Morgunblaðið - 10.04.1980, Side 47

Morgunblaðið - 10.04.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 47 Ekkert Valsmark í 17 mínútur er Haukar lögðu þá að velli HAUKAR slógu Val út úr bikar- keppni HSÍ í gærkvöldi og var þar um undanúrslit að ræða. Verða þetta að teljast óvænt úrslit, því að hlutskipti þessara félaga í vetur hefur verið ólíkt. Þrátt fyrir stórbrotinn árangur Vals í Evrópukeppni meistara- liða, verður að segja eins og er, að keppnistímabilið virðist hafa endað frekar illa og þeir komust langt á öllum vígstöðvum en skorti herslumuninn til þess að hreppa verðlaunin. Ef árangur liðsins væri settur á linurit mætti sjá að um miklar sveiflur er að ræða og hefði sent allt kvikt inn í eilífðina ef um hjartalínurit væri að ræða. En Haukarnir hafa verið furðulegir, lélegir í 1. deild, þar sem þeir sluppu naumlega við fall, en frískir í bikarkeppn- inni, þar sem þeir höfðu áður slegið út íslandsmeistarana sjálfa, Víking. Nú var það Valur sem lá, lokatölurnar urðu 23—21 fyrir Hauka. en staðan i hálfleik var 12-10 fyrir Val. Það benti fátt til þess framan af, að Haukar myndu koma á óvart eins og þeir gerðu. Að vísu voru allar jafnteflistölur upp í 4—4, en þá skildi með liðunum í bili. Náðu Valsmenn 2—3 marka forystu og léku þeir allan fyrri hálfleikinn eins og liðið sem valdið hefur. Staðan í hálfleik var 12—10 og þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, var enn tveggja marka munur, 15—13 fyrir Val. En þá gerðist eitthvað sem erfitt er að skýra, engu var líkara en að Valsmenn væru að fá martröð frá Múnchen, þeir fóru að raða niður vitleysunum, auk þess sem óheppnin elti þá á röndum, þeir gátu ekki vaknað. Haukarnir gengu á lagið, Ólafur Guðjónsson lokaði markinu og hvert markið Haukar — Valur 23:21 rak annað, mörg þeirra úr hraða- upphlaupum. Var oft skelfilegt að sjá hve seinir Valsmenn voru aftur í vörnina eftir að sóknarlota hafði farið fyrir ofan garð og neðan. Það liðu 17 mínútur áður en Valsmenn skoruðu sitt 16. mark, en þá höfðu Haukar dritað niður 7 mörkum í röð og breytt stöðunni úr 13—15 í 20—15. Það voru 8 mínútur eftir þegar Björn Björnsson skoraði 16. mark Vals og á sömu mínútunni brenndi Júlíus Haukamaður af úr víta- kasti. Björn skoraði aftur, 20—17, og allt í einu eygðu Valsmenn von á ný. Þeir freistuðu þess að taka 2—3 Hauka úr umferð í einu, en það mistókst herfilega og fyrir hvert mark sem Valur skoraði það sem eftir var, svöruðu Haukar í sömu mynt, því var sigur liðsins ekki í hættu. Haukarnir voru í raun og veru litlu betri en lengst af í vetur, eini munurinn var, að baráttan var óvenjulega góð þegar vel fór að ganga í síðari hálfleik. Langbestir í liði Hauka voru markvörðurinn Ólafur Guðjónsson og línumaður- inn Ingimar Haraldsson. Ingimar, Real Madrid sigraði 2-0 REAL Madrid tókst að vinna Hamborg S.V. 2—0 á heimavelli fyrir framan 125.000 áhorfendur sem trylltust af fögnuði þegar mörkin voru skoruð. Lið Ham- borg lék varnarleik svo til allan leikinn og vakti það athygli að Keagan var látinn leika mjög aftarlega. Aðeins Hrubesch var hafður frammi. Þetta gekk þang- að til á 66. minútu að Vestur- Þjóðverjinn Stilelke splundraði vörn Hamborgar, gaf laglega á Carlos Santillana sem skoraði glæsilega, og aftur á 79. minútu léku þeir félagar sama leikinn. Leikurinn vakti mikla athygli á Spáni og var sjónvarpað beint. Forest yfir- spilaði Ajax EVRÓPUMEISTARARNIR í knattspyrnu, Nottingham Forest, stefna ótrauðir að því að verja meistaratign sína. I gærkvöldi fengu þeir hollensku meistarana Ajax í heimsókn á City Ground og sigruðu þá næsta örugglega 2—0, eftir að hafa haft yfir 1—0 í hálfleik. Það var enginn annar en milljón punda maðurinn Trev- or Francis sem kom Forest á bragðið með gullfallegu marki á 34. minútu leiksins. Og i siðari hálfleiknum bætti John Roberts- son öðru marki við úr vítaspyrnu sem hann framkvæmdi á 60. minútu leiksins. Leikurinn þótti mjög vel leikinn af hálfu beggja liða. Ajax lék vél framan af eú átti svo í miklum erfiðleikum og að- eins stórleikur Rudi Krol bjargaði liðinu frá því að bíða enn verri ósigur. Besti maður hjá Forest var Trevor Francis, þá átti Robertsson góðan dag. leikmaður sem var furðulítið notaður í Haukaliðinu í vetur, var geysilega sterkur, skoraði drjúgt og fiskaði auk þess fjögur víta- köst, átti stórleik. Júlíus getur einnig vel við unað og Arni Hermannsson skoraði mikilvæg mörk. Bjarni Guðmundsson bar höfuð og herðar yfir leikmenn Vals, einkum þó í fyrri hálfleik, er hann var hreinlega óstöðvandi. Björn Björnsson reif sig upp undir lokin og gerði þá góða hluti, en hefði betur byrjað fyrr. Þá var mesta furða hve Óli Ben. varði, haltrandi upi allt. Má kannski segja, að Valsmenn hafi byrjað 1—2 mörkum undir, með Óla Ben. á einum fæti, Brynjar Kvaran meiddan og ekki með. En það eru ekki alltaf jólin. MÖRK Hauka: Júlíus 8 (3), Hörð- ur 6 (5), Ingimar 3, Árni Her- mannsson 3, Andrés Kristjánsson, Sigurgeir Marteinsson, Guðmund- ur Haraldsson eitt mark hver. MÖRK Vals: Bjarni Guðmundsson 7, Björn Björnsson 5 (2), Jón Karlsson 3, Þorbjörn Guðmunds- son 3 (1), Stefán Gunnarsson 2, Stefán Halldórsson 1 mark. Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson og var dómgæsla þeirra misjöfn nokkuð. Högnuðust Haukarnir á henni ef nokkuð var. — SS Island— Noregur í kvöld ÍSLAND leikur sinn fyrsta leik í Norðurlandamótinu i körfu- knattleik i kvöld, mæta þá lands- Iiði Noregs. Verður fróðlegt að sjá hvernig íslenska liðið gengur á Polar Cup að þessu sinni, en Íiað er mál manna að aldrei hafi sland teflt fram jafn sterku og reynsluríku liði. A.m.k. hefur meðalhæð leikmanna aldrei verið meiri, en fjórir leikmenn íslenska liðsins eru 2 metrar eða meira. • Trevor Francis var vörn Ajax erfiður, en hann skoraði fyrra mark Forest og var óheppinn að bæta ekki fleirum við. • Ingimar Haraldsson átti stórleik fyrir lið sitt Hauka, er liðið lagði Val óvænt að velli í bikarkeppni HSÍ. Komst Haukaliðið þar með í úrslit keppninnar. Evrópukeppni bikarhafa Litlir möguleikar hjá Arsenal Arsenal — Juventus 1-1 (1-1) Lið Arsenal sótti ekki gull í greipar Juventus á heimavelli í gærkvöldi. Jafntefli varð 1—1, en það kom í hlut Juventus að skora bæði mörkin. Cabrini skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu á 11. mínútu, en sjö mínútum fyrir leikslok skoraði svo Roberto Bett- ega sjálfsmark. Lið Juventus lék með aðeins 10 leikmenn frá 33. mínútu leiksins þar sem Marco Tardelli var vísað af leikvelli fyrir gróft brot. Má búast við því að róður Arsenal verði erfiður á Ítalíu í síðari leiknum. Nantes — Valencia 2—1 (1—0) Bikarkeppni Evrópu Franska liðinu Nantes tókst að bera sigurorð af Valencia í Nantes í gærkvöldi. Bruno Baronchelli skoraði bæði mörk Nantes, það fyrra á 36. mínútu og ellefu mínútum fyrir leikslok sigur- markið. Mark Valencia skoraði Mario Kempes snemma í síðari hálfleiknum. (Knattspyrna 1 UEFA-keppnin Mikil barátta hjá v-þýzku liðunum VFB Stuttgart — Boruss- ia Mönchenglad- bach 2-1 (0-0) Á síðustu mínútu leiksins tókst Stuttgart að sigra Borussia sem þó lék öllu betur. Dæmd var vítaspyrna á Borussia þegar tæp mínúta var til leiksloka og úr henni skoraði Volkert af öryggi og sigur var í höfn. Borussia skoraði fyrsta mark leiksins á 75. mínútu og var þar Nickel að verki, en þeim tókst ekki að halda vörninni nægi- lega sterkri og fjórum mínútum fyrir leikslok jafnaði Hermann Hlicher metin með skoti af ör- stuttu færi eftir skalla frá Klotz. Sigurmarkið kom svo úr víta- spyrnu eins og áður sagði. Bayern Miinchen — Eintracht Frankfurt 2-0 (0-0) Þeir Dieter Höness og Paul Breitner skoruðu fyrir lið sitt í gærkvöldi er liðin mættust á heimavelli Bayern. Leikur liðanna var mjög jafn framan af og jafnt var í hálfleik. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn tók Bayern Múnchen leikinn meir og meir í sínar hendur og lék betur. Fyrra markið kom á fimmtu mínútu síðari hálfleiksins, Höness átti ekki í erfiðleikum með að skora eftir varnarmistök hjá Frankfurt. Á 75. mínútu var svo Janzon felldur inni í vítateig af austur- ríska landsliðsmanninum Bruno Pezzey sem leikur með Eintracht og umsvifalaust dæmd vítaspyrna. Paul Breitner framkvæmdi spyrn- una og skoraði með föstu, lágu skoti í bláhornið. í lok leiksins sótti svo Eintracht mjög og aðeins stórgóður leikur markvarðar Bayerns, Walter Junghans, kom í veg fyrir að mark væri skorað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.