Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
15
Magnús H. Skarphéðinsson vagnstjóri:
Karl Árnason og aðstoð-
in sem aldrei var boðin
Um strætisvagnakaup SVR og SVK
Þaö er erlaust að bera í bakka-
fullan lækinn að fara að stinga
niður penna gagnvart athuga-
semdum Karls Arnasonar for-
stjóra SVK í Mbl. laugardaginn
þann 22. mars við athugasemdir
undirritaðs við athugasemdir
fyrrgreinds Karls um athuga-
semdir tæknimanna Reykjavíkur-
borgar um hin margræddu gæði
Ikarusstrætisvagnanna að austan.
En því miður finnst mér rétt að
tvö eða þrjú atriði fái að líta
dagsins ljós í þessu sérstaka máli
til viðbótar hinum fyrri.
Rót á skynseminni
Eins og vel kunnugt er orðið þá
hefur tilboð Samafls (Samvinnu-
félgs iðnaðarmanna) í 20 strætis-
vagna SVR komið ýmsu róti á
tilfinningar og skynsemi manna.
Karl Árnason forstjóri SVK finn-
ur að þeirri fullyrðingu minni þess
efnis að SVK geri greinilega lægri
kröfur í strætisvagnamálum en
SVR gerir í dag.
Röksemdir fyrir
fullyrðingunni
En bíðum aðeins við. Á hvaða
röksemdum var sú staðhæfing
byggð? Jú, hún var byggð á þeim
röksemdum sem svo greinilega
koma fram í skýrslu Ungverja-
landsfaranna þriggja frá Reykja-
víkurborg um tæknibúnað og frá-
gang Ikarusvagnanna. Hvert ein-
asta atriði er talið upp lið fyrir lið
þar og útskýrt greinilega.
I skýrsku Karls Árnasonar
kemur hins vegar fram að þetta sé
ekkert „óyfirstíganlegt." Viður-
kenna skal ég þau rök Karls að
mörgu leyti.En allir tæknilegir
vankantar Ikarusvagnanna eru
fyrir hendi þrátt fyrir það og
kaup á þeim eru sannanlega
afturför í tæknibúnaði SVR i
dag. Um það snýst málið.
Eg vil undirstrika það hér aftur
að telji Karl Árnason þetta „smá-
vægilegt" og kannsi fleiri „stræt-
isvagnasérfræðingar" einnig, þá
er annar gæðastaðall þar til
viðmiðunar en tæknimenningu
Reykjavíkurborgar finnst hægt að
gangast undir á því herrans ári
1980. Og ég endurtek það einnig að
við því er ekkert að gera.
Ef við gerum flókið mál einfalt
og setjum þetta fram í dæmisögu
fyrir lesendur sem eflaust eru
flestir leikmenn í svona málum þá
*
Astand vega
á Snæfells-
nesi með
versta móti
Stykkishólmi.
SUNNAN úr sveitum berast þau
tiðindi að vegir séu með versta
móti og einn tjáði mér að ástand
þeirra hefði ekki verið verra um
þetta leyti í mörg ár.
Lítið eða ekkert um heflanir og
veghefill sem verið hefir í sveitun-
um í mörg ár var fjarlægður.
Hefir verið farið fram á lagfær-
ingar en það gengur hægt. Kerl-
ingaskarð var ófært um skeið og
því farið Heydal. Fékkst skarðið
ekki mokað en skafl var þar
nokkuð erfiður. Liggur við að
skólahald falli niður vegna erfiðra
vega. Tíðin hefir verið það mild að
fljótt myndast holur og hvörf í
vegi og þeim mun meira þarf að
líta eftir þeim. Vonandi ræður
vegagerðin bót á þessum vanda
því margir telja bílum sínum vart
óhætt um vegina og hafa holur
þeirra ekki bætt um fyrir bílun-
um. Fréttaritari.
getum við ef til vill sagt sem svo:
Margir bíleigendur gera sig
ánægða með að eiga Moskvitchbíl.
En aðrir, sem t.d. hafa átt Volvo
eða Merzedes Bens-bifreið, finnst
það afturför upp á nokkra áratugi
að fara aftur á „Mosvitchstigið." Á
stig sem þeir voru kannski á fyrir
20—30 árum. (Með þessu er ég
ekki að gera lítið úr Moskvitch-
bifreiðum heldur einungis nota
hann til samanburðar þar sem t.d.
Volvoframleiðslan er af öðrum
gæðaflokki). En það breytir ekki
þeirri staðreynd að sumir gera
ekki meiri kröfur til gæða eða
öryggis en svo, að þeim finnst
ágætt að kaupa sér nýjan og
ódýran Moskvitch. Og jafnvel þó
að það fari ekki eins vel um
bílstjórann og farþegana í þeim
síðastnefnda. Og við því er heldur
ekkert að gera. Ollu flóknari er nú
kjarni málsins ekki.
Fullyrðingin
óhrakin
Koma hér ekkert þessu máli við
fyrri vagnakaup SVK. Hvort þau
hafi verið af háum eða lágum
staðli, sbr. kaupin á Leylandvögn-
unum. í dag getur Karl Árnason
sætt sig við þessar gæðakröfur og
stendur því fullyrðing mín um
annan gaeðastaðal en er hjá SVR í
dag óhögguð enn.
Hvaða með álit
farþega og
vagnstjóra SVK?
Gaman væri einnig að fá að
heyra álit væntanlegra eldri far-
þega SVK um að stíga upp í og út
úr 20—30 sm hærri vagni en
önnur vagnakaup hefðu í för með
sér? Og fróðlegt væri einnig að
heyra í væntanlegum vagnstjórum
SVK um hvað þeim fyndist um að
aka vögnum með flötu liðstýri í 18
tíma á dag? Auk þess sem þeir
væru með reimdrifnar stýrisdælur
með tilheyrandi svanasöng stund-
um tímunum saman? Að sjálf-
sögðu gerir það ekkert alvarlega
til þótt reimdrifna stýrið festist
stundum í beygjum svo vagnstjór-
inn þurfi að skorða sig af og taka á
honum stóra sínum svona við og
við. Þetta venst allt saman, að því
sagt er. Elstu vagnstjórarnir hér
hjá SVR muna eftir svona vögnum
fyrir um 20 árum svo þeir gætu
því kannski kennt hinum yngri
hjá SVK á kramið.
1 s»targ"i’vRB£.rnd«' t»'"
1 til að SNara _.vOIIiUaup«taftur
,918 k.vP' ,„d
’ vel, u hfjni t»R»oðum
bamk' t*'™ . vera
HSSwssss
in-tur ekki ataftið f>rir •
K.rl
, uyr ■ >
notfær'
ja vugna
uf) ganga mn 11»“''
...-t'ajrerTi-jk
• ru. ':u • w1„1n ,igskaup#að
' ^ S \ K iuv mii nót“*’r '
að sk°ða °fl > vagnanna F-H
bv, hugarfari að *koða
f>nr nS'tegund af 'Ognum.
sr n.li.1." m'"""bOÍ-
*"?n vi6 br..a nikv*n,“ .1-0»“"
En 10 i. > iftræður sftt'
« ,t,',:j''*ikn,mrnn vr.Wsmií)-
,nna. .annlmrO, > * . rndanlf|rvi
bónaínn ‘ " a brrj'llnR'
,ilb°«'. oímo^ slum íin5
*m*,"„mub'vl,StrnV.«'»'il
' bTJLJjSlHSli^ierft f> nr
kaupa^J^T ‘ ' fvlUteW'fóm-
#£ran a þann búnað *«" >
"kun;u « Þan' 'Vf'
inssonar '*Jj2J,al4,u nuna
halda við aWv a u1r;vU ,„a|
^ Wmii •’" liWnift ' -
frá minm honöi. —
Aðstoðin sem aldrei
var boðin
Karl vinur minn Árnason er að
afþakka kurteislega aðstoð mína í
strætisvagnakaupum sínum sem
ég hefi aldrei boðið, ennþá a.m.k.
En betra er kannski seint en
aldrei. Þar sem ég er mikill
áhugamaður um bættar almenn-
ingsvagnasamgöngur og sakir
menntunar minnar og reynslu á
þessu sviði ætla ég hér með að
bjóða títtnefndum Karli aðstoð
mína gegn mjög vægu gjaldi ( 8.
launafl. borgarstm.)
Læt ég þetta vera útrætt mál af
minni hendi, en tilefnið var gefið.
Magnús H. Skarphéðinsson
vagnstjóri SVR.
Hár í hátízku
á Hótel Sögu
Hárgreiðsiumeistarar í Ha-
ute Coiffure Francaise á íslandi
efna til vorsýningar á há-
tiskunni í hárgreiðslu í Súlna-
sal Hótel Sögu þriðjudagskvöld-
ið 25. marz og hefst sýningin kl.
9. Tekur hún um 2 klst. og
verður vönduðum skemmti-
atriðum skotið inn í dagskrána.
en veitingar eru á boðstólum.
Fagmenn frá Blómum og ávöxt-
um munu skreyta salinn. og
vandað er til hljómlistar og
lýsingar á sýningunni.
Þetta er í annað sinn sem HCF
á íslandi stendur fyrir slíkri
sýningu, en 1. sýningin var sl.
haust. Þótti hún takast vel og
komu fram áskoranir um að
endurtaka hana. Það var ekki
gert, en áformað er að halda
sýningu sem þessa vor og haust í
framtíðinni í þeim tilgangi að
kynna fagfólki í hárgreiðslu og
viðskiptavinum hárgreiðslustofa
það sem nýjast er hverju sinni.
Félagar í HCF eru nú nýkomnir
frá París, en þar var þessi
sumartíska, sem kynnt verður
hér, sýnd í fyrsta sinn í febrúar
sl.
Islenzku félagarnir í HCF,
sem í byrjun var klúbbur fær-
ustu hárgreiðslumeistara í
Frakklandi en er nú orðinn
alþjóðlegur klúbbur, eiga beinan
og milliliðalausan aðgang að
frumuppsprettu hártískunnar
hverju sinni.
En HCF er leiðandi í sköpun
hártískunnar á hverjum tíma og
leggur áherzlu á að þar sé um að
ræða hárgreiðslu sem hinn al-
menni viðskiptavinur notar, en
ekki óraunhæfar keppnis- og
sýningargreiðslur.
Guðriður Þorsteinsdóttir.
Guðríður Þor-
steinsdóttir form.
Jafnréttisráðs
SAMKVÆMT lögum nr. 78/1976
um jafnrétti kvenna og karla
skal Jafnréttisráð skipað 5
mönnum til þriggja ára í senn.
1. desember 1979 var nýtt Jafn-
réttisráð skipað og eiga eftirtaldir
aðilar nú sæti í ráðinu:
Guðríður Þorsteinsdóttir, for-
maður skipuð af Hæstarétti, Jó-
hann H. Níelsson, varamaður,
skipaður af Hæstarétti, Ásthildur
Ólafsdóttir, skipuð af félagsmála-
ráðherra, Ragna Bergmann, vara-
maður, skipuð af félagsmálaráð-
herra, Gunnar Gunnarsson skip-
aður af B.S.R.B., Ingibjörg K.
Jónsdóttir, varamaður, skipuð af
B.S.R.B., Kristín Guðmundsdóttir,
skipuð af A.S.Í., Guðmunda Sig-
urðardóttir, varamaður, skipuð af
A.S.Í., Einar Árnason, skipaður af
V.S.Í., og Gunnar Guðmundsson,
varamaður, skipaður af V.S.Í.
Meinleg
prentvilla
— leiðrétting
í fyrirsögn listdóms Braga Ás-
geirssonar í sunnudagsblaðinu um
sýningu feðginanna Sigrúnar
Steinþórsdóttur og Steinþórs
Marinós Gunnarssonar stóð
Feigðin í stað Feðgin. Þá gleymd-
ist texti undir mynd með nöfnum
listamannanna. Eru hlutaðeigend-
ur beðnir velvirðingar á mistökun-
um.
MYNDAMOT HF.
PRENTMVNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • - SÍMAR: 17152-17355
arcockm loftnetskerf i ■
arcodan lof tnetskerf i ■
llt efni til loftnetsuppsetninga
hvort sem er fyrir:
— Einbýlishús — Raöhús — Stór sambýlishús —
— Kaplakerfi fyrir heil ibúóahverfi eóa bæi.
Loftnet TV—FM—AM Loftnetsfestingar Kaplar Filter
Deilibox— Magnarar— Tengidósir— Loftnetsplöggar.
Getum innan skamms útvegað íslenska útgáfu af vöru og verðlistum yfir
efnisúrval okkar. — Hringið eða heimsækið okkur til nánari upplýsinga.
Aðstoðum við val efnis fyrir hvert einstakt kerfi — Kerfisuppbygging, sem
byggð er á áratuga reynslu loftnetssérfræðinga Arcodan.
Danska fyrirtækið Arcodan er stærsti aðili Norðurlanda í framleiðslu og
uppsetningum á loftnetskerfum. Þeir hafa meðal annars leyst pað verkefni að
tengja 25.000 notendur við sama loftnetiö og þá að sjálfsögðu með möguleika
á að tengjast sameiginlegu myndsegulbandi og FM-músik-útsendingum.
Dönsk lög um loftnetskerfi eru þau ströngustu í heiminum í dag, og að
sjálfsögðu fullnægir Arcodan þeim gæðakröfum í einu og öllu.
Kjörorö okkar er „Gæöin fyrir öllu“.
heimilistæki hf
SÆTÚNI8.SÍMI 24000.