Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 Milljarðagjá milli eyðslu og tekna: Brúuð með stórauk- inni skattheimtu skuldasöfnun og halla ríkissjóðs Stefna sú í ríkisfjármál- um, sem mótuð var í fjár- lögum vinstri stjórnar 1979 hafði hörmulegar af- leiðingar fyrir efnahags- þróun og þróun fjármála í landinu. sagði Lárus Jónsson, alþingismaður, í fjárlagaumræðu á Al- Úr fjárlagaræðu Lárusar Jónssonar þingi. Ríkisumsvif voru stóraukin, einkum rekstr- ar- og millifærsluútgjöld, skattar voru stórhækkaðir en framkvæmdaframlög skorin niður. Þetta reynd- ust ^mestu verðbólgufjár- lög íslandssögunnar, enda hækkaði framfærsluvísi- tala um 61% frá upphafi til loka árs. Vondur, verri, verstur Svo slæm sem fjárlög ársins 1979 voru gekk þó fjárlagafrum- varp Tómasar Árnasonar fyrir árið 1980, sem lagt var fram sl. haust, ennþá lengra í skatta- og eyðsluhækkunum. Það gerði ráð fyrir stórhækkun bæði söluskatts og vörugjalds. En það frumvarp, sem Ragnar Arnalds ber nú fram, er þó sýnu verst, enda fer Ragnar hvorki meira né minna en 25 milljörðum fram úr Tómasi í rekstrar- og millifærsluútgjöld- um, þó bæði frumvörpin fjalli um sama fjárlagaárið. Til að framkvæma þessa eyðslu- stefnu er gripið til fjögurra ráða: 1) Skattar eru hækkaðir um 10 milljarða frá frumvarpi Tómasar, auk þess sem boðaður er 5 millj- arða nýr orkuskattur; 2) Markaðir tekjustofnar eru teknir til ríkis- sjóðs og fjárfestingarsjóðafram- lög enn rýrð um 5 milljarði; 3) Fjárveitingar til hafna, skóla, sjúkrahúsa o.s.frv. eru ekki hækk- aðar, þrátt fyrir breyttar verð- lagsforsendur, og því rýrðar að raungildi; 4) Lækkuð eru greiðslu- áform til Seðlabanka um 5 millj- arða króna. Þetta er sama meginstefnan og í síðustu fjárlögum vinstri stjórnar, aðeins gengið mörgum skrefum lengra í sömu átt eyðslu og skattheimtu. Verðbólgufjárlög Fjárlagafrumvarp þetta er og sýnu meiri verðbólguhvati en fjár- lög liðins árs. í því sambandi hlýt ég að minna á gagnrýnisatriði mín, Pálma Jónssonar og Ellerts Schram, á fjárlög fyrra árs, en við sátum þá í fjárveitinganefnd í nafni Sjálfstæðisflokksins. Þau voru þessi: • — Aukning skattheimtu væri um of. • — Ríkið ráðstafaði of stórum hluta þjóðartekna. • — Aukning fjármagnstil- færslna og niðurgreiðslna. • — Ríkisbáknið væri þanið út á sama tíma sem fram- kvæmdir á landsbyggðinni væru skornar niður. — Milljarðagjá væri milli tekna og útgjalda, sem líklega yrði brúuð með auk- inni skattheimtu. • — Fjárlagastefnan væri verð- bólguhvati. Þessi gagnrýni, sem við settum fram sameiginlega á sl. ári, á enn frekar við um fjárlagafrumvarp það sem við nú ræðum, enda gengur það í öllum atriðum lengra í þá átt, sem við töldum aðfinnslu- verða. Því miður fór reynslan af vinstri stjórnar fjárlögunum fram úr gagnrýni okkar. I kjölfar þeirra kom nýtt verðbólgumet. Það reyndist milljarðagjá milli eyðslu og tekna. Þrátt fyrir stórauknar álögur nægðu þær ekki í brú milli stólpa eyðslu og tekna. Niðurstað- an varð því stórtækur hallarekst- ur. Þrátt fyrir þessa reynslu, sem gerði meir en að staðfesta gagn- rýni okkar á fjárlög fyrra árs, skal halda lengra út í svaðið, ef dæma má af frumvarpi Ragnars Arn- alds. Skattahækkanir Um skattahækkanir frá haust- inu 1978 sagði Lárus: I fyrsta lagi eru hækkaðir eign- arskattar, og hækkaðir tekju- skattar 6.3 milljarðar kr., en eins og menn muna voru þessir skattar hækkaðir haustið 1978 og hafa haldist síðan og þetta er byggt á upplýsingum, sem ég hef fengið frá Þjóðhagsstofnun um það hvað þessir skattstofnar gefi meira núna vegna þessarar stefnu. Það eru 6.3 milljarðar. Hækkun sölu- skatts um tvö prósentustig, er gefa 10.3 milljarða. Hækkun vöru- gjalds, sem var hækkað með mörgum ákvörðunum, sú hækkun gefur 7.7 milljarða. Gjald á ferða- lög til útlanda 1700 millj. kr. Nýbyggingargjald 250 millj. kr., skattur á verslunarhúsnæði 1700 millj. kr., aðlögunargjald 1840 millj. kr., verðjöfnunargjald á raforku 1220 millj. kr. og hækkun skatta á bensín umfram verð- lagshækknair 10.1 milljarð kr., en skattur á bensín vorið 1978 9 milljarðar en eru samkv. tekju- áætlun þessa frv. 29 milljarðar kr. og það sem sagt umfram verð- lagshækkanir gefur 10.1 milljarð í ríkissjóð. Orkuskattur áætlaður samkv. frv. 4—5 milljarðar og markaðar tekjur, sem eru teknar í ríkissjóð samkv. frv. 4.7 milljarð- ar. Samtals eru þetta 50 milljarð- ar kr. og frá dregst síðan niður- felling söluskatts af matvælum og tollalækkanir og þá kemur út talan 36—37 milljarðar kr. Athyglisvert er, að núv. hæstv. ríkisstj. ber ábyrgð á verulegum hluta þessarar skattahækkunar. Hún ætlar að viðhalda hækkun söluskatts um tvö prósentustig og vörugjaldshækkuninni allt árið 1980. Þessir skattar lögðust ein- ungis í nokkra mánuði 1979. Af þeim sökum lögðust einungis 2.7 milljarðar í skáttbyrði á almenn- ing í fyrra vegna þessarar skatta- hækkunar, ep á þessu ári greiðum við skattborgarar ríkissjóð 18 milljarða kr. vegna þessarar hækkunar. Orkuskatturinn kemur þar til viðbótar, 5 milljarðar og útsvarshækkun um 10%, ef að líkum lætur. Núv. hæstv, ríkisstj. verður búin að gera fyrrv. vinstri stjórn að hreinum englabörnum í skattamálum áður en þetta ár er liðið ef þetta gengur allt fram. Framkvæmdir og fjárfestingarsjóðir Síðan ræddi Lárus skerðingu flestra framkvæmdaþátta fjár- laga, einkum að því er lýtur að landsbyggðinni. Að auki væri um stórfelldan niðurskurð að ræða til fjárfestingarlánasjóða. Hvort tveggja til að standa undir út- þenslu ríkisútgjalda á öðrum svið- um. Niðurskurður vinstri stjórnar á fjárfestingarsjóðum 1979 var 5%. Nú eru sumir þessara sjóða skorn- ir niður allt upp í 30—40%. Ég skal ekki þreyta ykkur á löngum talnalestri. En ég minni á sjóði eins og Fiskveiðasjóð, Aflatrygg- ingarsjóð, Stofnlánadeild land- búnaðar, Byggingasjóð verka- manna, Lánasjóð sveitarfélaga, Bjargráðasjóð, Byggðasjóð og fjölda annarra sem þessi stefna bitnar á. Þó er sú staðreynd einna alvar- legust að frumvarpið er óraun- hæft í viðnámi gegn verðbólgu. Með því að lækka áætlaðar af- borganir til Seðlabanka um 5 milljarða króna frá frumvarpi Tómasar Árnasonar, er teflt á tæpara vað um raunverulegan greiðslujöfnuð ríkissjóðs. Skulda- hallinn í Seðlabanka er orðinn hátt í 30 milljarðar króna en áætlaðar afborganir aðeins 3,5 milljarðar. Lárus sagði að lokum að sú eyðsluaukning, sem fjárlagafrum- varpið fæli í sér, væri gerð á kostnað almennings í landinu — í formi skattahækkana og lífskjara- skerðingar; kostnað atvinnuupp- bygginar með niðurskurði á fram- lögum til sjóða atvinnuveganna; á kostnað lífsnauðsynlegra fram- kvæmda um allt land í höfnum, skólum, sjúkrahúsum, vegagerð o.s.frv. Þessi fjárlagastefna er andstæð grundvallarhugsjón sjálfstæðis- stefnunnar um að stilla skatt- heimtu í hóf og setja ríkisumsvif- um skynsamleg takmörk — og nýta fjárlög sem stjórntæki í viðnámi gegn verðbólgu. Steinþór Gestsson alþingismaður: V atnagangur veldur stórskaða á gróðurlendi Heildstæð varnaráætlun gegn landbroti Á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum 1974 var samþykkt gróður- verndaráætlun. í framhaldi af þeirri áætiun voru sett lög um heftingu landbrots af völdum vatnagangs. Steinþór Gestsson hefur nýlega lagt fram á Alþingi tillögu sem felur i sér að matsnefndir, sem starfa i hverjum landshluta. geri úttekt,, hver í sínu kjördæmi, á hættu á landspjöllum af völdum vatna. Á grundvelli þeirra kannana verði síðan gerð heildaráætlun. framkvæmda- og kostnaðaráætlun, um varnaraðgerðir og röðun varnarverkefna. Landbrot stór í sniðum Steinþór Gestsson (S) sagði í framsögu á Alþingi eðlilegt og sjálfsagt að láta varnaraðgerðir til að hefta landbrot haldast í hendur við aðgerðir til að verjast uppblæstri og til að endurheimta gróðurlönd, sem hafi eyðst af veðrum, þ.é. að græða upp örfoka land. Landbrot eru miklu stærri í sniðum, sagði Steinþór, en svo að varnir hafi reynzt nægilegar, þó til nokkurs gagns hafi orðið. Viðkomandi nefndir hafa hvorki haft næga hvatningu né aðstöðu til aö sinna hlutverkum sínum. Lögin gera heldur ekki fortaks- laust ráð fyrir heildarumsjón né eftirliti með störfum nefndanna, þó að Vegagerð ríkisins annist verkfræðilegan undirbúning þegar um meiriháttar framkvæmdir er að ræða. Og þess er kannski ekki að vænta að mönnum sé fullljóst, að hér er um stórvirki að ræða. Stórir skaðar í flestum tilfellum er landbrot hægfara, þar sem aðeins fellur í vatn hálfs eða eins metra breið spilda árlega, en verður þó stór landeyðing meðfram ám, sem falla langan veg um gróið land. Annað veifið verða stærri skaðar, einkum eftir að mikil ísalög og stórar íshrannir, þegar vetrar- og vorflóð mala niður bakkana, þar sem klakahrönnin gerist mikilvirk kvörn. Steinþór vitnaði til erindaflokks Sigurjóns Rist, „Árnar okkar“, sem hefur að geyma mikinn fróð- leik þetta mál varðandi. Nefndi hann Jökulsá á Dal sem dæmi um afkastamikla á í jarðvegsflutn- ingi, einnig Jökulsá á Fjöllum, sem talin er flytja 5 milljónir tonna af aur á ári. Þjórsá er svipuð að afköstum. Hún rennur síðustu 80 km um gróin byggðar- lög og veldur þar skaða, oft í stórum stíl, enda er hún það fljót landsins, sem ber í sig mestar íshrannir sem gjarnan geta orðið allt að 18 m þykkar mestu ísárin. Hjá Þrándarholti hefur Þjórsá unnið svo stór spjöll, sagði Stein- þór, að menn óttuðust að hún kynni að brjóta sér leið vestur yfir Gnúpverjahrepp og Skeið og sam- einast Hvítá sunnan Vörðufells. Með stórátaki, byggingu varnar- garða, hefur tekizt að bægja hættunni frá. I Skeiðahreppi hef- ur Þjórsá gengið á gróðurlönd fleiri bæja. Nokkurt fé hefur verið lagt til varnargarða en hvergi fullnægjandi, enda verður verkið varla unnið til fullra nota nema tekið sé stærra undir og litið til heildarvandans á stærra svæði allar götur suður að Þjótanda. Nefndi Steinþór ýmis dæmi um bæi á þessu svæði, fyrr og síðar, sem orðið hefðu fyrir ágangi Þjórsár. Dæmi sem taka þarf eftir Loks sagði Steinþór orðrétt: Til skýringar máli mínu hef ég tekið mið af því stórfljóti lands- ins, sem ég þekki best og bent á þá hættu, sem af eyðingarmætti þess getur leitt ef ekki er með skipuleg- um hætti snúist til varnar. Að sjálfsögðu er þvílíkt víða um land, hver sá sem ferðast hér um breiðar byggðir verður þessa var. Slíkt leynir sér ekki á fjölmörgum stöðum. Ég get minnt á margar ár í því efni t.d. Markarfljót, Hafursá og Klifanda, Kúðafljót, Kolgrímu, Hornarfjarðarfljót, Héraðsvötn og fleiri og fleiri. Hér hef ég aðeins nefnt nokkur dæmi, en það má ekki heldur láta sér sjást yfir staði, sem vissulega líta út fyrir að vera ekki í hættu, en lítill lækur eða meinleysisleg á veldur þó búsifjum og brýtur niður frjóar lendur ef betur er að gáð. Ég get ekki stillt mig um að benda á eitt dæmi, sem ég hef, sem sannar slíka fullyrðingu mína. Þegar farið er úr Landbrot- inu niður í Meðalland liggur leiðin yfir Eldvatnið hjá Syðri-Fljótum. Fljótið streymir undir brúna tært og lygnt. Engum dettur í hug, að svo sakleysisleg á, þótt allvatns- mikil sé, orsaki landbrot. Þó er það svo. Eldvatnið ber undir sig sand og því hærra sem það stendur, því ákafar nauðar það á sendnum bökkum með þeim af- leiðingum, að leitt hefur til stór- fellds landbrots að því er kunnugir tjá mér. Af þessu má sjá, að brýna nauðsyn ber til, að hafa vakandi auga á því, að lönd spillist ekki af vatnagangi. Tilgangur tillögunnar Þessi till. er flutt til þess, að herða á því, að skipulega verði unnið að þeim varnaraðgerðum, sem lög gera ráð fyrir að hið opinbera hafi afskipti af. Tillögu- flutninginn má ekki skoða sem gagnrýni á störf matsnefndanna. Þau verk sem þær hafa fjallað um hafa að því er ég ætla komið að þeim notum, sem gert var ráð fyrir og þær hafa gert athuganir og áætlanir um aðgerðir, þar sem þess hefur verið óskað. Hér er beinlínis lagt til, að stjórnvöld leggi fyrir matsnefnd- irnar að kanna það og meta, hversu víða sé hætta á landspjöll- um af vatnagangi, en þær fjalli ekki aðeins um þau mál eftir beiðni landeigenda. I öðru lagi miðar till. að því, að landbrn. láti bera saman álits- gerðir matsnefndanna og sam- ræma þær með það fyrir augum, að fjárveitingar til þessa verkefnis verði metnar í heild, heildarfjár- þörf liggi sem ljósast fyrir hjá fjvn. og samhliða því verði af ráðuneytisins hálfu leitast við að raða framkvæmdum eftir vægi þeirra. Það er trú okkar flutnings- manna, að vinnuaðferðir sem beint væri í þennan farveg myndu fljótlega skila árangri þannig, að heildarátakið yrði í samræmi við heildarvandann og að fyrst yrði gengið til verka þar sem bráðustu verkefnin biðu og mestur vinning- ur yrði af framlagi þess opinbera.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.