Morgunblaðið - 10.04.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
41
fclk í
fréttum
+ Hér er bandaríski kvikmyndaleikarinn og söngvarinn Andy Williams á
söngæfingu undir upptöku á hinum vinsæla sjónvarpsþætti „Prúðuleikararnir“.
Hönnuður allra leikendanna í þessum vinsæla þætti, Jim Henson, hefur hér gert þrjú
mismunandi aíbrigði af Andy sjálfum. til að koma fram í þessum sjónvarpsþætti með
honum, en Andy var gestur þáttarins og mun upptaka hafa farið fram nú fyrir
skemmstu.
7 ára
smyglari
+ 7 ára gamall drengur
komst í fréttadálka
blaða víða um heim
fyrir skömmu. Hann
hafði verið meðal far-
þega í flugvél, sem kom
til New York frá Kens-
ington á Jamaica.
Fíkniefnalögreglan á
flugvellinum stóð einn
farþeganna að fíkni-
efnasmygli með 11 pund
af marijuana í farangri
sínum. Lögreglan
komst í nokkur vand-
ræði, því smyglarinn er
aðeins 7 ára gamall
drengur. Hann hélt á
leikföngum í annarri
hendinni, en í hinni á
saklausum böggli eins
og þeim sem farþegar fá
tíðum um borð í flugvél-
unum. Lögreglan tók
þennan böggul til at-
hugunar og kom þá í
ljós að hann var troð-
fullur af marijuana.
Lögreglan sagði þetta
vera ekki einsdæmi.
Fleiri og fleiri dæmi
væru um að foreldrar
leigðu börn sín til suð-
urferða til eyja á Kara-
bíska hafinu, sem farn-
ar væru til þess að láta
börnin flytja fíkniefni
heim með sér. Þess eru
dæmi, sagði talsmaður
lögreglunnar, að sami
krakkinn hafi farið
fleiri ferðir suður en
jafnvel flugstjórarnir!
+ Þessi óttaslegni maður, sem hér er í höndum italsks
lögreglumanns, er forseti hins fræga ítalska knattspyrnu-
liðs A.C. Milan, Felice Colombo. AP-ljósmyndari tók
myndina er komið var með Colombo til fangelsisins í
Rómaborg, en í kjölfar handtöku hans voru 12 fótbolta-
stjörnur úr Milan-liðinu handteknar. Blöð á Ítalíu segja
að um sé að ræða mesta hneyksli, sem um getur í ítalskri
knattspyrnusögu, um sé að ræða mútur til að hafa bein
áhrif á úrslit leikja sem Milan lék og var Milan-liðið látið
tapa leikjum.
+ í eina tíð var þessi kona tiðum
í fréttum heimspressunnar. Nú
hefur nafn hennar tæplega verið
nefnt um árabil. Þetta er fyrrum
dansmey og forseti Argentínu.
Isabeia Perón. ekkja Perons Arg-
entínuforseta. Hún var látin
taka við forsetaembættinu er
hann féll frá fyrir 5 árum. Hcnni
var þó brátt vikið til hiiðar og
skellt á bak við iás og slá. Nú
hefur Isabeia verið í haldi hjá
Argentínustjórn á fimmta ár. Er
höfð í stofufangclsi undir stöð-
ugu eftirliti, um 160 km frá
Buenos Aires. Páfagarður hefur
reynt að fá yfirvöldin í Arg-
entinu til þess að sleppa ísabelu.
sem nú er 49 ára. án árangurs.
Suðurneskjakonur
Líkamsþjálfun — Leikfimi
Nýtt 5 vikna námskeiö hefst mánudaginn
14. apríl í íþróttahúsi Njarövíkur.
Dag og kvöldtímar.
Styrkjandi og liökandi, æfingar fyrir
dömur á öllum aldri.
Uppl. og innritun í síma 2177 og 6062.
Birna Magnúsdóttir.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið aö notfæra sér viötalstima þessa.
Laugardaginn 12. apríl verða til viðtals Ólafur B.
Thors og Hilmar Guölaugsson. Ólafur er í stjórn
Landsvirkjunar, samstarfsnefnd um löggæslumálefni
Reykjavíkur, stjórn sjúkrastofnana. Hilmar er í
byggingarnefnd, húsaleigunefnd, stjórn Ráðningar-
stofunar, og stjórn veitustofnana.
Það nýjasta á hverjum tíma af hinum glæsilega
íslenska ullar- og skinnfatnaöi ásamt fögrum skart-
gripum veröur kynnt í Blómasal á vegum íslensks
heimilisiönaðar og Rammagerðarinnar. Modelsam-
tökin sýna.
Víkingaskipiö vinsæla bíður ykkar hlaðið gómsætum
réttum kalda borðsins auk úrvals heitra rétta.
Guöni Þ. Guðmundsson flytur alþjóölega tónlist,
gestum til ánægju.
Tískusýning
aö Hótel Loftleiöum
alla föstudaga kl. 12.30—13.00.