Morgunblaðið - 10.04.1980, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
Oskar aóeins sentimetra
frá Ólympíulágmarkinu
„Ég er ekki ánægður með þetta
ennþá, hef varpað yfir 19 metra
mót eftir mót, og varpa vel yfir
18 metra úr kyrrstöðu. Munurinn
er hlægilega lítill, ætti að vera
mciri, og bíð ég því enn eftir
stærri köstunum," sagði Óskar
Jakobsson frjálsíþróttamaður úr
ÍR i spjalli við Mbl. í gær, en á
frjálsíþróttamóti í Austin í Texas
um helgina, Texas Relays,, varp-
aði óskar kúlunni lengra en
hann hefur áður gert og kringl-
unni kastaði hann yfir 60 metra
eitt skiptið í viðbót.
nÞað vantar aðeins sentimeter
upp á Ólympíulágmarkið," sagði
Óskar sem varpaði 19,39 metra.
„Það má segja hið sama um
kringluna og kúluna. Ég tel mig
eiga talsvert inni í þeirri grein.
Hef alltaf verið óheppinn hvað
vind snertir. Hann hefur venju-
lega verið í bakið, en það gerir það
að verkum að kringlan leitar
miklu fyrr niður en ella. Ég
kastaði 60,22 metra og vann, en
um síðustu helgi kastaði ég 62,36
metra á móti í Dallas, og var það
eina mótið þar sem vindurinn var
ekki í bakið á kringlukösturun-
um,“ sagði Óskar. Óskar att kappi
í kúluvarpinu við bezta kúluvarp-
ara Bandaríkjanna í dag, blökku-
manninn Michael Carter. Sigraði
Carter með 20,38 metra kasti, en
Óskar varð í öðru sæti.
„Ég á ennþá í erfiðleikum með
stílinn," sagði Friðrik Þór Ósk-
arsson IR, en hann stundar nám
við sama skóla og Óskar, Univers-
ity of Texas í Austin. „Þjálfararn-
ir hér hafa gert róttækar breyt-
ingar á þrístökksstílnum hjá mér,
látið mig taka upp svokallaða
tvöfalda armsveiflu. Var orðinn
vanafastur og hef átt erfitt með að
ná tökum á nýja stílnum, en nú er
þetta farið að lagast, og á æfing-
um er ég farinn að stökkva lengra
en áður og er því bjartsýnn. Mér
tókst þó ekki upp á mótinu um
helgina, stökk 14,45 metra. Á
æfingu í gær gerði ég þó betur
með aðeins átta skrefa atrennu og
vona því að þetta eigi allt eftir að
koma hjá mér,“ sagði Friðrik.
Friðrik sagði að mótið í Texas
hefði verið mikið umfangs. Kepp-
endur hefðu verið rúmlega 2.000
frá um 200 skólum. Veðurblíða er
mikil hjá þeim félögum, Friðrik og
Óskari, um og yfir 30 stiga hiti
daglega. Óskari hefur verið boðið
að taka þátt í móti í Kaliforníu í
lok mánaðarins, ásamt Hreini
Halldórssyni KR, sem er við
háskólann í Tuscalosa í Alberta,
en óvíst er enn hvort þeir geti
þegið boðið, þar sem mikilvægar
háskólakeppnir fara fram á sömu
helgi. — ágás.
Góður árangur
Kaliforníufara
Sumir islenzku frjálsiþrótta-
mannanna sem æft hafa í Kali-
forníu að undanförnu náðu ágæt-
um árangri á frjálsiþróttamóti i
Los Gatos í Kaliforníu um helg-
ina, settu ýmist persónuleg met
eða náðu sínum næst bezta ár-
angri. og bendir það til þess að
þeir hafi notað tímann vel og
skynsamlega og að enn betri
árangurs sé að vænta þegar þeir
komast i virkilegt keppnisform.
Vésteinn Hafsteinsson KA
bætti enn einu sinni árangur sinn
í kringlukasti, kastaði 51,14
metra. Sigríður Kjartansdóttir
KA jafnaði sinn bezta árangur i
400 metra hlaupi. hljóp á 55,6
sekúndum, sem er 3/10 lakari
árangur en íslandsmet Ingunnar
Einarsdóttur ÍR frá 1977. Sigríði
hefur verið boðin þátttaka i einu
stærsta frjálsíþróttamóti Banda-
rikjanna, Bruce Jenner Classic,
sem senn verður háð i San Jose í
Kaliforniu, og er þess að vænta
að hún bæti árangur sinn þar.
Sigurður Einarsson Ármanni
náði sínum næst bezta árangri í
spjótkasti, kastaði 69,04 metra. í
spjalli við Mbl. í gær kvaðst
Sigurður óánægður með árangur
sinn, atrennubraut hefði verið úr
grasi og hallað upp í mót, auk þess
sem hliðarvindur hefði verið til
trafala. Sigurður á bezt 71,34
metra í spjótkasti. Hefur honum
verið boðið að gerast nemandi við
San Jose State háskólann í haust,
þar sem fyrrum heimsmethafi í
kringlukasti, John Powell, er með-
al þjálfara, og í spjallinu í gær,
sagðist Sigurður hafa mikinn
áhuga á að þiggja það boð.
Á mótinu í Los Gatos náðu
Akureyrarstúlkurnar Dýrfinna
Torfadóttir og Ásgerður Ólafs-
dóttir sínum bezta árangri til
þessa í spjótkasti og kúluvarpi.
Dýrfinna bætti sinn fyrri árangur
um tvo metra er hún kastaði
spjótinu 41,18 metra, en aðeins
íris Grönfeldt UMSB hefur gert
betur, Islandsmet hennar er 44,94
metrar. Ásgerður varpaði kúlunni
10,90 metra, en hefur þó varpað
vel yfir 11 metra á æfingum.
Gunnar Páll Jóakimsson ÍR hljóp
400 metra á mótinu á 50,7 sekúnd-
um, sem er hans næstbezti árang-
ur. Gunnar hefur átt við smávægi-
leg meiðsli að stríða, en er að ná
sér á strik. Aðrir íslendingar
kepptu ekki á mótinu, en um
þessar mundir dveljast tæplega
tveir tugir íslenzkra frjálsíþrótta-
manna við æfingar í Kaliforníu.
— ágás.
Unglingalandsliðið i handknattleik, sem tekur þátt í Norðurlandameistaramótinu i Helsinki dagana
11.—13. april. íslenska liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Markverðir: Sverrir Kristinsson, FH, Gísli Felix
Bjarnason, KR, Sigmar Þ. óskarsson, bór Vestm. Útileikmenn: Valgarð Valgarðsson, FH fyrirl., Hans
Guðmundsson, FH, Kristján Arason, FH, Egill Jóhannesson, Fram, Erlendur Daviðsson, Fram, Brynjar
Stefánsson, Vikingi, Guðmundur Guðmundsson, Víkingi, Gunnar Gunnarsson, Víkingi, Ragnar
Hermannsson, Fylki, Páll Ólafsson, Þrótti, Heimir Karlsson, Víkingi. Þjálfarar: Pétur Jóhannesson,
Jóhann Ingi Gunnarsson.
óskar Jakobsson ÍR að hefja snúninginn i kringlukasti á æfingu á
háskólavellinum i Austin i Texas. Myndina tók skólabróðir hans þar,
þristökkvarinn Friðrik Þór óskarsson ÍR.
Guðsteinn var
bestur allra
AÐ LOKNU hverju keppnistíma-
bili í körfuknattleiknum hefur
verið venja, að þjálfarar, fyrirlið-
ar og liðsstjórar úrvalsdeildarfé-
laganna velji besta lcikmann
mótsins, besta erlenda Ieikmann-
inn, besta dómarann, drengi-
legasta leikmanninn, stigahæsta
leikmanninn og loks bestu víta-
skyttuna. Sjálfskipað er i eitt-
hvað af stöðum þessum, en eftir-
taldir hlutu viðurkenningu.
Guðsteinn Ingimarsson var
kjörinn besti leikmaðurinn, en
Guðsteinn leikur með UMFN. Tim
Dwyer hjá Val var kjörinn besti
erlendi leikmaðurinn og kom varla
annar til greina. Besti dómarinn
var kjörinn Kristbjörn Albertsson
og drengilegasti leikmaðurinn var
kjörinn Jónas Jóhannesson hjá
UMFN. Stigahæsti íslendingur
mótsins var Símon ólafsson hjá
Fram, en hann skoraði 461 stig.
Skammt undan var Kristinn Jör-
undsson hjá ÍR með 457 stig. Loks
var Gunnar Þorvarðarson hjá
UMFN heiðraður fyrir snjalla
vítahittni, en meðaltal hans var
80,2%. Þeir bræðurnir Kristinn og
Jón Jörundssynir komu næstir,
Kristinn með 76,8% og Jón með
73,9%. Það var einmitt Jón sem
var vítakóngurinn í fyrra.
Island rak lestina
íslenska landsliðið í borðtennis
tók þátt í Evrópukeppni lands-
liða í Bern í Sviss. Hafnaði ísland
í neðsta sætinu á mótinu og vann
aðeins einn leik. Tapaði Island
þvi öllum leikjunum nema einum
0—5. Meðal þeirra þjóða ■ sem
íþróttaskóli
íþróttaskóli Sigurðar R. Guð-
mundssonar verður starfræktur í
sumar að Heiðaskóla i Borgar-
firði sem undanfarin sumur og í
júní verða á dagskrá fjögur
vikunámskcið. Tvö þeirra eru
ætluð fötluðum, en hin tvö aldurs-
tóku landann i bakariið voru
Grikkland, Malta, Skotland,
írland og Austurríki.
Annars voru það Sviar sem
urðu Evrópumeistarar, en þeir
báru sigurorð af Vestur—Þjóð-
verjum í úrslitunum.
Sigurðar
flokknum 9—16 ára.
Á daginn eru alls kyns iþróttir
á boðstólum, og á kvöldin eru
fyrirhugaðar kvöldvökur.
Allar nánari upplýsingar eru
veittar í síma 93—2111 milli kl.
17 og 18 alla daga.
Unglingaliðið
tapaði fyrir
Hollendingum
ÍSLENSKA unglingalandsliðið i
handknattleik sem er á leið til
NM unglinga í Helsinki lék I
fyrrakvöld landsleik við A-lið
Hollendinga og tapaði leiknum
20—13. Liðið lék aftur í gær-
kvöldi en ekki tókst að fá fregnir
af þeim leik. Leikir þessir voru
liður í undirbúningi fyrir sjálft
NM-mótið. Það hefst á föstudag
og leikur ísland fyrst við Svía,
siðan á móti Norðmönnum og
Finnum á laugardag og loks við
Dani og Færeyinga á sunnudag.
'JF
'M