Morgunblaðið - 26.03.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
Verðlausari
og verölausari
krónur
Vísir sagöi nýverið í
leiðara:
„Það finnst eflaust
ýmsum lesenda Vísis það
vera að bera í bakkafull-
an laskinn að nefna verð-
bólguna einu sinni enn í
þjóðmálaumræöunni.
Hún veður uppi hér í
forystugreinum Vísis eins
og annarra blaða alltaf
ööru hverju og skrif um
hana og varnaöarorö
þeirra sem áhyggjur hafa
af því hve hún er látin
leika lausum hala minna
helst orðið á rödd hróp-
andans í eyðimörkinni.
Enn einu sinni er þó
fitjað upp á þessu
gríöarmikla vandamáli
íslensks efnahagslífs hér
í Vísi í þeirri von, að
dropinn holi steininn. Ef
ekki er rætt um vandann
og við lokum algerlega
augunum fyrir honum
fljótum við sofandi að
feigðarósi, — og áður en
varir getum viö verið
komin svo langt að ekki
verður aftur snúið.
Þótt erfitt sé að meta
það, bendir ýmislegt til
þess að fólk sé að vakna
og átta sig á að ekki sé
allt meö felldu. Það er
ekki vegna ræöuhalda
stjórnmálamanna fyrir
kosningar heldur vegna
þess að menn reka sig
óþyrmilega á, að þótt
launin hækki í krónutölu
um tugi prósenta, reynist
kaupmátturinn minnka
og krónurnar verða verö-
lausari og verðlausari."
Vítið sem
varast ber
„í útvarpserindi á dög-
unum benti Þorvaröur
Elíasson, skólastjóri, á þá
staðreynd, að verðbólgan
mikla í Þýskalandi fyrir
síðari heimsstyrjöldina
hefði farið af stað með
svipuðum hraða og verið
hefði hér síöan 1970.
Ef gert væri ráð fyrir
svipaðri fylgni áfram,
mætti búast við 50—
100% veröbólgu næstu
ár, sem síðan magnaðist í
100 til 300% verðbólgu,
— en úr því færi allt aö
gerast enn hraðar.
Þorvarður minnti á að
þá gæti svo fariö að fyrst
tífaldaðist verðlagið á
einu ári, síðan tífaldaðist
það á einum mánuði og
ef til vill á einni viku.
Seölabankinn okkar
gæti þá þurft að reyna
það sama og sá þýski að
seölarnir í peningag-
eymslunni yrðu minna
virði í raun en pappírinn
sem notaður væri í þá en
það er einmitt það sem
orðið hefur varðandi
íslenska mynt, aö málm-
urinn í henni er orðinn
verðmeiri en peninga-
gildið sjálft.“
Endalok ís-
lenzks verð-
bólgutímabils
„Þótt margt sé líkt með
veröhruninu í Þýskalandi
fyrir stríðið og þróun
verðbólgunnar á íslandi
síðasta áratuginn er hætt
við að almenningur jafnt
sem ráðamenn loki aug-
unum fyrir því, aö á sama
veg geti farið hér og
raunin varð á þar.
En það verður ekkert
gert í baráttunni gegn
verðbólgunni ef fólk lok-
ar augunum fyrir því sem
er í raun að gerast og
heldur krónutölukapp-
hlaupinu áfram.
Svo að aftur sé vitnað
til Þorvarös Elíassonar,
bað hann menn að íhuga
og rifja upp það efna-
hagslega hrun, sem verð-
bólgan olli í Þýskalandi
og það pólitíska ástand
sem fylgdi í kjölfarið.
Hann taldi margt
benda til þess að endalok
hins íslenska verðbólgu-
tímabils væru að nálgast.
Vaxandi pólitísk upp-
lausn benti meöal annars
til þess að svo væri.
Aðeins ætti eftir að koma
í Ijós með hvaða hætti
hrunið yrði og hvaða öfl
það yrðu sem héldu
stjórnartaumunum að því
loknu hér á landi.
Þótt ýmsum finnist
þarna gæta full mikillar
svartsýni er ástæða til
þess að menn hugleiði
alvarlega að við gætum
lent á sömu villigötum og
Þjóðverjar á sviöi efna-
hagsmálanna ef áfram er
kynt undir kötlum verð-
bólgunnar og forystu-
menn þjóðarinnar þora
ekki aö takast á við
vandann á raunhæfan
hátt. Þeir eiga að vita að
það verður að ráðast að
rótum verðbólgunnar,
skera niður það sem hún
nærist á, en ekki setja á
hana lög og prósentu-
reglugerðir sem aldrei
verða annað en pappírs-
gögn.“
FÍFU ELDHÚS
Eldhúsið með fulningahurðum er sígilt og vandað, enda
key pt af þeim sem vil ja vandað og skemmt ilegt eldhús.
Frágangur er allur eins og best verður á kosið, sterkar
lamir, aðeins úrvals efni er notað. Þér getið valið um lit á
innréttingu og plast á borðplötu.
Allir skápahlutar eru framleiddir með innfeldum tengi-
búnaði, sem gerir það að verkum að mjög auðvelt er að
tengja þá saman og hengja upp á vegg. Tækninýjung sem
auðveldar samsetningu og festing verður öruggari.
Fífa hefur bryddað upp á mörgum nýjungum, má þar m.a.
nefna útdregna grindarskápinn, sem er mjög vinsæll í dag
og flestir taka í eldhús sín.
Fífa býður upp á eldhus í öllum verðflokkum og fyrir þá
sem vilja fá góð eldhús fyrir mjög lítið verð, hefur Fífa
framleitt eldhús sem stendur fyllilega fyrir sínu, látlaust
og hagkvæm lausn fyrir alla þá sem vilja ekki leggja
mikinn kostnað í eldhúsið, en vantar eldhúsinnréttingu.
I þessu eldhúsi er sama efni, lamir og aðrir þeir hlutir
sem notaðir eru í aðrar innréttingar Fífu, en sparnaður-
inn liggur í hagkvæmari staðlaðri framleiðslu, sem
kemur þeim til góða sem versla við Fífu.
Látið okkur teikna eldhúsin og gefa verðtilboð, þér að
kostnaðarlausu.
Húsgagnavinnustofa.Smiöjuvegi 44 Kópavogi Sími 71100
Skinnafyrirtæki
Til sölu er skinnafyrirtæki í útflutningi á barmi
gjaldþrots, fyrir þann sem er nógu vitlaus aö kaupa
þaö. Tilvaliö tækifæri fyrir sexmannanefnd. Tilboö
sendist augld. Mbl. merkt: „Ruglaður — 60202.
Hestamannafélagið
Fákur
Aðalfundur félagsins
verður haldinn fimmtudaginn 27. marz og hefst kl.
20.30 í Félagsheimili Fáks.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Hestamennska
Ný námskeið í hestamennsku eru aö hefjast. Innritun
næstu daga kl. 13—14. Sími 33679.
Stjórnin.
Vinstri stjórn?
Heimdallur heldur almennan fund um
stefnu ríkisstjórnarinnar. Fundurinn verö-
ur haldin í Valhöll 27. marz kl. 20.30.
Gestur fundarins veröur Gunnar Thor-
oddsen forsætisráöherra. Fundarstjóri,
Pétur Rafnsson formaður Heimdallar.
Heimdallur.