Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 KAFr/NO Pabbi þú veist að litli bróðir lekur líka á nóttinni? Ég segi þeir kunna vel til verka, hvað sem öðru líður! Rauðir húfusveppir eru ber- sýnilega baneitraðir! Skoðanir og staðreyndir BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Skemmtilegt atvik kom fyrir þegar feðgarnir Oswald og Jim Jacboy mættust eitt sinn í sveita- keppni. Andstæðingar i þetta skiptið og voru reyndar báðir í sæti suðurs en á sitt hvoru borðinu. Austur gaf, allir á hættu. Norður S. K2 H. Á982 T. K863 L. 965 COSPER Vestur S. G10983 H. D764 T. - L. DG32 Austur S. Á76 H. 105 T ÁG9754 L. 87 Suður S. D54 H. KG3 T. D102 L. ÁK104 Sagnirnar á borði föðurins urðu T7 C0SPE.R Hvernig ætli manni líði, eftir einn beinan vinstri? í útvarpsþættinum „Víðsjá" 1. apríl sl. — ég hygg, að hin sérstaka dagsetning hafi hér enga þýðingu — svaraði herra biskup- inn yfir íslandi, Sigurbjörn Ein- arsson, ýmsum spurningum, sem til hans var beint og hafa svör hans vakið athygli margra, og ekki hvað sízt þá vegna hliðstæðu þeirra við skoðanir, sem fram komu í réttarhöldunum yfir séra de Nantes í Frakklandi, sýndum í sjónvarpi um líkt leyti. — Biskup- inn hélt því fram að guð væri persónulegur, og þar sem ég ætla að færa megi „heimspekileg og vísindaleg" þ.e. skynsamleg og heiðarleg rök fyrir því, að svo sé, finn ég ekkert athugavert við þá fullyrðingu hans. — Nokkuð öðru máli gegnir um hinn vígtennta, hóffætta og halaskrýfða íbúa járnkjarnans í miðju jarðar, sem menn hafa stundum kallað and- stæðu guðs, en biskup vildi, hik- andi þó, telja hann til eðlisþátta tilverunnar. íslendingar hafa lengi verið næsta ófúsir að tileinka sér þann boðskap, og munu jafnvel telja það hættumerki, þegar fer að örla á slíkri skoðun. Þó verður að ætla, að slíku sé ekki án tilefnis haldið fram. Munu ýmis fyrirbæri mannlífsins vera þess eðlis, að mönnum hljóti að hrjósa hugur við, og grípa þeir þá til hinna ólíklegustu hugmynda sér til halds og trausts. En hugmyndir eru þess eðlis, að þær útheimta staðfestingu með beinum athug- unum. Mér dettur í hug, að Sigurbjörn Einarsson mundi vilja taka þátt í tilraun nokkurri í sannprófunar- átt, tilraun til að grafast fyrir um sannleikann — að vísu þó ekki niður í járnkjarna jarðar heldur aðeins tæpa tvo metra niður í moldina, til þess að komast að því, hvort eitthvað sem kalla mætti djöfullegt, hefði farið fram. Ég á við að rannsókn yrði gerð í máli, sem jörðin geymir úrskurð um. Vilji biskup veita atbeina sinn til slíkrar rannsóknar, skal ekki standa á mér að vera viðstaddur, til þess að gera grein fyrir afstöðu minni. 8.4. 1980. Þorsteinn Guðjónsson. • Nýtum orkulindirnar Nú er talið að vetni verði einn aðalorkugjafi framtíðar og þá er það nauðsyn að geta framleitt það á sem ódýrastan hátt. Margar þjóðir neyðast til að nota kjarn- þessar: Austur Suður Vestur Norftur Pass 1 Grand Pass 2 Lauf 2 Tíglar Pass Pass 3 Grðnd Pass Pass Pass Að vísu hefði verið meira upp úr þvi að hafa að spila tvo tígla doblaða við austur en gegn grönd- unum þrem spilaði vestur út spaðagosa. Oswald var ekki í vafa um hvernig best væri að stýra þessu spili. Vestur fékk að eiga fyrsta slaginn, spilaði aftur spaða og þriðja spaðann tók Oswald með drottningu. Mikið vantaði í spilið og búa varð til fjóra slagi. Sagnhafi byrjaði með að spila tígli á kónginn en austur tók og skipti í lauf. Sagnhafi tók á kóng og var þá í þeirri stöðu, að vilja gjarna fjóra slagi á hjarta ásamt svíning- unni, sem var örugg í tíglinum. Hann leysti þetta með því að spila hjartagosanum og svína þegar vestur lét lágt, hjartatían kom í kónginn, því næst níunni svínað og að því loknu urðu níu slagirnir auðveld bráð. Þegar borið var saman við leikslok kom i ljós, að sonurinn Jim hafði einnig fengið níu slagi í sama samningi. Og það sem meira var, hann hafði farið nákvæmlega eins að. Það er ekki skrýtið, að nafnið Jacoby hefur verið nátengt sögu bridsins í yfir 50 ár og sjálfsagt verður það svo enn um hríð. Alþjóðaheilbrigöismálastofnunin: Fjölgiin dreifingarstaða áfengis — meira tjón í ÍTARLEGRI greinargerð Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) um áfengismál frá 1979 er bent á að rannsóknir síðustu ára sýni að tryggasta leiðin til að draga úr tjóni af völdum áfengis sé að minnka heildarneysluna. Stofnunin bein- ir þvi til aðildarþjóða S.Þ. að beita ýmsum hömlum enda sé slíkt öruggasta ráðið til að draga úr neyslunni. Meðal þess sem bent er á til raunhæfra varna gegn þeim vá- gesti sem, að því er fram kemur í skýrslunni veldur stórfelldara tjóni, bæði heilsufars- og félags- lega, a.m.k. meðal iðnaðarþjóða, en nokkuð annað er fækkun dreifingarstaða áfengis. Ýmsar menningarþjóðir hafa brugðið við og leitast nú við að vinna og ræða málin á grundvelli þeim er WHO telur líklegastan til að reisa á forvarnarstarf. Má þar nefna Norðmenn, Svía og Banda- ríkjamenn. Frökkum hefur tekist að draga verulega úr áfengis- neyslu með fækkun dreifingar- staða og styttingu sölutíma þeirra. Þá segir m.a. í tilkynningu frá Áfengisvarnaráði: „Hérlendis eru umræður um þessi mál enn á stigi ófrjórra deilna og yfirlýsinga um hvað mönnum finnist eða hvað þeir halda. Málin eru rædd eins og ekkert hafi gerst á áttunda ára- tugnum og ekki er skírskotað til þeirra stofnana sem gerst þekkja til þessara mála, svo sem WHO, heldur einkaviðhorfa og persónu- legra hagsmuna. Að gefnu tilefni skal tekið fram að í áfengislögum segir: „Vínveit- ingaleyfi má binda þeim skilyrð- um sem dómsmálaráðherra telur nauðsynleg, m.a. er heimilt að binda leyfið eingöngu við veitingar léttra vína.“ Á línuriti þessu sést fylgni fjölgunar dreifingarstaða áfengis og aukningar neyslu í Noregi. Áfengisneysla eykst í réttu hlutfalli við fjölgun sölustaða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.