Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
„Höfum allt að vinna
og engu að tapa“
— segir Hilmar Björnsson þjálfari Vals
Á morgun fimmtudag
heldur lið Vals út til
V-Þýskalands og mun
leika úrslitaleik sinn í
Evrópukeppninni á laug-
ardag. Óhætt er að full-
yrða að þarna er á ferð-
inni einn stærsti íþróttá-
viðburður í íslensku
íþróttalífi. í»að var því
ekki úr vegi að spjalla
lítillega við þjálfara Vals-
manna Hilmar Björnsson,
og spyrja hann nokkurra
spurninga um undirbún-
ing liðsins o.fl.
Hvernig hefur Valur hagað und-
irbúningnum eftir leikinn á móti
Atletico?
— Æft svipað en leikið fleiri
leiki, og í síðustu viku vorum við
25 klukkustundir við æfingar eða
keppni. Síðustu vikuna dreg ég úr
álaginu á leikmenn og stefni að
því að leikmenn verði í toppi á
laugardaginn. Síðasta æfing hér
heima verður á þriðjudagskvöldið
en síðan æfum við úti í höllinni
sem við leikum í.
Eru leikmenn tilbúnir í átökin?
— Núna eru leikmenn þreyttir
en við stefnum að því að þreytan
verði farin úr mannskapnum á
laugardag. Líkamlega eiga leik-
menn að vera eins vel undirbúnir
og kostur er. Menn verða sjálfsagt
taugaspenntir en nú er aðeins um
einn leik að ræða og allt að vinna
og engu að tapa. Spurningin er
hins vegar sú hvort að leikmenn
sætti sig við þennan árangur sem
þegar hefur náðst eða vilja þeir
meira. Allur fyrri árangur skiptir
nú litlu máli þegar komið er í
úrslitin, það eru þær 60 mínútur
sem leikurinn stendur sem skipta
öllu máli.
Nú virðist Grosswaldstadt vera
frábært lið og varla tapa leik.
Hverjir eru möguleikar Vals í
úrsiitaleiknum?
— Vestur-þýskur handknatt-
leikur hefur verið sá besti í
heiminum, þeir eru heimsmeistar-
ar og eiga bæði liðin sem urðu
Evrópumeistarar í fyrra. Tölulega
séð ætti ekki að þurfa að spila
Þjálfari Vals Hilmar Björnsson.
Hann hefur náð frábærum
árangri með liðið.
leikinn. Enn einmitt í þessu liggur
okkar möguleiki. Við höfum allt
að vinna, og megum ekki bera
neina minnimáttarkennd frammi
fyrir Þjóðverjunum, og hugsanlegt
er að þeir vanmeti okkur og í þeim
tilvikum er hægt að koma á óvart.
Auk þess vitum við miklu meira
um lið þeirra en þeir um okkur.
Hvernig leik hafið þið hugsað
ykkur að leika úti?
— Án þess að hafa séð liðið
leika, þá hef ég vissar hugmyndir
í 30. leikviku Getrauna kom
fram einn seðill með 12 réttum og
var vinningurinn kr. 2.210.000- en
50 raðir voru með 11 rétta og
vinningurinn fyrir hverja röð kr.
18.900-.
Það var Hafnfirðingur,
sem rataði á alla leiki rétta á 36
raða seðli, og vinningur fyrir
seðilinn því kr. 2.323.400,- þar sem
slíkur seðill er ávallt með 11 rétta
(spólur með myndum af liðinu
voru ekki enn komnar til landsins
er viðtalið fór fram á mánudag).
Við verðum að stoppa skytturnar
og höfum æft mörg varnaraf-
brigði. En við verðum að sjá
hvernig leikurinn þróast. Yfirveg-
aður verður leikur okkar að vera. í
sóknarleiknum verðum við að nýta
hröð upphlaup eins og hægt er.
Síðan að hanga á boltanum og
leika langan sóknarleik. Varnar-
leikur og markvarslan verða að
vera mjög góð. Þó sérstaklega
markvarslan.
Markvörður Grosswaldstadt er
sagður einn besti markvörður
heims. Hvernig ætlið þið að ráða
við hann?
— Hann var einn sá besti en í
ár hefur hann verið mjög misjafn.
Þannig að góð skot á hann eru inni
eins og á flesta aðra markmenn.
Ég hræðist ekki að hann geri neitt
útslag í leiknum. Við erum líka
með Ola Ben og Brynjar.
Eru allir leikmenn heilir?
— Það eru smámeiðsli sem
verða vonandi orðin góð á laugar-
daginn.
Viltu spá um úrslit i leiknum?
— Við förum út í þennan leik
með því hugarfari einu að sigra.
Fari svo illa að við töpum þá
verðum við að sætta okkur við
það. Dómararnir í leiknum verða
sænskir og ég persónulega er ekki
hræddur við að þeir verði heima-
dómarar, sagði Hilmar að lokum.
- ÞR.
í 6 röðum, ef hann er með alla leiki
rétta.
Nú fer að líða að lokum get-
raunatímabilsins, en vegna rösk-
unar á samgöngum og afgreiðslu-
tímum um páskana, verður ekki
gefinn út getraunaseðill með leikj-
um laugardaginn 5. apríl, en síðan
verður haldið áfram til laugar-
dagsins 3. maí, sem verður síðasti
getraunadagurinn í vor, en þá
lýkur ensku deildakeppninni.
Einn með 12 rétta
• Ólafur H. Jónsson opnaði fyrir skömmu nýja íþróttavöruverslun að Ármúla 38. ólafur hefur umboð
fyrir hinar vestur-þýsku „Hummel“ vðrur, en einnig verða Remington vörur á boðstólum. Áður var Ólafur
með heildsölu i Hafnarstræti.
Eigendur verslunarinnar ásamt ólafi eru faðir hans Jór, Andrésson og bróðir hans Jón Pétur Jónsson. Á
meðfylgjandi mynd eru þeir feðgarnir ásamt Stefáni Gunnarssyni að handleika varning. Ljósm. Mbi. - gg.
Framkvæmdastjóri
Frjálsíþróttasamband íslands (FRÍ) óskar aö ráöa fram-
kvæmdastjóra í fullt starf á skrifstofu sambandsins frá
15. maí til 31. ágúst n.k., einnig í hlutastarf fyrir þann
tíma. Vélritunarkunnátta nauösynleg.
Umsóknir sendist FRÍ í pósthólf 1099 fyrir 31. marz.
Heimilistölvan
Tölvuskóli
Borgartúni 29,
sími 23280.
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið
á örtölvur.
Á námsskránni er m.a.
★ Námskeiö í BASIC fyrir byrjendur.
★ Framhaldsnámskeiö í BASIC.
★ Upplýsingaleit í tölvumiöstöövum erlendis.
★ Stjórnun tækja og ferla og aflestur mælitækja
meö örtölvu.
★ Fyrirtækjabókhald.
★ Assembler og vélamál.
★ Notkun diskettustöövar og prentara.
★ Forritunarverkefni.
Sími Tölvuskólans er QOQQft
Innritun stendur yfir. émOfaOU
Við leikmenn Vals í væntanlegum úrslitaleik Evrópumeist-
arakeppnínnar í handknattleik, leitum nú stuönings þíns
landi góóur, vegna hins mikla kostnaðar, sem fylgir
þátttöku okkar. Um leiö og viö lofum því aö gera okkar
bezta í leiknum í Þýzkalandi, sendum viö þér beztu kveöjur
og vonumst til aö mæta hjá þér velviid og skilningi hvar í
félagi sem þú annars stendur.
Leikmenn Meistaraflokks Vals
i------------------------------------------------------r
| Ég undirrit... styó Val í úrslitum i
| Evrópumeistarakeppninnar í handknattleik meö i
hjálögðu framlagi.
I Ávísun kr. Pen. kr. i
| Nafn: ....................................................
I Heimili: ................................................. |
I________________________________________________________________I
Ssndlst msrkt: Már Gunnarson, Bakkavör 7, Saltj. *Aa til Barga
Guðnaaonar hdl. Langholtavagl 115, Raykjavfk.