Morgunblaðið - 26.03.1980, Page 32

Morgunblaðið - 26.03.1980, Page 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 plí>r£jiml>l&í>í$> MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 190 kr. kostar að aka hvern kílómetra eft- ir hækkunina ÞEGAR bensínlítrinn heíiir hækkað í 423 krónur kostar hver ekinn kílómetri 189.52 krónur á bíl, sem eyðir 10 lítrum á hundr- aðið og ekur 10 þúsund kílómetra á ári. Þýðir bensínhækkunin að 5,30 krónum dýrara verður að aka hvern kílómetra en var fyrir hækkun. Þessar upplýsingar fékk Mbl. í gær hjá Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda. Bensínhækk- un frestað RÍKISSTJÓRNIN ræddi fyrirhugaða bensínhækkun á fundi sínum í gærmorgun. Málið var ekki útrætt, þar sem stjórnin taldi að hún þyrfti að skoða það betur. Væntanlega mun stjórnin ræða málið að nýju á fundi á fimmtudaginn og hækkar þá bensínið í fyrsta lagi á föstu- dag. Viðey seldi í Cuxhaven VIÐEY seldi í Cuxhaven í gær 285 tonn fyrir 114 milljónir króna og var meðalverð um 400 krónur kílóið. Mbl. spurði Ágúst Einarsson hjá LÍÚ, hvort einhver breyting hefði orðið í Hull, en íslenzk sklp hafa sem kunnugt er ekki landað þar að undanförnu vegna hárra hafnar- gjalda. „Við höfum gert hafnaryf- irvöldum í Hull ljóst, að ekkert íslenzkt skip muni landa þar meðan gjöldin eru svona há og að þeir verði að leysa þessi mál sjálfir," sagði Ágúst. Ekkert íslenzkt skip hefur selt í Hull frá miðjum janúar, en hafnar- gjöldin í fiskihöfninni þar hækkuðu úr um það bil 10 pundum á tonnið í 51,90 pund, eða rúmlega 51 krónu á kílóið. «5 ft ><w: 'rmmmmmmm Mikil ös var á bensínstöðvunum í gær, þegar fréttist af fyrirhugaðri bensínhækkun. Bensínhækkanirnar: 10 milljarða tekjuauki miðað við árið issjóðs Hlutur ríkisins 232,65 krónur af 423 króna bensínverði ÞAÐ kom fram í umræðum utan dagskrár á Alþingi í gær að samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru áætlaðar tekjur ríkissjóðs af tollum og gjöldum í bensínverði 29 millj- arðar króna á þessu ári. Miðað við sama verðlagsgrundvöll er um að ræða 10 milljarða tekju- auka ríkissjóðs frá fjárlögum ársins 1978. Þannig hafa verð- hækkanir á bensíni erlendis fært ríkissjóði stórauknar tekjur af tollum og gjöldum af bensíni. Birgir Isleifur Gunnarsson alþ.m. hóf umræðuna utan Ljósm. Mbl. Emilia. rík- 1978 dagskrár. Kvaðst hann í tilefni blaðafrétta um fyrirhugaðar bensínhækkanir vilja beina þeirri spurningu til fjármálaráðherra hvort ríkisstjórnin hygðist breyta reglum um innheimtu tolla og skatta í bensínverðinu. Birgir ísl. sagði að tekjuauki ríkissjóðs vegna hækkunar úr 370 í 423 krónur þýddi 3,5 milljarða tekjuauka fyrir ríkissjóð á ári. Hann sagði að í janúar 1979 hefði bensínlítrinn kostað 181 krónu og hlutur ríkissjóðs verið 106,05 krónur en eftir fyrirhugaða hækk- un yrði verðið 423 krónur og hlutur ríkisins í formi tolla, vega- gjalda, söluskatts og landsútsvars 232,65 krónur. Er þetta um 55% af verðlaginu. Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sagði að byggingavísitalan væri nú 398 stig en bensíngjald væri miðað við 309 stig. Því væri fyrir hendi heimild til hækkunar, sem ekki hefði verið nýtt en það yrði gert nú. Það kom einnig fram í umræð- unum í gær, að árið 1971 var vegagjaldið 16 krónur og þar af var hlutur vegasjóðs 8 krónur eða 50%. Eftir hækkunina verður vegagjaldið um 90 krónur og þar af verður hlutur vegasjóðs um 20%. Flugleiðir áfram með Ameríkuflug til haustsins ’81 — reksturinn kannaður þangað til Enn ein skattahækkunin: Flugvallagjald hækkað um 60% Verður kr. 8.800 á farseðil ENN EITT skatthækkunar- frumvarp var lagt fram á Alþingi í gær — stjórnar- frumvarp, sem felur í sér hækkun svokallaðs flug- vallagjalds í kr. 8.800.00 á hvern^ farþega, sem ferðast frá íslandi til annarra landa. Farþegar á aldrinum frá 2ja ára til 12 ára greiði hálft gjald. Yngri farþegar en 2ja ára sleppa við flug- vallagjaldið. Farþegaflug innanlands eða til Færeyja og Grænlands skal bera kr. 650.00 flugvallagjald á hvern farþega. Sama afslátt- arhlutfall gildir um yngri far- þega og í fyrra dæminu. Samkvæmt frumvarpinu hækkar flugvallagjaldið um 60%. Tekjur af þessu gjaldi 1979 námu hátt í 700 m.kr. og reyndust nokkuð lægri en tekjuáætlun fjárlaga sagði til um enda samdráttur í utan- ferðum. í ljósi þeirrar reynslu eru tekjur af gjaldinu 1980 með ráðgerðri hækkun áætl- aðar 1050 milljónir króna. Þá felur þetta frumvarp í sér heimild til ráðherra að hækka gjaldið enn frekar „til samræmis við verðlagsbreyt- ingar“ eins og það er orðað. Þurfi þá ekki ákvörðun að koma til kasta Alþingis „til þess eins að gjaldið haldi raungildi sínu“. - VIÐRÆÐURNAR i Lux- emborg byggðust á fyrri við- ræðum aðila og komu nú fram tillögur um að reyna að gera Flugleiðum kleift að halda áfram Ameríkufluginu fram á haustið 1981 og skoða allan reksturinn á meðan, sagði Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra í samtali við Mbl. i gær um fund sam- gönguráðherra íslands og Lux- emborgar með fulltrúum Flug- leiða. Steingrímur sagði að Flugleið- ir myndu á næstu stjórnarfund- um sínum og síðan á aðalfundi í lok apríl fjalla um þessar tillögur og sagði Steingrímur að sér virtist ljóst, að allur flugrekstur á N-Atlantshafi væri nú rekinn með stórtapi. Sagði Steingrímur Luxemborgarmenn sjá fyrir al- varlegar afleiðingar ef Ameríku- flugið legðist niður og því væri ætlunin að styðja félagið nú um tíma og fjalla þá um fram- tíðarstefnu þess. Mál Flugleiða verða rædd á ríkisstjórnarfundi á fimmtudag. Örn Johnson stjórnarformaður Flugleiða sagði að fjallað yrði um þessi mál á stjórnarfundi á föstudag, en óljóst væri hvenær tekin yrði ákvörðun um stefnu- mörkun varðandi Ameríkuflug. Yrði málið rætt einnig af stjórn- völdum. Ekki kvaðst Örn vilja tjá sig um einstök atriði tillagna er fram hefðu komið um stuðning stjórnvalda við félagið. Gengissigið: 1,5% gagnvart dollarnum síð- an 12. marz GENGISSIG krónunnar gagn- vart dollarnum frá 12. marz sl., að ríkisstjórnin samþykkti að gengissig skyldi hefjast á nýjan leik, hefur verið 1,5% og dollar- inn hækkað úr 406 krónum í 412,20 krónur samkvæmt skrán- ingu Seðlabankans á hádegi í gær. Hins vegar hefur dollarinn verið að styrkjast gagnvart öðr- um gjaldmiðli að undanförnu og hafa Evrópumyntir því lækkað lítilega í verði gagnvart krónunni á þessu tímabili; enska pundið, danska krónan og v-þýzka mark- ið um 0,2 - 0,3% svo dæmi séu nefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.