Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 37

Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 37 Frá undankeppninni sem fram fór um bænadagana á Hótel Loftleiðum. Talið frá vinstri: Sölvi Helgason, Orwelle Utlay, Tryggvi Gislason (áhorfandi að þessu sinni), Aðalsteinn Jónsson <>k Ingvar Hauksson. I.jósm. Arnór. Barðstrendinga- félagið í Reykjavik Nú er lokið barómeterskeppn- inni, með glæsilegum sigri þeirra Sigrúnar Straumland og Kristínar Kristjánsdóttur og fengu þær 200 stig. Arangur næstu para varð þessi: stig Þórarinn Árnason — Ragnar Björnss. 126 Baldur Guðmundsson —Þorvaldur Lúðvíkss. 86 Viðar Guðmundsson — Hörður Davíðsson 86 Viðar Guðmundsson —Birgir Magnússon 83 Gunnlaugur Þorsteinsson —Hjörtur Eyjólfsson 63 Ragnar Þorsteinsson —Eggert Kjartansson 53 Svo Ijúkum við vetrarstarf- seminni með tveggja kvölda ein- menningskeppni hinn 21. og 28. apríl og er þegar fullbókað í keppnina. Keppni um landsliðssætin Dagana 18.—20. apríl er fyrir- hugað að halda tvímennings- keppni með Butler-sniði, sem er liður í keppni um landsliðssæti í opnum flokki 1980. Tvö efstu pörin í mótinu öðlast rétt til að velja með sér par, sem hefur tekið þátt í mótinu, og mynda þannig sveitir. Þessar tvær sveitir koma síðan til með að heyja einvígi um landsliðsrétt- inn. Þátttaka er miðuð við 16 pör og skulu þátttökutilkynningar hafa borist Bridgesambandi íslands, Laugavegi 28, ekki síðar en 12. apríl. Ef fleiri en 16 pör sækja um þátttöku áskilur stjórn B.S.Í. sér rétt til að velja úr umsóknum. Landsmót fram- haldsskólanema Landsmót framhaldsskóla- nema í sveitakeppni var haldið í Menntaskólanum á Laugarvatni dagana 28.—30. mars. Mótinu Brldge Umsjón* ARNÓR RAGNARSSON lauk með sigri sveitar Mennta- skólans í Reykjavík, sem sigraði sveit Menntaskólans í Hamra- hlíð í úrslitaleik. í þriðja sæti varð sveit Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Sigursveitina skipa: Karl Logason, Þráinn Hreggviðsson, Ólafur Als, Einar Valdimarsson. Keppnisstjóri var Guðmundur Sv. Hermannsson. Bridgefélag Kópavogs S.l. fimmtudag var haldið áfram barometer-tvímennings- keppninni og hafa nú verið spilaðar 20 umferðir af 29. Besta árangri kvöldsins náðu: stig Ragnar Björnsson — Sævin Bjarnason 149 Óli M. Andreasson — Guðmundur Gunnlaugs. 107 Guðmundur Arnarson — Sverrir Ármannsson 78 Sigrún Pétursdóttir — Valdimar Ásmundss. 56 Garðar Þórðarson — Leifur Jóhannss. 49 Baldur Bjartmarsson — Helgi Skúlason 49 Eftir 20 umferðir eru þessir efstir: stig Guðm. Arnarson — Sverrir Ármannss. 249 Vilhj. Sigurðsson — Sig. Vilhjálmss. 189 Ragnar Björnsson — Sævin Bjarnason 188 Sigrún Pétursdóttir — Valdimar Ásmundss. 155 Karl Stefánsson — Birgir ísleifss. 114 Jón Andrésson — Valdimar Þórðars. 101 Keppninni verður haldið áfram fyrsta fimmtudag eftir páska. Bridgefélag kvenna Parakeppni hjá bridgefélagi kvenna er nú lokið. Alls tóku 36 pör þátt í keppninni. Spilað var í fimm kvöld og voru spiluð 33 spil á kvöldi. Úrslit urðu sem hér segir: Halla — Jóhann 969 Sigrún — Magnús 959 Dóra — Guðjón 909 Kristjana — Guðjón 908 Sigrún — Ríkharður 906 Kristín — Jón 901 Ingibj. — Sigvaldi 887 Gunnþórunn — Þórh. 874 Ólafía — Baldur 868 Erla — Gunnar 855 Guðríður — Sveinn 850 Sigríður — Jóhann 845 Næsta keppni félagsins er hraðsveitakeppni, og er hún blönduð keppni þannig að karl- mönnum er velkomið að mynda sveit með kvenfólkinu. Væntan- legir þátttakendur láti skrá sig hjá formanni félagsins Ingunni Hoffmann í síma 17987. Félag bifreiðasmiða: Vagnakaupendur snúi sér til innlendra aðila FÉLAG bifreiðasmiða hélt aðal- fund hinn 25. febrúar sl. og var hann haldinn í Leifsbúð, Hótel Loftlciðum. Fundurinn fór hið besta fram og var öll stjórnin endurkjörin, samþykkt var að stjórn félagsins semdi ályktun um smíði yfirbygginga hér á landi og fylgir hún hér á eftir. Stjórn félagsins er nú þannig skipuð: Ásvaldur Andrésson for- maður, Egill Þ. Jónsson varafor- maður. Kristfinnur Jónsson gjald- keri, Bragi Pálmason ritari, Guð- mundur Ottósson vararitari. Ályktunin er svohljóðandi: „Félag bifreiðasmiða telur eðlilegt og nauðsynlegt stéttarinnar vegna að stuðlað sé að eðlilegri þróun og atvinnulegs öryggis við smíði yfir- bygginga á strætisvagna og lang- ferðabíla auk annarra yfirbygginga hér á landi. Til þess að svo megi verða þarf að gera innlendum aðil- um kleift að fást við þau verkefni sem fyrir liggja á hverjum tíma, annaðhvort einir sér, eða í samvinnu við erlenda aðila ef slíkt er talið heppilegra á meðan uppbygging íslenskra verkstæða væri fram- kvæmd, svo þau yrðu samkeppnisfær við erlenda aðila, hvað verð og tæki áhrærir. Leiðrétta þarf tollakerfið þannig að tollar séu ekki aðrir og langtum hærri af efni til smíðanna, heldur en ef efnið kemur unnið að utan. Nú er þarna um hrópandi mismun að ræða, sem gerir yfirbyggingar- verkstæðin að miklum mun ósam- keppnishæfari en ella. Félag bifreiðasmiða vill benda á að eitt af grundvallaratriðum þess að smiðj- urnar séu starfs- og samkeppnishæf- ar er að verkefni séu skipulögð fram í tímann, þannig að ekki verði um óeðlilega dauða tíma að ræða. Félag bifreiðasmiða vill beina því til þeirra aðila sem nú eru að huga að stórfelldum vagnakaupum, að beina viðskiptum sínum til inn- lendra aðila, til þess að standa við bakið á innlendum iðnaði og til þess að flýta fyrir frekari uppbyggingu þessarar 50 ára starfsgreinar hér á landi.“ Hreiðar Guðlaugs- son — Kveðjuorð Er hel i fanKÍ. minn holl vin ber. þá sakna ók einhvers af sjálfum mér. (Stefán frá Ilvitadal.) Þó nokkuð sé liðið frá láti vinar míns og svila, Hreiðars Guð- laugssonar, langar mig til að minnast hans með nokkrum orð- um. Hreiðar andaðist í Land- spítalanum 1. febrúar eftir átta mánaða hetjulega baráttu við ill- kynjaðan sjúkdóm. Hreiðar var fæddur í Reykjavík 22. júní 1922, sonur hjónanna Ingveldar Hróbjartsdóttur og Guðlaugs Helga Vigfússonar mál: arameistara, þau eru bæði látin-.H Laugarnesinu ólst Hreiðar upp til fullorðinsára í foreldrahúsum ásamt þrem systrum sínum. Þegar aldur og geta leyfði hóf hann störf bæði til sjós og lands, m.a. við akstur hjá Olíuverslun Islands. Árið 1943 kvæntist Hreiðar Ólínu Kristinsdóttur, hinni mestu ágætiskonu, sem reyndist honum hinn besti lífsförunautur. Hún bjó manni sínum fallegt og vistlegt heimili. Þau hjónin eignuðust tvo myndar syni, Gunnlaug mat- reiðslumann og Helga Má lofskeytamann. Gunnlaugur er kvæntur Kolbrúnu Guðmunds- dóttur og eiga þau 3 börn, Hreiðar, Rósu og Ólaf Má. Helgi Már er kvæntur Guðrúnu Sigmundsdótt- ur, á hún eina dóttur Lilju Hrönn. Barnabörnin voru Hreiðari mjög ástkær og verða samverustundir þeirra með afa sínum þeim gott lífsvegarnesti. Fyrir 25 árum síáan verður þáttaskil í lífi Hreiðars, er hann ræðst til starfa fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur, þar starfaði hann til dauðadags. Eitt sinn nefndi hann við mig,að það hefði verið eitt af sínum gæfusporum að hefja störf þar, því þar líkaði honum vel, vinnan að hans skapi, svo og yfirmenn og starfsfélagar. Hjá stóru útgerðarfélagi sem B.Ú.R. vill oft verða mjög erilsamt, þegar togarar fyrirtækisins koma að landi og mikið lá við að afgreiða þá skjótt og hömlulaust, svo þeir kæmust sem fyrst til veiða á ný. Þá aut Hreiðar sín bezt, enda var hann hamhleypa til vinnu, þannig að aðrir hrifust með. Að loknu erfiðu verki var oft slegið á léttari strengi, og gamanyrði látin fjúka. Með Hreiðari og Sigurði Krist- jánssyni, yfirverkstjóra, tókst fljótt mjög náin vinátta, sem entist til dauðadags og reyndist Sigurður honum sem bezti bróðir í erfiðri sjúkdómslegu hans. Hreiðar var vel að manni gerð- ur, bæði til líkama og sálar, einna helst fannst mér einkenna hann hve ákvarðanafljótur og úrræða- góður hann var, þegar svo bar undir. Hann var að eðli sínu viðkvæmur maður, bóngóður með afbrigðum og vildi hvers manns vanda leysa. Barngóður var hann með afbrigðum og hændust börn mjög að honum. í ættingja- og vinahópi var Hreiðar alltaf hrók- ur alls fagnaðar. Útiveru naut Hreiðar í ríkum mæli, var mikill áhugamaður um laxveiði, og hafði yndi af því að ferðast. Var vart betri ferðafélaga að hafa. Minnist ég ógleymanlegrar ferðar, sem fjölskyldur okkar fóru saman í hringferð um landið á þjóðhátíð- arárinu 1974. Fyrir um 30 árum tengdumst við nánum fjölskyldu- og vináttu- böndum. Þegar litið er til baka, koma upp í hugann margar minn- ingar umánægjulegar samveru- stundir, sem fjölskyldur okkar áttu saman. Við munum ávallt minnast heimsóknana til þeirra hjóna í Ásgarðinn, þar ríkti gestr- isnin og vináttan í fyrirúmi. Þrátt fyrir að vegir okkar skildu fyrir nokkrum árum, er við fluttum af landi brott, rofnaði trygglyndi hans við okkur ekki. Við héldum uppi reglulegu sambandi í formi þess að tala inn á segulbandsspól- ur. Það voru alltaf gleðistundir, þegar okkur barst spóla frá þeim hjónum. Þar skýrði Hreiðar okkur ávallt frá þeim málum, sem voru efst á baugi í huga hans. Á síðustu spólunni, sem við fengum frá honum, vildi hann lítið ræða veikindi sín, sagðist hafa það sæmilegt og að þetta myndi allt lagast með hækkandi sól. Hann var þá orðinn helsjúkur, en svo hress og kátur að okkur fannst. Hann endaði á því að þakka okkur fyrir skútu, sem við höfðum sent honum: „Þetta er ljómandi falleg skúta, og hún er nú tilbúin til siglingar." Skömmu síðar var hann allur. Ég bið þess að land- takan hinum megin við móðuna miklu hafi verið honum léttbær. Við þökkum honum fyrir sam- fylgdina og biðum Guð að blessa minninguna um góðan dreng. Los Angeles, í marz 1980. Torfi Þ. Ólafsson. Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð viö andlát og útför INGUNNARJÓNSDÓTTUR Skálafelli Suöursveit Jón Gíslason og aðrir aöstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.