Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
Flugleiöir:
Annríki
við viðhald
og viðgerðir
mikið
Mikiö annríki hefur veriö á viöhalds- og viögerðaverkstæð-
um Flugleiöa á Reykjavíkurflugvelli síðustu vikurnar en þar
vinna aö jafnaöi 80—90 manns. Þar hefur veriö unniö aö
breytingum og viögeröum á Fokker Friendship flugvélunum
sem keyptar voru frá Kóreu í nóvember sl., en vélarnar komu
til landsins í janúar og febrúar. Tvær þessara flugvéla voru
síöan seldar til finnska flugfélagsins Finnair, og hefur einkum
veriö lögö áherzla á aö Ijúka breytingum á þeim, þar sem
ski[a á vélunum til Finnlands í aprílmánuði.
Áöur hafa Flugleiöir selt tvo eldri Fokkera til Kar-Air í
Finnlandi, en í staö þeirra voru vélarnar fjórar keyptar frá
Kóreu. Ein Kóreuvélanna var stærri og buröarmeiri en hinar,
en meö þeim breytingum sem nú hafa verið geröar á flota
Flugleiöa af Fokkerum hefur flotinn veriö staölaöur, þ.e.
varahlutir og tæki eru í öllum tilfellum hin sömu, en svo var
ekki í fyrrahaust áöur en sölurnar og kaupin voru gerö.
Á blaöamannafundi hjá Flugleiöum kom fram aö svo miklar
breytingar á flugvélum fyrir erlend fyrirtæki heföu ekki farið
áöur fram á íslandi. Væri hugmyndin jafnvel aö halda áfram
starfsemi af þessu tagi, „viö erum mjög bjartsýnir á aö
áframhald veröi á þessum „útflutningi", sagöi Sveinn
Sæmundsson blaöafulltrúi Flugleiöa á fundinum. Sveinn
sagöi aö til skamms tíma heföi veriö rætt um aö hætta
framleiöslu Fokker Friendship flugvéla á árinu 1980, og
framleiðslan komin niöur í eina flugvél á mánuöi. Komiö heföi
hins vegar í Ijós aö þessar flugvélar væru hagkvæmari en
margar þotur, og heföi eftirspurn eftir þeim aukist gífurlega,
einkum þar sem væri aö opnast fyrir þær markaöur í
Bandaríkjunum. Sagöi Sveinn aö verksmiöjurnar heföu aukiö
framleiöslu sína nýlega í tvær flugvéiar á mánuöi og væri
jafnvel um þaö rætt aö auka framleiösluna í þrjár vélar á
mánuöi.
í samningnum um sölu flugvélanna til Finnair var m.a.
kveöið svo á aö Flugleiðir skiptu um mælaborö í vélunum en
mælaborö sem starfsmenn Flugleiða hönnuöu þykir eitt hiö
fullkomnasta í heiminum. Skipt er um öll fjarskiptatæki og
flugleiösögutæki en aöeins þeir mælar sem tilheyra hreyflum
flugvélarinnar sjálfrar veröa notaðir áfram. Mælaboröin sem
nú veröa sett í þessar vélar voru hönnuö hjá Flugleiöum fyrir
4 árum síöan og búin fullkomnustu tækjum sem völ er á. Þau
voru síðan sett í allar fimm Fokker Friendship flugvélar
Flugleiöa og hefur þetta reynst mjög vel. Á sama tíma er
unniö aö því aö koma skoöunarkerfi flugvélanna í sama horf
og Flugleiðir skipulögöu fyrir nokkrum árum og síðan hefur
veriö notaö viö skoðaríir á vélum félagsins.
Sem fyrr segir seldu Flugleiöir tvær elstu Friendship
flugvélar sínar til Kar-Air í Finnlandi nýlega. íslenskir
flugmenn munu fljúga þeim til Helsingfors þar sem þær veröa
afhentar á næstunni. Þegar hins vegar breytingum og
skoöunum á þeim tveim vélum sem seldar voru til Finnair
lýkur, þ.e. um 31. mars og 14. apríl, munu finnskir flugmenn
sækja þær flugvélar og fljúga þeim til Finnlands. í ráöi er að
áframhaldandi tæknisamvinna veröi milli Flugleiöa og Finnair
varöandi þessar flugvélar. Flugleiöir munu aöstoöa viö
skoöanir á vélunum o.s.frv.
Skoöanir á þeim tveim flugvélum sem keyptar voru frá
Kóreu og veröa í þjónustu Flugleiða eru hafnar. Þær veröa
útbúnar samskonar mælitækjum og aörar Friendship vélar
Flugleiöa en þó ekki aö fullu fyrr en í haust. Nú veröa sett í
þær svokölluö DME staösetningartæki og aukiö við fjar-
skiptatæki flugvélanna. Nýtt mælaborð og tæki veröa sett í
þessar flugvélar aö hausti. Flugvélin TR-FLR sem er af
geröinni MK 500 og tekur 56 farþega í sæti mun hefja flug um
nelgina. Hin flugvélin TF-FLO sem er af gerðinni MK 200 og
tekur 48 farþega- í sæti fer fljótlega í skoöun og veröur
væntanlega tekin í notkun um miöjan apríl.
Skipt um
innréttingu
í Fokker sem
seldur var Finnair.
LjÓHitt. Mbl. KrÍHtján
Margir eru þeir
vírarnir og leiöslurnar
sem tengjast hinum
fullkomna tækjabúnaöi
Fokkerflugvélar.
Unniö aö því aö skipta
um raflögn.
I mörg horn er aö líta,
þegar Fokkerflugvél er
tekin til gaumgæfilegrar
skoöunar. Hér athugar
flugvirki hvort ekki sé
allt eins og þaö á aö
vera á ísvarnarbúnaði
vinstra vængs. Ljósm.
Mbl. Kristján. J
Hverjum
mundi
detta í hug
aö þetta væri
trjóna
á Fokker?
I v —>jT- I
lyBBri" ~ - m I HBgraS ■■ * "■* bpi
WBjÍí '
■ *** BBlBy ^ T8HiW!: