Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
35
Jón Halldór Hannesson form. íslenska íhugunarfélagsins:
Innhverf íhugun
og samf élagið
Svar við grein herra Sigur-
björns Einarssonar biskups
Herra Sigurbjörn Einarsson rit-
aði sl. þriðjudag grein í Morgun-
blaðið um Innhverfa íhugun og
Innhverfa íhugun sidhi kerfið. Við
lestur greinarinnar varð mér ljóst
að við, kennarar í Innhverfri
íhugun, höfum varla staðið okkur
nógu vel í að kynna þessar aðferð-
ir, því í grein biskups kom fram
talsverður misskilningur um eðli
og tilgang aðferðanna og vildi ég
nú bæta þar nokkuð um.
Hér er um að ræða tvær aðferð-
ir: annars vegar Innhverfa íhugun
og hins vegar Innhverfa íhugun
sidhi kerfið.
Sautjánhundruð íslendingar
hafa lært Innhverfa íhugun á
stuttum námskeiðum hjá íslenska
íhugunarfélaginu. Spurningin sem
Herra Sigurbjörn veltir fyrir sér
er hvort iðkun Innhverfrar íhug-
unar, sem kennd er undir hand-
leiðslu Maharishi Mahesh Yoga,
sé trúariðkun. Allir sem lært hafa
Innhverfa íhugun svo og við sem
kennum tæknina vitum að svo er
ekki.
Innhverf íhugun er nefnd tækni
vegna þess að áhrifamáttur henn-
ar byggir eingöngu á grundvallar
lögmálum mannshugans. íhugun-
in felst í því að beita einfaldri
aðferð til að leyfa athyglinni að
leita inn á við til dýpri og
fíngerðari sviða hugans. Eðli huga
okkar er að leita að meiri ham-
ingju, greind og orku — og dýpri
svið huga okkar búa einmitt yfir
meiri möguleikum og greind. Eðli
hugans samkvæmt leitar því at-
hyglin áreynslulaust inn á við sé
réttri aðferð beitt. Tæknin er því
algjörlega óháð trú og skoðun
iðkandans. Hann þarf ekki einu
sinni að trúa því að íhugunin hafi
áhrif. Ahrifin koma alveg jafnt
fram fyrir það.
Þótt Innhverf íhugun og Inn-
hverf íhugun sidhi kerfið (Il-sidhi
kerfið) komi frá Maharishi Ma-
hesh Yoga og Veda hefðinni er
auðvitað ekki þar með sagt að um
indverskar eða hindúískar aðfcrð-
ir sé að ræða. Newton uppgötvaði
þyngdarlögmálið en engum dettur
þó í hug að halda því fram að
þyngdarlögmálið sé enskt eða
kristið. Á sama hátt er ekki rétt
að þau grundvallar lögmál vitund-
arinnar, sem aðferðir Maharishi
byggja á og aðferðirnar sjálfar,
séu á einhvern hátt takmarkaðar
við Indland. Hér er um að ræða
hagnýtar aðferðir sem allir geta
notfært sér. Trú og traust gegnir
engu hlutverki í iðkuninni. Hlut-
irnir snúast einfaldlega um það,
að hagnýta sér ákveðna þekkingu
og njóta árangursins.
Áhrif þess að iðka Innhverfa
íhugun (eða the Transcendental
Meditation technique) hafa verið
margrannsökuð við rannsókhar-
og menntastofnanir víða um heim.
Fyrir utan þá líkamlegu og and-
legu hvíld, sem í ljós hefur komið
að fæst meðan á iðkuninni stend-
ur, má nefna að sköpunarhæfni,
greind og orka iðkenda eykst við
reglulega iðkun. Aðrar rannsóknir
hafa sýnt að íhugunin kemur að
góðu haldi sem vörn gegn ýmsum
sjúkdómum.
læg tækni haft bætandi áhrif á
samfélagið og umhverfið? Það er
von að herra Sigurbjörn spyrji
þessarar spurningar því vissulega
er hugmyndin sérkennileg við
fyrstu kynni. En hér er þó um
vísindalega uppgötvun að ræða:
Við iðkun þessara aðferða hefur
komið í ljós að grunnsvið hugarins
er óbundið. Allt mætist þar og
þess vegna hefur iðkandi þessara
aðferða hljóð áhrif og allt um-
hverfið þegar hann hreyfir við
þessu sviði. Einnig hefur komið í
ljós að í grunnsviði hugarins, sviði
minnstrar örvunar, eru öll lögmál
náttúrunnar til staðar í óhöndlan-
legu formi. Allt starf huga okkar
er grundvallað á þessu sviði og því
eru öll þau lögmál sem stýra
hugsun okkar og athöfnum til
Innhverf íhugun hefur einnig
fengið mikla viðurkenningu og
stuðning lækna. Rúmlega 100
v-þýzkir læknar hvöttu t.d. stjórn-
völd þar til að stuðla að því að
kennsla í Innhverfri íhugun væri
hluti heilbrigðiskerfisins. í Dan-
mörku töldu 36 læknar að í
mörgum tilvikum mætti lækna
sjúkdóma með Innhverfri íhugun
fremur en að gefa út tilvísanir á
taugalyf. Svipuð bresk lækna-
nefnd benti á að öfugt við mörg lyf
og læknisaðgerðir væri Innhverf
íhugun með öllu hættulaus og
áhrifin byggðust stöðugt upp. Þeir
bentu einnig á að þessi aðferð
hefði verið rannsökuð meir en
nokkur önnur andleg þroskaaðferð
og renna menn því ekki blint í
sjóinn þegar þeir ákveða að læra
tæknina Innhverfa íhugun.
En hvernig getur einföld hug-
staðar þar í kjarna formi.
Innhverf íhugun hreyfir við
þessu sviði því athyglin nálgast
það og skynjar — en IÍ-sidhi
kerfið felst aftur á móti í því að
starfa frá þessum „heimkynnum"
allra náttúrulaga og lífga þetta
hljóða svið enn meira upp. Þau
áhrif á umhverfið sem af þessu
hljótast eru alltaf samstillandi og
lífuppbyggjandi því lögmál nátt-
úrunnar verða einfaldlega virkari
og þau stefna ávallt í þróunarátt.
Eðlisfræðingar (á sviði
skammtafræðinnar) lýsa grunn-
sviði efnis og orku, sem liggur
handan við fíngerðustu efniseind-
ir á mjög svipaðan hátt og hér er
gert, þ.e. að allt starf náttúrunnar
hefjist frá þessu óbundna tóma-
sviði og því sé það grunnsvið allra
lögmála náttúrunnar. í ljós hefur
komið að með IÍ-sidhi kerfinu
Jón Halldór Hannesson
getur vitundin haft bein áhrif á
efnisheiminn og bendir það til
þess að þessi tvö svið, þ.e. grunn-
svið hugarins og grunnsvið efnis-
ins, séu þau sömu. Tær vitund er
því sameiginlegt grunnsvið og
snertipunktur allrar náttúrunnar,
(sjá nánar mynd) og það er frá
þessu sviði sem hin hljóðu sam-
stillandi áhrif berast til alls um-
hverfisins frá iðkendum.
Þótt þessar fullyrðingar komi
vísindamönnum og sérfræðingum
á sviði vitundar ekki svo mjög á
óvart tekur eðlilega nokkurn tíma
þar til leikmenn átta sig á mikil-
vægi þeirra.
Allar mikilvægar vísindaupp-
götvanir hafa í fyrstu mætt tor-
tryggni og svo er sjálfsagt einnig
um þá uppgötvun að til sé grunn-
svið efnis, orku og hugar og að til
séu aðferðir til að lífga upp
grunnsviðið. Ástand mála í heim-
inum í dag er þó þannig að
mikilvægt er, að sem minnstur
tími fari til spillis og að skjótt
hefjist upp sterk jákvæð bylgja
samræmis og samstillingar.
IÍ-sidhi kerfið hefur enn ekki
verið rækilega kynnt í fjölmiðlum
og bíður það betri tíma, en
hérlendis iðka 17 einstaklingar
þetta kerfi. Gefst iðkendum tæki-
færi til að iðka saman í hóp eru
áhrif IÍ-sidhi margföld. Um þetta
atriði snerist nýlega áskorun okk-
ar til stjórnvalda. Skorað var á
ríkisstjórnina að skapa 50 ein-
staklingum ákjósanleg skilyrði til
að iðka IÍ-sidhi kerfið saman (t.d.
í heimavist) í sex mánuði. Ef þetta
yrði gert væru þau hljóðu sam-
stillandi áhrif sem þessi hópur
hefði á allt þjóðlífið það sterk að
tala mætti um stökkbreytingu á
lífsgæðum okkar.
I áskoruninni var áætlað að
kostnaðurinn við þessa frarm
kvæmd yrði um 60 milljónir. í
þessari tölu eru innifalin laun
handa iðkendum, kennslugjald,
fæði og húsnæði í sex mánuði. Hér
er auðvitað um mjög lága upphæð
að ræða, sem mundi sennilega
varla hrökkva fyrir útlögðum
kostnaði, og er því mikill misskiln-
ingur hjá herra Sigurbirni að ætla
að með áætluninni eigi að fjár-
magna „sjóð“ Maharishi Mahesh
Yoga.
Svipuð áætlun var framkvæmd í
Rhode Island fylkinu í Bandaríkj-
unum árið 1978. Áætlunin fólst
einfaldlega í því að 300 iðkendur
IÍ-sidhi kerfisins iðkuðu aðferðir
sínar í kyrrð og næði á hóteli
nokkru en skiptu sér annars ekk-
ert af gangi mála í fylkinu.
Fylkisyfirvöldin fylgdust ná-
kvæmlega með nokkrum þáttum,
sem nota má til að „mæla“ gæði
lífsins og báru þá saman við fyrri
ár. í ljós kom að sjálfsmorðum
fækkaði um 41,8%, morðum um
39,5% ránum um 22%, umferðar-
slysum um 10,4%, dauðsföllum
almennt um 8,2%, tóbakssala
minnkaði um 1,6%, áfengissala
um 9% og atvinnuleysi um 26,1%
— svo eitthvað sé nefnt.
Gunnari Thoroddsen forsætis-
ráðherra var afhent ýtarleg
skýrsla um niðurstöður Rhode
Island áætlunarinnar um leið og
hann fékk í hendur áskorun um að
hrinda svipaðri áætlun í fram-
kvæmd hér á landi. Honum var
einnig tjáð að ef svipaður árangur
næðist ekki hér innan 3—6 mán-
aða yrði útlagður kostnaður ríkis-
ins endurgreiddur.
Niðurstöður Sidhi-áætlunarinn-
ar á Rhode Island svo og niður-
stöður rannsókna á IÍ-sidhi kerf-
inu sýna að ekki er hægt að leggja
of ríka áherslu á mikilvægi þess
að hrinda sidhi-áætlun í fram-
kvæmd hér á landi sem allra fyrst
og ættu allir, fyrirtæki, stjórn-
völd, kirkjan, félagasamtök og
aðrir velviljaðir aðilar, sem bol-
magn hafa til að stuðla að fram-
kvæmd þessarar áætlunar, að
taka höndum saman um að hrinda
henni í framkvæmd.
I raun hefur verið sýnt að með
vitundartækni Maharishi Mahesh
Yoga megi stjórna straum tímans,
beina honum frá sundrung, vanda-
málum og óreiðu í átt til samlynd-
is, hamingju og framfara. Það er
því rétt að nefna þá hreyfingu,
sem að baki þessum áhrifum
stendur, þ.e. alla iðkendur Inn-
hverfrar íhugunar og IÍ-sidhi
kerfisins, „Heimsstjórn tíma-
skeiðs uppljómunar“. Ekki er þó
um pólitíska stjórn að ræða sem
keppir við ríkisstjórnir, heldur
stjórn,. sem starfar eingöngu á
sviði tærrar vitundar, grunnsviði
efnis orku og hugar. Þaðan skapar
hún góðan jarðveg þannig að ágæt
markmið ríkisstjórna megi verða
að veruleika.
Fyrir herra Sigurbirni og öðrum
kirkjunnar mönnum sem fyllst
hafa tortryggni gagnvart því hve
margir íslendingar hafa lært Inn-
hverfa íhugun, vakir áreiðanlega
einungis gott. Margt hefur komið
frá Indlandi á undanförnum ára-
tugum sem vissulega á ekkert
erindi til íslands og er því ástæða
til að vera á varðbergi. Ég er
fyllilega sammála þeim mönnum
sem leggja áherslu á að viðhalda
íslenskum menningarsérkennum
en tel að einmitt með Innhverfri
íhugun og IÍ-sidhi kerfinu megi
efla og vernda íslenska menningu.
Hér er þó ekki rúm til að fara
nánar út í þá sálma, en ritstjóri
Morgunblaðsins hefur góðfúslega
veitt leyfi fyrir birtingu ýtarlegr-
ar greinar um þetta efni og bíður
hún birtingar hjá blaðinu.
Norrænt fóstrunámskeið
Norrænt fóstrunámskeið
verður haldið á Hótel Loft-
leiðum í Reykjavík dagana
12.—19. apríl. Þátttakend-
ur verða 120 frá öllum
Norðurlöndunum þar af 30
íslenskir.
Dagskrá námskeiðsins
verður með þeim hætti að
deginum er skipt niður í
fyrirlestra og hópvinnu og
auk þess verður farið í
heimsóknir á dagvistar-
heimili. Þátttakendum
gefst einnig kostur á að
fara í dagsferð að Gullfossi
og Geysi ef veður leyfir.
Þeir sem flytja fyrirlestra á
námskeiðinu verða: Ulla Britta
Bruun frá Svíþjóð flytur erindi
um dagvistarheimili frá hug-
myndafræðilegu sjónarmiði.
Björn Eriksson frá Danmörku
flytur erindi um áhrif stjórnmála
á þróun dagvistarheimila.
Gunnel Holmström, Finnlandi
flytur erindi um hvert er álit
samfélagsins og fjölskyldunnar á
dagvistarheimilum.
Frá Noregi koma tveir fyrirles-
arar, þeir Peter Ville og Per Linge.
Munu þeir hafa samvinnu í flutn-
ingi erindis síns og nefna það:
„Dagvistarheimili sem skapandi
uppeldisumhverfi."
Af Islands hálfu hafa 4 íslensk-
ar fóstrur unnið að erindi er þær
kalla: „Mismunandi sjónarmið á
uppeldislegu starfi á dagvistar-
heimilum á íslandi." í starfshópn-
um eru: Heiðdís Gunnarsdóttir,
Sigurlaug Gísladóttir, Sigríður
Stefánsdóttir og Sólveig Ásgeirs-
dóttir.
Fóstrufélag íslands sótti um
styrk til Norræna menningar-
málasjóðsins vegns námskeiðsins
og var félaginu veittur styrkur að
upphæð 3,6 milljónir íslenskra
króna.
Fóstrufélag íslands er meðlim-
ur í N.F.S., Nordisk Förskolelær-
eres Samrád. Megintilgangur
N.F.S er að stuðla að góðri sam-
vinnu á milli fóstra á Norðurlönd-
unum. Stjórn N.F.S. hittist einu
sinni á ári í því landi, er hefur
stjórn sambandsins á hendi
hverju sinni. Skrifstofa norræna
fóstrusambandsins flyst á milli
Norðurlandanna annað hvert ár
og er nú á íslandi. Sú hefð hefur
skapast, að það land, sem rekur
skrifstofuna hverju sinni standi
fyrir fóstrumóti í lok tímabilsins.
Tónleikar
KÓR Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar heldur tónleika í
kirkju Óháða safnaðarins, mið-
vikudaginn 26. mars n.k. Á efn-
isskránni eru ýmis lög, bæði
innlend og erlend, sem kórinn
hefur æft síðan um áramót.
Leiðrétting
ÞAÐ VAR sr. Ólafur Magnússon í
Arnarbæli, sem jarðsöng Einar
Benediktsson skáld, en ekki sr.
Ólafur Ólafsson eins og mishermt
var í grein minni, „Við gluggann“,
21. marz sl. — Lesendur afsaki og
leiðrétti.
Árelíus Níelsson