Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
5
Þjóöskjalasafngefur út Bréfabók Þorláksbiskups Skúlasonar
— Upphafið að ritröðinni ,J3eim-
ildaútgáfa Þjóðskjalasafns44
ÞJÓÐSKJALASAFN íslands hef-
ur gefið út Bréfabók Þorláks
biskups Skúlasonar. Ritið er helg-
að minningu Ingvars Stefánsson-
ar skjaiavarðar og útgáfa þess
kostuð af fé sem móðir hans,
Jórunn Jónsdóttir frá Nautabúi,
gaf til minningar um hann. Inn-
gang að bókinni skrifar Jón Þ.
Þór sagnfræðingur sem bjó bók-
ina til prentunar en Bjarni Vil-
hjálmsson þjóðskjalavörður skrif-
ar formálsorð og minningargrein
um Ingvar og Jórunni.
Bréfabókin, sem aðeins er varð-
veitt í eftirriti frá síðari hluta 17.
aldar, nær yfir árin frá 1628—
1654, eða því nær alla biskupstíð
Þorláks. I bókarauka eru birt
nokkur bréf sem, varðveitt eru
utan bréfabókarinnar og varða
Þorlák, þ.á m. skjöl um arfaskipti
eftir hann. Á fundi sem aðstand-
endur útgáfunnar héldu með
fréttamönnum kom það fram, að
þó að mörgu hefði bersýnilega
verið sleppt í því eftirriti sem
varðveitt er af bréfabókinni er hún
gagnmerk heimild um kirkjustjórn
og aldarfar norðanlands á öðrum
aldarfjórðungi 17. aldar.
Með útgáfu Bréfabókar Þorláks
biskups leggur Þjóðskjalasafn
Islands út á nýja braut en bókin er
1. bindi í ritröð sem nefnist
Heimildaútgáfa Þjóðskjalasafns-
ins. Vonast er til að næsta bók
verði bréfabók Gísla biskups Þor-
lákssonar. Rit þetta er nokkurs
konar framhald Bréfabókar Guð-
brands biskups Þorlákssonar sem
Hið íslenska bókmenntafélag gaf
út á árunum 1919—1942. Nú hefur
Hið íslenska bókmenntafélag tekið
að sér aðalumboð fyrir dreifingu á
Bréfabók Þorláks biskups. Bókin
er gefin út í 1200 eintökum og mun
kosta um 18.000 krónur út úr búð.
Jón Þ. Þór (lengst til hægri) bjó Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar
til prentunar. Með honum á myndinni eru Björn Vilhjálmsson
þjóðskjalavörður (lengst til vinstri) og Június Kristinsson sem
aðstoðuðu við undirbúning útgáf unnar. Ljósm. Emilia.
Hún er myndskreytt að nokkru,
m.a. er þar mynd af Þorláki
biskupi, Ingvari Stefánssyni pg
Jórunni Jónsdóttur. Þar er líka að
finna mynd af síðu úr handriti
Bréfabókarinnar. Stafsetningu
Bréfabókarinnar hefur ekki verið
breytt.
litaveita Reykjavíkur:
Kjalnesing-
um selt heitt
vatn frá Mos-
fellssveit?
KJALNESINGAR hafa sótt um
til Hitaveitu Reykjavíkur að fá
keypt heitt vatn til húshitunar og
er það erindi nú til athugunar
hjá Reykjavíkurborg. Að sögn
Jóhannesar Zoéga hitaveitustjóra
verður erindinu ekki svarað fyrr
en séð verður hvernig reiðir af
verðlagsmálum Hitaveitunnar.
Hitaveitustjóri kvað tvo mögu-
leika hafa verið athugaða á Kjal-
arnesi, annars vegar borun eftir
vatni og hins vegar að falast eftir
kaupum frá Hitaveitu Reykja-
víkur frá Mosfellssveit. Var seinni
leiðin valin til athugunar og er
hún nú á könnunar— og viðræðu-
stigi og kvað Jóhannes Zoéga ekki
ljóst hvenær hægt yrði að svara
beiðninni. —Við verðum að sjá til
um sinn hvernig verðlagsmálun-
um reiðir ’af, því við getum ekki
leyft okkur að auka vatnssölu nú
þegar við erum neyddir til að selja
það undir kostnaðarverði, sagði
hitaveitustjóri.
Aðlögunargjald
iðnaðarins:
Segi ekkert um
málið meðan
það er í athugun
— segir forsætisráðherra
„ÞETTA mál er til athugunar og
umræðu. Á meðan svo er fæst
ekkert upp úr mér um það,“
sagði Gunnar Thoroddsen, for-
sætisráðherra, er Mbl. spurði
hann i gær, hvernig hann teldi að
eigi að fara með 3% aðlögunar-
gjald, sem sett var til leiðrétt-
ingar á gengisóhagræði íslenzks
iðnaðar.
Eins og Mbl. hefur skýrt frá,
vilja iðnrekendur, að féð verði
endurgreitt útflutningsiðnaðinum
og hluta heimamarkaðsiðnaðar,
en iðnaðarráðherra vill að fénu
verði varið til almennrar iðn-
þróunar.
Siglufjörður:
50 íbúðir
í smíðum
Siglufirði, 25. mars.
EKKI er það rétt, sem sagði í
myndatexta í Mbl., að hér væri
aðeins eitt íbúðarhús í smíðum,
Nú er verið að smíða hér 50 íbúðir,
12 í tveimur 6-íbúða fjölbýlishús-
um og 38 einbýlishús. Fréttaritar.
INNLENT
SSgB5SpgR«SSg!
mmÆam
Ef þú velur hlut á heimilið vilt þú
vera viss um aö þú sért aö velja
þaö besta. Hvort um er aö ræöa
uppþvottavél, kæliskáp, frystikistu,
eldavél eöa þvottavél, þá gerir þú
samanburö á veröi, útliti, tækni-
legum eiginleikum og þjónustu.
En síðan . . .snýrö þú þér beint aö
Philips.
Nýja línan frá Philips er sérstaklega
hönnuö fyrir nútíma eldhús. Þar
fara saman fallegt útlit, gæöi, góö
þjónusta og síðast en ekki síst
verö, sem þú ræöur viö.
Þess vegna segjum við, að þú
kaupir fyrir framtíðina þegar þú
kaupir Philips.
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655