Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
7
Síöasta
haldreipiö
Athygli vekur, ad í frá-
sögn Þjóöviljans af því
tiltæki Ólafs Ragnars
Grímssonar formanns
þingflokks Alþýðubanda-
lagsins aö færa sór í nyt
hádegisverðarboð for-
seta Alþingis fyrir banda-
ríska þingmenn til að
koma á framfæri áróðri
herstöðvaandstæðinga,
er Ólafs aldrei getið með
nafni heldur er þingflokk-
urinn borinn fyrir þessum
aögerðum. Hvers vegna
Þjóðviljinn lætur þess
ekki getið, að Ólafur
Ragnar hafi tekið til máls
í hádegisverðinum öllum
að óvörum og borið sig
upp við bandarísku þing-
mennina, er furðulegt,
þegar jafn auglýsínga-
glaður maður á í hlut.
Miöað við allt fas manns-
ins er ólíklegt, aö hann
hafi látið sér áminningu
Geirs Hallgrímssonar að
kenningu verða og séð,
hve ankannalegt það var
að skjóta þannig til
bandarískra þingmanna
öryggismálum Islands,
sem við verðum auðvitað
sjálf að komast að niður-
stöðu um.
Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins er nú orð-
inn svo aðþrengdur af
eigin stuðningsmönnum
vegna tvískinnungsins í
„hermálinu“, að formaður
hans notar sem síðasta
haldreipi að misnota
gestrisni Alþingis til aö
dreifa áróðri á bréfsefni
Alþingis. Og Þjóðviljinn
birtir síðan ábúðarmikla
forystugrein í gær undir
heitinu: Til dymbilviku-
gesta, sem lýkur meö
þessum afsökunarorðum:
„Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins hefur notað
tækifærið til þess að
hvetja bandaríska þing-
menn að kynna sér for-
sendur andstööunnar
gegn hersetunni betur en
þeir hafa gert. Það er
þarft verk því að einfald-
anir, svo sem að flokka
alla andstöðu af þessu
tagi undir kommúnisma
og Moskvuþjónkun,
bjóða heim röngu mati
og ákvörðunum. Banda-
ríska þingið hefur að
sjálfsögöu stærri málum
að sinna en örlögum lítill-
ar eyþjóðar, en það er
jafn sjáltsagt að nota
hvert tækifæri til þess að
kynna röksemdir gegn
hersetunni og sýna fram
á að herstöðvaandstaðan
er öll í merki lýðræðis- og
sjálfstæðisbaráttu og háð
í svipuðum anda og
bandaríska sjálfstæðis-
baráttan á sínum tíma.“
Fleöuskapur
en rökleysi
Allt einkennist plaggið,
sem Ólafur Ragnar
dreifði, af gagnsæjum
fleðuskap í garð banda-
rísku þingmannanna,
enda er það í sömu tón-
tegund og lokaorð leið-
ara Þjóðviljans, sem birt
eru hér að ofan. Þau orð
hefðu sómt sér vel sem
lokakafli bænaskjals til
herraþjóðar fyrr á árum,
þar sem hún væri beðin
að lúta svo lágt að huga
að sínum mesta smæl-
ingja. Er þetta það sem
kommúnistar kalla á tylli-
dögum þjóölega reisn?
Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins hefur valið
leið smjaðursins, þar
sem hann hefur engin
haldbær rök til aö sýna
hinum bandarísku þing-
mönnum fram á, að ör-
yggi íslands yrði betur
borgið með nýrri skipan
varna landsins. I dreifi-
bréfinu er að mjög litlu
leyti drepið á meginrök-
semdina fyrir aðild ís-
lands að Atlantshafs-
bandalaginu og varnar-
samstarfinu við Banda-
ríkin, sem er að sjálf-
sögðu þróun hernaöar-
mála í þessum heims-
hluta. Þó er sagt, að ekki
sé unnt að rökstyöja til-
vist varnarstöðvarinnar
með vísan til þeirrar ógn-
ar, sem stafi af sovéska
flotanum, þar sem stöðin
hafi komið til sögunnar
meira en tveimur áratug-
um á undan „hinni svo-
nefndu sovésku flotaógn-
un“ eins og það er orðað.
í þessum oröum felst
viðurkenning á því, aö
íslandi stafi ógn af so-
véska flotanum og les-
endur álits þingflokks Al-
þýðubandalagsins hljóta
að álykta sem svo, aö
flokkurinn hefði stutt
ráðstafanir gegn henni
en taliö í lagi að hafa
landið varnarlaust þar til
fyrir u.þ.b. tíu árum. Þá
segir í skjalínu: „Það er
ekki landfræðileg staða
landsins, sem gerir það
að skotmarki heldur
tæknilegt eðli bandarísku
stöðvarinnar. „Erlendir
menn, sem þetta lesa
hljóta að álykta sem svo,
að þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins geti fallíst á
tilvist varnarstöðvarinnar
komist hann að raun um
það, að tæknibúnaður
hennar kalli ekki beinlín-
is á árás.
Það er kannski skýr-
ingin á nafnleynd Ólafs
Ragnars í Þjóðviljanum
að skilja ber bænaskjalið
sem stefnubreytingu af
hálfu þingflokks Alþýöu-
bandalagsins?
gæðingurinn sem allstaðar
vekur athygli
BMW sameinar kosti sportbíls og þægindi einkabíls, kraftmikill, öruggur, stöðugur í
akstri, bjartur og rúmgóður, með þægilegum sætum.
Það þekkja allir aksturseiginleika þessa vandaða bíls, en þeir halda flestir að hann
sé mun dýrari en hann er. BMW er meira en samkeppnisfær í verði, auk þess sem
þú eignast betri bíl en verðið segir til um.
BMW - ÁNÆGJA í AKSTRI
AKUREYRARUMBOÐ: Bílaverkst. Bjamhéðins Gíslasonar. Sírni: 96-22499
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Árshátíð
VALS
Veröur haldin í Atthagasal Hótel Sögu laugar-
daginn 12. apríl n.k. og hefst með borðhaldi kl.
19.30.
Fjöldi góöra skemmtikrafta kemur fram, veittar
viöurkenningar og verðlaun.
Valsmenn yngri og eldri fjölmenniö.
Forsala aðgöngumiöa fer fram í Valsheimilinu kl. 5—7 í
dag og næstu daga. Borðapantanir veröa afgreiddar á
Hótel Sögu á fimmtudag kl. 5—7.
Skemmtinefndin.
Framhalds
aðalfundur
veröur haldinn í kvöld fimmtudaginn 10. apríl og
hefst kl. 20.30 í Félagsheimili Fáks. Félagar fjölmenn-
iö.
Hollandsfarar
Mynda- og skemmtikvöld fyrir þá sem tóku þátt í ferö
Fáks á Evrópumótið í Aperdon í sumar, veröur haldiö
í Félagsheimili Fáks á morgun 11. apríl kl. 20.30.
Mætum öll og takið myndir meö úr feröinni.
Stjórnin.
Kassettur
beztu kaup landsins
1 spóla 5 spólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000
Heildsölu
birgðir
Verslióisiérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI
29800
Skiphottit9
Fiskverkendur Fiskbúðir
Steen 111 roðflettivélin
Roöflettir allar tegundir af fiski, jafnt flök, sem heilan
fisk. Roöflettir auðveldlega t.d. háf, skötusel, skötu-
börö, heilan flatfisk o.s.frv. Mjög auöveld í meöför-
um.
Aldrei þarf aö brýna hnífinn. Viöhald mjög lítiö.
Þyngd aöeins 39 kg. Breidd á hníf 250 mm. Verö ca.
1,8 millj. kr.
Frekari upplýsingar veittar í síma 71455.