Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 17

Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRIL 1980 17 við úrbótum, þar sem jarðrask hefur orðið, segir Arni. Skv. 17 gr. náttúruverndarlaga hafa landeig- endur víðtækar heimildir til a raska landi sínu. Náttúruvernd- arráð hefur ekkert vald til að stöðva slíkar athafnir, en sveitar- stjórn hefur takmarkað vald til þess. Hins vegar skal Náttúru- verndarráð setja reglur um frá- gang. í þessari stöðu leggur ráðið áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir. Stefnt er að því að gera úttekt á þeim svæðum sem viðkvæmust eru og í mestri hættu fyrir slíku raski og gefa út leiðbeiningar um það, hvaða stöðum og minjum beri að hlífa við efnisnámi, og jafn- framt hvar helst sé að finna eftirsótt jarðefni, sem minna gerir til þó tekin séu. Unnið er að þessum málum í Ölfusi, á Reykja- nesskaga og í Vestmannaeyjum. Ýmislegt fleira er fjallað um í þessum málaflokki, svo sem flug- velli, hafnir, sumarbyggð o.fl., sem of langt er upp að telja. • 50 svæði friðlýst Sem grundvöllur annarra verndurnarstarfa er friðlýsing þó svo mikilvæg, að hún hefur á ýmsan hátt yfirskyggt annað starf Náttúruverndarráðs undanfarin ár, segir Árni, þegar það mál ber á góma. Ef til vill er það umræddum áhuga fyrir friðlýsingu að þakka, og þeim meðbyr, sem Náttúru- verndarráð hefur notið s.I. áratug, að 50 svæði hafa nú verið friðlýst, án þess að nokkur tíma hafi þurft að grípa til eignarnáms eða greiða skaðabætur fyrir. Verður það að teljast sjaldgæfur árangur. Mögu- leikar ráðsins til að vinna að friðlýsingu fara nú æ þverrandi, þar sem mannafli þess stendur í stað á meðan forgangsverkefnum fjölgar stöðugt, svo sem í almenn- um rekstri og við afgreiðslu að- sendra erinda. Það er síst umhirða og rekstur þessara 50 svæða, sem nú hefur gleypt þann tíma, sem áður var notaður til samninga við landeigendur og önnur friðlýs- ingarstörf. Á dagskrá eru nú nokkur stór svæði sem eru þjóðgarðsígildi, svo sem Breiðafjörður, Þórsmörk og óbyggð svæði undir Jökli á Snæ- fellsnesi. Af mikilvægum votlend- um nefnir Árni Ölfusforir, Odda- flóð, Hjaltastaðablá. Af helstu fossum Fjallfoss og Skógafoss. Þá er unnið að friðun allmargra staða í og við þéttbýli. Hér á höfuðborg- arsvæðinu má nefna Laugarás í Reykjavík, Borgir í Kópavogi, Urriðakotsvatn í Garðakaupstað og Óshólma Varmár í Mosfells- sveit. • Þjónustumiðstöð í Ásbyrgi Áður en lengra er haldið er e.t.v. rétt að drepa á þau svæði sem þegar eru friðlýst og rekstur þeirra, því þótt merkum áfanga sé náð með friðlýsingu, þá er hitt þó öllu þýðingarmeira, hvernig þess- um svæðum og stöðum reiðir af í forsjá ríkisins undir merki nátt- úruverndarráðs. Enda tekur rekstur friðlýstra svæða til sín megnið af fjármunum rðasins og meira en helming vinnustunda fastaliðs ráðsins. Friðlýst svæði í umsjá Náttúru- verndarráðs eru 50 sem fyrr er sagt og nokkur þýsund ferkíló- metrar að stærð. Þörf þessara svæða fyrir umhirðu er nánast í beinu samhengi við það hversu fjölsótt þau eru, segir Árni Reyn- isson. Vernduarstarfið byggist einkum á því að greiða fyrir dvöl manna þar og umferð um svæðin og tryggja eins og hægt er, að almennur aðgangur að þeim leiði ekki til spjalla. Hann lýsir nánar þessum störfum, sem felast í merkingum, skipulagi, dvalar- stöðum með eða án þjónustu- miðstöðvar, öku- og gönguleiðum, eftirliti, girðingum, rannsóknum, fræðslu um náttúruna. En í Skaftafelli er fyrsti vísir að auk- inni fræðslu og ákveðið að byggja fræðslustofn um Jökulsárgljúfur í þjónustumiðstöðinni í Ásbyrgi. Margvísleg verkefni hafa þegar verið unnin á friðlýstu svæðunum og mörg óunnin blasa við á stórum verndarsvæðum, sem Árni fjallar um. M.a. í 200 ferkm þjóðgarðin- um í Skaftafelli, þar sem unnið er að verndun gamalla húsa og minja, stígagerð, umbætur á ferðamiðstöð o.fl. Einnig í 150 ferkm þjóðgarði í Jökulsárgljúfr- um, þar sem næsta verk er m.a. bygging ferðamiðstöðvarinnar í Ásbyrgi, gerð gönguleiða o.fl. Mý- vatns- og Laxársvæðið er friðlýst og um 6000 ferkm að stærð og þar framundan framkvæmd rann- sóknaáætlunar, verndun varp- landa og aðstaða til fuglaskoðun- ar, mat á umhverfisáhrifum og eftirlit með kísiliðju, jarðgufu- og vatnsafsvirkjunum, veiði, búskap- arnytjum, túrisma, mannvirkja- gerð og efnistöku. I 140 ferkm Herðubreiðarfriðlandi er fram- undan friðun með beitarstjórn, tjaldsvæði við Lindarhorn o.fl. Á 470 ferkm friðlandinu að Fjalla- baki er m.a. fyrir höndum merking og lagfæring ökuleiða, gróðurvernd og stígagerð i Land- mannalaugum, vatnsvernd í lind- um og laugum o.fl. I 580 ferkm friðlandi á Hornströndum eru á dagskrá öryggismál, skipulag dvalarstaða og gerð göngukorts. I 305 ferkm friðlandinu á Lónsöræf- um er framundan rannsókn á ástandi gróðurs. í Hvannalindum þarf að stækka 43 ferkm friðland- ið í átt til Kverkfjalla. Á Hvera völlum þarf nýjan hreinlætisút- búnað og endurskipulag mann- virkja. I Vatnsfjarðafriðlandi, sem er 200 ferkm, eru framundan verkefni á sviði gróðurverndar, tjaldstæða og hreinsunar. Við Gullfoss og í friðlandinu í kring er framundan bygging ferðamið- stöðvar, athugun á gróðurfari og tilhöfun eftirlits. I hinu nýja Búðahraunsfriðlandi þarf að skipuleggja ferðamennsku, girða og merkja. I 250 ferkm Reykjanes- fólksvangi þarf vegabætur í Mó- hálsadal o.fl. Fjölmörg fleiri verkefni eru framundan hjá Náttúruverndar- ráði, þótt ekki sé upp talið hér. Árni Reynisson fjallar auk fyrr- nefnds í skýrslu sinni um störf ráðsins um verkefni á sviði útilífs, friðlýsingar, fræðslustörf, vernd- un dýra og plantna, ýmis ráð- gjafastörf, erlend samskipti og Náttúruverndarþing, sem haldið er þriðja hvert ár. Og hann fjallar um náttúruminjaskráningu, sem eitt af undirstöðuverkefnum ráðs- ins. En á náttúruminjaskrá eru 150 stór og smá svæði. Óg verkefni í vinnslu eða undirbúningi eru eldstöðvar á Reykjanesskaga, fundarstaðir steintegunda á Aust- urlandi og almennt. yfirlit nátt- úruminja á Vesturlandi og Vest- fjörðum. En liður í starfinu er að gera ítarlega úttekt á náttúru- minjum í einstökum sveitum eða landshlutum, þegar skipulags- áætlanir eru gerðar og er nýlegt landskipulag Ölfuss, Hveragerðis og Selfoss e.t.v. besta dæmið um slíka vinnu, segir Árni Reynisson. En ekki er rúm hér til að fara nánar út í störf og verkefni Náttúruverndarráðs, sem í raun eru ótæmandi, enda beinlínis lögð Náttúruverndarráði á herðar í lögum. E.Pá. Göngumenn í Kverkfjöllum. NáttúruverndarráA hyggst stækka friðlandið í Hvannalindum til Kverkfjalla og greiða þar sem annars staðar fyrir gönguferðum og náttúruskoðun. Ljósm. Snorri Snorrason. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Sandi: Ættmóðir skrifar Á undanförnum vikum hafa tveir ungir menntamenn, Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðinemi og Kristófer Ingi Svavarsson laga- nemi, skrifað í Morgunblaðið um fóstureyðingar og verið mjög á öndverðum meiði. Ég ætla ekki að ráði að blanda mér í þær umræður. En þegar ég var barn var mér kennt að þakka það, sem mér var vel gert. Mig langar til að færa Rúnari Vil- hjálmssyni kærar þakkir fyrir þá drengilegu vörn, sem hann heldur uppi fyrir okkar minnstu mann- anna börn, þeirra, sem enga björg sér geta veitt né tjáð sig á nokkurn hátt. Á ég þar við fóstur í móðurlífi. Þar fer maður, að mér virðist með óbrenglaðar réttlætis- og siðferðistilfinningar. Oft hefur maður heyrt því haldið fram að konan eigi að ráða sjálf yfir líkama sínum, og er ég því sammála að vissu marki. í það minnsta, á meðan hún er ekki öðrum bundin, sem svo var kallað í gamla daga. En um leið og fóstur er búið að taka sér bólfestu í móðurlífi og vex og dafnar með hverjum degi sem líður, og bíður þar eftir að líta dagsins ljós þá er það skoðun mín að líkamarnir séu orðnir tveir sem um er að ræða, en ekki bara líkami móðurinnar. Og þá sé það skylda móður og föður að sjá til þess að það megi lífi halda, að svo miklu leyti sem í þeirra valdi stendur. Það er ekki eingöngu á valdi konunnar hve- nær og hve lengi hún getur eignazt börn. Það er tímabundið og annar okkur æðri, sem því ræður. En það fæst ekkert án fyrirhafnar og áhættu. Menn og konur verða að taka afleiðingum gerða sinna og axla byrðarnar. Það er uppgjöf og ábyrgðarleysi að vilja eyða því lífi, sem kviknað hefur, nema í neyðartilfellurp. Það er ekki víst að konan geti síðar eignazt barn, og tækifæri geta því verið glötuð. Og hvað um annað tilverustig? Allt er okkur gefið eða lánað, og allt er af okkur tekið að lokum. Þau eru ekki mörg manndómsár- in. Ber okkur þá ekki að gera okkar bezta á meðan heilsa og orka endist? Þegar aldurinn fær- ist yfir og litið er til baka þá finnst manni lífið hafa liðið fljótt. Þá vaknar gjarnan sú spurning: Hefi ég gert skyldu mína, hefði ég ekki getað gert betur? Því ekkert kemur aftur til baka. Þó engir tveir einstaklingar eigi við sömu aðstæður að búa þá er alltaf erfitt að ganga með barn og ennþá erfiðara að ala þau upp. En oftast er það þó svo að hjá móðurinni eru björtustu minning- arnar tengdar börnunum og ef til vill hvað helzt fæðingunni, og erfiðleikarnir gleymast. Og er ekki von að þeir skilji það, sem ekki hafa reynt. Og svo taka barna- börnin við og gefa efri árunum tilgang, ef allt er með felldu. Eitt okkar gömlu góðskálda, Indriði Þórkelsson, kemst svo að orði í kvæðinu „Móðir mín“: En til þess ÓKrynni elju þarf ok undur af kærleika sönnum að Kera dýrsleKa óvita að — þótt ekki sé nema — mönnum. Ok þau hin marKbrotnu. miklu störf á móðurherðunum hvíla. en faðirinn hlýtur. svo farnist vel. að friða að utan ok skýla. Að endingu læt ég hér fylgja þrjú erindi úr kvæðinu „Ljósmóð- ir“ eftir Guðmund Friðjónsson: Hún leKKur á móðurbrjóst lítið barn. sem lífið ef til vill kastar á hjarn. Ok hennar skuld er ei harmur né tre^i þó hrynji blóðreKn á förnum veKÍ. í KserdaK fæddi ein KöfuK frú ann KÍókoll er auðKa mun þjóðarbú. fyrri nótt tók hún við ærslaanKa. sem eÍKnaðist klæðlítil flæðiskers ManKa. En hann K<*tur vel orðið horskur sveinn ok haminKju réttnefndur auKasteinn ef heitstrenKÍnK vinnur ok hana metur — sem huKanum lyftir ok manndiím hvetur. Þeir kunnu að koma hugsunum sínum í búning, þessir skáldbænd- ur. Svona var hugsað þá og svona þarf að hugsa ef vel á að fara. Konur, verum þess minnugar að okkur er trúað fyrir miklu og verum stoltar af. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Sandi, Aðaldal. Nýtt námsefni í samfélagsfræði fyrir grunnskóla RÍKISÚTGÁFA námsbóka hefur gefið út nýtt námsefni í samfé- lagsfræði sem ætlað er til notkun- ar í 4. bekk grunnskóla. Efnið er gefið út í samvinnu við Mennta- málaráðuneytið, skólarannsókna- deild, og hefur samheitið Sam- skipti. Höfundur er Ingvar Sigur- geirsson. í námsefninu er mikill fjöldi ljósmynda og teikninga sem flestar eru gerðar af Árna Elfar. Nemendabækurnar eru þrjár: 1. „ÚLFABÖRN“. Frásagnir af svokölluðum „úlfabörnum", þ.e. börnum sem talið er að hafi alist upp án mannlegs samneytis. Þessu efni er ætlað að leiða huga nem- enda að áhrifum félagslegs um- hverfis og vekja ýmsar forvitni- legar spurningar um hegðun og félagsleg samskipti. 2. „SINN ER SIÐUR í LANDI HVERJU". Dæmi um ólíka siði og venjur. Sérstakur gaumUr er gef- inn að siðum og venjum í Japan og siðir þar bornir saman við siði og venjur hér á landi. Einnig er fjallað um ólíka kveðjusiði, siði á íslandi áður fyrr, þjóðhætti o.fl. 3. „TIL HVERS ERU REGL- UR?“ Efni þessarar bókar er ætlað að vekja nemendur til um- hgsunar um reglur og lög í samskiptum fólks. Kápur þessara bóka eru plast- húðaðar sem er nýjung hjá Ríkis- útgáfunni. Einnig hefur komið út hjá Ríkisútgáfu námsbóka ný kennslubók í samfélagsfræði handa grunnskólum, Komdu í leit um bæ og sveit, 2. eining, sem gefin er út í samvinnu við Mennta- málaráðuneytið, skólarann- sóknadeild. Komdu í leit um bæ og sveit 2 er námsefni fyrir 2. námsár grunn- skóla. Efni þetta er framhald af námsefninu Komdu í leit um bæ og sveit 1. Húsaleigu má nú miða við vísitölu húsnæð- iskostnaðar RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið. að framvegis verði heimilt að miða húsaleigu við vísitölu hús- næðiskostnaðar í samræmi við tilkynningar frá Ilagstofu íslands. Verðlagsstofnun hefur verið fal- ið eftirlit með framkvæmd máls- ins; Ákvörðun ríkisstjórnarinnar gildir frá 1. apríl 1980.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.