Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 1
32 SÍÐUR
72. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Róðrar
stöðvast í
Færeyjum
Þórshðfn. 2.r). marz. Frá fréttaritara
Mbl.. Jogvan Arge.
Utgerðarmenn í Færeyjum
hafa lýst yfir verkbanni og
skall það á aðfaranótt þriðju-
dags, þegar sáttasemjara
mistókst að leiða fulltrúa út-
gerðarmanna og sjómanna til
samkomulags. Agreiningur
aðila stendur um það, hvernig
skipta skuli hækkuðum olíu-
kostnaði milli útgerðar og
sjómanna.
Jan-Mayen:
Hvöttu
Banda-
ríkin til
samninga?
Ósló, 25. marz. Frá fréttaritara Mbl.,
Jan -Erik Lauré.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
hvatt íslendinga og Norðmenn
til að leysa Jan-Mayen deiluna
svo fljótt sem verða má, til
þess að ekki komi til erfiðleika
í sambúð þessara tveggja
NATO-ríkja, að því er
NTB-fréttastofan hefur eftir
hátt settum heimildum í
Bandaríkjunum.
Gíslum
sleppt
Bogota, 25. marz. AP.
ÞREMUR gíslum var í dag
sleppt úr sendiráði Dóminí-
kanska lýðveldisins í Bogota,
en skæruliðar hafa enn 29
manns í haldi í sendiráðinu.
Mennirnir þrír, sem allir eru
Kólombíumenn, fengu að fara
einir síns liðs frá sendiráðinu
síðari hluta dags í dag. Þeir
voru látnir lausir í kjölfar
viðræðna skæruliða og fulltrúa
stjórnarinnar í Bogota í gær.
Tapar
Kennedy?
New York, 25. marz. AP.
FORKOSNINGAR fara fram í
New York-fylki í dag. Úrslit-
anna er beðið með nokkurri
eftirvæntingu, þar sem úti er
talið um framboð Edwards
Kennedys öldungardeilarþing-
manns nema hann sigri Carter
forseta í þessum kosningum.
Skoðanakannanir benda til ör-
uggs sigurs Carters í flokki
demókrata. Ronald Reagan er
talinn munu sigra í forkosn-
ingum repúblikana, en óvíst
þykir hvort það verður með
jafn miklum yfirburðum og í
fyrri forkosningum.
yittor Kortsctad ■■■■■■ Tsgran Petrossjan
VELDEN WÖRTHERSEE
8
Korchnoi vann einvígió
— Victor Korchnoi vann i gær niundu skákina i einvígi hans og
Tigrans Petrosians í heimsmeistarakeppninni. Einviginu, sem haldið
var í Velden í Austurriki, er þar með lokið, en Korchnoi hafði áður
unnið eina skák, en Petrosian enga. Sjö skákir urðu jafntefli.
Petrosian, sem hafði svart, gaf skákina i gær i 44. leik.
Brezka ólympíunefndin:
Sendum keppend
ur til Moskvu
London. 25, marz. AP.
BREZKA ólympíunefndin tilkynnti
i dag. að hún hefði ákveðið að hafa
að engu áskoranir þings og stjórn-
ar og senda keppendur á Olympíu-
leikana i Moskvu á sumri komanda.
Sir Dennis Follows. formaður
nefndarinnar. greindi frá þessu í
dag og sagði að 15 sérsambönd. sem
fulltrúa áttu í nefndinni. hefðu
verið fylgjandi þátttöku. fjögur
viljað fresta málinu áfram. en
aðeins eitt lýst stuðningi við stefnu
rikisstjórnarinnar.
Talsmenn stjórnarinnar sögðust í
dag harma þessa afstöðu, en sögðu
þó, að málinu væri ekki með þessu
endanlega lokið, þar sem einstakir
íþróttamenn hefðu eftir sem áður
möguleika á að neita að fara á
leikana. Stjórnin hafði áður heitið
því að meina engum um vegabréf,
sem hygðist keppa á leikunum, en
hins vegar verða opinberum starfs-
mönnum ekki veitt frí til keppni.
Bruggaði CIA keis-
aranum launráð?
Kaíró. Teheran, Washington. 25. marz. AP.
SADAT Egyptalandsforseti heimsótti Reza Pahlevi fyrrum
Iranskeisara í sjúkrahús í Kaíró í dag. Sadat sagði eftir
heimsóknina, að keisarinn fyrrverandi yrði líklega skorinn
upp eftir nokkra daga. Sadat vísaði á bug öllum
hugmyndum um að núverandi valdhafar í íran myndu
reyna að hefna sín á honum fyrir að hafa skotið skjólshúsi
yfir Pahlevi.
Egypzkur blaðamaður hélt
því fram í blaði sínu í dag, að
Reza Pahlevi hefði farið frá
Panama, þar sem hann hefði
fengið í hendur „leynilegar
upplýsingar“ um að banda-
ríska leyniþjónustan, CIA,
hefði í hyggju að byrla hon-
um eitur og ryðja þannig úr
vegi helztu hindruninni fyrir
því, að bandarísku gíslarnir í
Teheran yrðu látnir lausir.
Talsmaður CIA sagði í dag
að þessi tilgáta væri hugar-
burður einn og fréttin „al-
gerlega fráleit“.
Þúsundir írana söfnuðust
saman við bandaríska sendi-
ráðið í Teheran í dag og
hrópuðu formælingar um
Sadat og Bandaríkin.
Khalkhali trúarleiðtogi og
byltingarforsprakki sagði í
dag, að þeir af gíslunum í
sendiráðinu, sem sakaðir
væru um njósnir, yrðu brátt
leiddir fyrir rétt og fangels-
aðir, yrðu þeir sekir fundnir.
„Grafinn“
lifandi
ChattanooKa. Trnnesseo.
25. mars. AP.
HERBERT o’Dcll Smith lét
_>traía“ ník iifandi sl. mánudatt í
borttinni Chattanoottaí Tcnn-
csscc-fylki. otí hét því aö stítta
ekki upp frá dauóum fyrr cn
bandarísku ttíslarnir í scndiráð-
inu í Tchcran hcfðu vcrið látnir
lausir.
Smith, sem er 65 ára, hefur
atvinnu af því að láta jarða sin og
er þetta í 160. sinn, sem það er
gert. Áður hefur hann lengst
verið í 79 daga samfleytt neðan-
jarðar. Hann hefst við í sæmilega
rúmgóðri „gröf“, sem búin er
sjónvarpstæki, kamri, sem búinn
er efnum til að eyða úrgangsefn-
um, og tveimur símum. Ur öðrum
símanum getur Smith talað við
hvern sem er, en hin línan er
ætluð fréttamönnum, sem vilja
ræða við hann. Matvælum og
vatni er komið til Smiths um
sérstakt rör, sem einnig sér
honum fyrir fersku lofti.
„Eg er stoltur af því að vera
Bandaríkjamaður,“ sagði Smith
um leið og hann hvarf sjónum
ofan í jörðina og rekunum var
kastað.
Noregur:
Bandaríkin senda
herlið i styrjöld
Þjóðarsorg í
E1 Salvador
San Salvador. 25. mars. AP.
STJÓRNIN í E1 Salvador hefur
fyrirskipað þriggja daga þjóð-
arsorg vegna morðsins á Oscar
Arnulfo Romero erkibiskupi,
en á hann var ráðizt og hann
veginn við messu á mánudags-
kvöld.
Mikil ókyrrð hefur verið
í E1 Salvador í dag vegna
morðsins á erkibiskupnum og
sprengjur hafa víða sprungið í
höfuðborginni.
ingarher alþýðu, tók í dag á sig
ábyrgðina á morði erkibiskups-
ins.
Ósló, 25. marz. AP.
SAMNINGUR, sem skuldbindur
Bandarikin til að senda liðsafla
til Noregs, komi til styrialdar.
verður undirritaður í Ósló á
fimmtudag, að því er varnar-
málaráðuneytið í Ósló upplýsti í
dag. Samningur þessi var til-
búinn til undirritunar í maí í
fyrra, en undirritun var frestað
til þess að hægt væri að gera
Stórþinginu grein fyrir efni
hans.
í samningnum er rakið, hverjar
yrðu skyldur og réttindi banda-
rísks herafla, sem sendur kann að
verða til Noregs, hvérnig flutningi
hans skuli háttað, hvaða aðstoð
Norðmönnum er skylt að láta
Bandaríkjamönnum í té í þessu
sambandí og ýmis kostnaðarat-
riði.
í samningnum er ekkert fjallað
um möguleika á að geyma tæki og
búnað NATO-ríkja í Noregi á
friðartímum.
Verður uppskurður
óþarfur við magasári?
Morðið á Romero erkibiskupi
hefur verið fordæmt um allan
heim. Jóhannes Páll páfi II
sagði í yfirlýsingu að hann væri
harmi sleginn vegna þessa
ódæðis og ýmsir þjóðarleiðtogar
hafa tekið í sama streng.
Hópur, sem nefnir sig bylt-
Cicago, 25.marz. AP.
BANDARÍSKIR læknar hafa
náð mjög góðum árangri við
meðferð magasárs með því að
beita lyfjum eingöngu. Þykja
lyfin gefa svo góða raun. að
uppskurður kunni innan tíðar
að verða óþörf aðgerð vegna
magasárs. Dr. Israel Penn frá
Denver í Colorado-fylki greinir
frá þessu í nýjasta hefti banda-
ríska læknaritsins „Archives of
Surgery.“
Lyfið „cimetidine" hefur reynzt
árangursríkast gegn magasári,
en það hefur verið notað með
69—100% árangri á hópum
sjúklinga. Tekur meðferðin fjór-
ar til sex vikur. Um
15—20%sjúklinga hafa þó aftur
fengið magasár eftir þessa með-
ferð.
Dr. Penn tekur fram í grein
sinni, að ekki sé enn hægt að
fullyrða um langtímaáhrif cime-
tidines og annarra lyfja á maga-
sár.