Morgunblaðið - 25.03.1980, Qupperneq 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Greinargerð og athugasemdir til
stjórnar SVR vegna tilboðs Sam-
afls í 20 strætisvagna fyrir SVR
Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi greinargerð
frá Samafli vegna strætisvagnamálsins:
Eftir að tilboð í 20 strætisvagna
fyrir SVR voru opnuð fyrr á árinu
og í ljós kom, að tilboð Samafls á
vegum IKARUS og MOGURT í
Ungverjalandi var langlægst eða
115.000 DM fyrir hvern vagn og í
heildarkaupum nær 500 til 6Q0
milljónir króna fyrir neðan næsta
tilboð, undirbjó Samafl eftir föng-
um öflun frekari gagna svo og
heimsókn fulltrúa Reykjavíkur og
Kópavogs til Ungverjalands í því
skyni að skoða framleiðslu IKAR-
US verksmiðjanna, en þessi vagn-
ar eru óþekktir hér á landi. Var
þetta í hæsta máta eðlilegt og
nauðsynlegt.
Hins vegar bregður svo við,
þegar heim er komið, að umsagnir
tæknimanna um vagnana ganga í
gagnstæðar áttir, og eru fulltrúar
Reykjavíkurborgar mjög neikvæð-
ir og finna vögnunum allt til
foráttu en fulitrúi Kópavogs gefur
þeim mjög góða umsögn.
Kaup á strætisvögnum fyrir
Reykjavíkurborg er að sjálfsögðu
mikið hagsmunamál borgarbúa og
hefur málið að vonum fengið
allmikla umfjöllun í dagblöðum
borgarinnar.
Samafli hefur verið gefinn kost-
ur á að sjá skýrslu tæknimanna
Reykjavíkurborgar, þeirra Ög-
mundar Einarssonar og Jans Jen-
sen, sem lögð var fram á fundi í
stjórn SVR hinn 17. mars sl., og
þar sem félaginu finnst gæta í
þeirri skýrslu svo rangra staðhæf-
inga og mikils misskilnings, ósk-
um við þess að fá að setja
skriflega fram leiðréttingar og
athugasemdir gagnvart stjórn
SVR.
Það er engum til góðs að taka
ákvörðun í svo veigamiklu máli,
sem hér er um að ræða, án þess að
freista þess að hafa forsendur svo
traustar og réttar, sem frekast
verður á kosið.
Skýrsla þeirra félaga, Ögmund-
ar og Jans, er samantekt á veiga-
mestu atriðunum að þeirra mati,
unnin upp úr viðameiri fráskýrslu
um ferðalagið til Ungverjalands.
Með í förinni þangað var borgar-
stjóri, Egill Skúli Ingibergsson, og
hefur Samafl átt þess kost að
halda fund með borgarstjóra, þar
sem farið var mjög nákvæmlega
niður í fráskýrslu þremenn-
inganna um skoðunarferðina til
Ungverjalands.
Var það sameiginleg niðurstaða
fulltrúa Samafls og borgarstjóra
að flest þau atriði sem gagnrýnd
voru í skýrslunni um almennan
búnað IKARUS vagnanna væru
minni háttar, sem auðvelt væri að
fá lagfært. Það er því okkar álit,
að þau ættu ekki sem slík að
standa í vegi fyrir því að taka hinu
óvenjulega hagstæða boði
IKARUS.
Hér vildi borgarstjóri þó undan-
skilja vél og búnað henni tengdan,
sem honum hefur verið sagt að sé
gamaldags og gallaður. Sjálfur
vildi hann ekki kveða upp dóm um
þessi atriði, en vísaði því til þeirra
tæknimanna sem hér hefur verið
getið að framan.
Eftir þennan gagnlega fund með
borgarstjóra, er hér fyrst og
fremst ástæða til að gera athuga-
semdir gagnvart stjórn SVR við
fyrrgreinda skýrslu tæknimann-
anna frá 17. mars.
Áður vill þó Samafl til upplýs-
ingar rifja upp eftirtalin atriði,
sem félagið telur mikilvæg:
1. IKARUS verksmiðjurnar í
Ungverjalandi eru langstærstu
strætisvagnaverksmiðjur í heimi.
Ársframleiðslan er nú um 14.000
vagnar og vöxtur framleiðslunnar
síðastliðin 7 ár hefur eingöngu
farið til útflutnngs, en flutt er út
til 42 landa.
2. Um almenna viðurkenningu á
gæðum og hönnun vagnanna, sem
að sjálfsögðu eru af margvíslegum
gerðum, má benda á, að fram-
leiðsla IKARUS hefur fengið gull-
verðlaun fyrir hönnun og búnað á
strætisvagnasýningum í Evrópu.
Hinn 10. febrúar sl. skýrir New
York Times frá því, að einn af
stærri framleiðendum strætis-
vagna í Bandaríkjunum, Crown
Coach Corporation í Los Angeles
hafi stofnað til samstarfs við
IKARUS (joint-venture) um fram-
leiðslu á strætisvögnum af IKAR-
US gerð fyrir Bandaríkjamarkað.
Eru sölur þegar hafnar.
3. Eins og tilboð IKARUS bar
með sér var í því vikið frá
standard vagni til samræmis við
útboðskröfur. I tilboðinu var sagt
að nánari lýsing (specification)
mundi koma síðar. Hún hefur nú
borist og hefur íslenska gerðin af
IKARUS hlotið kenninúmerið
260/62.80—3 og fylgir þessi lýsing
hér með.
4. Miklu máli skiptir um rekstur
strætisvagna, að nægir varahlutir
séu tiltækir og ódýrir. Verðlagn-
ingu varahlutanna verður að
skoða sem hluta af heildardæminu
bæði hvað snertir stofnkostnað og
rekstur. Með greinargerð þessari
fylgir varahlutalisti með verð-
lagningu og sýnir hann hagstætt
verð varahluta.
5. Einnig skal bent á, að RABA
MAN vélin er sparneytin og hefur
það mikið rekstrarhagræði í för
með sér á tímum hækkandi olíu-
verðs.
6. Að lokum skal bent á,að þegar
sendinefndin var í Búdapest, fór
Samafl fram á, að IKARUS veitti
greiðslufrest á kaupverðínu, ef
samið yrði við þá. Eftir staðfest-
ingu síðar höfum við tilkynnt
borgarstjóra, að í boði eru mjög
hagstæð lánakjör, eða 75% kaup-
verðs lánað til 5 ára með 8%
vöxtum. Þessi kjör ættu að gera
SVR kleift að fjölga fyrr en ella
strætisvögnum og auka þjónust-
una við borgarbúa.
Hér á eftir verður vikið að
athugasemdum Ögmundar Ein-
arssonar og Jans Jensen Iið fyrir
lið eins og þær koma fram í
skýrslu þeirra til stjórnar SVR,
dags. 17. mars 1980. Til hægðar-
auka og glöggvunar eru efnisatriði
þeirra félaga hér birt innan gæsa-
lappa, svo að þau verði auðveld-
lega borin saman við umsagnir
Samafls og upplýsingar og yfirlýs-
ingar annarra:
I. Staðsetnir.g kælis
Ögntundur og Jan: „Komið
hefur fram, að frá hendi verk-
smiðjanna er ekki um aðra stað-
setningu að ræða. Að okkar áliti
veldur þessi staðsetning því að
hætta á yfirhitun vélar eykst
stórlega vegna hættu á því að
kælieliment fyllist af óhreinindum
eða verði fyrir hnjaski þannig að
kælivatn leki af. Staðreynd er að
dieselvél þarf ekki að yfirhitna
nema einu sinni til að fyrirliggi
ástæða til skemmda af stimplum,
slífum og topplokspakkningum".
Um þetta efni höfum við aflað
okkur upplýsinga frá 2 aðilum.
(a) Annar aðilinn er vestur-
þýska verksmiðjan MAN en vélin í
IKARUS vagnana er framleidd í
Ungverjalandi samkvæmt leyfi
MAN verksmiðjanna, enda þótt
það sé nú útrunnið og MAN
verksmiðjurnar eigi í samkeppni
við IKARUS. í skeyti, sem fylgir
segir m.a.:
„Strætisvagnar framleiddir af
Ikarus, eru í notkun í fjölmörg-
um borgum, og sem dæmi skal
nefna Varsjá, Prag, Búkarest,
Sofía, Moskva, Aþena, Istanbúl,
Trípolis og Hamborg. Við
könnumst ekki viða að við yfir-
hitun mótors sé vandamál. Auk
ofangreindra staða má geta þess
að yfir 1000 svona vélar af
original MAN gerð eru í ýmsum
borgum Júgóslavíu".
Þessu til viðbótar má geta þess,
að fulltrúi MAN verksmiðjanna,
hr. Wúhe, staðfesti í samtali við
fulltrúa Samafls, að allir strætis-
vagnar framleiddir af MAN í
V-Þýskalandi, með miðjumótor,
en þeir eru nú í notkun um allan
heim, hefðu samskonar staðsetn-
ingu á kæli.
(b) Hinn aðilinn er forstöðu-
maður Strætisvagna Kópavogs, en
þar er fyrir hendi reynsla af
áþekkri staðsetningu kælis. Hann
segir svo í yfirlýsingu dags. 17.
mars sl., en hún fylgir hér með:
„Þegar Strætisvagnar Kópavogs
keyptu þrjár Leyland grindur 1968
til yfirbyggingar hér heima, voru í
þeim kælar sem staðsettir voru
lóðrétt framan við framöxul. Eng-
inn sérstakur varnarbúnaður var
settur upp tii að verja kælana
óhreinindum. Reynslan hefur sýnt
að þessi staðsetning hefur ekki
komið að sök. Þó kallar þetta á
meiri þrifnað heldur en ef kælarn-
ir væru staðsettir framan eða
aftan í vögnunum, og höfum við
þrifið þá þrisvar eða fjórum sinn-
um á ári.
Ég tók sérstaklega eftir stað-
setningu kælanna í Ikarus 260, en
í þeim bílum er kælirinn staðsett-
ur rétt aftan við framöxul. Ég tel
að hann sé ekki verr staðsettur en
í Leylandinum, auk þess sem
staðsetningin gefur góða mögu-
leika á að setja aurhlífar fyrir
kælinn og vélina, innan og aftan
við framhjólin.
Ég hef því af reynslu minni, í 12
ár hjá SVK, engar áhyggjur af
staðsetningu kælisins í Ikarus
260“.
II. Bygging vélar
Ögmundur og Jan: „Vélin er
sögð þurfa mikinn snúningshraða
í lausagangi til að halda fullum
smurþrýstingi. Þetta atriði er
líklegt til að stytta endingartíma
vélarinnar, því gangi vél við of
lítinn snúningshraða er hætta á
úrbræðslu. Þá ber þess að geta að
snúningshraði verkar mjög á
gírkassa og getur stytt endingar-
tíma hans, auk þess að valda rykk
þegar sett er í gír“.
Ekki er ljóst, hvaðan þessar
upplýsingar um snúningshraða og
endingartíma vélarinnar eru
fengnar, því að þær eru ekki frá
IKARUS verksmiðjunum. í
skýrslu sinni um skoðunarferð til
Ljósm. Gunnlauicur RUKnvaldsuon.
Allharður árekstur varð um hálfsexleytið í gær á mótum Kaplaskjóisvegar og Hagamels.
Þar rákust saman Mini-bifreið og Datsun-leigubifreið. Ökumaður Mini-bifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild tii rannsóknar.
Ungverjalands halda þeir félagar
því fram, að samkvæmt upplýs-
ingum frá IKARUS þurfi RABA
MAN vélin gagngerða yfirferð
eftir 150 þúsund kílómetra akstur.
Allt er þetta mikill misskilningur
á grundvallaratriði.
(a) Um snúningshraðann í laus-
agangi upplýsa IKÁRUS verk-
smiðjurnar, að vélin snúist 500 per
mínútu og það nægi til að halda
uppi 0.8 atm. olíuþrýstingi.
Við spurðumst fyrir um þetta
hjá þýsku MAN verksmiðjunum
og efirfarandi svar er að finna í
hjálögðu skeyti:
„Það er ekki rétt, að vél af
þessari tegund þarfnist meiri
hægagangssnúningshraða en
aðrar sambærilegar vélategund-
ir“.
Við leituðum einnig upplýsinga
hjá Jóhanni Péturssyni, verkstæð-
isformanni hjá Krafti h.f. og
staðfesti hann að vélin þyrfti ekki
sérstaklega háan snúningshraða
til að halda uppi eðlilegum þrýst-
ingi, og hafi þessi vél reynst hér
mjög vel.
(b) Um endingartímann er það
að segja, að IKARUS menn hafa
staðfest við okkur að þeir gefi
sínar vélar upp fyrir 500—700.000
km endingu. Jafnframt höfum við
fengið staðfest víða frá, að mjög
sé mismunandi hvenær vélar séu
teknar í fyrsta yfirlit, allt eftir því
hvaða eftirlitskerfi er haft með
þeim, eða allt frá 150.000 til
500.000. Hér ræður mat aðila um
það, hversu mikið vélarnar eru
látnar slitna fyrir fyrstu skoðun.
Sú regla hjá Strætisvögnum Bú-
dapest (ekki IKARUS) að skoða
vélina eftir 150 þúsund km akstur
er notuð af reksturshagkvæmnis-
ástæðum en ekki af því að vélin sé
búin og eru þá notuð mælitæki við
skoðunina og vélin ekki tekin úr
bílnum.
Um endingartíma segja MAN
verksmiðjurnar þýsku svo í sínu
skeyti:
„Með góðri meðferð á MAN
vélum má búast við að 500.000
km líftíma eða meira. Við vitum
til þess að RABA MAN er tekin
til yfirferðar í Sovétríkjunum
eftir 350.000 km eða meira".
Hér til samanburðar má geta
þess, að hjá forstjóra Strætis-
vagna Kópavogs höfum við fengið
þær upplýsingar, að Leyland vélar
þeirra fari í fyrstu yfirferð við
350.000 og er þá einungis um að
ræða leguskipti, en heddið ekki
tekið af nema vélin sé farin að
brenna óeðlilega mikilli olíu.
Við höfum í þessu sambandi
einnig snúið okkur til Sviss, en þar
eru IKARUS vagnar í notkun og
fengum 8. mars sl. eftirfarandi
umsögn í skeyti frá Basel, sem hér
fylgir með:
„Við höfum keyrt okkar RABA
MAN vélar í 5 ár í u.þ.b. 400.000
km og þær eru í mjög góðu
ástandi. Þessi fjárfesting hefur
reynst hárrétt frá hagrænu sjón-
armiði".
Ennfremur höfum við í þessu
efni snúið okkur til Grikklands,
þar sem 300 IKARUS vagnar hafa
verið í notkun í rúmlega eitt ár og
þeir eru að panta 200 vagna til
viðbótar. í skeyti frá Aþenu
II. mars sl., sem hér fylgir með, er
að finna eftirfarandi umsögn:
„Þeim hefur nú verið ekið 70
þúsund til 110 þúsund km og
reynst mjög vel.“.
III. Bygging vélar,
smærri viðgerðir
Ögmundur og Jan: „Uppbygg-
ing vélarinnar er þannig að búast
má við verulega lengri viðgerð-
artíma við smærri viðgerðir, s.s.
skipti á topplokspakkningu og
viðgerð á ventlum og stimplum".
Við höfum leitað upplýsinga hjá
fjölmörgum vélaframleiðendum
um fyrirkomulag og frágang
topploks og hefur komið í ljós, að
þar er um margar útfærslur að
ræða og mjög algengt er að fleiri
en einn strokkur sé undir sama
loki, t.d. tveir til þrír, jafnvel má
finna dæmi um að sex strokkar
séu undir sama loki, svo sem hjá
Caterpillar. Hjá RABA MAN er
um að ræða tvískipt topplok eins
og t.d. á mörgum M-Benz vélum og
Leyland vélum.
Þeir tæknimenn, sem spurðir