Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 40
Lækkar
hitakostnaðinn
Síminn á afgreiöslunni er
83033
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Bensínið:
53 króna
hækkun
Þar aí 37 kr.
til ríkisins
BEIÐNI olíuíélaganna um hækk-
un á bensíni var algreidd á fundi
verðlagsráðs í gær. Mun
bensínlítrinn hækka úr 370 krón-
um í 423 krónur eða um 14,3%.
Akvörðun um nýtt verð á gasoliu
og svartolíu var frestað.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær munu aðeins
rúmlega 16 krónur af þessari 53
króna hækkun á bensíni renna til
olíufélaganna vegna erlendra
verðhækkana, gengissigs og ann-
arra kostnaðarhækkana. Afgang-
urinn, tæplega 37 krónur eða 69%
munu renna tii ríkisins í formi
vegagjalds, tolla, söluskatts og
annarra gjalda. En eins og fram
hefur komið mun ríkissjóður not-
færa sér heimild til hækkunar á
vegagjaldi til samræmis við hækk-
un byggingarvísitölu. Ofan á allt
saman leggst svo söluskattur og
tollar á innkaupsverðið.
Ríkisstjórnin á eftir að sam-
þykkja þessa hækkun. Ef hún
afgreiðir hækkunina á fundi
sínum í dag hækkar bensínið
væntanlega strax á morgun, að
öðrum kosti síðar.
Þessir þrír félagar dubbuðu sig upp einn daginn,
sögðust vera orðnir stórir og ætluðu að labba út í
heim. Heimsreisa þeirra varð reyndar ekki löng í það
sinn, því það fór að rigna allhressilega og þá var
drýgst að snúa heim, en kempurnar heita Olafur,
Guðbjartur og Breki.
Niðurtalning með fyrirvörum
um breytingar á efnahagsforsendum ríkisstjórnarinnar
Samþykkt að
kaupa Volvo
STJÓRN Strætisvagna Reykja-
víkur samþykkti i gærkvöldi
tillögu um að gengið verði til
samninga um kaup á 20 undir-
vögnum við Iægstbjóðanda. sem
er Volvo og Nýju bilasmiðjuna
hf. um smiði yfirbygginga.
A fundi stjórnarinnar í gær-
kvöldi kom fram sameiginleg
tillaga frá fulltrúa vagnstjóra,
Bergi H. Ólafssyni, fulltrúa Al-
þýðuflokksins, Birgi Þórhalls-
syni og fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, Sveini Björnssyni og
Sigríði Ásgeirsdóttur um að
gengið yrði til samninga við
lægstbjóðanda um kaup á undir-
vögnum og Nýju bílasmiðjuna
um smíði yfirbygginga á þær.
Var tillagan samþykkt með 3
atkvæðum, en fulltrúar Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks,
Guðrún Ágústsdóttir og Leifur
Karlsson sátu hjá.
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur
kynnt verðlagsráði með hverjum
hætti rikisstjórnin hyggst fram-
fylgja ákvæðum málefnasamn-
ingsins um takmarkanir á hækk-
un verðlags á árinu. en ríkis-
stjórnin gerði þar um samþykkt
á fundi sinum sl. fimmtudag.
Samkvæmt þeim upplýsingum.
sem Mbl. hefur tekizt að afla sér
mun rikisstjórnin ætla sér að
framfylgja málinu þannig, að
hún staðfesti ekki hækkanir um-
fram ákvæði málefnasamnings-
ins en þó með svigrúmi gagnvart
breytingum á gengi, kostnaðar-
hækkunum erlendis og með fyrir-
vara um breytingar á efnahags-
forsendum ríkisstjórnarinnar.
Samkvæmt afgreiðslu verðlags-
ráðs í gær á bensínverði hækkar
bensínið um 14,3% í verði, en af
53ja krónu hækkun á lítra, eru 37
krónur vegna hækkunar á skött-
um ríkisins. Tómas Árnason
viðskiptaráðherra, sagði, er Mbl.
spurði hann í gærkvöldi, hvernig
Viðræður í Luxemborg um framtíð Flugleiða:
Luxemborgarmenn vilja
áframhald Ameríkuflugs
SAMGÖNGURÁÐHERRAR íslands
og Luxemborgar sátu f gær fund
með fulltrúm Flugleiða þar sem
rætt var um stöðu og framtíð
N-Atlantshafsflugs félagsins. Að
sögn Steingrims Hermannssonar
samgönguráðherra eru rikisstjórnir
landanna reiðubúnar að veita félag-
inu ákveðinn stuðning og verði nú
Flugleiðir að meta hvort hann er
nægur.
Steingrímur Hermannsson vildi
ekki skýra í einstökum atriðum frá
efni tillagnanna, en þær verða nú
ræddar í ríkisstjórnum landanna og
ganga m.a. út á afnmám lendingar-
gjalda o.fl. atriði til lækkunar rekstr-
arkostnaði félagsins og gæfist með
Matthías Bjarnasón utan dagskrár í gær:
Vaxandi vanskil út-
vegs og fiskvinnslu
Hver verða viðbrögð ríkisstjórnar?
ÞAÐ var upplýst i umræðu utan dagskrár á Alþingi i gær að
heildarvanskil togara hjá Fiskveiðasjóði næmu 3.200 m.kr., vanskil
annarra skipa 2000 m.kr. og vanskil vegna fasteigna fiskvinnslufyr-
irtækja 2.400 m.kr. Samtals eru vanskil sjávarútvegs hjá Fiskveiða-
sjóði 7.600 m.kr. Þetta eru vanskil af höfuðstóli fyrir utan vexti.
Vanskil sömu aðila hjá Byggða-
sjóði nema rúmum 1000 m.kr.
Matthías Bjarnason spurði ráð-
herra, hvort þessi skuldastaða
sjávarútvegsins, hækkandi til-
kostnaður innanlands og verð-
lækkun á sölumörkuðum erlendis,
væri tilefni til nýrrar skattlagn-
ingar á útgerðina, sjö krónur á
gaslítra og sjöþúsund krónur á
svartolíutonn, til að jafna orku-
verð í landinu, en þrálátur orð-
rómur væri á kreiki þar um.
Þá vakti Matthías Bjarnason
athygli á því að í 47 daga af 84,
sem af væru ársins, hefði ekkert
fiskverð verið gildandi í þessu
landi útvegs og fiskiðnaðar. Sjó-
menn og útvegsmenn gerðu kröfu
til fiskverðshækkunar til sam-
ræmis við hækkun verðbóta á laun
1. marz sl., þ.e. um 6,67%, en
fiskvinnslan vildi 12% fiskverðs-
lækkun, vegna versnandi rekstr-
arstöðu. Spurðist hann fyrir um,
hvort og þá hvenær og hvern veg
stjórnvöld hygðust grípa inn í
þann vanda, sem væri á höndum
hjá helzta undirstöðuatvinnuvegi
þjóðarinnar.
Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra svaraði því til, að ríkis-
stjórnin hefði enga ákvörðun tekið
um aðspurða skattlagningu á út-
gerðina vegna orkumála. Svör um
gengislækkun til stuðnings út-
flutningi voru óljós, enda töldu
ráðherrar varhugavert að gefa
fyrirfram upplýsingar um hugsan-
legar gengisbreytingar. Vitnuðu
þeir til ákvæða í stjórnarsáttmála
um aðhald í gengismálum. — Sjá
nánar á þingsíðu bls. 30.
því aukið ráðrúm til að kanna
breiðari rekstrargrundvöll og halda
Ameríkufluginu áfram á meðan.
Sagði hann fundinn hafa verið gagn-
legan og fram hafa komið mikinn
áhuga Luxemborgara á að Flugleiðir
héldu áfram Ameríkufluginu, en um
120 þarlendir menn starfa við það
auk þess sem Luxair hefur ákveðinna
hagsmuna að gæta t.d. varðandi
framhaldsflug farþega Flugleiða. Þá
kvða Steingrímur hugsanlegt aukið
samstarf Flugleiða við Luxair og
jafnvel Cargolux.
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða kvað engar ákvarðanir hafa
verið teknar. Kvaðst hann aðspurður
ekki vera bjartsýnni en áður á
framtíð Atlantshafsflugsins, en
menn vildu meta stöðuna raunsætt
og skoða þau atriði er styrkt gætu
reksturinn.
Smjörlíki
hækkar
um 18%
VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa
heimilað rúmlega 18% hækkun
á smjörlíki og hefur hækkunin
þegar tekið gildi. Venjulegt
borðsmjörliki hækkar úr 718 i
850 krónur hvert kíló og kostar
þvi 500 gramma smjörlikis-
stykki 425 krónur en kostaði
áður 359 krónur.
slík hækkun samrymdist niður-
talningaráformunum, að gert væri
ráð fyrir sérstökum hækkunum
vegna uppsafnaðs vanda af verð-
hækkunartilefnum fyrir síðustu
mánaðamót. Mbl. spurði þá,
hvernig skattar ríkisins féllu und-
ir slíkan uppsafnaðan vanda og
sagði ráðherra þá, að skattar
ríkisins væru samkvæmt lögum.
„Þessir hlutir eru að vísu farnir að
skekkjast mikið og því þarf að
endurskoða þá. En slík endurskoð-
un getur ekki farið fram þannig að
hún hafi áhrif á ákvörðun um
bensínhækkun nú. Menn verða að
gera sér grein fyrir því að ef þeir
vilja minnka tekjur ríkisins, þá
verður að skera niður á móti,“
sagði Tómas.
Þrír milljarðarnir:
Erlent lán
með milligöngu
Búnaðarbanka
„UNDIRBÚNINGUR lántökunn-
ar hefur farið íram, að svo miklu
leyti sem hægt er meðan Alþingi
hefur ekki afgreitt málið. En það
er reiknað með að taka erlent lán
fyrir milligöngu Búnaðarbanka
íslands fyrir allri upphæðinni, en
frá lánstíma og lánskjörum verð-
ur ekki gengið fyrr en málið er
afgreitt frá Alþingi,“ sagði
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, er Mbl. spurði hann um
útvegun 3ja milljarða króna til
útflutningsuppbóta á landbúnað-
arvörur, en það mál frestaðist
fram yfir nýafstaðið þinghlé.
„Það er reiknað með að Byggða-
sjóður greiði 500 milljónir króna á
ári í þrjú ár, en að öðru leyti
endurgreiðir ríkissjóður lánið,
nema ef ónotaður útflutningsbóta-
réttur kemur til,“ sagði ráðherr-
ann.
Mbl. spurði Pálma, hvort hann
vænti slíks ónotaðs réttar á næst-
unni: „Nei,“ svaraði ráðherrann.
„Ekki á þessu ári eða því næsta.
En hvað framtíðin ber í skauti
sínu eftir það, skal ég ekkert um
segja."