Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 93. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Karamanlis hlaut ekki nægt fylgi Aþenu, 23. april. — AP. KONSTANTINE Karamanlis hlaut ekki tilskilinn meirihluta á griska þinginu til að ná kosningu sem forseti Grikklands. Karam- anlis er hinn eini, sem er í kjöri, og til þess að ná kosningu í 1. umferð þurfti hann 200 atkvæði. Karamanlis fékk 179 atkvæði en aðeins 204 þingmenn greiddu atkvæði. Flokkur Andreas Pap- andreou, helsti stjórnarandstöðu flokkurinn, hefur neitað að styðja Karamanlis. Því þarf að kjósa öðru sinni og þá þarf Karamanlis 200 atkvæði. Fái hann þá ekki tilskilin 200 atkvæði verður kosið í þriðja sinn og þá nægja 180 atkvæði til að koma honum í forsetaembættið. Karamanlis var sjálfur ekki viðstaddur kosninguna í dag, hann gekk af fundi þegar gengið var til atkvæða. V-þýzka stjórnin mælti gegn þátt- töku í Moskvu Bonn. 23. april. AP. V-ÞÝZKA stjórnin ákvað á fundi í dag að mælast til þess við v-þýzku ólympiunefndina, að V-Þjóðverjar sendi ekki íþróttafólk á Olympíu- leikana í Moskvu í sumar. V-þýzka þingið samþykkti siðan ákvörðun stjórnarinnar á fundi i dag. Helmut Schmidt kanslari sagði í dag, að ekki væri hægt að aðskilja ólympíuleikana frá þeim atburðum sem hafa átt sér stað, og átti þá við innrás Sovétmanna i Afganistan og ofsóknir sovézkra yfirvalda á hendur andófsmönnum i iandinu. Japanska ólympíunefndin stað- festi í dag að hún væri hlynnt því að Japanir sendu íþróttafólk til Moskvu. Hins vegar hefur engin ákvörðun verið tekin í Japan. Stjórnvöld í Japan eru hlynnt því að Moskvuleikarnir verði hunds- aðir. í Washington höfðuðu 18 bandarískir íþróttamenn mál á hendur bandarísku ólympíunefnd- inni og fóru fram á það, að dómstólar hnekktu úrskurði nefndarinnar. íþróttamennirnir segja, að ólympíunefndin hafi brotið lög á þeim og að nefndin hafi látið undan þrýstingi stjórn- Sigur Bush og Kennedys Flladelflu, 23. april. - AP. EDWARD Kennedy vann sigur á Jimmy Carter í forkosningum í Pennsylvaníu. Hann hlaut 94 kjör- menn en Carter 91. Kennedy fékk 46% atkvæða en Carter 45%. George Bush vann nokkuð óvænt- an sigur yfir Ronald Reagan, hlaut 54% atkvæða en Reagan 45%. Sjá frétt frá Önnu Bjarna- dóttur, fréttaritara Mbl. í Bandaríkjunum, bls. 22. valda um að senda ekki íþróttafólk til Moskvu. Killanin lávarður, forseti al- þjóða ólympíunefndarinnar, bauðst í kvöld til að fara til fundar við þá Jimmy Carter, forseta Bandaríkjanna, og Leonid Brezh- nev, forseta Sovétríkjanna, ef með því mætti koma í veg fyrir, að Ólympíuleikarnir i Moskvu verði aðeins svipur hjá sjón. Ljóem. Mbl. RAX Bandaríkin fagna refsi- aðgerðum EBE-ríkjanna WashinKton. Teheran, 23. apríl. AP. JIMMY Carter, forseti Bandaríkjanna, fagnaði í dag ákvörðun Efnahags- bandalagsríkjanna um að ípa til refsiaðgerða gegn ran. Jody Powell, biaða- fulltrúi forsetans, sagði að Jimmy Carter myndi hugsan- lega grípa til þess ráðs að stöðva matvæla- og lyf jasend- gr Irt ingar til írans. Mark Mac- Guigan, utanríkisráðherra Kanada, tilkynnti í dag, að Kanada hefði ákveðið að frípa til refsiaðgerða gegn ran. Hann átti fund með Cyrus Vance, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í Ott- awa í dag. Japanska stjórnin mun hafa fund á morgun, og þá væntanlega taka ákvörun S-Arabar reka brezka sendiherrann úr landi Riyadh, Lundúnum. 23. april — AP. SAUDI-ARABÍSK stjórnvöld ráku í dag brezka sendiherrann í Riyadh, höfuðborg S-Arabíu, úr landi og kölluðu sendiherra sinn í Lundúnum heim. Þessar ráð- stafanir koma í kjölfar sýningar umdeildrar myndar, „Dauða prinsessu“, sem ATV-sjónvarps- stöðin brezka gerði og var sýnd fyrir skömmu í Bretlandi. Taismaður s-arabískra stjórn- valda sagði í dag í Riyadh, að nú væri í athugun að endurskoða efnahagsleg tengsl S-Arabíu við Bretland. Mohammed Yamani, upplýsingamálaráðherra S-Arab- íu, sagði í dag, að til þessara ráðstafana hefði verið gripið vegna „neikvæðrar afstöðu brezku stjórnarinnar vegna sjónvarps- myndarinnar". Saudi-Arabar hafa sagt, að myndin afskræmi þjóðfé- lag þeirra í augum Vesturlanda- búa og að menning þeirra og lög séu gerð villimannleg. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins brezka harmaði í dag þessa ákvörðun Saudi-Araba og sagði það óheppilegt, að samskiptum ríkjanna tveggja skyldi spillt með mynd, sem brezka stjórnin stæði á engan hátt fyrir og hefði ekki getað komið í veg fyrir, að yrði sýnd brezkum almenningi. um refsiaðgerðir gegn íran. TASS-fréttastofan skýrði frá því í dag, að Sovétríkin og íran myndu taka upp nánari efnahagssamvinnu. Frétta- stofan hafði eftir Mohammed Beheshti, en hann á sæti í bytlingarráðinu, að refsiað- gerðir EBE-ríkjanna hefðu ekki komið á óvart. „Komm- únistaríkin ásamt þróun- arríkjum hafa sýnt, að þau eru reiðubúin að styðja íran. Samningaviðræður okkar við Sovétmenn, sem undanfarið hafa farið fram í Teheran, eru dæmi um þann stuðning," hafði fréttastofan eftir Be- heshti. Kínverska fréttastof- an Xhinhua skýrði frá því í dag, að Sovétríkin og íran hefðu gert með sér samkomu- lag, sem kvæði á um náin efnahagsleg tengsl ríkjanna. Tilkynnt var í Teheran í dag, að íran hefði tekið upp stjórnmálasamband við S— Yemen en þar hafa Sovét- menn sterk ítök. Valery Gis- card dEstaing, Frakklands- forseti, átti í dag viðræður við ættingja gíslanna í banda- ríska sendiráðinu. Frakk- landsforseti ræddi við þá í klukkustund og þykir það sýna, að honum sé umhugað um lausn málsins. Rúmenar sækja ekki Parísar- ráðstefnuna Búkarest, 23. aprtl. — AP. RÚMENAR höfnuðu i dag boði um að sækja ráðstefnu kommún- istaflokka Evrópu, sem fram fer i Paris i næstu viku. Þar með gengu Rúmenar í lið með komm- únistaflokkum Júgóslavíu, ítaliu og Spánar en þeir hafa allir hafnað þátttöku i Parisarráð- stefnunni. í bréfi, sem var sent til komm- únistaflokks Póllands, sagði að ráðstefnan væri ekki „nægilega vel undirbúin". Kommúnistaflokk- ar Frakklands og Póllands gang- ast fyrir ráðstefnunni í París.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.