Morgunblaðið - 25.03.1980, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Slysavarnafélagið
gefur út handbók fyr
ir björgunarmenn
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
hefur gefið út upplýsinga- og
fræðsluhandbók, sem aðallega er
ætluð björgunarmönnum félags-
ins en kemur öllum að gagni, sem
að björgunar- og slysavarnamál-
um vinna.
Ákveðið var í fyrra að hefjast
handa við samningu bókarinnar
en brýn þörf var orðin á slíkri bók.
Bókin er í lausblaðaformi og er
meiningin að bæta inn í hana efni
eftir þörfum og laga einstaka
kafla að breyttum tímum. Er
bókin á fimmta hundrað vélritað-
ar síður og margar skýringar-
myndir fylgja. Bókinni verður til
að byrja með dreift til allra
björgunarsveita en í sveitunum
eru um 2500 skráðir félagar. í
SVFÍ eru um 30 þúsund félagar.
Bókinni er skipt í kafla og heita
einstakir kaflar: Upplýsingar um
SVFI og björgunarsveitir, reglur
björgunarmanna, merkjagjafir,
fjarskipti, notkun áttavita og
korta, sjóbjörgun, landbjörgun,
skyndihjálp, flutningur slasaðra,
fjallamennska, rústabjörgun,
björgun úr snjóflóðum og ýmsar
upplýsingar.
Símamál Kjalnesinga:
„Alls ekki við Póst
og síma að sakast“
segir Jón Skúlason póst- og simamálastjóri
„ÞAÐ ER alls ekki við Póst og
sima að sakast um hvernig er
háttað símamálum Kjalnesinga,"
sagði Jón Skúlason póst- og
símamálastjóri er Mbl. innti
hann álits á framkomnum mót-
mælum íbúa á Kjalarnesi vegna
slælegrar símaþjónustu.
„Ef við fengjum að ráða væru
Kjalnesingar fyrir löngu búnir að
fá sjálfvirkan síma, en það er hið
háa Alþingi sem skammtar okkur
Kynnir jóga
og hugleiðslu
DAGANA 25.—31. mars er staddur
hér á landi jóginn Ac. Sarvabodhan-
anda Avt. Hann mun dveljast í
miðstöð Þjóðmálahreyfingarinnar
(PROUT) að Aðalstræti 16 og kenna
þeim er áhuga hafa Aantríska hug-
íeiðslutækni og jógaæfingar. Öll
kennsla er ókeypis og opin fyrir alla.
Sarvabodhananda mun einnig halda
fyrirlestur um PROUT í Aðalstræti
16 fimmtudag 27. mars kl. 20:30.
Helgina 28.—31. mars verður hald-
ið mót í Ölfusborgum þar sem
kynntar verða þjóðfélagshugmyndir
hreyfingarinnar. Mót þetta er öllum
opió sem áhuga hafa á jóga eða
hugnyndafræði PROUT.
fé og það sem við fáum á fjárlög-
um hrekkur hvergi til, auk þess
sem stefnt er að niðurskurði
samkvæmt fyrirliggjandi fjár-
lagafrumvarpi. í rauninni má
segja að áhugi þingmanna á þess-
um málum sé afskaplega lítill ef
marka má aðgerðir þeirra," sagði
Jón.
Jón sagði aðspurður að ef vel
gengi væri hugsanlegt að koma
mætti upp fjölsíma á Kjalarnesi
með haustinu, en það byggðist
auðvitað á því að nægileg fjárveit-
ing til framkvæmdanna fengist.
I því sambandi væri vert að geta
þess að fjárlög ársins hafa enn
ekki verið samþykkt þannig að
ekki væri neitt vitað með vissu.
„Varðandi mótmæli Kjalnes-
inganna tel ég þau komin til
föðurhúsanna þar sem þingmönn-
um voru send afrit af þeim. Þeir
eiga næta leik,“ sagði Jón Skúla-
son að síðustu.
©
INNLENT
ískappreiðar á Akureyri
Akureyri, 22. mars.
ÍÞRÓTTADEILD hestamanna-
félagsins Léttis á Akureyri
gekkst fyrir ískappreiðum á
Leirutjörn við Aðalstræti í dag,
og er ætlun félagsins, að siikir
kappleikar fari fram áriega
eftirleiðis. Gallery Háhóli, Lög-
fræðiskrifstofa Benedikts Ól-
afssonar, Oddur Carl Thorar-
ensen og Cæsar, tískuverslun
unga fólksins, gáfu bikara, sem
unnust til eignar i einstökum
greinum, en Matthías Gestsson
gaf ískeppnisstyttuna, sem er
farandgripur, sem besti knapi
Léttis í 200 m skeiði hlýtur
hverju sinni. í þetta sinn hlaut
gripinn Jón Matthíasson.
I efstu sætunum urðu:
Töltkeppni
1. Albert Jónsson á Fálka 5 v.,
brúnskjóttur, eyfirskur. Eig-
andi Óli G. Jóhannsson.
2. Jón Matthíasson á Reyk 8 v.,
grár, eyfirskur. Eigandi
knapi.
Gæðingaskeið:
1. Björn Þorsteinsson á Blæ 8 v.,
frá Húsey, 160 stig. Eigandi
Valdimar Kjartansson.
2. Stefán Friðgeirsson frá
Dalvík á Þrym 8 v., frá
Garðsauka, Rang, 145 stig.
Eigandi Friðrik Bergmann.
150 metra nýliðaskeið:
1. Björn Þorsteinsson á Rebekku
7 v., frá Kolkuósi. Tími 16,9
sek. Eigandi Lúther Harðar-
son.
2. Reynir Hjartarson á Skjónu 5
v., frá Skálpagerði. Tími 17,3
sek. Eigandi Áskell Harðar-
son.
3. Örn Grant á Sporði 6 v., úr
Borgarfirði. Tími 17,4 sek.,
Eigandi Magnús Halldórsson.
Alls voru sex hross í þessari
keppni.
150 metra skeið, opinn flokkur:
1. Örn Grant á Gretti 9 v.,
eyfirskur. Tími 17,8 sek. Eig-
andi knapi.
2. Björn Þorsteinsson á Þór 7 v.,
frá Húsey. Tími 18,5 sek.
Eigandi Valdimar Kjartans-
son.
200 metra skeið:
1. Jóhann Þorsteinsson úr
Skagafirði á Nikka 8 v., Rang.
Tími 20,4. Eigandi knapi.
2. Jón Matthíasson á Gráskegg
10 v., eyfirskur. Tími 20,6 sek.
Eigandi knapi. Sv.P.
Ljóxm. PÉTUR.
Halla (Snædis Gunniaugsdóttir) og Kári (Konráð Þórisson).
í fyrsta sinn sem
leikritið er sýnt í
heimahéraði höfundar
Leikfélag Húsavikur frumsýndi
sl. föstudagskvöld FJALLA-
EYVIND eftir Jóhanr. Sigur-
jónsson.
Þetta er 2. verkefni félagsins á
þessu leikári og sérstaklega valið
með tilliti til þess að hinn 19. júní
í sumar verða 100 ár liðin frá
fæðingu skáldsins frá Laxamýri.
Leikstjóri er Sigurðu Hall-
marsson en leikmynd eftir Birgi
Engilberts. Með aðalhlutverk fara
Snædís Gunnlaugsdóttir, sem
leikur Höllu, Konráð Þórisson
leikur Kára, Þorkell Björnsson,
Arnes, og fara þau öll vel með
hlutverk sín. Aðrir leikendur eru
Svavar JónSson, Herdís Birgis-
dóttir, Hörður Jónasson, Ása
Gísladóttir, Elín Sigtryggsdóttir,
Óðinn Valsson, Einar Þorbergs-
son, Sverrir Jónsson, Fífa Kon-
ráðsdóttir, Bjarni Sigurjónsson,
Steinunn Áskelsdóttir, Gunnar
Straumland, Hrönn Káradóttir og
Sveinn Freysson en alls vinna að
sýningunni yfir 30 manns.
Sýningunni var mjög vel tekið
af áhorfendum og leikarar hylltir
í leikslok með miklu lófataki og
blómum.
Önnur sýning var á sunnudag
fyrir fullu húsi og má búast við
mikilli aðsókn, því þetta er í
fyrsta sinni sem Fjalla-Eyvindur
er sýndur í heimahéraði höfundar,
þó um sjötíu ár séu liðin frá því að
hann var fyrst sýndur í Kaup-
mannahöfn og hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Þetta er verðugt viðfangsefni
hjá leikfélagi Húsavíkur í tilefni
af 80 ára starfsferli félagsins og
um 100 ára afmæli þess, að fyrst
var sýndur sjónleikur á Húsavík.
Formaður leikfélagsins er Anna
Jeppesen kennari. Fréttarltari.