Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
Vorsöngur á Suðurlandi
Hinir árlegu vortónleikar Sam-
kórs Selfoss hefjast í þessari
viku.
Þeir verða í Selfossbíói,
fimmtudaninn 10. apríl. þriðju-
daginn 15. apríl, háða dagana kl.
21 ok sUnnudaKÍnn 20 apríl kl.
16.
í Þjórsárveri verða tónleikar
fimnjtudaginn 17. apríl og Arnesi
föstudaginn 18. ajjríl, á báðum
stöðunum kl. 21. A efnisskrá eru
lög eftir innlenda og erlenda
höfunda, þar á meðal stjórnanda
kórsins, Björgvin Þ. Valdimars-
son.
Þá er einnig ákveðið að halda
sameiginlega tónleika með Árnes-
ingakórnum í Reykjavík og verða
þeir í Bústaðakirkju laugardaginn
12. apríl kl. 17.
Undirleikari Samkórs Selfoss er
Geirþrúður Bogadóttir.
Smábátaeigendur í Keflavík og Njarðvík:
Leggja áherslu á bætta hafnaraðstöðu
BLAÐINU hefur borist eftirfar-
andi fréttatilkynning frá smá-
hátaeigendum í Keflavík og
Njarðvík:
„Félagsfundur sextíu smábáta-
eigenda í Keflavík og Njarðvík var
haldinn í Gagnfræðaskólanum í
Keflavík hinn 23. marz s.l. Aðal-
Félagsmálaráðherra hefur skipað
fimm manna nefnd er hcfur m.a.
þau verkefni að endurskoða gild-
andi reglugerð um brunavarnir og
brunamál og gera úttekt á starf-
semi Brunamálastofnunar rikisins
eins og háttar til í dag.
Einnig er nefndinni ætlað að gera
tillögur um æskilegar breytingar á
starfssviði og starfsemi stofnunar-
innar í framtíðinni og gera tillögur
um skipulag brunavarna í landinu
umræðuefni fundarins var vöntun
á hafnaraðstöðu fyrir þeirra smá-
bátaflota.
Formaður landshafnarstjórnar
Keflavík — Njarðvik, Halldór
Ibsen, mætti á fundinum og skýrði
nákvæmlega frá þeim verkefnum
er fyrir lægju svo bráð aðkallandi,
almennt, tengsl þeirra mála við
ýmsa aðra þætti t.d. tryggingar,
fræðslumál, byggingareftirlit o.fl.
Nefndinni er ætlað að skila tillögum
innan sex mánaða.
Nefndarmenn eru: Edgar Guð-
mundsson verkfræðingur, Gísli Kr.
Lorenzson varaslökkviliðsstjóri Ak-
ureyri, Héðinn Emilsson deildar-
stjóri, Magnús Skúlason arkitekt og
Guðmundur Magnússon verkfræð-
ingur, sem jafnframt er formaður
nefndarinnar.
að fjárhagsafkoma hafnarinnar og
um leið byggðarlaganna byggðist á
því.
Þær framkvæmdir yrðu að ganga
fyrir öllu öðru, en fé svo takmark-
að, að vandamál smábátaeigenda
yrði ekki hægt að leysa nú. Allir
fundarmenn skildu þessar aðstæð-
ur, en lögðu áherslu á að þetta
vandamál smábátaeigenda yrði
leyst um leið og áætlun um breytt
skipulag iðnaðarmálaráðuneytis
um skipaviðgerðir á Suðurnesjum
kæmi til framkvæmda, þar sem
ólgandi sjómannsblóð svellur í æð-
um flestra Suðurnesjamanna, er
það þrá eldri og yngri, að eignast
2—10 tonna báta til að veiða innan
buktar og á grunnslóðum út af
Skaga.
Reynslan hefur sýnt, að oft hefur
mikill afli borist á land frá þessum
litlu fleytum.
Á fundinum voru fjörugar um-
ræður og fastur ásetningur, að
yfirstíga alla erfiðleika, þar til
fenginn væri aðstaða fyrir smá-
bátaeigendur Suðurnesja."
Nefnd endurskoði starfsemi
Brunamálastofnunarinnar
Ferðakynning hjá
Norræna félaginu
NORRÆNA félagið hefur
tryggt sér sæti handa félögum
sínum og öðrum er með því
vilja ferðast á komandi sumri
til þriggja bæja í Norður-
Skandinavíu. þ.e. brándheims
og Tromsö í Noregi og Luleá í
Svíþjóð. Þá efnir félagið til
Færeyjaferða og ferðar til
Orkneyja og Hjaltlands.
í kvöld verða allar þessar
ferðir kynntar á fundi í Nor-
ræna húsinu kl. 20:30. Þar
verður einnig greint frá nor-
rænu æskulýðsmóti í Vástervik
í Svíþjóð og norrænu fjöl-
skyldu- og vináttumóti á Al-
andseyjum en hvort tveggja
verður í ágústbyrjun.
Færeyjaferðir kynnir for-
maður félagsins Hjálmar Ól-
afsson. Ferðina til Órkneyja og
Hjaltlands kynnir Finnbogi
Guðmundsson, landsbókavörð-
ur og ferðirnar til Norður-
Skandinavíu kynna Helgi Jó-
hannsson og Pétur Kristjóns-
sori. Ferðirnar verða kynntar í
máli og myndum.
Allt áhugafólk, bæði félags-
menn Norræna félagsins og
aðrir eru velkomnir á fundinn.
Með ferðum þessum vill Nor-
ræna félagið leitast við að
kynna þá staði á Norðurlönd-
um, sem erfiðast er að komast
til og tiltölulega fáir hafa
heimsótt og með Orkneyja- og
Hjaltlandsferðinni vill félagið
leiða áhugafólk í fótspor nor-
rænna víkinga.
Halldór Þ. Guðmundsson
Framkvæmdastjóri
Cargolux Airlines Inc.
CARGOLUX S/A hefur stofnað
félagið Cargolux Airlines Inc. i
USA og hefur Halldór Þ. Guð-
mundsson forstöðumaður við-
gerða- og verkfræðideildar
Flugleiða verið ráðinn sem
framkvæmdastjóri.
Halldór hefur unnið hjá Loft-
leiðum og síðar Flugleiðum í
rúmlega 33 ár, lengst af sem
yfirmaður viðgerða- og verk-
fræðideildar. Var hann einnig
framkvæmdastjóri sömu deildar
hjá Cargolux S/A fyrstu ár þess
og síðar í stjórn þess félags um
árabil.
Höfuðstöðvar Cargolux Air-
lines Inc. verða á Miami, Florida
og verður Halldór staðsettur
þar.
INNLENTV
Háskólakórn-
um vel f agnað
á Egilsstöðum
KKÍIsstnöum 31. mar/
Iláskólakórinn hélt tónleika í Egilsstaðakirkju sl. laugardag
við ágæta aðsókn. Stjórnandi kórsins er Ruth L. Magnússon og
voru áheyrendur mjög ánægðir með tónleikana. sem tókust í
alla staði fráhærlega.
Það er samdóma álit tón-
listarfólks að hljómburður í Eg-
ilsStaðakirkju sé með því bezta
sem gerist.
I vetur hefur verið unnið af
fullum krafti við bygginga-
framkvæmdir hér. Nú stendur
yfir bygging níu íbúða stigahúss
á vegum byggingafyrirtækisins
Brúnás. Þorsteinn P. Gústafsson
framkvæmdastjóri sagði að ein-
stök tíð hefði verið nú seinni
hluta vetrar og að í febrúar sl.
hefði jarðhæð stigahússins verið
steypt, en nú er verið að slá upp
fyrir fyrstu hæðinni, sem steypt
verður innan skamms. Langt er
siðan hægt var að vinna aö
steypuvinnu á Egilsstöðum á
þessum árstíma.
Mikið annríki hefur verið á
Egilsstaðaflugvelli undanfarið.
Nemendur hafa verið að fara og
koma í páskafrí. Sú breyting
hefur orðið á við komu Mennta-
skólans að jafn mikill straumur
ungs fólks er nú til Egilsstaða
eins og frá við öll meiriháttar frí
í skólum. í vetur voru um 100
nemendur í M.E.
Mikil vandræði steðja nú að
M.E. þar sem allt húsnæði vant-
ar fyrir kennara og verður vaf-
asamt um áframhaldandi
kennslu í skólanum næsta vetur
ef ekki verður úr húsnæðis-
vandamálum kennara bætt. Þeir
kennarar, sem nú starfa hafa
allir verið í bráðabirgðahúsnæði,
sem vafasamt má teljast að hæfi
fjölsk.yldufólki. Standa nú yfir
viðræður við menntamálaráðu-
neytið um lausn þessa vanda og
hefur verið bent á sem lausn
íbúðir í fjölbýlishúsinu er Brún-
ás er að byggja, en þær gætu
verið tilbúnar næsta haust.
Pétur Thorsteinsson hefur
verið á ferðalagi um Austurland
alla síðustu viku og haldið fundi
á mörgum vinnustöðum og heim-
sótt bændur vítt og breitt. Má
nefna að í Neskaupsstað sóttu
um 100 manns fund hans í
frystihúsinu og fékk hann alls
staðar frábærar undirtektir.
Fréttaritari.
Ruth L. Magnússon stjórnar Háskólakórnum i Egilsstaðakirkju.
Frá byggingarframkvæmdum á Egilsstöðum