndunar og krabbameins-
dauöa, því síður aö hún gæti
orsakað krabbamein". Rann-
sóknin sem framkvæmd var af
bresku tölfræöistofnuninni var
víðtækari en sú sem áöur hafði
verið gerö. Niðurstaðan varö þó
á sama veg.
Síöar hafa rannsóknir veriö
framkvæmdar af Sjúkdóma-
varnastöö Bandaríkjanna (U.S.
Center for Disease Control) og
Hjarta, lungna og blóörann-
sóknarstofnuninni (National
Heart, Lung and Blood Institute).
Ekki tókst aö sýna fram á neitt
samband milli flúorblöndunar og
krabbameins. í stuttu máli sagt,
þá hafa sjálfstæöar rannsóknir
sjö fremstu læknisfræði- og
vísindastofnana í Bretlandi og
Bandaríkjunum komist aö sömu
niðurstööu og fullyröingar NHF
um krabbamein.
Þrátt fyrir þetta hafa fullyrö-
ingar um óholl áhrif flúors á
öörum sviöum náð aö breiöast
út, þ.e. aö flúor valdi ofnæmi,
meöfæddum vanskapnaöi,
erföasjúkdómum, kransæöa-
sjúkdómum, og krabbameini hjá
dýrum. Um þaö veröur fjallaö í
síðari grein.
II
■ <*. %
If 1 /
Atlagan gegn flúorblöndun
Sjá 3. grein.